Morgunblaðið - 04.02.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.02.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975 þessu sinni úthlutaði nefndin 13 milljónum króna, en f fyrra voru 10 milljónir til skiptanna. Sjö menn, sem áður hafa ekki fengið laun úr efri flokki lista- mannaiauna fá þau nú. Þeir eru: Agúst Fr. Petersen, list- málari, Björn J. Blöndal, rit- höfundur, Guðmundur L. Frið- finnsson, rithöfundur, Hall- grfmur Helgason, tónskáld, Jón Asgeirsson, tónskáid, og Vetur- liði Gunnarsson, listmálari. Sjö, sem áður hafa ekki hlotið listamannalaun, fá þau f ár. Þeir eru: Gunnar Þórðar- son, tónlistarmaður, Ingimar Eriendur Sigurðsson, rithöf- undur, Jakob Hafstein, list- málari, Jón E. Guðmundsson, myndlistarmaður og leikbrúðu- smiður, Magnús Jónsson, óperusöngvari, Matthea Jóns- dóttir, listmálari, og Þráinn Karisson, leikari. í ár fá 63 listamenn laun úr efri flokki, 150 þúsund krónur hver, og 50 úr neðri flokki, 75 þúsund krónur hver. I fyrra hlutu 60 laun úr efri flokki, 120 þúsund krónur hver, og 47 úr neðri flokki, þar sem upphæðin var 60 þúsund krónur. A fundi, sem úthlutunar- nefnd listamanna hélt með fréttamönnum í gær, kom fram, að hefð er orðin, að þeir, sem einu sinni eru komnir í efri flokkinn, fá laun úr honum síðan, en jafnan verða nokkur umskipti í neðri flokknum. Þannig fékk 21 listamaður laun úr neðri flokki í fyrra, af þeim 50, sem laun hljóta í ár. Sjö listamenn hljóta nú lista- mannalaun í fyrsta sinn. Þeir eru: Gunnar Þórðarson, tón- listarmaður, Ingimar Erlendur Guðmundur L. Friðfinnsson Hallgrfmur Helgason Jón Asgeirsson Vesturliði Gunnarsson Agúst Fr. Petersen Listamannalaunum úthlutað: Sjö nýir í efri flokki Guðbergur Bergsson Sigurðsson, rithöfundur, Jakob Hafstein, listmálari, Jón E. Guðmundsson, leikmynda- teiknari, Magnús Jónsson, óperusöngvari, Matthea Jóns- dóttir, listmálari, og Þráinn Karlsson, leikari. Á fundinum í gær óskaði Sverrir Hólmarsson að taka fram, að eining hefði ekki verið innan nefndarinnar í atkvæða- greiðslu um laun til Jakobs Hafstein og sagðist hann harma, að nefndin skyldi vera notuð I pólitísku útspili, eins og hann orðaði það, í deilu um Kjarvalsstaði, - - sérstaklega þar sem maður frá borgar- stjórnarmeirihlutanum ætti sæti í úthlutunarnefnd. Olafur B. Thors sagði m.a., að þetta væri furðulega ósmekk- leg athugasemd, sem ætti við engin rök að styðjast. Furðu- legt væri að gera þessa athuga- semd á fundi með frétta- mönnum, þar sem Sverrir hefði ekki komið fram með þetta sjónarmið á fundum néfndar- innar. Hann sagði ennfremur fráleitt, að Jakob Hafstein ætti að gjalda þess eða njóta á nokk- urn hátt í þessari úthlutun, að hann væri aðili að deilunni um Kjarvalsstaði. Hjörtur Kristmundsson benti á, að Eyborg Guðmundsdóttir og Kjartan Guðjónsson, list- málarar, sem bæði hefðu tekið beinan þátt í deilunni um Kjarvalsstaði, fengju bæði listamannalaun, en samkvæmt kenningu Sverris, hefðu hvor- ugt átt að koma til greina við úthlutun. Helgi Sæmundsson sagðist álíta, að flokkspólitísk sjónar- mið væru alls ekki svo ráðandi I úthlutunarnefndinni, eins og margir vildu vera láta, og enn síður í ár en endranær. Benti hann á, að yfir 20 af þeim 50, sem fá laun úr neðri flokknum, hefðu að þessu sinni hlotið atkvæði allra nefndarmanna. 