Morgunblaðið - 04.02.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
21
2. DEILD
KA — IBK 21-14
KA FRÁ Akureyri sigraði ÍBK 21 —14 1 slökum leik í 2. deildarkeppninni I
handknattleik ð sunnudaginn. Eru Akureyringarnir því enn sigurstrangleg-
ir ( 2. deildinni, þar sem þeir hafa leikið fleiri leiki en Þróttur og Þór sem
hafa tapað tveimur stigum eins og KA.
í leiknum var greinilegt að Halldór Rafnsson, þjálfari þeirra norðan-
manna, var að gera tilraunir með lið sitt. Geir Friðgeirsson lék ekki með
og þeir Þorleifur Ananíasson, Hörður Hilmarsson og Halldór þjálfari voru
ekki meðal byrjunarleikmanna liðsins.
Kom þessi tilraunastarfsemi nokkuð niður á leiknum og varð þess m.a.
valdandi að leikurinn var hrein hörmung, sérstaklega síðari hlutinn. I fyrri
hálfleik mátti hins vegar sjð bregða fyrir stórskemmtilegu spili KA-liðsins
og var staðan að honum loknum 14—5.
í byrjun síðari hálfleiks náðu Keflvikingar að minnka muninn niður ( 6
mörk, 15—9 og hélst sá munur næstum óbreyttur til loka leiksins.
21 —14 urðu lokatölurnar og sýna þær að ÍBK vann siðari hálfleikinn
9—7.
Leikur þessi var ekki þess eðlis að nauðsynlegt sé að fjölyrða um það
sem fram fór. KA tryggði sigurinn i fyrri hálfleik með nokkuð góðum leik,
en sýndi svo lélega hluti i þeim siðari. Var reyndar um hreint „fiaskó" að
ræða ð timabili.
fBK-liðið lék hins vegar hvorki betur né verr en búizt var við,
sérstaklega með tilliti til þess að þrjá beztu menn liðsins vantaði.
Bestur ( liði ÍBK var Grétar Grétarsson, drjúgur leikmaður, sem litið fer
fyrir, en gerir sitt. Sigurbjörn og Sævar Halldórsson stóðu einnig vel fyrir
sinu.
Hjá KA var Þorleifur bestur, en hann fékk furðanlega litið að vera inná,
einkum i fyrri hálfleik, þegar hann virtist vera að komast i ham. Viðar
Kristmundsson stóð sig vel i markinu svo og þeir Haraldur Haraldsson og
Hermann Haraldsson í vörninni. Jóhann Jakobsson, (Knattspyrnumaður-
inn snjalli) lék sinn fyrsta leik ( langan tima, en hann fingurbrotnaði i
fyrsta leik KA i fslandsmótinu. Verður hann liðinu örugglega mikill styrkur
i komandi leikjum.
Haukur Hallsson og Geir Thorsteinsson dæmdu leikinn og var margt
athugavert við dómgæslu þeirra.
MÖRK fBK: Grétar 5 (1 viti), Sævar 2, Sigurbjörn 2, Sverrir Einarsson
2, Einar Leifsson 1, Sigurður Sigurðsson 1, Þorsteinn Geirharðsson 1.
KÖRK KA: Hörður Hilmarsson 6 (1 viti), Þorleifur Ananíasson 6 (2 viti),
Ármann Sverrisson 3, Jóhann Einarsson 2, Guðmundur Lárusson 1,
Halldór 1, Jóhann Jakobsson 1 og Haraldur 1.
háhá.
Þór — ÍBK 26-17
ÞEGAR fBK-liðið kom til Akureyrar á laugardag kom i Ijós, að þrjá af
máttarstólpum liðsins vantaði: Knattspyrnumennina Þorstein Ólafsson,
Steinar Jóhannsson og Astráð Gunnarsson. Þjálfari liðsins, Sigurður
Steindórsson, var heldur ekki með I förinni, en liðsstjóri i hans stað var
Grétar Magnússon, knattspyrnumaðurinn kunni.
