Morgunblaðið - 16.10.1974, Síða 22

Morgunblaðið - 16.10.1974, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÖBER 1974 Móðir mín, ANNA ÁRNADÓTTIR, Sólvangi, Hafnarfirði, lézt mánudaginn 7. okt. sl. Útför hennar fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn 18 okt kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á liknarstofnan- ir. Helga M. Wilson. Eiginmaður minn og faðir okkar, BJARNI SIGURÐUR JÓHANNESSON, Brúnalandi 5 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. október kl 10,30 Helga Pétursdóttir og börn. t ' Útför HALLSTEINS HINRIKSSONAR, íþróttakennara, Hafnarfirði, er andaðist 10. okt. sl., fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 1 7. okt. kl. 2 e.h. Fyrir hönd vandamanna, Ingibjörg Árnadóttir. t Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUOLAUGAR MARÍU HJARTARDÓTTUR, Gnoðarvog 1 8, ferfram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 1 8. okt. kl. 3 e.h. Soffía Thorarensen, Gunnlaugur Arnórsson, Valdimar Thorarensen, Ingibjörg Óskarsdóttir, Sunna Thorarensen og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðarför eiginkonu minnar. móður, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR HELGUJÓNSDÓTTUR, Vesturbrún 1 4. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans fyrir góða umönn- un. Skarphéðinn Pálsson, Herdfs Skarphéðinsdóttir, Gunnar Gunnarsson og barnabörn. Sonurokkarog bróðir KJARTAN HALLDÓR BJÖRNSSON, Sæviðarsundi 74, sem lézt 1 0. okt. sl. verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju, fimmtu- daginn 1 7. þ.m, kl. 1 3.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Sigrfður Kjartansdóttir, Björn Kristmundsson, og dætur. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa SIGFÚSAR KRÖYER Stigahlíð 14. Dfana Karlsdóttir, Þorvaldur Kröyer. Guðný Kröyer, Jóhann Antoníusson, Elín Kröyer, Kristinn Arason. Ásta Kröyer, Höskuldur Erlendsson. og barnabörn. t Útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu LOUISE LÚÐVfGSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 1 7. okt. kl. 1 30 e.h Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar er bent á llknarsjóðs Oddfellow stúkunnar nr. 10 Þorfinnur karlsefni, eða aðrar Ifknarstofnanir. Minningarkortin fást I Blóm og Grænmeti, Skólavörðustig 3 A Sveinn Ásmundsson, Ljósheimum 20, Jóhann Sveinsson, Ellen Sveinsdóttir, Ástvaldur Kristmundsson, og barnaböm. Guðrún Kristjáns- dóttir - Minningarorð F. 6. ágúst 1892. D. 8. okt. 1974. í dag miðvikudag 16. okt. er til moldar borin frá Þjóðkirkjunni I Hafnarfirði móðursystir mín Guðrún Kristjánsdóttir, sem andaðist 8. okt. á St. Jóseps- spítala, 82 ára að aldri. Guðrún ólst upp í stórum systk- inahópi, var ein af níu börnum þeirra hjóna Pálínu Egilsdóttur og Kristjáns Guðnasonar sjó- manns f Hafnarfirði, sem upp komust. Af þeim systkinum eru enn á lífi Þóra og Þórlaug, Haraldur verkstjóri, öll búsett f Hafnar- firði, einnig Guðni, sem ungur fór til Kanada. Guðrún giftist árið 1915 Jóni Jóhannessyni, sem lengst af var bræðslumaður á togaranum Maf frá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Þau eignuðust átta börn, en eina dóttur átti Guðrún áður en hún giftist. Ártð 1918 fór Guðrún að Garða- brekku á Snæfellsnesi til tengda- foreldra sinna. Þar var hún um tíma meðan maður hennar var til sjós hér syðra. Vegna veikinda varð Guðrún að fara hingað suður og leita sér lækninga og skildi þá fjögur börn sín eftir á Snæfells- nesi og voru þau tekin þar í fóstur af góðu fólki og 3 alin þar upp að öllu leyti. Jón og Guðrún settust að í Hafnarfirði og bjuggu þar til SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég er kristinn, en ég hef litla löngun til að lesa Bibifuna. Predikari nokkur sagði, að ef svona væri komið fyrir okkur, væri vafasamt, hvort við værum kristin. Getið þér útskýrt fyrir mér, hvers vegna ég er svona slakur f trúariðkunum mfnum? Jafnvel þótt við séum trúuð, verðum við að glæða hjá okkur löngunina til að lesa orð Guðs. Kristilegur þroski kemur ekki allt í einu. Látið ekki hugfallast vegna orða prestsins. Það má vera, að hann hafi haft allt annað í huga en þér gefið í skyn. Löngunin til að lesa orð Guðs er ein