1 úthlutunarnefnd lista- mannalauna eiga sæti: Halldór Kristjánsson, formaður, Jón R. Hjálmarsson, skólastjóri, ritari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Hjörtur Kristmundsson, fyrr- um skólastjóri, Magnús Þórðar- son, framkvæmdastjóri, Olafur B. Thors, lögfræðingur, og Sverrir Hólmarsson, mennta- skólakennari. Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem hlotið hafa listamannalaun að þessu sinr.i: Aður veitt af Alþingi 350 þús- und krónur hver: Asmundur Sveinsson, Brynjólf- ur Jóhannesson, Finnur Jóns- son, Guðmundur Daníelsson, Guðmundur G. Hagalín, Gunnar Gunnarsson, Halldór Laxness, Indriði G. Þorsteins- son, Kristmann Guðmundsson, Ríkharður Jónsson, Tómas Guð- mundsson, Þorvaldur Skúlason. Veitt af nefndinni, 150 þúsund krónur: Agnar Þórðarson, Ágúst Fr. Petersen, Ármann Kr. Einars- son, Árni Kristjánsson, Björn J. Blöndal, Björn Ólafsson, Bragi Ásgeirsson, Eiríkur Smith, Elínborg Lárusdóttir, Guðberg- ur Bergsson, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur L. Friðfinnsson, Guðmundur Frí- Framhald á bls. 34 UTHLUTUNARNEFND lista- mannalauna lauk störfum f gær. 125 listamenn njóta launa f ár, en þar af veitir Alþingi laun 12 mönnum, og fær hver þeirra 350 þúsund krónur. Að Björn J. Blöndal Uthlutunarnefnd listamannalauna (talið frá vinstri): Magnús Þórðarson, Ólafur B. Thors, Hjörtur Kristmundsson, Halldór Kristjánsson, formaður nefndarinnar, Helgi Sæmundsson og Sverrir Hólm- arsson. A myndina vantar Jón R. Hjálmarsson. Ný og fullkomin verbúð í Ólafsvík Ölafsvík 3. feb. 1. FEB. s.l. var tekið f notkun nýtt og glæsilegt húsnæði fyrir vertfðarfólk I Ólafsvfk. í bygging- unni, sem er um 100 fm að flatar- máli auk tveggja stigahúsa og fbúðar húsvarðar, eru 38 tveggja manna herbergi, sem nú eru full- gerð ásamt hreinlætis- og snyrti- aðstöðu svo og setu- og sjónvarps- stofu. Auk þess eru á hæðinni matsalur og eldhús fyrir væntan- legt mötuneyti ásamt þjónustu- húsnæði. Þeir þættir starfseminn- ar verða væntanlega teknir í notk- un I júnf n.k. Gert er ráð fyrir, að á sumrin verði ferðafólki seld gisting I helmingi húsnæðisins aðskildum frá hinum. Einnig verði þá eldhús og matsalur notuð til greiðasölu. Byggingin er við aðalgötu kaup- túnsins, skammt frá höfninni með mjög góðu útsýni annars vegar yfir byggðina og hins vegar yfir höfnina. Aðdragandi að byggingu þessa myndarlega húss var með þeim hætti að undanfarin ár hafa verið gífurleg vandræði með að hýsa vertíðarfólk, bæði sjómenn og landverkamenn. Hefur fjöldi aðkomufólks stundum komizt hátt í 200 og hefði jafnvel þurft enn fleiri til þess að nytja mætti með góðu móti afla vaxandi út- gerðar í Ólafsvík. Var þá tekið til bragðs að stofna fyrirtækið Sjó- búðir h.f. og var það gert 8. júlí 1972. Að