Morgunblaðið - 04.02.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
Brezhnev
stóð af sér
deílurnar
Leonid Brezhnev hefur
staðið af sér alvarlegustu
deilur, sem orðið hafa í
Kreml frá því hann varð
flokksleiðtogi kommúnista-
flokksins eftir fall Nikita
Krúsjeffs árið 1 964.
Þessar deilur, sem aðal-
lega snerust um þá stefnu
Sovétríkjanna að bæta sam-
búðina við Vesturveldin náðu
hámarki að sögn áreiðan-
legra austur-evrópskra heim-
ilda á leynifundi stjórnmála-
nefndar flokksins 19. desem-
ber. Það var á þessum fundi,
segja heimildirnar, sem
Brezhnev voru settir úrslita-
kostir. Þau öfl innan flokks-
stjórnarinnar, sem vilja harð-
ari stefnu í sambúðinni við
Vesturveldin, hafa unnið
mjög á að undanförnu, og
skoruðu á Brezhnev að hætta
tilraunum sínum til að bæta
sambúðina, eða segja af sér
ella. Allt bendir til þess að
þessir úrslitakostir hafi komið
Brezhnev mjög á óvart, og að
hann hafi neyðst til að ganga
að kostum þessara andstæð-
inga sinna til að komast hjá
því að verða hrakinn frá völd-
um.
Fréttirnar af þessum af-
drifaríka fundi í Kreml eru
fyrsta trúverðuga skýringin á
þeirri undarlegu þróun mála,
sem orðið hefur í Moskvu á
undanförnum vikum, þar
sem ástandið færist æ meir í
það horf, sem ríkti sumarið
langa 1964 áður en Krúsjeff
var vikið úr embættum.
Það er mjög athyglisvert
að Brezhnev hvarf algjörlega
af sjónarsviðinu strax eftir
þennan fund stjórnmála-
nefndarinnar. Engar skýring-
ar hafa verið gefnar á fjar-
veru hans — hann hefur
ekki sézt opinberlega í rúman
mánuð — og af því má
draga tvær ályktanir. í fyrsta
lagi að hann sé veikur, og
þau veikindi stafi beinlínis af
ágreiningnum innan stjórnar-
innar en ekki öfugt; og í öðru
lagi að þótt hann hafi haldið
embætti sínu sem leiðtogi
flokksins, hafi áhrif hans ver-
ið rýrð verulega, og sú rýrn-
um leiði til áframhaldandi
óstöðugleika innan forust-
unnar.
Veikindi hans hafa hrundið
af stað margskonar getgát-
um á Vesturlöndum, til
dæmis að hann þjáist af hvít-
blæði, eða jafnvel, sam-
kvæmt heimildum í Varsjá,
að hann hafi fengið hjarta-
áfall. Ábyrgar austur-
evrópskar heimildir í Moskvu
bera þó til baka allar fréttir
um að Brezhnev sé haldinn
banvænum sjúkdómi.
Vitað er að Brezhnev hefur
frá bernsku þjáðst af tauga-
sjúkdómi, sem veldur
þjáningum I höfði þegar
hann á við erfiðleika að stríða
eða harðar deilur.
í stað þess að takast á við
erfiðleikana er Brezhnev
gjarnt að fara í felur. Þetta
gerðist í Belgrad árið 1 966
þegar hann var þar til mikil-
vægra viðræðna við Titó for-
seta, aftur árið 1 968 þegar
hann átti fund með Alexand-
er Dubcek þá verandi leið-
toga Tékkóslóvakíu I Cierna,
og nú nýverið í París í miðj-
um viðræðum hans við
Giscard d'Estaing forseta.
Rangt væri að álykta að
þessi langvarandi fjarvera
hans nú stafaði eingöngu af
þessum taugasjúkdómi hans.
Hann gæti hafa ákveðið sjálf-
ur, eða verið ráðlagt það, að
bezt væri að bíða og sjá hver
viðbrögðin yrðu við frestun
hans á heimsókninni til
Kaíró, og þá ekki síður við
þeirri ákvörðun yfirvalda í
Moskvu að hafna viðskipta-
samningnum við Bandarikin.
Rétt væri að viðbrögð Banda-
ríkjamanna og annarra við-
komandi aðila kæmu fram
áður en hann léti frá sér
heyra á ný.
Hver svo sem viðbrögðin
verða endanlega á Vestur-
löndum, þá er Ijóst að sá
gagnkvæmi skilningur, sem
ríkti milli Washington og
Moskvu fyrir aðeins hálfu ári,
er fokinn út í veður og vind.
Þetta hlýtur að hafa víðtæk
áhrif á öll samskipti Austurs
og Vesturs, og því fylgir
óhjákvæmilega sú hætta að
yfirvöldin í Kreml taki nú upp
harðari og herskárri stefnu.
(Observer 26. jan.)
Frá Kreml
7
Gullfallegar vörur Ný munstur í gobelin. Urval af tvistsaumi, kelim og demantsspori, smirnateppum og púðum. Hof, Þingholtsstræti 1. Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur'samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. K.M. Springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarf , simi 53044.
Bólstrun Tek bólstruð húsgögn i klæðn- ingu. Fast verðtilboð ef óskað er. Bólstv. Bjarna Guðmundssonar, Laugarnesvegi 52, sími 32023 — 71538. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27 Simi 25891.
Salur til leigu fyrir starfshópa, fermingarveislur, fundahöld. Allar nánari uppl. gefur formaður húsnefndar Golfskálans í Grafar- holti, Ingólfur Helgason i simum 50008 og 24966. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin hf., sími 33603.
Atvinna óskast 22 ára gamall maður með stúdentspróf óskar eftir atvinnu. E.t.v. framtiðarvinna. Margt kemur til greina. Upplýsingar i sima 33271 milli 1 og 7. mRRCFRLORR mÖCULEIKR VÐRR
Vetrarútsala
Stórkostleg verðlækkun á kápum, drögtum og
stökum jökkum.
Kápu- og dömubúðin,
Laugavegi 46.
■\
Tann
EIMSKIR
PEIMINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
_______________________j
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919.
Holl fæða ^
UFRAKÆFA
HEILDSALA — SMÁSALA
SÍLD & FISKUR
Bergstaóastræti 37 sími 24447