Morgunblaðið - 04.02.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
Minning:
Egill Áskelsson frá
Austari - Krókum
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Egill Áskelsson er horfinn sjón-
um okkar, horfinn yfir á land
lifenda, þar sem þreyttir fá hvild,
og Guð leggur likn með þraut.
Starfi hans er lokið hér í heimi,
en eflaust fær hann „meira að
starfa Guðs um geim“, en mikill
starfsmaður var Egill, traustur og
heiðvirður, eins og bezt verður á
kosið. Hann hafði unnið að hinum
margvíslegustu störfum um æv-
ina, svo sem barnakennslu,
búskap, skrifstofustörfum, en
einnig að ritstörfum í tómstund-
um sínum, enda var hann góðum
gáfum gæddur.
Fráfall hans bar skjótt að, og að
þeim, sem standa honum næstir,
er því mikill harmur kveðinn, en
það eru börn hans, og allt skyld-
fólk, og vinir hans allir.
En fyrir rúmu ári missti Egill
konu sína Sigurbjörgu, og er það
þung sorg, að missa báða foreldra
sína á svo stuttum tíma.
En það er huggun harmi gegn,
að minninguna eiga þau um góð-
an föður, sem frá upphafi hafði
borið umhyggju fyrir fjölskyldu
sinni með meiri kostgæfni en
venja er til.
Umönnun Egils fyrir börnum
þeirra hjóna var við brugðið, allt
frá þvi er þau voru á unga aldri,
að hann kenndi þeim og fræddi,
til þess er þau hófu framhalds-
nám, að hann styrkti þau til náms-
ins með ráðum og dáð.
Börn þeirra Sigurbjargar og
Egils, sem öll eru uppkomin og
hin mannvænlegustu, bera því
vitni hversu gott uppeldi þau
fengu frá beggja hálfu.
Við, sem þekktum Egil, kveðj-
um hann með miklum söknuði og
biðjum honum guðsblessunar á
æðri sviðum lifsins.
Blessuð sé minning hans.
Mágkona.
Laugardaginn síðastliðinn, 25.
janúar, andaðist einn af minum
hugþekkn nemendum frá Laug-
um, Egill Askelsson, fyrrum sim-
stjóri á Grenivík og hreppstjóri
Grýtubakkahrepps, en síðustu ár-
in starfsmaður á skattstofu
Reykjavíkur. Hans er mér alltaf
ljúft að minnast.
Egill fæddist í Austari-Krókum
i Fnjóskadal 28. febrúar 1907.
Foreldrar hans voru Askell
Hannesson og Laufey, dóttir hins
mikla heljarmanns Jóhanns
Bessasonar á Skarði í Dalsmynni,
og þarf þá ekki að rekja móðurætt
hans lengra. En foreldrar
Hannesar voru Friðrik Gott-
skálksson og Þuriður Kristjáns-
dóttir frá Illugastöðum í Fnjóska-
dal.
Bernskuárin með foreldrum
sínum átti Egill í Austari-Krókum
og Skuggabjörgum i Dalsmynni.
Er hann var 15 ára flutti hann
með þeim að Fagraskógi á
Arskógsströnd, þar sem þau
bjuggu á hálfri jörðinni í fjögur
ár. Þá fluttu þau að Svínárnesi á
Látraströnd og þaðan að Grenivik
1928. Frá Grenivík kom Egill til
min í Laugaskóla. 1 Laugaskóla
reyndist hann góður námsmaður,
en þó betri heimilismaður, það er
að segja félagsmaður i heimilislifi
skólans. Þá var Egill 21 árs, og
fannst mér sem nám hans byrjaði
með fullorðinsárunum og
fuliorðinsárin með námi hans. Er
hann kom frá Laugum heim til
Grenivíkur stundaði hann næstu
árin útgerð þaðan með föður sin-
um og bræðrum. En 1932
kvæntist hann Sigurbjörgu
Guðmundsdóttur frá Lómatjörn.
Svo má telja, að þau hafi farið
brúðkaupsför sína til Reykjavik-
ur, þvi þá um haustið gerðist Egill
nemandi þar I eldri deild Sam-
vinnuskólans, en Sigurbjörg vann
að mestu fyrir námskostnaðinum.
Eftir þann vetur hurfu þau enn
heim til Grenivíkur og önnuðust
þar símavörzlu um 10 ára skeið
með öðrum störfum ýmislegunú
Eftir það reistu þau bú, að
Þrastarhóli í Arnarneshreppi, en
þar kölluðu heimahagarnir á þau,
og fluttu þau bú sitt eftir árið að
Hléskógum i Grýtubakkahreppi.
