Morgunblaðið - 04.02.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
17
Frank
Carrodus
Frank Carrodus er alls
ekki með kunnari nöfnum
sem ber á góma í umræðu
um enska knattspyrnu.
Margir telja þó að ekki líði á
löngu þar til nafn hans verð-
ur á hvers manns vörum.
Meðal þeirra er fram-
kvæmdastjóri Aston Villa,
Ron Sáunders.
Saunders tók við fram-
kvæmdastjórn Villa s.l.
haust eftir að hann hafði
verið rekinn frá Manchester
City. Hjá City var hann
aðeins 5 mánuði.
Eitt hans fyrsta verk hjá
Aston Villa var að fá sam-
þykki stjórnar félagsins til
að kaupa Frank Carrodus
frá City fyrir 100 þús. pund.
Samþykkið var veitt og nú
er Carrodus orðinn einn
burðarása Aston Villa, lið-
sins sem er í úrslitum
deildarbikarsins og hefir
góða möguleika á að vinna
sæti í 1. deild að nýju.
Carrodus er fæddur í
Manchester. Sem unglingur
var hann aðdáandi Man.
Utd. Sá hinn frægi Malcolm
Allison uppgötvaði hæfi-
leika hans þegar hann sá
hann leika með Altrincham.
Honum var þegar boðið að
gerast leikmaður City, sem
hann og þáði með þeim skil-
yrðum þó að hann fengi að
ljúka vélfræðinámi sem
hann lagði stund á. Að þessu
gekk Man. City.
Á sl. leiktímabili hafði
Carrodus svo gott sem unnið
sér fast sæti i aðal liði City,
lék 16 leiki. Því varð hann
mjög undrandi þegar for-
ráðamenn félagsins til-
kynntu honum í sumar að
félagið hefði ekki lengur not
fyrir hann. „Mig langaði alls
ekki að fara frá Manchester.
Þar liggja rætur mínar. Ef
City vildi losna við mig gat
ég ekki hugsað mér að fara
lengra heldur en yfir götuna
til Old Trafford, en þar virt-
ist enginn áhugi á þvi að fá
mig.“
Þá kom tilboðið frá Aston
Villa. „Ég þekkti Saunders.
Okkur hafði komið vel sam-
an og ég hefi alltaf haft álit
á Aston Villa, það er lið sem
tvímælalaust á heima í 1.
deild. Því var mér ekkert að
vanbúnaði og ég tók tilboð-
inu.“
Áður en Carrodus gat leik-
ið sinn fyrsta leik fyrir Villa
hafði mánuður liðið af tíma-
bilinu vegna þess að hann
átti við meiðsl að stríða.
Fyrsti leikur hans var gegn
Everton ( deildarbikarnum.
Villa sigraði með marki
Carrodus og blöð þarlend
luku einróma lofsorði á
þennan snjalla knattspyrnu-
mann. Skömmu síðar var
Framhald á bls. 21.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
( kaffiboðinu. Fremri röð frá
vinstri: Þórunn Alfreðsdóttir,
Sigurður Thorarensen, Lovísa
Sigurðardóttir. Aftari röð: Jó-
hann Briem, framkvæmdastjóri
Frjáls Framtaks h.f., Hjálmur
Sigurðsson, Sigurður T. Sigurðs-
son, Halldór Jónsson, Jóhannes
Eðvaldsson, Kristinn Stefánsson,
Árni Þór Helgason, Daniel Frið-
riksson, Jón Sigurðsson, Erlend-
ur Valdimarsson og Gísli Hall-
dórsson, forseti lSl. Minni mynd-
in sýnir svo Jóhann Briem af-
henda Lovísu Sigurðardóttur
verðlaun sín.
Iþrótta-
fólk
heiörað
IÞRÓTTASAMBAND íslands
efndi til kaffisamsætis að Hótel
Loftleiðum s.l. miðvikudag, en þá
var afmælisdagur sambandsins. 1
samsætinu voru 15 iþróttamenn
og (þróttakonur heiður að tilhlut-
an Iþróttablaðsins og fyrirtækis-
ins Frjálst framtak h.f. sem sér
um útgáfu blaðsins. Veitti fyrir-
tækið verðlaun þeim, er sérsam-
böndin innan ISl höfðu tilnefnt
sem bezta einstaklinginn ( við-
komandi íþróttagrein á síðasta
ári.