Heimamenn tóku forystuna strax i upphafi og ætluðu greinilega að gera
út um leikinn í fyrri hálfleik. Það virtist ætla að takast. þvi sjá mátti 7—2
á markatöflunni, eftir 10 minútna leik og 9—4 um miðjan fyrri hálfleik-
inn. Hafði Aðalsteinn Sigurgeirsson gert 5 af mörkum Þórs. Var staðan
orðin 12—6 þegar 5 minútur voru eftir af hálfleiknum. en þá tók Grétar
Grétarsson af skarið, skoraði 4 mörk í röð fyrir Keflavikurliðið. f hálfleik
varstaðan þvi 12—10.
Upphafskafli siðari hálfleiksins var mjög góður hjá Þór, sem náði þá
öruggri forystu. Breyttist staðan úr 14—11 i 19—11, og slökuðu
Þórsararnir þá svolitið á, nema Þorbjörn sem hélt uppi stórskotahrið á
mark Keflvikinganna með góðum árangri. Leikurinn leystist upp í leik-
leysu á timabili og voru engin takmórk fyrir klaufalegum mistökum sem
áttu sér stað. Úrslit leiksins urðu mikill yfirburðasigur Þórs 26—1 7.
f byrjun var allt annar og betri bragur á leik ÍBK-liðsins en fyrr i vetur.
En liðsmenn voru óheppnir með skot og það virtist draga út þeim
kjarkinn. Siðan þegar Þór hafði náð yfirburðaforystu I leiknum tók við
sama hnoðið og einkennt hefur leik Keflvíkinganna i vetur. Varnarleikur-
inn var heldur ekki upp á marga fiska.
Sigurbjörn Gústafsson var bestur ÍBK-manna i leiknum ásamt Grétari
Grétarssyni. Þorsteinn Geirharðsson barðist vel allan leikinn, en fékk sem
linumaður að kenna á ómjúkum handbrögðum Þórsaranna.
Þórsliðið lék sem fyrr skynsamlega, en það er fátt i leik liðsins sem
gleður augað. Vörnin er geysisterk, en i sóknarleiknum vantar meiri
fjölbreytni. Eins og sakir standa hafa Þórsararnir aðeins tapað tveimur
stigum og eru í toppbaráttunni i 2. deild. Samt eru fáir þeirrar skoðunar
að Þór verði í efsta sætinu þegar keppninni lýkur. Til þess hafi þeir ekki
nægilega góðan mannskap. En Þórsliðið hefur það fram yfir flest önnur
lið, að það þekkir sin takmörk og spilar sem ein heild. Þessi atriði gætu
reynzt liðinu þýðingarmikil I þeirri baráttu sem framundan er.
Þorbjörn hefur verið að ná sér á strik að undanförnu og átti að þessu
sinni einn af sínum stórleikjum. Hann má þó gæta sin i varnarleiknum, en
þar hættir honum til að leika helzt til gróft.
Aðalsteinn var góður i fyrri hálfleik og Benedikt Guðmundsson er
leikmaður sem sjaldan bregst.
j'vörninni áttu Óskar Gunnarsson og Gunnar Gunnarsson góðan leik,
en komust upp með allt of mörg gróf brot.
MÖRK ÍBK: Sigurbjörn 6, Grétar 6, Þorsteinn 3, Sævar 2.
MÖRK ÞÓRS: Þorbjörn 9, Aðalsteinn 5 (3 viti), Benedikt 4, Árni
Gunnarsson 3 (1 viti), Gunnar 2, Óskar 2, Einar Björnsson 1.
Heukur Hallsson og Geir Thorsteinsson dæmdu erfiðan leik nokkuð vel.
— háhá.
Thoeiíi
í forystu
italski skíðamaðurinn Gustavo
Thoeni lét að sér kveða á skiða-
mótum helgarinnar og er nú i
forystu i heimsbikarkeppninni i
Alpagreinum. Thoeni er reyndar
enginn nýgræðingur á þessum
vettvangi — hefur þrivegis hlotið
heimsbikarinn.
