Morgunblaðið - 04.02.1975, Qupperneq 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
28. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Lokatilraunin hjá
Hartling og Jörg-
ensen í Danmörku
TONTINI PESCA ítalski frystitogarinn var í gær færður til hafnar í New York,
eftir að bandarisk strandgæzluskip ákærði skipstjórann um að hafa veitt friðaðar
fisktegundir á sérstöku svæði, sem Bandaríkjamenn friðuðu í desember sl. Var
togarinn um 220 mílur SA af New York, er menn af strandgæzluskipi voru sendir
um borð til að kanna aflann og fundu þeir m.a. 18 kg af nýfrystum humri. Verði
skipstjórinn fundinn sekur á hann á hættu allt að eins árs fangelsi, 100 þúsund
dollara sekt og skip og veiðarfæri gerð upptæk. Hér sést togarinn í New York.
Kissinger með tillögu um
tryggt lágmarksverð á olíu
Kaupmannahöfn 3. febrúar
Einkaskeyti til Mbl.
fráGunnari Rytgaard.
Stjórnarmyndunarviðræðurnar
I Danmörku undir forystu Karls
Skytte, formanns þjóðþingsins,
Heath
spáð
sigri
London 3. febrúar Reuter
—AP—NTB.
(Sjá grein á bls. 10)
t KVÖLD var talið nær öruggt, að
Edward Heath myndi sigra i kjör-
inu um leiðtogaembætti íhalds-
flokksins. Skoðanakannanir
meðal stuðningsmanna thalds-
flokksins sýndu, að um 70% vildu
að Heath yrði áfram leiðtogi. Það
eru þingmenn flokksins 276 að
tölu, sem einir fá að greiða at-
kvæði, en þeir verða að taka tillit
til vilja kjósenda sinna.
Umrædd skoðanakönnun var
gerð fyrir framkvæmdanefnd
flokksins og lögð fyrir flokksleið-
togana í dag. Er hún mikill sigur
fyrir Heath og talið víst, að hann
muni sigra þegar við fyrstu at-
kvæðagreiðslu, en skv. flokks-
reglunum verður sigurvegari í
leiótogakjörinu að fá 15% fleiri
atkvæði en næsti maður í fyrstu
atkvæðagreiðslu. Helztu keppi-
nautar Heath eru frú Margrét
Thatcher og Hugh Fraser..
komust loks á lokastig síðdegis f
dag, er Skytte frestaði fundi til
morguns tii að gefa leiðtogum
jafnaðarmanna og Venstre tæki-
færi til að ræða einslega mögu-
leika á samstarfsgrundvelli þess-
ara tveggja flokka. Þetta er gert
með tilliti til óska Venstre um að
ekki verði einblfnt á tilraunir til
myndunar stjórnar á breiðum
grundvelli, heldur einnig kann-
aðir möguleikar á hugsanlegri
borgaralegri stjórn með meiri-
hluta á bak við sig.
Karl Skytte gerði frétta-
mönnum í dag grein fyrir helztu
ágreiningsefnum jafnaðarmanna
og Venstre i efnahagsmálum og
tillögum flokkanna í þeim efnum.
I sparnaðartillögum Venstre er
gert ráð fyrir 7 milljarða króna
halla á fjárlögum en í tillögum
jafnaðarmanna er reiknað með
11—12 milljarða halla. Hins vegar
miða tillögur jafnaðarmanna að
þvi að minnka atvinnuleysi en ef
atvinnuleysi eykst eða minnkar
um 1% í Danmörku hefur það
tekjubreytingu í för með sér fyrir
ríkið upp á 450 milljónir. Leiðtog-
ar Venstre eru andvigir auknum
halla á rikisbúskapnum, þvi þeir
segja, að Danir geti ekki tekið
meiri erlend lán til að fleyta sér
áfram. Þetta eru ágreiningsatrið-
in, sem þessir tveir flokkar eru nú
að reyna að leysa og er ógern-
ingur að spá um hvað úr verður.
Hléið á viðræðunum var gert að
tillögu leiðtoga íhaldsmanna og
Kristilega þjóðarflokksins.
Nái þeir ekki samstöðu er rætt
um möguleikana á stjórn allra
flokka, þar sem forsætisráðherr-
ann yrði hvorki frá jafnaðar-
mönnum né Venstre, en þessir
flokkar eiga erfitt með að koma
sér saman um forsætisráðherra-
efnió og kemur þá nafn Skyttes
mjög oft upp.
Washington 3. febrúar
Reuter AP—NTB.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna skýrði frá
því f ræðu f bandarfska blaða-
mannaklúbbnum f Washington f
dag, að Bandaríkjamenn myndu á
miðvikudag leggja fram á fundi
forstjóra Alþjóða orkumálastofn-
unarinnar í París tillögu um
tryggt lágmarksverð á olíu, sem
yrði talsvert lægra en gildandi
heimsmarkaðsverð f dag, til að
vernda fjárfestingu í framleiðslu
annarra orkugjafa. Tillaga þessi
setur olfuframleiðslurfkjunum
þá kosti, að þau fallist á lægra
verð í dag og fái þá tryggingu
fyrir að það haldist, eða hætti á
stórfellt verðfall, er leiðir til ann-
arrar orkuframleiðslu hafa verið
fullkomnaðar.
