Morgunblaðið - 20.10.1974, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1974
35
Jóhannes Jónsson
vélstjóri -Minning
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg hef safnað öllum spurningum > ðar og svörum. En nú vil
ég bera upp eina spurningu sjáifur. Ég er ellefu ára gamall.
Ég á tvær systur og einn bróður — og við erum alltaf f
áfiogum! Ég er alltaf f miðjum slagnum! Stundum langar mig
helzt til þess að fara að heiman. Hvað finnst yður, ég ætti að
gera?
Kæri ellefu ára vinur!
Þú mátt fyrir alla muni ekki fara að heiman.
Heimurinn er fullur af baráttu og hættum, en hér er
mikill munur á: Þeir, sem berjast við þig heima,
elska þig og munu ekki leyfa öðrum að skerða hár á
höfði þínu.
Pústrarnir, sem þú færð, eru flestir sprottnir af
kærleika. Öðru hverju verða sumir heldur harðhent-
ir við þig, en yfirleitt býr í hjörtum heimilismanna
ást, umhyggja og viðkvæmni, þrátt fyrir áflog og
högg.
Eg á sjálfur tvo drengi. Þeir kljást við og við. En ef
einhver dólgur kemur og ætlar að berja á öðrum
þeirra, þá snúast þeir báðir til varnar og spara ekki
kraftana. Átök í heimilum eru eðlilegur hlutur, og
við erum öll innst inni metnaðargjörn og meira og
minna eigingjörn. En þegar við förum að treysta
Kristi, þá lærum við að gefa og taka og smám saman
lærum við að hemja eigingirnina og förum að hugsa
um aðra.
Ef þú færir að heiman — og ég spái því, að þú gerir
það ekki — þá mundir þú einskis fremur sakna en
áflogana við systkini þín. Svo mjög mundir þú sakna
þeirra, að þú óskaðir þess, að þú værir aftur kominn
„í miðjan slaginn“!
Fæddur4. ágúst 1917.
Dáinn 28. marz 1974.
Jóhannes Jónsson vélstjóri frá
Hnffsdal lézt á Landakotsspftala
s.l. vor, hinn 28. marz, eftir
skamma en þunga legu, aðeins 57
ára að aldri.
Jóhannes var glæsilegur maður,
gjörvulegur á vöxt og vel byggð-
ur, starfsmaður hinn bezti, góður
félagi og vinur vina sinna. Hann
hafði orðið fyrir miklum áföllum
og reynslu í lífinu, en bar þó ekki
utan á sér harma sína og raunir,
heldur reyndi að vera glaður, þar
sem hann var 1 félagsskap eða
starfaði. Þá var hann orðheppinn
og létti mörgum skap í umhverfi
sínu. Hann hafði frá bernsku ver-
ið hraustur fram á sfðustu miss-
eri, en þá tók hann þann sjiíkdóm,
sem dró hann til dauða á skömm-
um tíma. Við þennan sjúkdóm
barðist hann af miklu þreki og
vissi enginn, hvað sú barátta
reyndi á andlegt þrek hans, því að
hann stundaði vinnu, svo að segja
fram á sfðustu stund og þar til
yfir lauk, hinn 28. marz 1974.
Jóhannes var fæddur I Hnífs-
dal, 4. ágúst 1917. Foreldrar hans
voru hjónin Aðalbjörg Öladóttir
og Jón Jóhannesson, er þar
bjuggu. En meðan Jóhannes var
en í frumbernsku, missti hann
föður sinn. Var hann sjómaður og
fórst í ofviðri af vélskipinu
Eggert Ólafssyni frá Isafirði.
Nokkru síðar fluttist Aðalbjörg til
Isafjarðar, og þar ólst Jóhannes
upp hjá móður sinni.
Um tvítugsaldur fluttist
Jóhannes til Reykjavíkur og lærði
þar járnsmfði í Vélsmiðju
Kristjáns Gíslasonar, en fór því
næst í Vélstjóraskólann og tók
þar próf. Eftir það hóf hann vél-
stjórn og var á togurum í mörg ár,
en hætti síðar sökum veikinda
konu sinnar og hafði upp frá því
störf í landi.
Hinn 24. ágúst 1944 kvæntist
Jóhannes unnustu sinni, önnu
Jónasdóttur. En sambúð þeirra
varð aðeins ellefu ár. Hún lézt 28.
október 1955. Þau eignuðust eina
dóttur, Elfnu að nafni.
Jóhannes kvæntist öðru sinni
tveimur árum síðar, hinn 19.