NÝLEGA birtist í skozka
blaöinu The Glasgow Her-
ald grein um knattspyrnu-
þjálfarann Duncan
McDowell, sem er íslenzk-
um knattspyrnuáhuga-
mönnum vel kunnur.
Duncan þjálfaði hér fyrst
Duncan McDowell, broshýr að
vanda, hampar vegabréfi sínu til
Hong Kong, en þar mun hann
þjálfa knattspyrnulið næstu sex
mánuðina.
Eftirtalin hlut verðlaun þessi:
Badminton: Lovísa Sigurðardótt-
ir, TBR
Blak: Halldór Jónsson, IS
Borðtennis: Jón Sigurðsson,
UMFK
Frjálsar íþróttir: Erlendur Valdi-
marsson, IR
Fimleikar: Sigurður T. Sigurðs-
son, KR
Glíma: Hjálmur Sigurðsson, UMF
Víkverja
Golf: Sigurður Thorarensen,
Golfk. Keili
Handknattleikur: Viðar Simonar-
son, FH
Júdó: Sigurður Kr. Jóhannsson,
JR
Knattspyrna: Jóhannes Eðvalds-
son, Val
Körfuknattleikur: Kristinn
Stefánsson, KR
2. deildar lið FH eitt
sumar, var síðan með
landsliðið um tíma og síð-
an 1. deildar lið IBV í tvö
sumur. Hefur Duncan víða
farið sem knattspyrnu-
þjálfari, enda fyrirsögn
greinarinnar: McDowelI,
hinn glaði förusveinn
knattspyrnunnar. Segir
síðan að enginn skozkur
knattspyrnuþjálfari hafði
gerzt eins víðförull og
Duncan, og sé hann nú bú-
inn að ráða sig sem þjáif-
ari, ekki á tslandi, Noregi,
Svíþjóð, Danmörku,
Belgíu, Hollandi, V-
Þýzkalandi, Bandaríkjun-
um eða Kanada, þar sem
hann hafi starfað áður,
heldur liggi leið hans nú
til Hong Kong þar sem
hann muni taka við þjálf-
un liðsins Carolina Hill.
Töluvert er fjallað um veru
Duncans á Islandi og sagt, að
hann hafi verið framkvæmda-
stjóri fBV-liðsins, sem leiki í 1.
deild á Islandi, og hann hafi náð
góðum árangri með liðið, gert það
að islenzkum bikarmeisturum og
þar með komið því í Evrópu-
Siglingar: Daniel Friðriksson,
Siglk. Vmi
Lyftingar: Arni Þór Helgason, KR
Skiði: Magnús Eiríksson, Skíðaf.
Fljótamanna
Sund: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi.
Framkvæmdastjóri Frjáls fram-
taks h.f., Jóhann Briem, afhenti
íþróttafólkinu verðlaun sin, en
þau voru mjög smekkleg stytta.
I ávarpsorðum, sem Gisli Hall-
dórsson, forseti ISI, flutti, gat
hann þess að þetta væri í annað
skiptið sem iþróttafólk væri
heiðrað af Iþróttablaðinu á þenn
an hátt. Kvaðst hann vonast til
þess að hér væri orðið um fastan
lið i íþróttastarfinu að ræða, og
væri áformað að veita verðlaun
þessi framvegis á afmælisdegi
ISl.
keppnina. Honum hafi einnig
verið gefið færi á að vera með
íslenzka landsliðið og hafi hann
þá verið yngsti landsliðsþjálfari
er sögur fóru af, aðeins 25 ára.
Hann hafi stýrt íslenzka landslið-
inu tvívegis gegn Belgíumönnum,
og sigruðu Belgíumennirnir 4—0
í bæði skiptin, þannig að segja
megi að það hafi verið Islend-
ingar sem ýttu þeim frá loka-
keppni HM sl. sumar.
