Morgunblaðið - 29.11.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.11.1974, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1974 Eftirlit með fiíkalvfjum í mjólk á Suður- og Vesturlandi, Eyjafirði og Neskaupstað Ekki skipulegt eftirlit annars staðar „ALLT frá því penicillínið upp- götvaðist ! seinni heimsstyrjöld- inni, hefur fjöldi skyldra lyfja komið á markaðinn og gjörbreytt aðstöðu læknavísindanna f barátt- unni við skæða smitsjúkdóma. Ekki er vafi á, að notkun fúka- lyfja hefur stórbætt heilsufar búpenings og við iblöndun þeirra í fóður aukið arðsemi landbúnað- arins. Aukin notkun þeirra hefur aftur á móti skapað alvarlegt vandamál fyrir mjólkuriðnaðinn og neytendur mjólkur." Þannig hefst bréf um notkun fúkalyfja, sem Mjólkursamsalan i Reykjavik hefur sent mjólkur- framleiðendum. Rétt er að geta þess að þarna mun átt vió aukna arðsemi unggrísa og kjúklinga. En af gefnu tilefni hóf Mjólkur- samsalan á árinu 1967, undir for- ustu Guðbrands Hlíðar dýralækn- is, eftirlit með fúkalyfjum í mjólk þeirri, sem þangað barst. Var eft- irlitið aukið og sett í kerfi, og hefur náðst sá árangur, að nú finnst aðeins vottur af fúka- lyfjum i 1,30—1,60% af sýnunum á móti 3,72% í upphafi. Eru þessi sýni nú tekin einu sinni í mánuði hjá hverjum bónda, án þess að hann geti vitað hvenær það er gert. Einnig vikulega af tankbíla- mjólkinni og daglega af geril- sneyddri mjólk í stöðinni. Þetta gildir á svæði Mjólkur- samsölunnar, sem nær yfir Gull- bringu- og Kjósarsýsiu og 4 hreppa Borgarfjarðarsýslu, — og selur mjólk á þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa. Ennfremur hefur Guðbrandur Hliðar sams konar eftirlit með fúkalyfjum i mjólk á öllu Vesturlandi, nema norðan fjalla á Snæfellsnesi og Dala- sýslu. Og við þetta bætist að í Mjólkurbúi Flóamanna, sem tek ur mjólk af öllu Suðurlandi, er nú komið á samskonar fúkalyfjaeft- irlit undir stjórn Gunnars Finn- laugssonar. Kveðst hann að með- altali einu sinni í mánuði rann- saka sýni frá hverjum bæ og á hverju kvöldi af öllum mjólkur- tönkum, enda þurfi að vita að morgni, hvort mjólkin er laus við fúkalyf vegna skyrgerðar o.fl., en það finnst sárasjaldan. Er þá strax talað við viðkomandi bónda. Guðbrandur Hliðar, sem hefur veitt okkur upplýsingar í þessa grein, sagði að áþekkt eftirlit væri rekið af Mjólkursamlagi KEA i Eyjafirði, en þar er ungur maður, sem kynnti sér fyrirkomu- lag á eftirlitinu í Reykjavík. Og á litlu búi á Neskaupsstað er mánað arlegt eftirlit framkvæmt á mjólkinni og útvegar Mjólkur- samsalan í Reykjavík það, sem til þess þarf. Á árinu 1973 mun því láta nærri að um 70% af allri mjólk sé komið undir eftirlit hvað fúka- lyfjainnihald snertir, þ.e. öll mjólk á Suðurlandi, Vesturlandi að Dalasýslu, allur Eyjafjörður og Norðfjörður að auki. Annars stað- ar er enn ekki hægt að ganga úr skugga um hvort í mjólkinni sé eitthvað af fúkalyfjum, þar sem önnur bú hafa ekki skipulegar fúkalyfjarannsóknir. Mjólkurbú- in eru yfirleitt lítil, gerilsneyða oft aðeins mjólk fyrir sitt kaup- tún og hafa ekki aðstöðu til ann- ars en að fylgjast með flokkun mjólkur og fitumagni, raunar