Morgunblaðið - 04.02.1975, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1975
12
Mestur umsóknarþungi frá Vestfjörðum:
80 sveitarfélög sækja um 1450 leiguíbúðir
Jón Armann Héðinsson,
alþingismaður.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra.
Jón G. Sólnes, alþingis-
maður.
Rithöfundasjóður:
Stjórnarfrumvarp fær
dræmar undirtektir
FRÁFARANDI rfkisstjórn gaf
fyrirheit um byggingu 1000 leigu-
íbúða í dreifðum byggðum lands-
ins, sem reisa átti á fjórum árum.
Fyrir sl. áramót höfðu borizt um-
sóknir 80 sveitarfélaga um 1447
fbdðir, eða um fleiri íbúðir en
reisa átti á 4ra ára framkvæmda-
tíma. Mestur umsóknarþungi er
frá Vestfjörðum, þaðan sem fólks-
flóttinn var mestur fyrir fáum
árum, eða umsóknir um 357 leigu-
íbúðir. Þetta kom fram f umræð-
um á Alþingi (neðri deild) i gær,
er húsnæðismál vóru á dagskrá.
Kjartan Ölafsson (K) gerði
grein fyrir frumvarpi, sem hann
o.fl. flytja um breytingu á lögum
um Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins. Frumvarpið er tvfþætt. í
fyrsta lagi gerir það ráð fyrir því,
að Húsnæðismálastjórn sé heimilt
að verja allt að 10% ráðstöfunar-
fjár til lánveitinga til kaupa á
eldri íbúðum eða til meiri háttar
endurbóta á þeim. I annan stað,
að B-liður 8. gr. viðkomandi laga
breytist svo, að hámarkslán Hús-
næðismálastjórnarlána megi
nema allt að 1.700 þús. á hverja
íbúð-
Gunnar Thoroddsen (S),félags-
málaráðherra, sagði það hafa
gleymzt, þegar fyrri stjórn gaf
fyrirheit í þessu efní, að tryggja
fjármagn, svo efndir gætu komið í
kjölfar loforðanna. Enda hefðu
liðið svo tvö misseri frá fyrirheit-
inu, að framkvæmdir gætu hafizt.
Nú hefði mál þetta verið tekið
nýjum tökum og fyrirgreiðsla
komið til, þó enn væri í litlum
mæli. Skoða þyrfti hvort Byggða-
sjóður, sem nýlega hefði verið
stórefldur, gæti komið hér til að-
stoðar, en þetta verkefni félli vel
að tilgangi hans, þar sem um væri
að ræða leiguíbúðir á landsbyggð-
inni.
Annað, sem gleymzt hefði, er fyr
irheitið var gefið, var að athuga
hvern veg það félli að húsnæðis-
málakerfinu í heild. Ymsir, þ.á m.
fulltrúar ASI, teldu, að höggið
væri að byggingu verkamanna-
bústaða. Það byggingarform hefði
um langt árabil gefið góða raun
og lyft grettistökum, en nú brydd-
aði á því, að ýmis sveitarfélög
legðu byggingu verkamanna-
bústaða til hliðar vegna leigu-
fbúðanna. Þessi mál öll væru
raunar í heildarendurskoðun í
félagsmálaráðuneytinu. Inn í þá
athugun kæmu margir þættir: 1)
fjáröflun til byggingarfram-
kvæmda fbúða almennt, 2) hvern
veg byggðasjóðir gæti komið inn í
fjármögnun íbúðabygginga, 3)
hækkun á hámarkslánum Hús-
næðismálastofnunar, en hámarks-
lán nú næmu 1.060.000.- kr., 4)
húsnæðisþörf og heimilisstofnun
ungs fólks og 5) kaup og nýting á
eldra húsnæði, sem væri sérlega
athyglis- og tímabært.
Meginstefnan ætti að vera sú,
að sem flestir gætu búið í eigin
húsnæði, en nauðsyn leiguíbúða
væri jafnframt ótvíræð.
