Morgunblaðið - 04.02.1975, Blaðsíða 19
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
19
tír fyrri leik FH og ASK í Evrópubikarkeppninni. Viðar Símo.iarson skorar. Viðar gerði 3 mörk f
leiknum á laugardaginn og var einna beztur FH-inga.
FH HÉLT f WÐ ASK í
p\m IIÁIiLEJK FA MISSTI
ÞATTTÖKU FH { Evrópubikar-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik er iokið að þessu sinni. Á
laugardaginn lék liðið seinni leik
sinn við a-þýzka liðið ASK Vor-
wárts, og eins og við mátti búast
stóðust FH-ingar ekki hinum
snjöllu Austur-Þjóðverjum snún-
ing og töpuðu 18—30, eftir að
staðan hafði verið 8—12 f hálf-
ieik. Samanlögð markatala úr
leikjum liðanna er því 51—35
Þjóðverjunum í vil, eða mjög
svipað því sem flestir áttu von á,
þegar fréttist að FH-ingar hefðu
dregist á móti þessu ágæta liði.
I einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá AP-fréttastofunni, segir
m.a. svo um leikinn, að Hafnfirð-
ingarnir hafi aldrei átt möguleika
gegn þýska liðinu úti. Munurinn
hafi berlega komið í ljós í seinni
hálfleiknum, en þá hafi mismun-
ur á þjálfun leikmannanna farið
að koma fram. Þjóðverjarnir hafi
þá átt hvert hraðaupphlaupið af
öðru og skorað í nær öllum sókn-
urn sínum, enda hafi markvarslan
verið nánast engin hjá FH-liðinu
og þýsku skytturnar hafi getað
skorað hvernig sem þeim sýndist.
Það eina sem þeir þurftu að
hugsa um var að hitta markið. Þá
var varnarleikur FH-inga einnig
ákaflega slakur, sérstaklega í
seinni hálfleiknum, og þeir oftast
einungis áhorfendur að því sem
Þjóðverjarnir voru að gera.
FH-ingar byrjuðu leikínn mjög
vel á laugardaginn. Lögðu áherslu
á að hafasóknirsínarlangar halda
knettinum og skjóta ekki fyrr en
sæmileg færi gáfust. Þannig var
staðan í leiknum 4—3 fyrir ASK,
þegar hálfleikurinn var um það
bil hálfnaður, en eftir það tók að
losna um leik FH-inganna. Þjóð-
verjarnir komu meira fram á móti
þeim í vörninni, og reyndu að
trufla spilið, og á nokkrum mínút-
um hafði þýska liðið náð 7 marka
forystu er staðan var 11—4. Und-
ir lok hálfleiksins náði FH hins
vegar að rétta hlut sinn nokkuð,
mest fyrir framtak Ölafs Einars-
sonar, sem átti glæsileg skot að
marki Þjóðverjanna, sem mark-
vöróur iiðsins átti engin tök á að
ná. Var munurinn 4 mörk í hálf-
leik sem fyrr greinir, 12—8 eða
mun minni en var i hálfleik er
liðin mættust i Laugardalshöll-
inni, en þá höfðu Þjóðverjarnir 7
marka forystu á tölunni 14—7.
Strax i byrjun seinni hálfleiks-
ins tókst Ólafi að minnka muninn
niður í þrjú mörk, 12—9, en eftir
það var úti ævintýri hjá FH-
ingum. Spurningin var aðeins
hversu lengi þeim tækist að halda
knettinum í sókn sinni, því ekki
þurfti að því að spyrja hvort Þjóð-
verjarnir skoruðu i sóknarlotum
sinum. Og þegar á hálfleikinn leið
tók að gæta mikills óöryggis i
leik F'H-inga. ASK-menn komust
hvað eftir annað inn í sendingar
þeirra, brunuðu upp og skoruðu,
og þegar FH-ingar náðu á annað
borð að stilla upp vörn, liðu ekki
nema örfáar sekúndur uns Þjóð-
verjarnir höfðu fundið glompu á
henni og skoruðu framhjá mark-
vörðunum, sem hreyfðu sig varla
eftir skotunum, hvað þá að þeir
verðu.