varla hægt að ætlazt til þess. — Þarna erum við í íslenzkri sjálfheldu með okkar litlu mjólk- urbú, eins og Guðbrandur orðaði það. En við hér í Mjólkursamsöl- unni styðjum við bakið á þeim, sem vilja til okkar leita, bætti hann við. En nú er að koma til ný aðferð, sem allir ættu að geta not- að jafnvel í litilli rannsóknastofu. Þar má lesa svarið um fúkalyfja- innihald eftir 2'A til 3 tíma. Er þetta alveg ný aðferð, kemur frá Hollandi og er varla komin í not t.d. á Norðurlöndum. Svo e.t.v. getur þetta staðið til bóta áður en langt um líður. Dýralæknarnir gætu að sjálf- sögðu mælt fúkalyfjainnihald mjólkurinnar, ef þeir hefðu tæki og tíma. En þeir eru fáir og hafa gríðarstórum héruðum að sinna. Utilokað er því að þeir geti sjálfir sett upp nauðsynlega rannsóknar- stofu og unnið rannsóknirnar. En þeir gætu að sjálfsögðu skipulagt slíkt eftirlit, ef þess væri óskað. 1 Danmörku og Bandaríkjunum verða dýralæknar sjálfir að gefa fúkalyfin, en hér er slíkt illfram- kvæmanlegt. Samt sem áður stendur í reglu- gerð um mjólk og mjólkurvör- ur: „Óheimilt er að selja eða bjóða til sölu mjólk úr kúm, sem við eru notuð lyf, sem borist geta í mjólk og spillt henni.“ En þar er ekki tiltekið hve mikið magn fúkalyfja megi vera í mjólkinni. I fyrrnefndu bréfi til mjólkurfram- leiðenda frá Mjólkursamsölunni Guðbrandur Hlfðar með tilrauna- diska, þar sem prófuð er mjólk með tilliti til fúkkalyfja. Sé fúka- lyf ! mjólkinni breiðist hún út fyrir blettinn. um notkun fúkalyfja segir m.a.: „Þegar fúkalyf eru notuð gegn júgurbólgu finnst oft í nokkurn tima á eftir mælanlegt magn þeirra í mjólkinni, nægilega mik- ið til þess að hindra eðlilegan vöxt mjólkursýrugerla, en það getur leitt til örðugleika við gerð osta, sýrðrar mjólkur, skýrs og getur einnig spillt eðlilegu bragði smjörs. Mjög lítið magn fúkalyfs i mjólk getur einnig leitt til of- næmis neitenda hennar, það lýsir sér sem lost, er getur jafnvel leitt til dauða.“ Og við þetta mætti bæta, sem kannski er ekki síður alvarlegt, að sú búbót, sem lækn- unum lagðist með fúkalyfjum í baráttu við lifshættulega sjúk- dóma, er að engu gerð, ef fólk er gert ónæmt fyrir þeim með stöð- ugri mötun þessara efna i fæðu að nauðsynjalausu. Þá eru þessi lyf ónothæf, þegar á ríður að grípa þarf til þeirra við sjúkdómum, e.t.v. í lífsháska. Mikil mjólkurmagn þarf til þess að þynna fúkalyf í mjólk svo mik- ið, að fúkalyfsmagnið verki ekki truflandi á vöxt mjólkursýru- gerla, enda ljóst þar sem t.d. peni- cillín, í styrkleika 0.05 einingar í Guðbrandur við nýtt gerlarannsóknatæki, þar sem á svipstundu má lesa af tölu um fjölda gerlanna í sýninu og sjá það á sjónvarpsskermi við hliðina á tækinu. ml. mjólkur, truflar eðlilegan vöxt þeirra, segir í aðvörunar- bréfi Mjólkursamsölunnar. Mjólk úr einum spena með fúkalyfi í, getur þannig hindrað vöxt mjólk- ursýrugerla i 1000 lítrum af mjólk, ef slík mjólk væri send í mjólkurbú fyrstu 2 daga eftir að- gerð. Einu gildir hvort fúkalyf er notað til inngjafar, sett í leg, dælt í hold eða sett í júgur, það berst með blóðinu í júgrið og þaðan í mjólkina. A hverri öskju með fúkalyfi til