Þórarinn Þórarinsson (F)
ræddi einkum um nýtingu eldra
húsnæðis. Sagði hann forráða-
menn Reykjavíkur hafa sérstakan
áhuga á því efni, þó eflaust væri
sömu sögu að segja víðar. Aukin
lánafyrirgreiðsla til kaupa og við-
gerða eldra húsnæðis myndi leiða
til mun betri nýtingar húsnæðis í
eldri hverjum borgarinnar, sem
sfðan Ieiddi til betri nýtingar
ýmiss skólahúsnæðis og ýmissa
þjónustustofnana borgarinnar.
Tómas Árnason (F) sagði rétt
vera að núverandi stjórn hefði
stóreflt byggðasjóð. Hinsvegar
Framhald á bls. 34
FélMslíf
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur aðalfund i Sjómannaskól-
anum, þriðjudaginn 4. febrúar kl.
8 30 Stjórnin.
Kvenfélag Keflavíkur
Fundur í kvöld í Tjarnarlundi kl. 9.
Margrét Stefánsdóttir, húsmæðra-
kennari verður með sýnikennslu á
osta og mjólkurréttum.
Stjórnin.
Félag einstæðra
foreldra
auglýsir spilakvöld að Hallveigar-
stöðum fimmtudagskvöld 6.
febrúar kl. 9. Góð verðlaun. Mæt-
ið vel og stundvislega.
FRUMVARP til laga um lánasjóð
íslenzkra rithöfunda var til 1. um-
ræðu í efri deild Alþingis f gær.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að
stofnfé sjóðs, kr. 21,7 m., verði
greitt úr ríkissjóði, í fyrsta sinn í
fjárlögum ársins 1976, og sfðan
árlega fjárhæð, sem ekki nemi
lægri upphæð en stofnfjárfram-
lagið. Rétt til greiðslna úr sjóðn-
um skulu hafa íslenzkir rithöf-
undar og höfundar fræðirita og
heimildarákvæði er um greiðslu
fyrir þýðingar á íslenzku. Mennta-
málaráðuneytið skal setja reglu-
gerð um framkvæmd laganna, að
höfðu samráði við félagssamtök
rithöfunda, þar sem m.a. skal
kveðið á um stjórn sjóðsins,
vörzlu hans og greiðslur úr
honum. — Frumvarp þetta er
stjórnarfrumvarp.
Vilhjálmur Hjálmarsson (F),
menntamálaráðherra, mælti fyrir
frumvarpinu. Hann greindi frá
því að Alþingi hefði samþykkt
þingsályktun um þetta efni 18.
maí 1972. Samkvæmt þeirri álykt-
un skyldi endurgreidd til rithöf-
unda fjárhæð, er næmi sem næst
andvirði söluskatts af bókum.
Nefnd var sett f það að kanna hve
söluskattur af bókum næmi hárri
upphæð f nóvember 1972. Nefnd-
in komst að þeirri niðurstöðu, að
söluskattur af bókum íslenzkra
höfunda það ár, 1972, næmi 21,7
m. kr.
16. janúar 1973 skipaði mennt-
málaráðuneytið nefnd til að
semja reglur, skv. þingsályktun-
inni. 1 nefndina voru skipuð:
Svava Jakobsdóttir, skv. til-
nefningu Rithöfundasambands
Islands, Einar Bragi, skv. til-
nefningu Rithöfundafélags Is-
lands, dr. Gunnar Thoroddsen,
skv. tilnefningu Félags fsl. rithöf-
unda, Bergur Guðnason, skv. til-
nefningu fjármálaráðuneytisins
og Knútur Hallsson, án til-
nefningar, og var hann jafnframt
skipaður formaður nefndarinnar.
Nefndin hefur samið bráða-
birgðareglur og vinnur nú að
samningu varanlegra reglna. Þá
var nefndinni falið að semja
frumvarp um þetta efni, sem nú
liggur fyrir til umræðu á Alþingi.
Nefndin taldi ekki ástæðu að
binda framlag til rithöfundasjóðs
söluskatti af bókum, enda sölu-
skattur óeðlileg viðmiðun og
breytingum háður, og gerir ráð
fyrir föstu fjárlagaframlagi til
hans.