Fæddur 28. júlf, 1906,
Dáinn 1. júlf, 1974.
Fáein kveðjuorð vil ég nú að
leiðarlokum senda Þorvaldi, bróð-
ur mínum.
1 hugann þyrpast minningar frá
okkar góóa og elskulega bernsku-
heimili að Görðum á Álftanesi,
þar sem við ólumst upp í stórum
systkinahópi í skjóli góðra, vand-
aðra foreldra, þeirra séra Árna
prófasts Björnssonar og Líneyjar
Sigurjónsdóttur frá Laxamýri,
sem allt vildu fyrir börn sín gera.
Ég minnist þess, hvað ég á þeim
árum, leit upp til Þorvalds bróður
míns, sem svo margt var vel gefið.
Söngröddin var frábær og ótaldar
ánægjustundirnar, er æfð voru af
kappi hin fegurstu lög. Þorvaldur
fór á unglingsárum f söngnám til
Sigurðar Birkis inn i Reykjavík,
og kom heim með nýjar nótna-
bækur og nýjar útsetningar á
ýmsum einsöngslögum. Þegar
heim kom, var farið að æfa. Oft
kom það í minn hlut að spila
undir fyrir hann á gamla heimilis-
orgelið, og allir á heimilinu fylgd-
ust með af áhuga og gleði, hversu
miklum framförum Þorvaldurtók
í söng sínum. Það voru góðar og
glaðar stundir. — Þorvaldur var
skáldmæltur vel, og oft las hann
mér ljóð sín, sem ég man að mörg
voru skemmtileg og að minu viti
býsna góð. Hagur var hann við
smíðar; allt slíkt lék i höndum
hans.
desember 1957. — Hún hét
Hildur Hallsdóttir. Eignuðust þau
tvær dætur, er heita Anna Halla
og Aóalbjörg. Þær eru báðar við
skólarám. En það fór á sömu lund
og fyrr, að Jóhannes missti síðari
konu sína á miðjum aldri frá ung-
um dætrum þeirra. Hún lézt 6.
ágúst 1971.
Það voru mikii áföll fyrir
Jóhannes að missa konur sínar á
bezta aldri frá ungum dætrum
þeirra.
En Jóhannes reyndi að vinna
börnum sínum það, sem hann
mátti til hinztu stundar. Áður en
Jóhannes kvæntist, eignaðist
hann son, er heitir Erling og er
vélsmiður.
Jóhannes Jónsson vann í mörg
ár hjá Loftleiðum og var þar til
dauðadags. Hann var mikill
starfsmaður, og margur leitaði til
hans til hjálpar, og i engu brást
Jóhannes því, er hann gat leyst af
hendi. Þótti gott með honum að
vera, bæði í starfi og félagsskap.
Hann var þátttakandi í ýmsum
málefnum og lagði jafnan gott til,
er tækifæri gafst. Jóhannes var
tryggur vinur vina sinna í raun.
Og þeir eru margir, sem kveðja
með hlýjum huga þennan dreng-
lynda myndarmann, sem hvarf af
sviðinu fyrir aldur fram.
Vinur.
Þorvaldur var manna friðastur
sýnum og það svo að athygli vakti.
Hann gekk menntaveginn, eins og
þeir allir fimm bræðurnir. Hann
sigldi til náms í tannlækningum
og vann síðan að tannsmíðum, er
heim kom.
Þorvaldur kvæntist Kristinu
Sigurðardóttur frá Eystri-Tungu í
Vestur-Landeyjum. Foreldrar
hennar voru Sigurður Guðnason
ogGuðrún Andrésdóttir.
Þorvaldur og Kristin bjuggu að
Sogavegi 44 í Reykjavík og eign-
uðust tvo syni, Þorvald og Árna,
sem nú eru uppkomnir menn.
Þann fyrsta júlí siðastliðinn
varð Þorvaldur bráðkvaddur á
heimili sínu. Það er ævinlega
snöggt fyrir þá, sem eftir lifa, og
eins og högg fyrir brjóstið þegar
andlát ber að höndum með slíkum
hætti. En þess er vert að minnast,
að sá sem þannig er kallaður inn f
nýja tilveru, losnar þá um leið við
veikinda-baráttu, sem undanfara
hjúpaskiptanna.
Eg veit, að nú hefur bróðir
minn að nýju mætt kærum og
góðum ástvinum, sem á undan
voru farnir, og nú blasa við ný
viðhorf og viðfangsefni. Ég veit,
að hlýjar hugsanir systkina hans,
er eftir lifa, eiginkonu hans, sona
og annarra ástvina og vina, berast
til hans á öldum ljósvakans. Við
þökkum honum öll fyrir sam-
fylgdina, fyrir allt gott frá liðnum
árum.