notkunar við júgur- bólgu á að vera álímdur miði með aðvörun um að blanda ekki mjólk úr júgurhluta, sem er undir að- gerð, í sölumjólk fyrr en i fyrsta lagi fjórum sólarhringum eftir síðustu lyfjagjöf. Ætti því öllum bændum að vera þetta fullljóst. Auk þess hafa þeir fengið aðvör- unarbréf og málið verið kynnt á ýmsa lund. Guðbrandur hefur t.d. að kosnaðarlausu farið hvert sem óskað hefur verið eftir á bæna- fundi, til að ræða júgurbólgu og notkun fúkalyfja og sýnt myndir til skýringar. En hvar liggja þá erfiðleikarn- ir? 1 júgurbólgunni, sem talið er að sé á um 50% sveitabýlum og hefur valdið mjólkurframleiðend- um miklum áföllum. Ekki aðeins er dýrt að hella niður á stóru kúabúi mjólkinni, sem kannski er eina tekjulind bóndans, heldur getur júgurbólga líka eyðilagt svo vissan hluta af júgrinu, að aldrei fáist fullnaðarnyt úr kúnni. Með tilkomu fúkalyfjanna kom mikil- vægt hjálparmeðal í baráttunni við júgurbólguna. Nú geta bænd- ur fengið hjá sinum dýralækni eða sendar frá honum túbur, þar sem sem lyfinu er blandað í smyrslagrunn og geta þeir sjálfir auðveldlega sprautað spenann. En þá verður um leið að treysta á samviskusemi þeirra og þegn- skap, að alls ekki geti komið fyrir að þeir láti mjólk frá þeirri kú fara saman við aðra mjólk og á markað fyrr en 4 dögum eftir að fúkalyfið er gefið, sem sýnilega kemur þó fyrir, þar sem fúkalyf hafa fundist í mjólkinni Þegar það kemur fyrir, t.d. í mjólk til Mjólkursamsölunnar, og finnst í sýni frá einhverjum bónda, fær hann aðvörunarorðsendingu. En engin viðurlög eru við því að gera slíkt. Danir og Bandarikjamenn beita verðfellingu, ef slíkt kemur fyrir. Og Hollendingar eru svo strangir, að ef mælanlegt magn af fúkalyfj- um finnst í mjólk frá búi, þá fær bóndinn fyrst verulega sekt og siðan er mjólk hans verðfelld i ákveðinn tíma. Hér er ekki beitt viðurlögum, aðeins aðvörun. Stöku framleiðandi veit kannski ekki hvað í húfi er og jafnvel kemur fyrir að aðrir mjalta ef bóndinn fer i kaupstað og vita hugsanlega ekki um júgurbólgu- aðgerðir á stöku kú. En viðurlög hafa erlendis gefist vel til að koma í veg fyrir slíkt, þvi alltaf er drjúgt það, sem við pyngjuna kemur. Markmiðið hlýtur að vera að stefna að þvi að útiloka öll fúkalyf úrsölumjólk. Guðbrandur Hlíðar dýralæknir hefur með höndum júgurbólgu- rannsóknir fyrir allt landið. Og geta allir dýralæknar sent honum sýni. Eru þá sendar þar til gerðar öskjur með sýnishornaglösum, sem menn geta sjálfir mjólkað í. Og þegar í rannsóknastofuna er komið, eru júgurbólgugerlar greindir á sama hátt og gert er annars staðar í heiminum. Mjólk- ursamsalan hefur líka sent bænd- um, sem vilja sjálfir gera júgur- bólguprófun, spjöld með gulum deplum og leiðbeiningum um notkun. Urhverjumspenaerþá mjólkurbuna látin falla á einn slíkan blett, örkin þurrkuð og lit- urinn á blettunum segir til um hvort júgurbólgugerlar eru fyrir hendi. Sýklar valda júgurbólgu og er því hætta á að smit breiðist í aðrar kýr. Þvi ber að einangra kýr sýktar af júgurbólgu og leita ráða dýralæknis. Og að sjálfsögðu má ekki selja mjólk úr slíkum kúm. Ekki er hægt að útrýma alveg