Morgunblaðið - 04.02.1975, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
Litlar breytingar á
stöðu efstu liðanna
Engin þáttaskil urðu f ensku 1.
deildar keppninni f knattspyrnu
á laugardaginn. Enn er staðan
mjög óviss og flest liðin eiga
fræðilega möguleika á titlinum f
ár. Hins vegar má búast við þvf að
hvað úr hverju fari lfnurnar að
skýrast. Everton hélt forystusæti
sínu f keppninni með þvf að vinna
nauman sigur yfir Tottenham
Hotspur á heimavelfi sfnum, Ips-
wich er f öðru sætí, en góður
sigur Stoke yfir Manchester City
færði liðinu þriðja sætið f deild-
inni. Burnley er síðan í fjórða
sæti, og munar tveimur stigum á
þvf liði og Everton. Skammt á
eftir eru svo West Ham Uni-
ted, Liverpool, Middlesbrough,
Derby, Manchester City og Leeds
United, en liðið varð að gera sér
jafntefli að góðu á móti Coventry
á heimavelli sfnum á laugardag-
inn. Nokkuð sem kom á óvart
eftir hin mikla ham sem verið
hefur á Leeds-liðinu að undan-
förnu, en það hefur stefnt hrað-
byri upp á við eftir hina slöku
byrjum sfna í mótinu.
Leikur toppliðsins, Everton, og
Tottenham Hotspur var lengst af
mjög jafn, og átti Lundúnaliðið
öllu fleiri sóknir í leiknum, en
gekk hins vegar ákaflega erfið-
lega að finna leiðina í gegnum
hina þéttu og ágætu vörn Ever-
ton-liðsins. Sóknir Everton voru
hins vegar til muna opnar og
meiri hætta þeim samfara, en
írski landsliðsmaðurinn Pat Jenn-
ings, sem lék nú aftur í marki
Tottenham eftir 15 mánaða fjar-
veru vegna meiðsla stóð sig með
mikilli prýði og hélt marki sinu
hreinu alltframá80. mínútu er
Jim Pearson, sem komið hafði
inná sem varamaður tókst að snúa
á Tottenhamvörnina og leika al-
veg upp i markið. Reyndist þetta
sigurmark þessa jafna leiks.
Tvö mörk, beint úr aukaspyrn-
um, færðu Ipswich Town, 2—0
sigur yfir Wolves í fremur jöfn-
um leik liðanna sem fram fór á
heimavelli Ipswich. Bæði mörkin
komu í fyrri hálfleik. Það fyrra
skoraði Kevin Beattie á 23. min-
útu og fjórum mínútum síðar
bætti Colin Viljoen öðru marki
við. 1 báðum tilfellunum hafði
verið dæmd aukaspyrna á Ulfana
rétt utan vitateigsins, og skot Ips-
wich-leikmannanna heppnuðust
fullkomlega og höfnuðu i mark-
hornunum, án þess að vörn eða
markvörður fengju vörnum við
komið.
Stoke City sýndi glæsilega
knattspyrnu í leik sfnum við Man-
chester City, og hefur iiðið ekki
leikið eins vel i annan tíma. Mín-
útu fyrir lok fyrri hálfieiks kom
fyrsta markið og var það Ian
Moore sem það skoraði. Á 66. min-
útu bætti Alan Hudson öðru
marki við, Moore breytti stöðunni
í 3—0 á 82. mínútu og lokaorðið í
þessum ágæta leik Stoke átti
Geoff Hurst sem skoraði á 86 mín-
útú.
Burnley, liðið sem fáir hafa
veitt athygli i vetur, en hefur eigi
að siður komið á óvart með glæsi-
legri frammistöðu sinni, átti í erf-
iðleikum í leik sinum í Birming-
ham. Heimalióið náði forystu þeg-
ar á 22. minútu þegar Gary Emm-
anuel skoraði fyrsta mark sitt i 1.
deildar keppninni fyrir lið sitt.
Ray Hankin, hin marksækni leik-
maður Burnley náði að jafna
nokkrum mínútum fyrir lok fyrri
hálfleiksins. I seinni hálfleiknum
sótti Burnley svo til muna meira,
en tókst aldrei að bæta vió marki
eða mörkum.
Algjör heppnisstimpill var á
2—0 sigri Arsenal yfir Liverpool.