Staðan breyttist fljótlega í
15—10, síðan í 17—12, 21—13,
24—15 og 29—16. Var auðséð að
Þjóðverjarnir voru farnir að
keppa að 30 marka markmiðinu
undir lokin, og því tókst þeim að
ná skömmu fyrir leikslok.
Ölafur Einarsson var mark-
hæstur FH-inganna í leiknum og
skoraði hann 9 mörk, mörg hver
með fallegum skotum fyrir utan
vörn Þjóðverjanna. I seinni hálf-
leiknum tóku Þjóðverjarnir aó
gæta hans betur, auk þess sem
þreytumerki tóku að sjást á hon-
um. Að Sögn AP áttu auk Ólafs
þeir Viðar Simonarson og Gunnar
Einarsson ágætan leik, sérstak-
lega þó Viðar, sem sagt er að hafi
verið maðurinn á bak við það
bezta sem FH-liðið gerði. Viðar
skoraði 3 mörk, Guðmundur
Stefánsson 2, Þórarinn Ragnars-
son 1, Gunnar Einarsson 1, Árni
Guðjónsson 1, og Tryggvi Harðar-
son 1.
Bezti maður þýzka liðsins var
landsliðsmaðurinn Engel, sem
reyndist FH-ingum mjög erfiður
viðureignar. Þá átti Rose, sem er
fyrrverandi landsliðsmaður einn-
ig afbragðs leik, svo og Weber og
Smidt. Var Engel markhæstur
Þjóðverjanna með 8 mörk, en
Rose gerði 6.
Ólafur Einarsson átti mjög góðan leik með FH-liðinu á laugardaginn
og skoraði 9 mörk. Myndin var tekin er hann var að skora f fyrri leik
liðanna, sem fram fór f Laugardalshöllinni.
Skagastúlkurnar urðu
meistarar er FH og
UBK gerðu jafntefli
Stúlkurnar frá Akranesi
urðu Islandsmeistarar í knatt-
spyrnu innanhúss árið 1975
eftir jafna baráttu við stúlk-
urnar úr FH og Breiðabliki í
úrslitakeppni mótsins. — Síð-
asti leikurinn í úrslitakeppn-
inni var á milli FH og Breiða-
bliks og var þá komin upp sú
staða, að ef Breiðablik næði
jafntefli eða sigraði var sigur-
inn Akraness, en ef FH
sigraði, þurfti aukaleik milli
Akraness og FH.
Eftir að hafa verið undir
nær allan leikinn, tókst
Breiðablik að gera jafntefli
og var þeim úrslitum tekið
með miklum fagnaðarlátum
af Akranesstúlkunum.
Það voru 9 lið sem hófu keppni i
þrem riðlum. I A riðli vann FH
öruggan sigur, i B riðli hafði Breiða-
blik nokkra yfirburði yfir stúlkurnar
frá Keflavík, en Islandsmeistararnir
frá í fyrra, Fram, höfðu möguleika á
að vinna riðilinn á síðustu mín. leiks-
ins á móti Breiðablik, en þeim mis-
tókst að skora úr vítaspyrnu og
misstu af lestinni. 1 C riðlinum unnu
Akranesstúikurnar öruggan sigur
yfir Grindavík og Þrótti.
Það voru því lið FH, Breiðabliks og
Akraness, sem léku til úrslita á
sunnudagskvöldið.
ÍA — Breiðablik
3_2 (3—0)
IA byrjaði leikinn vel og skoraði
Kristin Aðalsteinsdóttir fyrsta mark-
ið, en Rikka Mýrdal bætti öðru við
nokkru siðar. Og fyrir lok hálfleiks-
ins bætti Ragnheiður Jónasdóttir þvi
3ja við.
Breiðablik sneri dæminu við í
siðari hálfleik og skoraði Dagný
Halldórsdóttir mark og Bryndís
Einarsdóttir bætti öðru við. Mikil bar-
átta var undir lokin, en Akranesstúlk-
unum tókst að halda forskotinu og
sigra.
ÍA — FH 0—0
Það gætti nokkurs taugaóstyrks hjá
báðum liðum i þessum leik og áttu
bæði liðin góð tækifæri til að skora,
en þrátt fyrir það lauk leiknum án
þess að knötturinn kæmist i netið og
er það nokkuð sjaldgæft í þessari
iþrótt, að mark sé ekki skorað.