Samhuga biðjum við honum
Hartling hylltur
Peking, 18. október. AP.
POUL Hartling, forsætisráðherra
Dana, var innilega hylltur af
nokkur þúsund Kfnverjum þegar
hann kom til Peking í dag í opin-
bera heimsókn að sögn kínversku
fréttastofunnar.
blessunar Guðs á brautum eilífa
lífsins. Þorvaldur var uppalinn í
trú og trausti á föðurforsjón Guðs
— og það var hans lífs-akkeri.
Ég vil að lokum taka hér upp
eitt erindi úr kveðjuljóði, er hann
orti sjálfur:
Við kveðjum þig klökkum
með huga,
við kveðjum með söknuð
í hjarta.
Við minningamynd þina geymum,
svo milda og skínandi bjarta.
Megi nú Guð gefa mínum kæra
bróður raun lofi betri.
Sigurlaug Árnadóttir.
fRúr0jjnMaM&
mRRCFRLDnR
mÖCULEIKR VÐRR
BÍ flyzt á Skóla-
vörðustíg 12
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands
hefur undanfarin ár haft skrif-
stofu á Vesturgötu 25 í Reykjavík.
Fyrir skömmu fluttist félagið það-
an og hefur nú fengið inni í hús-
inu Skólavörðustígur 12. Er skrif-
stofa þess á 4. hæð.
Novosti-
áróðri
mótmælt
Kaupmannahöfn,
18. október. AP.
SÉNDIHÉRRA Israels f Dan-
mörku, Moshe Leshem, mótmælti
1 dag við danska utanrfkisráðu-
neytið meintum áróðri gegn Gyð-
ingum á kaupstefnu, sem Rússar
halda þessa dagana f Kaupmanna-
höfn.
Hann afhenti eintak af bækl-
ingi, „Rangfærslur zionista“, sem
er útgefin af fréttastofunni No-
vosti f Moskvu og útbýtt ókeypis
meðal gesta á kaupstefnunni.
Leshem bað ráðuneytið að hlutast
til um að dreifingin yrði stöðvuð.
Danskir sérfræðingar veittu
aðstandendum sýningarinnar
tæknileg ráð og leiðbeiningar
áður en hún var opnuð.
Talsmaður ráðuneytisins sagði,
að dönsk yfirvöld gætu ekki haft
eftirlit með dreifingu ritaðs máls
á erlendum kaupstefnum. Þó
kvað hann „mjög óvenjulegt" að
kaupstefna væri notuð til hug-
sjónafræðilegs áróðurs.
Enn þegja
NTB-fjarritarar
EINS OG fram kom I frétt Mbl. f
gær hefur NTB-fréttastofan gert
kröfu um að fá greiddar 700 þús-
und krónur til viðbótar þeirri
greiðslu, sem fjármálaráðuneytið
hefur þegar innt af hendi, áður
en fréttasendingar hefjast að
nýju til Islands. Reikningur sá, er
greiddur hefur verið, var fyrir
tfmabilið 1. janúar 1972 til 31.
maf 1974 og nam 4,5 milljónum
króna. 700 þúsund krónurnar eru
fyrir tfmabilið frá 1. júní til
lokunardags sendistöðvarinnar f
Jelöy f Noregi.
Þessar viðbótarkröfur NTB
hafa ekki verið greiddar og því
þegja enn allir NTB-fjarritarar á
íslandi og í Færeyjum. Til þess að
fjármálaráðuneytið geti greitt
þennan viðbótarreikning, verður
að koma til samþykki ríkisstjórn-
ar íslands. 1 gær hafði ríkisstjórn-
in ekki fjallað um þessa viðbótar-
kröfu fréttastofunnar.
TOGVÍRAR:
Eigum fyrirliggjandi togvíra í eftirtöldum sver-
leikum:
12 mm — 14 mm — 16 mm — 18 mm —
20 mm — 22 mm og 24 mm í mörgum
lengdum.
LANDFESTATÓG:
Fyrirliggjandi fléttað landfestatóg í sverleik-
unum 40 mm — 44 mm — 48 mm og 52
mm.
Eigum einnig fyrirliggjandi TERYLENE tóg í sverleik-
um 8 mm — 14 mm og 1 8 mm.
Tryggvagata 10 Simi 21915-21286
P.O Box 5030 Reykjavík
Þorvaldur Arnason
— Minningarorð