I þessum leik sýndu gestirnir
miklu betri knattspyrnu en
heimaliðið, og var það fyrst og
fremst einstaklingsframtak hins
harðskeytta Arsenal-leikmanns
Alan Ball sem færði Lundúnalið-
inu sigurinn. Hann skoraði bæði
mörkin, hið fyrra með góðu skoti
utan frá vítateigslínu og hið
seinna með þvi aó vippa knettin-
um yfir markvörð Liverpool, eftir
að hafa snúið á vörnina og komizt
innfyrir.
Derby County náði forystunni í
leik sinum við Queens Park Rang-
ers og var það Bruce Rich sem
skoraði þegar á 3. minútu. En
Adam var ekki lengi í Paradis.
Lundúnaliðið náði þarna skínandi
góðum leik, og hreinlega yfirspil
aði gestina. Eftir mikla pressu að
marki Derby varð David Nish það
á að skora sjálfsmark en Don Giv-
ens skoraði siðan tvö mörk og
Dave Thomas eitt, þannig að úr-
slitin urðu 4—1 sigur Queens
Park Rangers.
Middlesbrough náði einnig for-
ystu í leik sínum við Newcastle er
John Hickton skoraðu á sjöundu
mínútu. En Newcastle náði sér
síðan vel á strik, og þrátt fyrir að
Middlesbrough legði alla áherzlu
á að gæta fengs sins tókst það
ekki þar sem þeir Malcolm Mac-
Donald og Micky Burns skoruðu i
seinni hálfleiknum.
Botnliðin í deildinni Luton
Town og Leicester City náðu bæði
jafntefli I leikjum sinum á laugar-
daginn. Luton náði kærkomnu
stigi í viðureign sinni við Sheff-
ield United á útivelli, en Leicest-
er lék gegn Chelsea á heimavelli.
Eins og vant hefur verið í vetur,
var það ekki viðureign liða í 1.
deild sem dró að sér flesta áhorf-
endur í Englandi á laugardaginn.
47.000 manns komu til þess að
horfa á viðureign Manchester
United og Bristol City. Og hinir
fjölmörgu fylgjendur Manchester
iiðsins urðu nú vitni að fyrsta
ósigri liðsins á heimavelli í vetur.
Eftir að staðan hafði verið 0—0 i
hálfleik tókst Donnie Gillies að
skora sigurmark Bristolliðsins i
seinni hálfleiknum. Urslitin
breyta þó engu um það að United
hefur enn örugga forystu í 2.
deildar keppninni, og varð þar
engin röskun á að þessu sinni, þar
sem helzti andstæðingur liðsins i
baráttunni, Sunderland, tapaði
einnig sinum leik. Er nú Sunder-
iand eina liðið i 1. og 2. deildar
keppninni í Englandi sem ekki
hefur tapað leik á heimavelli á
þessu keppnistímabili.
3. og 4. deild
I 4. deildar keppninni kom það
fyrir á laugardaginn sem harla
fátítt er i ensku knattspyrnunni.
Skoruð voru 11 mörk í leik
Shrewsbury Town og Doncaster
Rovers. Fyrrnefnda liðið sigraði í
leiknum með sjö mörkum gegn
fjórum og skoraði einn leikmanna
þess, Ray Haywood, þrjú mörk í
leiknum.
I 3. deildar keppninni eru nú
þrjú lið efst og jöfn að stigum:
Blackburn, Plymouth og Charlton
sem öll hafa 35 stig. Næstu lið eru
svo Preston North End, liðið hans
Bobby Charltons, með 33 stig,
Crystal Palace með 32 stig og Pet-
erbrough sem einnig er með 32
stig.
I fjórðu deildar keppninni
skera tvö lið sig úr. Það eru Mans-
field sem er með 46 stig, og
Shrewsbury sem er með 42 stig.
Næstu lið hafa um 10 stigum
minna, en þar eru mörg í barátt-
unni.