stofnun þess stóðu allir eigendur stærri báta svo og allar fiskvinnslustöðvarnar, Hrað- frystihús Ólafsvíkur, Hrói h.f. og Barki s.f. Byggingarframkvæmdir hófust síðan í maí 1973. Arkitekt er Rögnvaldur Johnsen, verkfræð- ingur Jón Bergs og rafmagns- teikningar annaðist Stefán Þor- steinsson. Byggingarmeistari var Vigfús Vigfússon, Ölafsvík, múr- arameistari Hallgrimur Hall- grimsson og raflagnir önnuðust Jón og Trausti s.f., Ólafsvík, pípu- lagnir Enok Tomsen og málara- meistari var Sævar Þór Jónsson. Flísalagnir annaðist Marteinn Davíðsson listmúrari Reykjavík. Framkvæmdastjóri og stjórarfor- maður fyrirtækisins er Ólafur Kristjánsson yfirverkstjóri. Kostnaðarverð byggingarinnar er 35 millj. kr. í lok þessa áfanga og endanlegt verð er áætlað 45—47 millj. kr. Þetta mun vera fyrsta verbúð á tslandi sem er byggð í samvinnu útgerðarmanna og fiskverkenda. Tíðindamaður blaðsins var við- staddur þegar framkvæmdastjór inn afhenti eigendunum lykla að herbergjunum á laugardaginn. Þar náði ég tali af Víglundi Jóns- syni einum stjórnarmannanna. Hann lýsti mikilli ánægju út- gerðarmannanna með það að geta nú loksins boðið upp á fullkomn- asta húsnæði sem völ er á. Tekizt hefði að koma þessu í fram- kvæmd á svo skömmum tíma fyrir atbeina margra manna og vegna góðrar samstöðu og samvinnt heima fyrir og ekki siður fyrir það, að forráðamenn lánastofnana hafa sýnt góðan skilning á þessu mikla vandamáli undanfarin ár. Allir þingmenn kjördæmisins hafa fylgzt vel með framkvæmd- um frá upphafi og verið mjög hjálplegir. Kvað hann útgerðar- menn mjög þakkláta þessum aðil- um. Víglundur gat þess einnig, að fyrir 3—4 árum hefði einnig verið tekið í notkun myndarlegt hús með 17 veiðarfærageymslum og beitningaskúrum ásamt frysti- geymslu. Það hús er sameign Ólafsvíkurhrepps og útgerðar- manna og heitir félagið um það Verbúðir h.f. og er hver verbúð ætluð fyrir 1 bát. Mætti því segja, að ,öll aðstaða til útgerðar væri orðin mjög góð í Ólafsvik. Báðar þessar byggingar eru hitaðar upp með rafmagni. — Helgi Fagur ljósahjálmur í Goðdalakirkju Mælifelli — 3. febrúar. VIÐ guðþjónustu i Goðdalakirkju í gær var kveikt á ljósahjálmi sem frú Elinborg Lárusdóttir, skáld- kona, og séra Ingimar Jónsson hafa gefið kirkjunni í tilefni af 70 ára afmæli hennar, sem haldið var hátiðlegt fyrr í vetur. Sóknar- presturinn þakkaði gjöfina og minntist gefendanna, en frú Elín- borg er fædd og uppalin í Góð- dalasókn. Fólk úr söfnuðinum söng við undirleik Heiðmars Jóns- sonar, kennara frá Ártúnum, en svo illa tókst til er kirkjuorganist- inn Björn Ólafsson á Kríthóli var nýlagður af stað til kirkjunnar, að bifreið hans fauk út af veginum og valt. Slys urðu þó ekki á mönn- um. Veður var afar hvasst í byljunum, og gekk á með skúrum. Enn verra var þó veðrið í nótt og í morgun, hvass suðvestan en lítil úrkoma. Svellalög hafa mjög runnið við þessa hláku en ekki kunnugt um verulegar skemmdir af völdum veðursins í Skaga- fjarðardölum. — séra Agúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.