F.H. — Breiðablik
4—4 (3—1)
FH stúlkurnar þurftu að vinna
þennan leik til að fá aukaleik við
Akranes um Islandsmeistaratitilinn
og var ekki útlit fyrir annað en að það
ætlaði að takast. Sigríður Sigurgeirs-
dóttir skoraði fyrsta markið fyrir FH,
en Dagný Halldórsdóttir jafnaði fyrir
Blikana. Sigrún bætti öðru við
nokkru siðar og Svanhvít Magnús-
dóttir þriðja fyrir FH. Þannig að staó-
an var 3—1 fyrir FH í hálfleik.
En Blikarnir voru ekki á því að
gefast upp og reyndu allt hvað af tók
að jafna metin. Bryndis Einarsdóttir
skoraði fyrir Blikana, en Sigrún
Sigurðardóttir svaraði með því að
skora 4. mark FH.
Var nú lagnt liðið á leikinn og mikil
barátta I stúlkunum og voru Kópa-
vogsstúlkurnar ákaft hvarrar af
Akranesstúlkunum.
Bryndís Einarsdóttir skoraði 3.
mark Blikanna og rétt áður er. leikn-
um lauk skoraði hún svo jöfnunar-
markið og færði þar með stúlkunum
frá Akranesi Islandsmeistaratitilinn
á silfurfati, enda var þeim ákaft
fagnað af þeim, þegar þær gengu af
leikvelli.
Það voru alls 9 lið, sem tóku þátt í
mótinu og var þeim skipt í þrjá riðla.
I A-riðli léku Hafnarfjarðarliðin
FH og Haukar og Ármann, sem vann
þetta mót 1973. FH vann Hauka 6—0,
en Ármenninga 3—0. Ármann vann
svo Hauka 3—0 og tryggði sér annað
sætið i riðlinum.
I B riðli léku Breiðablik, Keflavík-
ingar og Fram, sem var íslands-
meistari i fyrra. Breiðablik vann
Keflavík 4—1, en Fram 3—2 og mátti
þar ekki miklu muna, því Fram átti
möguleika á að jafna á síðustu sek.
leiksins er þeim var dæmd víta-
spyrna, en þeim mistókst að skora og
kostaði það að þær misstu af sætinu í
úrslitariðlinum.
Fram vann hinsvegar léttan sigur
yfir Keflvlkingum, 5—2.
I C riðli léku Akurnesingar,
Grindavik og Þróttur, Reykjavik.
Akranes vann léttan sigur yfir Þrótti,
6—0 og Grindvíkingum 6—3, en
Grindavík og Þróttur gerðu jafntefli
3—3.
A kvennamóti í knatt-
spyrnu rétt á sér?
íslandsmót í knattspyrnu kvenna
innanhúss hefur verið haldið árlega
síðan 1971, en það ár gaf KSI bikar til
keppninnar, sem keppt hefur verið
um síðan. Tvö fyrstu árin sigruðu
Akurnesingar, en árið 1973 sigraði
Ármann, en árið 1974 Fram.
Það dylst engum, sem með þessum
mótum hefur fylgst, að stúlkunum
hefur ekki farið fram i þessari íþrótt
og er líklegra að um afturför sé að
ræða.
Greinilegt er, að velflest þau lið,
sem þarna keppa, æfa knattspyrnu
ekki, heldur er stúlkunum hóað sam-
an rétt fyrir mótið og þær látnar
keppa.
Margir, sem með mótinu fylgdust,
töldu því að rétt væri að leggja þetta
mót niður. Hvort það er rétt, skal
ósagt látið, en hitt er ljóst, að félögin
verða að gera betur við stúlkurnar i
þessum efnum, þvi greinilegt er að
þær hafa gaman af knattspyrnu og
leggja sig allar fram.
Skagastúlkurnar sem urðu lslandsmeistarar f kvennaflokki, ásamt þjálfara sfnum, Herði Jóhannessyni.
Stúlkurnar heita: Rikka Mýrdal (fyrirliði), Guðrún Kristjánsdóttir, Sigurborg Valdimarsdóttir, Þorbjörg
Skúladóttir, Laufey Sigurðardóttir, Hafdís Asgeirsdóttir, Kristfn Áðalsteinsdóttir og Ragnheiður
Jónasdóttir.