Kissinger sagði, að það eitt gæti
verndað iðnaðarþjóðir heims frá
nýju oliubanni, að þau legðust á
eitt um að draga úr oliunotkun og
gripu til annarra orkulinda. t.d.
kola, tjörusands, oliujarðvegs,
framleiðslu gasefna og fljótandi
gass úr kolum, kjarnorku og
sólarorku. Hann sagði, að nýting
slíkra orkulinda hefði í för með
sér stórlækkað verð á olíu, sam-
fara minnkandi eftirspurn. Ödýr
innflutt olía gæti þá stofnað i
hættu fjárfestingu i hinum nýja
orkulindum og slíkt yrði að koma
i veg fyrir.
Kissinger sagði, að olíuneyzlu-
ríkin yrðu að aðstoða oliuíram-
leiðsluríkin við að fjárfesta olíu-
gróðann i nýjum iðngreinum, sem
myndu tryggja efnahag oliufram-
leiðslurikjanna, er oliulindirnar
væru til þurrðar gengnar. Einnig
að aðstoða fátæku þjóðirnar, sem
verst hafa orðið úti af völdum
olíuverðshækkunarinnar. Hann
varaði einnig við að ný tilraun til
að nota oliuna sem vopn hefði
alvarlegar afleiðingar i för með
sér fyrir iðnaðarþjóðirnar og
kippti grundvellinum undan
samstarfsmöguleikum þeirra og
olíuframleiðsluríkjanna. Sam-
komulag um langtímaverðlag
á olíu væri lífsnauðsynlegt fyrir
báða aðilja.
Enn loft-
árásir á
Eritreu
Addis Abeba, Eþíópíu
3. febr. Reuter — NTB.
EÞlÓPlSKAR sprengjuþotur
héldu í dag áfram loftárásum á
skotmörk I útjaðri Asmara,
höfuðborgar Eritreu, og á þeim
slóðum geisuðu harðir bardagar
milli stjórnarhermanna og
uppreisnarmanna. Hermdu
áreiðanlegar heimildir, að
uppreisnarmenn hcfðu skotið
niður eina af sprengjuþotunum.
Heimildir í Asmara herma, að
70 manns hafi fallið i bardögum
yfir helgina, flestir í loftárásum
Eþíópiuhers, þar sem tvö þorp i
Framhald á bls. 34
Hreyfing í einvígismálinu — Fischer
vill Manila en Karpov kýs Mílanó
„EG tel nú nær fullvfst, að
aukaþing FIDE verði haldið í
næsta mánuði, annaðhvort f
Amsterdam eða Caracas, til að
fjalla um ágreining FIDE og
Bobby Fischers um fyrirkomu-
lag heimsmeistaraeinvfgisins f
skák,“ sagði Fred Cramer, vara-
forseti bandarfska skáksam-
bandsins i samtali við Mbl. f
gær.
Mbl. hafði samband við
Cramer eftir að fréttir höfðu
borizt um það frá aðalstöðvum
FIDE í Amsterdam, að Fischer
hefði tilkynnt FIDE, að ef af
einvfginu yrði, myndi hann
vilja tefla í Manila á Filipseyj-
um, þar'sem stjórnvöld hafa
tryggt 5 milljónir dollara f
verðlaunafé, en Karpov til-
kynnti, að hann kysi Mflanó á
Italfu, þar sem 440 þúsund
dollarar eru f boði. Stjórn
FIDE kemur saman 17. febrúar
til að taka ákvörðun um
staðarval.
Mbl. spurði Cramer, hvaða
iíkur hann teldi nú á þvf, að
einvfgið færi fram og hann
svaraði: „Það má nú heita full-
vfst, að aukaþingið verði hald-
ið, en beiðni 14 hluta allra
meðlima FIDE þarf til að fá
slíkt aukaþing haldið og þeir
eru fyrir hendi. Það er formað-
ur skákambands Filipseyja,
Camponanes, sem hefur haft
forgöngu f þessu máli ásamt
Tudele, formanni skáksam-
bands Venezúela. Við teljum
vfst, að þingið muni samþykkja
kröfur Fischers um breytingu á
reglunum, ef það verður haldið
f Caracas, eins og við vonum,
því að þar myndu stuðnings-
menn Fischers verða f meiri-
hluta. Verði aukaþingið hins
vegar haldið í Amsterdam, tel
ég að ekki takist að ná þangað
nægilega mörgum stuðnings-
mönnum Fischers til að fá
breytinguna samþykkta."
— Hver ákveður staðinn?
„Það verður dr. Max Euwe,
forseti FIDE, og á ég frekar
von á þvf að hann velji Caracas,
ég held að hann geri sér orðið
grein fyrir þvf, að einvígi væri
lftils virði án þátttöku Fischers
svo og framtfð skáklistarinnar.
Sem kunnugt er greinir
Fischer og FIDE á um skáka-
f jöldann f einvíginu. FIDE vill
hafa 36 skáka hámarksf jölda og
að sá sigri, er fyrstur verði til
að fá 9 vinninga og jafntefli
ekki meðtalin. Fischer vill hins
vegar hafa ótakmarkaðan
skákafjölda, en sömu vinnings-
tölu til sigurs."
Aðspurður um hvenær mætti
vænta, að ljóst yrði hvar auka-
þingið yrði haldið, sagði
Cramer, að það myndi koma
fram á næstu vikum.
5 milljón dollara verðlaun 1 boði á Manila