júgurbólgunni, því gerlarnir lifa góðu lifi í óhreinindum í fjósinu og utan á spenahúðinni, en það er hægt að halda henni niðri. Ymis- legt er til þess gert til að koma i veg fyrir að sýklarnir berist. T.d. er borið sótthreinsandi efni á spenana eftir mjaltir og nú er farið að nota pappirsþurrkur, þar sem hver þurrka er aðeins notuó einu sinni á júgur, í stað klútanna er 'áður voru notaðir á hverja kúna á fætur annarri og báru sýklana á milli júgra. Dýralæknar hafa eftirlit meó fjósunum og framkvæma kúa- og fjósaskoðun einu sinni á ári. Þeir benda þá á það, sem miður fer, og veita kúaskoðunarvottorð í mörg- um liðum. Og með niðurstöðu, sem er: ágætt — gott — þolanlegt — óviðunandi. Sé ástandið ekki gott, fæst bráðabirgðavottorð. Síð- an skoðar dýralæknirinn aftur, en sem lokaráð getur héraðsdýra- læknir með samþykkt yfirdýra- læknis úrskurðað lokun fjóssins. Einnig eru 6 tæknilegir ráðunaut- ar starfandi á vegum mjólkurbúa, sem fylgjast með mjaltavélunum, sem stundum valda júgurbólgu ef þær eru i ólagi. Þeir ferðast á milli, gera við vélarnar, stilla þær og geta tekið sýni. Og þeir veita ráðgjafaþjónustu. Júgurbólgan er mikill vágestur á búunum og hefur valdið miklu fjárhagslegu tjóni. Einn bóndi, Guðmundur á Skálpastöðum, sem hefur 65 kýr, hefur sagt frá þvi, að hann hafi líklega orðið fyrir 150 þús kr. tjóni á ári 1967 og 1968 vegna júgurbólgunnar, bæði vegna lyfjakaupa og gripa, sem hann þurfti að lóga. En með þess- um aðgerðum tókst honum að halda júgurbólgunni niðri. Guð- brandur Hlíðar segir, að þegar hann rannsakar hjá honum núna, finnist i hæsta lagi vottur júgur- bólgu í 3—4 spenum. Vegna hins mikla skaða, sem bændur verða fyrir, er þeir þurfa að hella nióur mjólkinni vegna fúkalyfjagjafar, ætti helzt að nota fúkalyfin i geldstöðu kúnna og er það ráðlagt. Þá hættir júgurbólg- unni til að brjótast út, og ef fúka- lyf eru gefin, verka þau í 6 vikur. Það fer i vöxt að menn geri þetta. Það er dýrt. Þó er dýrara að þurfa kannski að lóga 6—7 vetra kú, þegar hún ætti að vera að komast i hæztu nyt, en nær þvi aldrei vegna júgurbólgu. Takmarkið hlýtur að vera, að mjólk sé algerlega fúkalyfjalaus, segir í samþykkt frá WHO, alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, og að því marki hljótum við hér á Islandi að keppa. Guðbrandur Hlíðar telur, að varla verði hægt á hans svæði að ná fúkalyfjamagn- inu neðar en nú er, þ.e. 1,3—1,6% af sýnum, meðan ekki er beitt viðurlögum. En þar, hjá Mjólkur- samsölunni í Reykjavík, hefur fyrir frumkvæði og dugnað Guð- brands, tekist að ná þessum góða árangri. Opinbert eftirlit með mjólk hefur verió framkvæmt í Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, þar sem gerlarannsókn fer fram á sýnum. En nú telur sú stofnun ekki að hún geti sinnt þessu lengur og hefur sagt upp samningum um það frá áramót- um. En að sjálfsögðu þarf opin- bert eftirlitmeðþessusemöðru hversu góðir sem starfsmenn mjólkuriðnaðarins eru. Þeir geta aldrei orðið hinn hlutiausi eftir- litsaðili sem veitir tryggingu. Nú er farið að tala um að koma upp Framhald á bls. 32

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.