Skotland
Glasgow Rangers tók hreina
forystu í skozku 1. deildar keppn-
inni á laugardaginn, er liðið gerði
jafntefli við Morton 1—1. John
Hazel skoraði fyrir Morton á 16.
mínútu og varð það ekki fyrr en
aðeins 4 mínútur voru til leiks-
loka að Graham Fyfe tókst að
jafna fyrir toppliðið. Baráttan er
nú mjög hörð í skozku 1. deildar
keppninni, þar sem mikiar breyt-
ingar eru þar fyrirhugaðar á
deildaskiptingunni. Verða fram-
vegis aðeins 10 lið í 1. deild, og má
því segja að baráttan sé harðari
en nokkru sinni fyrr. Staðan í
skozku 1. deildinni er sem hér
segir. Tala leikja liðanna í sviga:
Glasgow Rangers 37 stig (22),
Celtic 36 stig (22), Hibernian 33
stig (23), Aberdeen 26 stig (22),
Dundee United 26 stig (22),
Hearts 24 stig (23), Dundee 21
stig (22). Ayr 21 stig (22), Dun-
fermline 20 stig (21), Motherwell
20 stig (22), Partick 19 stig (23),
Airdrie 18 stig (21), St. John-
stone 18 stig (22), Kilmarnock 17
stig (21), Morton 17 stig (22),
Clyde 16 stig (22), Dumbarton 13
stig (20), og Arbroath 12 stig
(22).
West Ham færðist ofar á töflunni með sigri sínum yfir Carlisle.
Myndin sýnir hinn þeldökka leikmann West Ham, Clyde Best, í
baráttu við markvörð Swindon, er liðin mættust i ensku bikarkeppn-
inni fyrra laugardag.
1. DEILD
L HEIMA UTI STIG
Everton 27 7 7 1 23—12 4 6 2 17—13 35
Ipswich Town 28 11 2 1 28—4 5 0 9 11—17 34
Stoke City 28 9 5 1 27—12 3 4 6 17—22 33
Burnley 28 8 3 3 27—17 5 4 5 21—24 33
West Ham United 28 8 4 2 32—15 3 5 6 15—22 31
Liverpool 26 9 2 2 27—12 4 3 6 9—13 31
Middlesbrough 28 6 5 2 22—12 5 4 6 16—20 31
Derby County 27 8 2 2 26—13 4 5 6 16—24 31
Manchester City 28 11 2 1 28—9 1 5 8 9—30 31
Leeds United 28 8 4 2 24—11 4 2 8 15—20 30
Queens Park Rangers 28 6 2 6 18—15 5 4 5 20—22 28
Sheffield United 27 7 6 2 22—16 3 2 7 14—23 28
Newcastle United 26 9 3 2 26—14 2 3 7 12—28 28
Coventry City 28 6 5 2 21—15 2 5 8 15—29 26
Arsenal 27 6 4 3 21—10 3 3 8 11—21 25
I Wolverhampton Wand. 27 6 4 3 23—15 2 5 7 10—20 25
Birmingham City 28 7 2 6 25—22 2 4 7 11—21 24
Tottenham Hotspur 28 4 4 6 18—17 4 3 7 18—24 23
Cheisea 27 2 6 5 13—21 4 5 5 15—24 23
Carlisle United 28 5 17 12—13 3 2 10 16—25 19
Leicester City 27 3 5 6 12—14 2 3 8 12—28 18
Luton Town 27 3 4 6 15—20 1 5 8 9—20 17
2. DEILD
L HEIMA UTI stig
Manchester United 28 11 2 1 28—8 6 4 4 15—12 40
Sunderland 28 9 4 0 25—3 4 5 6 22—21 35
Norwich City 28 9 2 2 22—9 3 7 5 17—18 33
Aston Villa 27 10 2 1 29—4 3 4 7 12—19 32
Bristol City 27 8 4 1 16—3 4 3 7 11—15 31
Blackpool 28 9 3 2 22—12 2 6 6 6—10 31
W.B.A. 27 7 4 3 18—11 4 4 5 12—10 30
Oxford United 29 11 0 3 23—14 1 5 9 7—26 29
Bolton Wanderes 26 9 4 2 25—9 2 2 7 8—16 28
Hull City 27 7 5 1 17—9 2 5 8 13—36 28
Notthingham Forest 28 5 5 4 17—15 5 2 7 13—21 27
Southampton 27 5 6 2 16—12 4 3 7 19—22 27
Notts County 28 6 7 1 26—16 2 4 8 7—23 27