Framarar sem urðu Islandsmeistarar f innanhússknattspyrnu karla árið 1975
Framarar meistarar
Reykjavíkurmeistarar Fram tryggöu sér Islandsmeist-
aratitilinn í knattspyrnu innanhúss með því aö sigra Val
í skemmtilegum úrslitaleik á sunnudagskvöldið, með
eins marks mun. Voru Framarar vel að þeim sigri
komnir, því þeir léku jafnbestu knattspyrnuna mótið í
gegn og komust aldrei í taphættu.
Alls voru það 27 lið sem tóku þátt í keppninni og var
þeim skipt í 9 riðla.
Valur sigraði með yfirburðum í
A riðli, en í B riðli sigruðu Akur-
nesingar án mikilla átaka. Fram
vann C riðilinn, einnig með mikl-
um yfirburðum. D riðilinn vann
KR, en i E riðli sigraði Víkingur
og átti þar í nokkru basli með
Ármenninga. I F riðli sigraði FH
örugglega og sömuleiðis Breiða-
blik i G riðli. H riðilinn vann
IBK, Þróttur Reykjavík I riðilinn.
Það voru því 9 lið sem léku í
Úrslit
Urslit f cinstökum riðlum:
A riðill:
Valur — Hrönn 12—3
Valur — Fylkir 7—5
Fylkir — Hrönn 10—3
B riðill:
IA — Ak. 9—3
ÍA — Reynir8—1
Þór Ak — Reynir 13—6
C riðíll:
Fram — Víðir 10—4
Fram — Afturelding 12—1
Afturelding — Víðir 5—3
D riðill:
KR — IR 8—2
KR — Leiknir 9—1
ÍR — Leiknir 13—1
E riðill:
Vikingur — Armann 5—4
Víkingur — Selfoss 4—3
Armann — Selfoss 6—3
F riðill:
FH — Þróttur N 7—3
FH — Grindavik 11—2
ÞrótturN —Grindavik 10—1
G riðill:
UBK — Stjarnan 12—2
UBK — Magni 8—2
Stjarnan — Magni 9—2
H riðill:
ÍBK — Haukar 6—3
IBK — K.S. 10—3
Haukar — K.S. 8—7
I riðill:
Þróttur R — Grótta 9—5
Þróttur R. — Þór Þ. 16—4
Grótta Þór Þ5—5
Undanúrslit:
A riðill:
Þróttur R — IBK 12—7
Þróttur R — KR 4—3
KR — IBK 8—5
B riðill:
Fram — FH 7—5
Fram — IA 7—3
IA — FH 7—6
C riðill:
Valur — Vikingur 10—6
Valur — UBK 5—3
UBK — Víkingur 3—3
undanúrslitunum og var þeim
skipt í þrjá riðla.
I A riðli undanúrslitanna mætt-
ust ÍBK, KR og Þróttur R. KR
vann IBK með 8—5 og Þróttur
vann IBK með yfirburðum 12—7.
Það var hörkuleikur milli Þrótt-
ar og KR, þar sem á ýmsu gekk,
en Þrótti tókst að sigra með eins
marks mun 4—3.
I B riðlinum mættust Fram,
Akranes og FH. Fram byrjaði á
því að sigra FH með 7—5 i nokk-
uð jöfnum og góðum leik.en síðan
sigruðu þeir Akurnesinga með
7—3. Leikur Akraness og FH var
jafn lengst af og lauk honum með
eins marks sigri Akurnesinga
7—6.
I C-riðli áttust við Valur, Vík-
ingur og Breiðablik. Valur vann
Viking með 10—6, eftir að hafa
haft 6—0 í hálfleik. Valur sigraði
einnig Breiðablik 5—3 i jöfnum
leik. Hins vegar var mikil barátta
hjá Víking og Breiðablik og lauk
þeim leik með jafntefli 3—3.
Það voru því Þróttur, Fram og
Valur, sem tryggðu sér réttinn til
að leika til úrslita.
Fram — Þróttur 9—3
(6—0)
Fram byrjaði leikinn mjög vel
og skoraði Asgeir Eliasson fyrsta
markið, en Ágúst Guðmundsson
bætti öðru við. Kristinn Jörunds-
son misnotaði síðan tvö „dauða-
færi“ en Eggert Steingrímsson
bætti úr þvi með góðu marki. Þá
kom að Ásgeiri að skora aftur, en
fimmta markið skoraði Snorri
Hauksson. Siðasta orðið hafði svo
Marteinn Geirsson, sem skoraði
sjötta mark Fram. Þannig aö
Fram hafði yfirburðarstöðu i
hálfleik, 6—0.