Franz Klammer frá Austurriki
sem til þessa hefur haft forystu i
heimsbikarkeppninni mistókst
illa i keppninni i bruni í Megeve á
laugardaginn. Í miðri brautinni
missti hann af sér annað skiðið
og þar með var draumurinn úti.
Brautin i Megeve reyndist annars
mörgum keppendanum erfið, og
tveir kunnir skíðamenn, Bern-
hard Russi frá Sviss og David
Zwilling frá Austurriki, duttu og
meiddust illa.
Eftir keppni helgarinnar hefur
Thoeni hlotið 198 stig. Klammer
er með 184 stig, Gros frá ftaliu
þriðji með 145 stig, en siðan
koma Norðurlandabúarnir Sten-
mark og Haaker með 130 og 105
stig.
Enn sigrar UMFS
BORGNESINGARNIR halda
áfram að sigra í 2. deildinni, og
ætla sér greinilega upp i 1. deild á
ný. Ekki dregur það úr sigurvilja
þeirra að þeir munu næsta vetur
geta keppt í nýju iþróttahúsi með
löglegum sal, og þá vilja þeir helst
leika i 1. deild.
Um helgina lék liðið við
Grindavík og vann stóran sigur,
skoraði 80 stig gegn 54. — Það
gekk þó ekki allt of vel hjá þeim
til að byrja með, UMFG hafði
nefnilega forustuna lengst af í
fyrri hálfleik, en Borgarnes
komst fram úr fyrir lok hálfleiks-
ins og staðan var 33:29. Strax í
' byrjun s.h. gerðu þeir svo út um
leikinn með góðum kafla, og gátu
leyft sér að slaka á það sem eftir
var leiksins. — Pétur Jónsson
skoraði þeirra mest 28 stig, Stein-
ar Ragnarsson 18. Fyrir Grinda-
vik skoraði Magnús H. Valgeirs-
son mest, 19 stig, Kristinn
Jóhannesson 16 stig.
Gk.
H.K.D.R.
H.K.D.R.
ÁRÍÐANDI FUNDUR
Verður haldinn að Hótel Esju Þriðjudaginn 4. febrúar
(í kvöld) kl. 20,30. Fjölmennið.
Stjórn H.K.D.R.
Tilþrif alítill leikur
Á laugardaginn léku Valur og
Þór sfðari leik sinn f 1. deildar
keppni kvenna, og fór hann fram
á Akrueyri.
Eins og við mátti búast var leik-
ur þessi f ójafnara lagi, enda
staða liðanna mjög ólfk. Þórsliðið
er neðarlega f deildinn- og stend-
ur f baráttu fyrir sæii sínu. V als-
liðinu hefur aftur á móti vegnað
vel f vetur og er enn ósigrað.
Telja flestir Valsliðið okkar bezta
kvennalið um þessar mundir og
sigurstranglegast í keppninni um
Islandsmeistaratitilinn. Lengst af
var þó lítill meistarabragur á leik
liðsins á laugardaginn.
Það var aðeins á 15. min. kafla í
fyrri hálfleik að liðið sýndi virki
lega hvað í því býr. Að þeim kafla
Fjögur stig
tilÍBK
3. deiidarlið IBK gerði góða
ferð til Akureyrar um helgina.
Þeir léku tvo ieiki, gegn Tindastól
frá Sauðárkróki, og síðan gegn
K.A. og unnu báða leikina. Þessi
úrslit galopna stöðuna i riðlinum,
og IBK, K.A. og Breiðablik geta
öll sigrað þar.
A laugardaginn lék ÍBK við
Tindastól, og var aldrei neinn vafi
á hver myndi sigra í þeirri viður-
eign. Keflavikingarnir sigruðu
örugglega með 60 stigum gegn 46.
Daginn eftir léku þeir við KA sem
voru taldir sigurstranglegri, en
IBK náði mjög góðum leik og
sigraði aftur örugglega, nú með
64 stigum gegn 48. Lið IBK er að
mestu skipað ungum leikmönnum
mjög frískum strákum, og með
meiri þjálfun eiga þeir örugglega
eftir að ná hærra en að leika i 3.
deild.
