Morgunblaðið - 31.07.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JtJLl 1974
13
Mama Cass látin
London 30. júlí — AP
EINN af fremstu sjúkdóma-
fræðingum Bretlands, prðfess-
or Keith Simpson, vildi ekki f
dag skera úr um dánarorsök
hinnar heimsfrægu bandarísku
The Mamas and the Papas:
Mama Cass er önnur frá vinstri.
poppsöngkonu „Mama“ Cass
Elliot, en söngkonan fannst lát-
in f rúmi sfnu f fbúð f London f
gærkvöldi. Hann sagði þð, að
hún virtist ekki hafa dáið af
eðlilegum orsökum. Mama
Cass, eins og hún var oftast
kölluð eftir að hún náði frægð
sem söngkona í flokknum „The
Mamas and the Papas“, var 33
ára að aldri.
□ Mama Cass hafði nýlokið
hljðmleikahaldi á frægum
skemmtistað, London Palla-
dioum, og hvfldist f London,
áður en halda skyldi f hljðm-
leikaferð um England. Um-
boðsmaður hennar og félagar
sögðu á blaðamannafundi f
gærkvöldi, að hún virtist aldrei
hafa verið hamingjusamari,
hún hefði verið ánægð eftir vel-
heppnaðar skemmtanir f Lond-
on Palladium. Helzta einkenni
Mama Cass, fyrir utan hina
mjúku söngrödd, var grfðarlegt
umfang hennar, en hún vð 238
pund.
Læknir söngkonunnar sagði í
dag: „Ég held, að krufning
muni leiða í ljós, að hún hafi
kafnað af samloku, þar sem
hún lá í rúminu og kyngt eigin
ælu.“ Við rúm söngkonunnar
fannst skinkusamloka og gos-
drykkjaflaska. Hins vegar sagði
læknirinn, að hann gæti ekki
útilokað hjartaslag, þar eð hún
hafi verið kona í góðum hold-
um. Krufning fer fram á morg-
un, miðvikudag. Mama Cass
hafði að undanförnu verið í
ströngum megrunarkúr og tek-
izt að grenna sig verulega.
Hún varð frægasti liðsmaður
söngflokksins „The Mamas and
the Papas“, sem náðu heims-
frægð með lögum eins og
„Monday, Monday", „California
Dreaming" og mörgum fleirum.
Er þau hættu samvinnu árið
1968, hélt Mama Cass áfram að
koma fram á eigin spýtur og
gekk býsna vel, bæði í sjón-
varpsþáttum og á skemmtistöð-
um. Hún tók holdafari sínu létt
og skopaðist að því, ef svo bar
undir. „Þannig get ég skorið
mig úr fjöldanum", sagði hún
eitt sinn.
Hér sést einn starfsmanna Bandarfkjaþings halda á loft lista yfir atkvæðagreiðslu þingmanna f
dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar, er meirihluti nefndarmanna hafði samþykkt fyrsta ákæruatriði
gegn Nixon Bandarfkjaforseta, en þessi atkvæðagreiðsla kann að Ieiða til þess, að rfkisréttur verði settur
yfir forsetanum fyrir þátttöku hans í Watergate-hneykslinu og skyldum málum. 1 bakgrunni eru nokkrir
nefndarmanna.
Karpov og Korchnoi eigast við
Fjölgun
flóttamanna
frá Kína
Hong Kong 30. júlf — AP.
FLOTTAMÖNNUM frá Kfna í
Hong Kong hefur fjölgað um allt
að 35% f ár og er talið, að um
17.415 flóttamenn hafi náð að
flýja til Hong Kong fyrstu sjö
mánuði ársins 1974, að þvf er
heimildir innan lögreglunnar
hermdu f dag. Flestir flótta-
mannanna koma sjóleiðina, — á
fiskibátum og smákænum að
vetrarlagi, en frá miðjum aprfl-
mánuði hafa margir lagt sig f
hættu við að synda allt að 10
mflna leið, þrátt fyrir
hákarlaplágu þar um slóðir.
Þrátt fyrir að þetta fólk sé
handtekið sem ólöglegir inn-
flytjendur, er það aðeins forms-
atriði. Næstum þvf allir flótta-
menn frá Kína fá að vera áfram í
Hong Kong eftir yfirheyrslur.
Ofannefnd tala flóttamanna er
fengin með því að fjórfalda tölu
þeirra flóttamanna sem hand-
teknir eru, því að lögreglan lítur
svo á, að fyrir hvern einn sem
næst f, þá sleppi aðrir fjórir inn í
landið óséðir. Auk þess deyr
fjöldi manna á flóttanum árlega.
Moskvu 30. júlí — NTB
UNDANURSLIT heimsmeistara-
einvfgisins f skák á næsta ári
hefjast f Moskvu 15. september
milli sovézku stórmeistaranna
Anatoly Karpov og Viktor
Korchnoi. Sá sem vinnur það ein-
vfgi hlýtur sfðan rétt til einvfgis-
ins við heimsmeistarann, Bobby
Fischer, næsta sumar. Hins vegar
er enn óvfst, hvort Fischer muni
verja titilinn, vegna deilna um
leikreglur einvfgisins. Ef Fischer
neitar þátttöku, mun sigurvegari
einvfgisins f Moskvu verða sjálf-
krafa nýr heimsmeistari. Karpov
komst f undanúrslitin með þvf að
sigra Boris Spassky, fyrrverandi
heimsmeistara, en Korchnoi með
þvf að sigra Tigran Petrosjan.