Eftir að Duncan fór frá ÍBV í
fyrrasumar gegndi hann um skeið
þjálfarastörfum í Skotlandi, en
hélt siðan til Bandaríkjanna og
Kanada, þar sem hann starfaði
sem þjálfari. Segir Duncan að
hvergi vildi hann fremur starfa
en í Englandi eða Skotlandi, en
þar sé samkeppnin um að fá góða
þjálfarastöðu gifurlega hörð og
þvi erfitt að komast þar að. Því sé
hins vegar ekki að neita að gaman
sé af þeirri tilbreytni sem þjálf-
arastarf i mörgum löndum bjóði
upp á. Það sé t.d. spennandi við-
fangsefni að þjálfa Hong Kong-
liðið. Það sé nú i fjórða sæti i
deildinni, tveimur stigum á eftir
því sem er i forystu.
I lok greinarinnar er Duncan
hrósað sem þjálfara og sagt að
hann hafi m.a. átt þátt að þjálfun
ekki ómerkari leikmanna en Joe
Jordan (Leeds), Neil McNab
(Tottenham) og Gerry Gow
(Bristol City).
Asgeir
Elíasson
ÞAÐ fer vart á milli mála að
Ásgeir EKasson er einn okk-
ar allra fjölhæfasti knatt-
íþróttamaður. Hann er ann-
ar tveggja tslendinga sem
leikið hafa landsleiki i
þremur greinum knatt-
íþrótta. Hinn er Anton
Bjarnason. Asgeir Eliasson
hefir verið valinn til að
leika í landsliði Islands í
knattspyrnu, handknattleik
og blaki. Flestir eru lands-
leikir hans í knattspyrnu, 21
talsins. Fyrsti knattspyrnu-
landsleikur hann var gegn
Englendingum og fór hann
fram í Slough í grennd við
Lundúni árið 1970. Þeim
leik tapaði lsland með einu
marki gegn engu. Sá síðasti
sem Ásgeir lék var hinn
frægi leikur gegn A-
Þýzkalandi sem fram fór í
Magdeburg nú ( haust. Eins
og allir muna iyktaði þeim
leik með jafntefli eins og
frægt hefir orðið. Sá lands-
leikur mun mönnum seint
úr minni líða.
Ásgeir er félagi í Fram
og hefir leikið með því fé-
lagi í gegn um alla flokka.
Hann lék fyrst með mfl.
Fram árið 1967, þá á átjánda
aidursári. Frá 1968 hefir As-
geir verið fastur maður (liði
Fram. Hann hefir einu sinni
á ferli sinum orðið Islands-
meistari með mfl. og tvisvar
bikarmeistari. Af því leiðir
að Asgeir hefir þrisvar tekið
þátt í Evrópukeppni ( knatt-
spyrnu, siðast nú í sumar i
keppni bikarhafa. Andstæð-
ingar Fram voru ekki
ómerkari en Real Madrid,
það heimsfræga félag. Það
var almannarómur að
frammistaða Fram gegn þvi
liði hafi verið íslenzkri
knattspyrnu til mikils sóma.
1 knattspyrnu hefir Ásgeir
og leikið 8 unglingalands-
leiki.
Tvisvar hefir Asgeir verið
valinn í landslið í hand-
knattleik. Báðir leikirnir
voru gegn Spáni ytra. Fyrri-
leikurinn var leikinn undir
berum himni og sigraði
Spánn með yfirburðum. 1
siðari leiknum snerist taflið
við, en þá var leikið við þær
aðstæður sem islenzkir
handknattleiksmenn eiga að
venjast.
Ásgeir leikur með l.R. I
handknattleik. Gengi l.R. i
yfirstandandi Islandsmóti
hefir enn sem komið er ver-
ið heldur litið. Sem stendur
er félagið i neðsta sæti og
hörð barátta framundan. As-
geir sagði að sigurinn yfir
F.H. í síðasta leik hefði
vissulega gefið byr undir
báða vangi. Það væri erfitt
Framhald á bls. 21.
FÖRUSVEINN KNATTSPYRNUNNAR