Varamenn ÍR unnu HSK
— ÞAÐ ÁTTI maður eftir að upp-
lifa, að leikmenn þeir sem vermt
hafa varamannabekki IR að und-
anförnu (Vindlarnir) tækju sig
saman og ynnu leik fyrir lið sitt.
Það gerðu þeir um helgina gegn
HSK, en ekki kom það til af góðu.
Agnar Friðriksson f Ameríkuferð
og Kristinn Jörundsson veður-
tepptur á Akureyri þar sem hann
var sem þjálfari með 2. deildar
liði Fram. — E.t.v. gerði það
gæfumuninn fyrir IR að Anton
Bjarnason var að þreyta „meira-
próf“ f akstri austur f sveitum og
gat ekki mætt til leiks með HSK.
Þeir austanmenn höfðu nefnilega
forustuna f leiknum lengst af, og
það var ekki fyrr en 3 sfðustu
mfn. leiksins að lR náði að sigla
framúr og koma stigunum tveim
upp á bryggjuna.
Þetta var barningsleikur eins
og þeir gerast bestir. Mikið
hlaupið og stritað, en oft að
erindisleysu. — HSK hafði nær
alltaf forustuna i fyrri hálfleikn-
um, mest 7 stig um miðjan hálf-
leikinn, og 3 stig í háifleik 43:40.
— I síðari hálfleik skiptust liðin
síðan á um forustuna sem aldrei
varð þó meiri en 4 stig á annan
hvorn veginn. Þegar lokakaflinn
svo hófst var staðan jöfn 66:66 og
3. min eftir. iR-ingar reyndust
sterkari það sem eftir var, og sigr-
uðu með 74 stigum gegn 70. —
Þótt Þorsteinn Guðnason hafi
borið mjög af i liði ÍR, komu þeir
mjög á óvart Finnur Geirsson,
Sigurður Halidórsson (átti
þrumugóð tilþrif), Asgeir Guð-
mundsson og Erlendur Markús-
son. Þessir 5 ásamt aldursfor-
setanum Sigurði Gislasyni hífðu
sigurinn inn í fjarveru „stjarn-
anna“.
Þeir Birkir Þorkelsson og
Gunnar Jóakimsson voru bestu
menn HSK ásamt Gunnari Árna-
syni. — Stigin: IR: Þorsteinn 17,
Finnur 12, Sigurður Gíslason og
Jón Jörundsson 10 hvor. — HSK:
Birgir 17, Gunnar Jóakimsson 16,
Gunnar Arnason 12.
gk.
loknum voru úrslit leiksins ráðin
og nánast formsatriði að ljúka
honum.
Upphafsmítúturnar voru nokk-
uð jafnar, allt fram að miðjum
fyrri hálfleiknum, er staðan var
5—3. Þá tóku Valsstúlkurnar
mikinn fjörkipp og höfðu skorað
8 mörk fyrir lok hálfleiksins geng
engu. Staðan var því 13—3 i leik-
hléi.
Forystan var það mikil að von-
laust var að Þórsstúlkunum tæk-
ist að veita Val nokkra keppni.
Enda var síðari hálfleikurinn
hálfgert hnoð á báða bóga og mik-
ið um alls konar mistök, t.d. mis-
tókust 5 vítaköst i hálfleiknum
(Alls 7 i leiknum.) Voru flestir
áhorfendur því fegnir er flauta
timavarðarins gaf til kynna að
leiknum væri lokið, með yfir-
burðasigri Vals 23—7.
Erfitt er að dæma getu Valsliðs-
ins af þessum leik, til þess var
mótstaðan of lítil. Þó var liðið á
köflum mjög sannfærandi og
sýndi þá prýðisgóðan handknatt-
leik, en datt svo niður þess á milli.
Valsliðið var mjög jafnt í leiknum
og dreifðust mörkin á alla útispil-
ara liðsins. Ragnheiður Lárus-
dóttir átti nú einn af sinum beztu
ieikjum á keppnistímabilinu,
barðist vel i sókn og vörn og átti
góðar línusendingar.
Erfitt er að gera upp á milli
frammistöðu hinna stúlknanna.