sönnunin fyrir kristnu trúarlífi, en af því má ekki draga þá ályktun, að menn þurfi að efast um sáluhjálp sína, þótt fyrir kunni að koma, að einn og einn dagur falli úr, án þess að þeim hafi gefist tækifæri til að lesa í Biblíunni. Það er gagnlegt að setja sér fastar reglur um trúariðkanir sínar. Mér finnst bezt að eiga hljóða stund, áður en ég fer út úr herbergi mínu til þess að borða morgunverð. Ef ég bíð þangað til síðar, getur svo farið, að annað hindri. En við þurfum ekki að binda guðræknisstundir okkar við sérstakan tíma og stað. Þér getið beðið til Guðs, meðan þér bíðið eftir leigubíl, meðan þér bíðið eftir landssímanum eða hvenær sem þér eigið eitthvert hlé frá daglegu amstri. Kristnum manni gefst enginn tími til að láta sér leiðast, þvi að hverja frístund getur hann notað til samfélags við Guð eða til að lesa orð hans. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við fráfall móður okkar og greftrun foreldra okkar, KRISTBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR OG BENEDIKTS KRISTJÁNSSONAR frá Þverá í Axarfirði. Börn, tengdabörn _____ og barnabörn. t Þökkum innilega vináttu og auð- sýnda samúð vegna andláts, BENEDIKTS GÍSLASONAR frá Miðgarði. Aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og fósturbróð- ur, SIGURÐARÁRNASONAR frá Hemru, Laufásveg 18. Áslaug og Árni Kr. Árnason °9 Guðrún Einarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför sonar okkar og bróður, ÓLAFS DANÍELSSONAR. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Árnadóttir og Daniel Ólafsson, frá Tröllatungu, systkini og aðrir vandamenn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns GUOMUNDAR B. ÞORLÁKSSONAR, Flateyri. Fyrir hönd foreldra, barna, barnabarna og systkina hins látna, Ólafta Hagalínsdóttir. ársins 1950, að þau slitu samvist- ir. Það, sem sérstaklega einkenndi Guðrjínu, var trygglyndi og greiðasemi. Hún var ekki allra, en sannur vinur vina sinna og þá helzt ef hún gat veitt þeim aðstoð í erfiðleikum þeirra. Gjafmildi hennar var viðbrugðið. Hún haf ði yndi af að gefa, sama hver í hlut átti. Alltaf var hún tilbúin að miðla öðrum af þvi litla, sem hún hafði handa á milli. Þótt ævi Guðrúnar hafi ekki verið neinn dans á rósum og hún oftast verið fátæk af þessa heims gæðum, þá átti hún því láni að fagna að eignast góð börn, sem sýndu henni ávallt mikla um- hyggju. Á sínum efri árum fór Guðrún nokkrum sinnum til Kaliforníu og dvaldist þar hjá dóttur og tengda- syni í góðu yfirlæti. Þar stóð henni til boða heimili og öll að- hlynning, sem hægt var að veita. En börn, systkini og annað venzla- fólk átti hún hér heima á Islandi og hún kaus að eyða síðustu árun- um hér. Börn hennar sáu um, að hún gat átt áhyggjulausa elli á heimili sínu Öldugötu 7, Hafnar- firði, þar til heilsan bilaði fyrir 2 árum og hún fór á St. Jóseps- spítala. Börn Guðrúnar eru: Laufey Karlsdóttir, gift Gunnari Asgeirs- syni, búsett á Akranesi. Gyða, gift Róbert Jónssyni, Reykjavík. Kjartan vélstjóri, Ólafsvík, kvæntur norskri konu. Eyþór, húsvörður Hafnarf., kvæntur Þuríði Jóhannsdóttur. Kristján, bifvélav. Hafnarfirði, kvæntur Sóleyju Þorsteinsdóttur. Jó- hannes, ókvæntur, búsettur f Kaliforníu. Valgerður, gift Lawrence Lalaguna, Kaliforníu. Páll, bifvélav., einnig búsettur í Kaliforníu, kvæntur Ástrfði Jónsdóttur. Kristínu dóttur sína missti Guðrún árið 1954. Barna- börn áttí hún 26 og 29 barna- barnabörn, svo afkemendur henn- ar eru yfir 60. öll börn hennar verða við útför hennar f dag. Þau, sem búsett eru erlendis, komu í sumar til að kveðja móður sína þegar vitað var, að hún átti skammt eftir ólifað og þau koma aftur nú til að vera við útför hennar. Ég vil þakka Guðrúnu móður- systur minni fyrir alla góðvild, sem hún sýndi mér frá því fyrst ég man eftir mér. Alla tíð hef ég skoðað hennar heimili sem mitt annað og hvergi kunnað betur við mig f æsku en í hennar stóra barnahóp. Hafðu þökk fyrir allt. Margrét. Afmælis- og minning- argreinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á f miðvikudagsblaði, að berast f sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Grein'ar mega ekki vera f sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.