Orient 27 3 7 3 10—13 2 9 3 10—14 26
Fulham 28 6 4 4 20—11 1 7 6 5—11 25
Portsmouth 28 5 6 3 17—13 3 3 8 10—22 25
York City 27 6 4 4 19—12 3 2 8 14—26 24
Bristol Rovers 28 7 3 5 15—14 2 3 8 13—28 24
Cardiff City 27 6 5 4 19—15 1 4 7 8—23 23
Oldham Atletic 27 7 4 3 19—13 0 4 9 7—18 22
Millwail 28 7 5 2 25—11 0 2 12 7—29 21
Sheffield Wed. 27 3 5 5 16—19 2 3 9 11—23 18
K nattspyrnuúrslit;
ENGLAND 1. DEILD:
Arsenal — Liverpool 2—0
Birmingham — Burnley 1—1
Everton — Tottenham 1 —0
Ipswich — Wolves 2—0
Leeds — Coventry 0—0
Leicester — Chelsea 1—1
Newcastle — Middlesbrough 2—1
Queens Park — Derby 4—1
Sheffield Utd. — Luton 1—1
Stoke — Manchester City 4—0
West Ham — Carlisle Utd. 2—0
ENGLAND 2. DEILD:
Blackpool — Sunderland 3—2
Bolton — Millwall 2—O
Bristol Rovers — Norwich 0—2
Cardiff — Orient O—O
Fulham — Hull 1—1
Manchester Utd. — Bristol C. 0—1
Notts County — Aston Villa 1 —3
Oldham — Notthingham 2—0
Portsmouth — Oxford 2—1
W.B.A. — Southampton 0—3
ENGLAND 3. DEILD:
Blacburn — Peterborough 0—1
Bournemouth — Walsall 0—1
Charlton — Aldershot 3—1
Chesterfield — Port Vale 1—0
Colchester — Huddersfield 3—2
Crystal Palace — Bury 2—2
Halifax — Gillingham 1—1
Hereford — Wrexham 1—0
Southend — Preston 1 — 1
Urslit getrauna
LEIKVIKA 23
L«tklr 1. fobrúar 197S
Arsenal - Liverpool
Blrmlngham - Burnley
Everton - Tottenham
Ip8wich - Wolves
Leeds - Coventry
Leicester - Chelsea
Newcastle - Mlddlesbro
Q.P.R. - Derby
Sheff Utd. - Luton
Stoko - Manch. Clty
West Ham - Carllsle
Fulham - Hull
1 2
rfí 2 1 JL a.
7
> ct H
/; 1
/<
/
/
>
/
/
> -
Swindon — Brighton frestað
Watford — Plymouth 1—3
ENGLAND 4. DEILD
Barnsley — Bradford 2—2
Cambrigde — Rochdale 1—1
Chester — Northampton 4—1
Hartlepool — Darlington 2—0
Mansfield — Brentford 1 —1
Reading — Workington 3—0
Rotherham — Swansea 1—0
Scunthorpe — Cester 2—1
Shrewsbury — Doncaster 7—4
Torquay — Lincoln 1—3
SKOTLAND 1. DEILD
Aberdeen — Hearts 2—2
Celtic — Dumbarton frestað
Dundee Utd. — Airdrieonians 1 —0
Dunfermline — Clyde 1—1
Hibernian — Dundee 2—1
Kilmarnock — St. Johnstone 1—1
Morton — Rangers 1—1
Motherwell — Arbroath 3—1
Partick — Ayr 2—2
SKOTLAND 2. DEILD:
Albion — East Fife frestað
Alloa — Queens Park 3—0
Berwick Rangers — Stirling 2—1
Clydebank — Brechin 3—1
Falkirk — East Stirling 0—1
Forfar — Queen of the South 2—3
Montrose — Meadowbank 2—0
Raith Rovers—Hamilton 1—0
St. Mirren — Stenhousemuir 4—1
Stranraer — Cowenbeath 2—1
V ÞÝZKALAND 1. DEILD:
Hertha BSC Berlín —
Bayern Munchen 4—1
Borussia Mönchengladbach —
Eintracht Frankfurt 3—0
Kickers Offenbach —
Hamburger SV 4—1
VFB Stuttgart — Fortuna
Dusseldorf 1—1
FC Köln — VFL Bochum 4—1
Wuppertaler SV —
Rot Weiss Essen 0—2
Eintracht Braunswick —
FC Kaiserslautern 3—2
Werder Bremen —
Tennis Borussia Berlin 1—1
Schalke 04 — MSV Duisburg 5—0