Einvfgisskákirnar i Moskvu eru
allt að 24, en sá, sem fyrstur fær
fimm vinninga, er sigurvegari. Ef
hvorugur hefur hlotið fimm
vinninga eftir 24 skákir, er sá
sigurvegari, sem flestar skákir
hefur unnið. En hins vegar
vinningatalan er jöfn, er dregið
um hvor keppenda er sigurvegari.
Korchnoi
Vasco Goncalves
Guineu-Bissau lofað
sjálfstæði fjótlega
Lissabon 30. júlí, — NTB.
VASCO Goncalves, hinn nýi for-
sætisráðherra Portúgals, sagði f
dag, að nýlendan Guinea-Bissau
hlyti algert sjálfstæði mjög fljót-
Iega. Kom þetta loforð fram f
viðtaii f blaðinu Diario de Notic-
ias f Lissabon. Stjórnmála-
flokkarnir, sem sæti eiga f sam-
steypustjórninni, undirbjuggu í
dag mikinn útifund við forseta-
höllina til þess að sýna ánægju
þeirra með yfirlýsingu Spinola
forseta um, að nýlendurnar þrjár,
sem Portúgalar eiga f Afrfku,
Guinea-Bissau, Mosambique og
Angóla, muni hljóta fullt sjálf-
stæði. Telja stjórnmálaskýrend-
ur, að þessi yfirlýsing, svo og út-
nefning Goncalves f forsætisráð-
herraembættið, hafi verið stórt
spor f þá átt að draga úr klofn-
ingnum f portúgölsku þjóðlffi.
Goncalves var framarlega f flokki
liðsforingja þeirra, sem stóðu að
byltingunni gegn stjórn Marcello
Caetano.
Goncalves sagði í viðtalinu, að
erfiðara væri að ganga frá sjálf-
stæði Angóla en Guinea-Bissau,
en bætti þvf við, að of mikið hefði
verið gert úr þeim vandamálum,
sem af þessu stöfuðu fyrir hvíta
minnihlutann í landinu. Sagði
hann, að Portúgalar væru með
tillögur til lausnar þvf máli, en
einnig þyrfti að koma til skiln-
ingur frelsishreyfinganna.
Goncalves sagði Portúgala vilja
skapa samfélag í Afríku, þar sem
allir væru jafnréttháir, burt séð
frá kynþætti, stjórnmálaskoð-
unum eða trúarbrögðum.
Angóla þokaðist í gær í átt til
sjálfstæðis, er frelsishreyfingarn-
ar fengu þátttökurétt I bráða-
birgðastjórn.
Deilt um fundarsköp í Caracas er ræða
átti vinnuskjal íslands og ríkjanna átta
Caracas 30. júlí.
ÓVENJULEGAR deilur urðu um
fundarsköp á allsherjarfundi haf-
réttarráðstefnunnar f gærmorg-
un, þegar vinnuskjal Islands og
átta annarra rfkja skyldi rætt.
Komu fram mótmæli og var sagt,
að skjalið ætti að réttu lagi heima
f nefnd. Amerasinghe forseti ráð-
stefnunnar úrskurðaði fram-
lagninguna löglega, en það var
vefengt og fór fram atkvæða-
greiðsla. Var forsetaúrskurður
þar staðfestur með 50 atkvæðum
gegn 38, en 39 sátu hjá og aðrir
voru fjarstaddir samkvæmt upp-
lýsingum Þórs Vilhjálmssonar.
Þegar Kanada og Chile höfðu
talað og fulltrúar annarra
flutningsrfkja ætluðu að halda
ræður, var því mótmælt, að fleiri
töluðu, og að tilmælum forseta
munu hin rfkin sjö flytja ræður
sfnar f annarri nefnd og ef til vill
tala lfka f þriðju nefnd.
Vinnuskjalið var fyrst lagt fram
s.l. föstudag, en það er flutt af
Kanada, Chile, Indlandi,
Indonesíu, Mauritius, Mexíko,
Nýja-Sjálandi og Noregi, auk
íslands. Er skjalið frumdrög að
samningsgreinum um landhelgi,
eyrfki, eyjaklasa, sem eru hluti
strandrikis, auðlindasvæði, öðru
nafni efnahagslögsögu, iand-
grunn. I kaflanum um eyrfki seg-
ir, að draga megi beinar grunnlín-
ur milli yztu eyja og skerja og
eyríkið ráði innhafinu og fái að
auki landhelgi og auðlindasvæði.
1 kaflanum um auðlindasvæði
segir meðal annars: „Á svæði,
sem liggur utan við, en að land-
helginni, og nefnist auðlinda-
svæði, skal strandríki hvarvetna
hafa:
(a) Fullveldisréttindi til að
kanna og nýta auðlindir, hvort
sem þær geta endurnýjast eða
ekki, á sjávarbotni, í jarðdjúpinu
og sjónum þar yfir;
(b) önnur réttindi og skyldur
tilgreind i þessum greinum
varðandi vernd og viðhaid haf-
hverfisins og frarm&xaeBnid
vfsindarannsókna... “
Þá segir í kaflanmm, að
auðlindasvaNM skuli f nnesta lagi
Framhald á bls. 35