I siðari hálfleik héldu Framarar
uppteknum hætti þvi Rúnar
Gíslason skoraði 7—0 fyrir Fram.
Fóru nú Þróttarar að taka við sér
og skoraði Þórður Hilmarsson tvö
mörk og lagfærði stöðuna i 7—2.
Atli Jósafatsson skoraði 8—2, en
Helgi Þorvaldsson skoraði fyrir
Þrótt, og rétt fyrir leikslok skor-
aði Jón Pétursson fyrir Fram,
þannig að leiknum lauk með 9—3
sigri Fram.
Valur — Þróttur tí—5
(2—2)
Leikur Þróttar og Vals var jafn
allan tímann og máttu Valsmenn
þakka fyrir að sigra í þeirri viður-
eign, því þeir léku slakan leik að
þessu sinni. Ingi Björn Alberts-
son skoraði fyrsta markið fyrir
Val, en Guðmundur Gislason jafn-
aði fyrir Þrótt. Þróttarar komust
yfir, er Valsmenn skoruðu sjálfs-
mark. Fyrir lok hálfleiksins skor-
aði Guðmundur Þorbjörnsson fyr-
ir Val, þannig að staðan var jöfn
2—2 i hálfleik.
Þróttur tók forystuna i síðari
hálfleik, er Aðalsteinn Örnólfsson
skoraði, en Jóhannes Eðvaldsson
jafnaði fyrir Val úr vítaspyrnu.
Þá skoraði Ingi Björn aftur fyrir
Val, en Aðalsteinn Örnólfsson
jafnaði fyrir Þrótt með fallegu
skallamarki úr þröngri stöðu.
Færðist nú talsverð harka í leik-
inn og var nokkrum leikmönnum
vísað af leikvelli. Þróttur átti
tækifæri til að taka forystu í
leiknum, þar sem dæmd var vita-
spyrna á Val, en Jóhannes varði
skotið frá Aðalsteini. Þegar 33
sek. voru eftir skoraði Hannes
Lárusson fyrir Val og bætti síðan
öðru marki við rétt á eftir, en á
síðustu sekúndunni skoraði Guð-
mundur Gíslason fyrir Þrótt,
þannig að Valur sigraði í þessum
leik með 6—5.
Fram — Valur 5—4 (3—2)
Urslitaleikurinn var því milli
Fram og Vals. Greinilegt var að
bæði liðin léku af mikilli gætni og
lögðu áherslu á sterka vörn og
tefldu ekki í neina tvisýnu i sókn-
arleiknum. Kristinn Jörundsson
skoraði fyrsta markið, en Kristinn
Björnsson jafnaði fyrir Val. Krist-
inn skoraði aftur fyrir Val, en
nafni hans í Fram jafnaði. Krist-
inn Jörundsson hafði siðasta orð-
ið í hálfleiknum og skoraði 3ja
mark Fram, þannig að staðan var
3—2 fyrir Fram í hálfleik.
Síðari hálfleikur var líkur þeim
fyrri, þvi bæði liðin léku af ör-
yggi, en greinilegt var, að Fram
var sterkari aðilinn. Ásgeir Elías-
son skoraði fallegt mark fyrir
Fram og var undirbúningurinn að
því mjög skemmtilegur. Kristinn
Jörundsson var aftur á ferðinni
og skoraði 5. mark Fram, þannig
að staðan var orðin 5—2.
Undir lokin reyndu Valsmenn
allt hvað af tók að jafna metin og
skoruðu tvö mörk, en þau gerðu
þeir Ingi Björn og Jóhannes Eð-
valdsson. Fleiri mörk voru ekki
skoruð og lauk leiknum því með
sigri Fram 5—4.
Framarar voru vel að sigrinum
komnir, enda léku þeir vel og yf-
irvegað í öilum leikjum sinum.
Valsmenn áttu einnig góða leiki,
en voru misjafnir. Áttu þeir góða
leikkafla, en duttu svo niður á
milli.