Menntamálaráðherra taldi
ástæðu til að endurskoða f heild
fjárstuðning Alþingis og ríkis-
sjóðs við listgreinar og listamenn
með það f huga, að þessar fjárveit-
ingar nýttust sem bezt til listsköp-
unar og listtúlkunar.
Jón G. Sólnes (S) sagðist ekki
leggja dóm á réttmæti endur-
greiðslu á söluskatti af bókum til
rithöfunda. Hinsvegar væri þetta
frumvarp dæmigert sýnishorn af
þróun í meðferð opinberra fjár-
muna. Það byrjaði eins og önnur
AIMAGI
slík „Ríkissjóður skal greiða...“
Hér væri sáð frækorni, sem fyrr
en varði gæti orðið að nýrri stofn-
un í kerfinu, vaxandi ríkisútgjöld-
um og aukinni skattheimtu á al-
menning. Með tilliti til þess hvern
veg áraði nú í þjóðarbúinu, væri
naumast tfmabært að stofna til
nýrra útgjalda og álaga. Væri
hann ekki reiðubúinn til að taka
afstöðu með þessu frumvarpi á
þessi stigi málsins, enda þyrfti
það nánari íhugunar og athugun-
ar við.
Jón Armann Héðinsson (A)
taldi það djörfung að flytja nú,
eins og áraði á efnahagssviði, slíkt
frumvarp. Það væri raunar
gamall kunningi í sölum Alþingis,
hvern veg auka skuli framlög til
stuðnings rithöfundum. Hann
sagðist taka undir orð Jóns G.
Sólnes og kvað rétt að fara með
gát í slík mál við núverandi að-
stæður, þegar jafnvel svo kynni
að fara, að taka þyrfti nýlega sam-
þykkt fjárlög til endurskoðunar f
sparnaðarskyni. — Þá sagði Jón
Ármann, að hann teldi, ef slíkt
frumvarp ætti að ná fram að
ganga, að framlög til tónskálda
þyrftu við að bætast. Efalaust
teldu aðrir, að fleiri listgreinar
ættu jafnan rétt. Hann sagðist
myndu fylgja þessu sjónarmiði
sínu eftir f menntamálanefnd
deildarinnar.
Fleiri tóku ekki þátt í umræð-
unni. Önnur mál voru ekki á dag-
skrá í efri deild. Málinu var vfsað
til 2. umr. og menntamálanefnd-
ar.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa.
Bernhöftsbakarí,
Bergstaðastræti 14.
Veðurstofan
óskar eftir ræstingafólki til afleysinga í fríum og
forföllum.
Upplýsingar gefur Jón Guðjónsson í síma
86000 kl. 14—17.
Iðnaðarlóð
Til sölu 4000 fm iðnaðarlóð á mjög góðum
stað á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Tilbo merkt: „lóð — 6574”, sendist afgr. Mbl.
fyrir 1 5. febrúar.
Einbýlishús til sölu
við Arnartanga í Mosfellssveit um 140 fermetra
og bílskúr, tilbúið undir tréverk með viðar-
klæddu stofulofti. Ófengið húsnæðismála-
stjórnarlán.
Upplýsingar gefur Jón Hjaltason, hrl. Garða-
stræti 1 3. Sími 1 3945 í dag þriðjudag og síma
1847 Vestmannaeyjum miðvikudag —
fimmtudag.
Nýtt Nýtt
frá Ítalíu
Peysur — skyrtublússur.
Margar stærdir.
Glugginn,
Laugavegi 49
Nefndin.
Stúlka
getur fengið atvinnu við afgreiðslustörf í bóka-
verzlun í miðborginni.
Þarf að hafa góða framkomu og vera ábyggileg.
Umsóknir sendist Mbl. merktar „B — 8567”
er tilgreini aldur, skólagöngu og fyrri störf.
BINGÓ — BINGÓ — BINGÓ
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna heldur bingó að Hótel Borg miðvikudaginn 5. febrúar
kl. 20.30. Tólf glæsilegir vinningar. Aðalvinningur Mallorcaferð
Stjórnin.