Þó er rétt að minnast á Sigrúnu
Guðmundsdóttur, þótt hún hafi
reyndar oft leikið betur, Hörpu
Guðmundsdóttur og Hildi Sigurð-
ardóttur, en þessar tvær siðast-
nefndu eru báðar ungar að árum
og eiga áreiðanlega eftir að vera
félagi sínu styrkur í mörg ár. Auk
þessara stóðu markverðirnir,
Oddgerður og Inga, vel fyrir sínu.
Þórsliðið gerði þá reginskyssu,
að skjóta i tíma og ótíma úr von-
litlum færum, í stað þess að halda
knettinum og freista þess að opna
vörn andstæðinganna. Afleiðing-
in varð óþarflega mikill marka-
munur.
Til gamans má geta þess, að i
fyrra er þessi sömu lið mættust á
sama stað var um mjög jafnan og
spennandi leik að ræða. Þá lék
Þórsliðið skynsamlega, hafði
raunar einnig betri mannskap en
nú, og lauk leiknum aðeins með
eins eða tveggja marka sigri Vals-
liðsins.
Hanna Rúna Jóhannsdóttir og
Guðrún Stefánsdóttir komust bezt
frá leiknum á laugardaginn. Sú
síðarnefnda mætti að skaðlausu
skjóta meira.
Dómarar leiksins voru þeir
Árni og Ragnar Sverrissynir og
dæmdu mjög vel, þegar á heildina
er litið.
Mörk Vals: Ragnheiður 6 (2
víti), Sigrún 4 (1 víti), Björg
Jónsdóttir 3 (1 víti), Hildur Sig-
urðardóttir 3 (1 viti), Halldóra
Magnúsdóttir 2, Harpa 2, Hrafn-
hildur Ingólfsdóttir 2 og Hrefna
Birgisdóttir 1.
Mörk Þórs: Guðrún 2, Magnea
Friðriksdóttir 2, Aðalbjörg Ölafs-
dóttir 1, Guðný Bergvinsdóttir 1,
Hanna Rúna 1.
háhá
Asgeir
Framhald af bls. 17
fram undan en erfiðleikarn-
ir væru nú til að sigrast á.
Landleikir Ásgeirs f blaki
eru einnig tveir. Þeir voru
háðir hér á landi f fyrra og
voru fyrstu landsleikir Is-
lands hér heima. Ásgeir lék
með U.M.F.B. I blakinu og
varð Islandsmeistari með
því liði á s.l. ári. Sem stend-
ur fæst Ásgeir ekkert við
blakiðkan enda ef til vill
nóg að keppa í tveimur
greinum iþrótta.
Ásgeir er kvæntur Soffíu
Guðmundsdóttur og eru
bæði íþróttakennarar að
mennt. Soffía er því ekki
alveg laus við íþróttabakter-
íuna fremur en Ásgeir.
Raunar leikur Soffia með 1.
deildarliði KR í handknatt-
leik.
Ásgeir Elíasson er ennþá
ungur maður, á 26. aldurs-
ári. Þvf má ætla að framtíð-
in eigi eftir að færa honum
enn meiri og glæstari
fþróttasigra þó miklir séu
orðnir nú þegar. Það verður
gaman að fylgjast með Ás-
geiri næstu árin.
— Carrodus
Framhald af bls. 17
haldið til Manehester þar
sem Villa lék gegn Utd. f 2.
deild. Aftur var Carrodus
stjarna leiksins þrátt fyrir
að Villa tapaði. Blöðin
spurðu. „Hvers vegna lét
City þennan stórkostlega
leikmann fara frá sér?“
Carrodus er lýst sem hug-
kvæmum leikmanni. Hann
hefir mikinn hraða og er
laginn með knöttinn. Hann
gefur aldrei eftir þrátt fyrir
að hann er ekki nema 1.65 m
á hæð.
Saunders með steinrunna
andlitið brosir þegar nafn
Carrodus er nefnt. „Það er
gaman þegar i Ijós kemur að
maður hefir haft á réttu að
standa. Margir voru mjög
undrandi þegar ég keypti
Carrodus."