Þar bjuggu þau í 19 ár, byggðu
upp jörðina og græddu, og nutu
bæði vinsælda og virðingar sveit-
unga sinna. Egill var barna-
kennari i sveitinni jafnframt bú-
stjórninni 1955—1960. Árið 1960
var honum falin hreppstjórn
sveitarinnar. Um þær mundir tók
heilsu eiginkonu hans og hús-
freyju, sem stýrt hafði búi þeirra
að sinu leyti af mikilli atorku,
mjög að hnigna. Sá Egill þá þann
kost vænstan að leita sér atvinnu i
Reykjavík, enda hvatti það þau,
að þau áttu mörg og námfús börn,
sem sáu hillingar á leið sinni, ef
þangað yrði farið. Er til Reykja-
víkur kom, fékk Egill atvinnu í
Skattstofunni í Reykjavík, og gat
búið um sig og fjölskylduna i
góðri íbúð í Granaskjóli 18 í
sjálfri höfuðborginni. Þar vann
hann það sem eftir var ævinnar
langan vinnudag, að þeim störf-
um, sem á hann kölluðu í stofnun-
inni. En er heim kom aó loknu
dagsverki þar, lét hann kvöldið
oftast líða við að rita smásögur,
sem sumar birtust síðan i Lesbók
Morgunblaðsins, eða yrkja smá-
kvæði, og flutti hann nokkur
þeirra í útvarpinu. Svo kom til
þeirra hjónanna margur góðvin-
urinn á kvöldin eða um helgar eða
þau brugðu sér í heimsókn til
þeirra, er þau fýsti að finna, og
voru þeir margir, bæði norðan úr
sveitunum, þar sem þau höfðu
alizt upp og búið eða urðu vinir
þeirra hér í Reykjavik.
Þau Egill og Sigurbjörg komu
upp 7 börnum. Er það mjög
myndarlegur barnahópur. Elzt
þeirra er Sigurður, skipasmiður,
þá Lára húsfreyja, þriðja barnið
var Bragi læknastúdent, sem fórst
i flugslysi 1958 21 árs að aldri. Þá
er næstur að aldri Áskell, sem er
skipasmiður eins og Sigurður
bróðir hans, þá Valgarður læknir,
Egill eðlisfræðingur, sem hefur
jafnframt námi sinu I Danmörku
verið fréttaritari þar fyrir útvarp-
ið okkar, en yngst systkinanna er
Laufey, hjúkrunarkona. Eru þau
hér upp talin til vitnis um, að þau
hafa öll verið búin vel að heiman.
Verður ekki vikizt undan viður-
kenningu á því, að þau Egill og
Sigurbjörg hafa skilað þjóðfélagi
sinu fullu starfi með því að hafa
komið upp slíkum hóp menni-
legra og dugandi manna, karla og
kvenna, eigi aðeins stuðnings-
laust, heldur einnig jafnframt því
sem ágætir þátttakendur í at-
vinnulífi og félagslifi þjóðarinnar
á margvislegan hátt annan, ýmist
í forystusveit hennar eða sem
óbreyttir liðsmenn.
Um börn þeirra Egils og Sigur-
bjargar skal þess enn getið, að
þau eru nú öll gift og búa við góð
efni, enda öll vel verki farin eins
og foreldrar þeirra.
Sigurbjörg lézt 10. desember
1973. Og nú er Egill látinn. Ég
þakka þeim báðum fyrir þá sam-
fylgd, sem ég hef átt með þeim i
lífinu.
Arnór Sigurjónsson.
Egill Áskelsson frá Hléskógum
lézt í Landspitalanum aðfararnótt
laugardagsins 25. janúar.
Hann var þingeyskrar ættar,
kominn af dugmiklu og gáfuðu
bændafólki langt í ættir fram.
Þegar á unga aldri kom fljótt i
ljós, að hann yrði ekki eftirbátur
forfeðra sinna um andlegt og
likamlegt atgervi.
Hann var bráðþroska og stóð
hugur hans fljótt til náms og
mennta en á þeim árum var ekki
margra kosta völ ungum og efna-
litlum sveitapiltum að stunda
langskólanám.
Hann varð þvi að láta sér nægja
tveggja vetra nám við héraðsskól-
ann á Laugum í S-Þingeyjarsýslu,
sem þá var nýstofnaður, og síðar I
Samvinnuskólanum, en þá var
þar skólastjóri hinn kunni skóla-
maður og menntafrömuður, Jónas
Jónsson frá Hriflu, sem sagt var
um, að kæmi öllum til nokkurs
þroska.
Hinum unga gervilega manni
sóttist námið vel, enda ekki slegið
slöku við, og næmi og skilningur í
bezta lagi.
Þarna öðlaðist hann þá undir-
stöðumenntun, sem dugði hon-
um vel, þegar skyldur lifsins
kölluðu hann til starfa, þar sem
ótal.verkefni biðu dugandi handa
og vakandi hugar, til að koma í
höfn óleystum verkefnum, sem til
þjóðarheilla horfðu.
Nokkuð stundaðiEgiIl Iþróttir á
yngri árum með góðum árangri,
þó að mesta áherzlu legði hann á
sundið, sem nefnt hefur verið
iþrótt iþróttanna.
Þar kom að Egill fastnaði sér
eiginkonu og varð fyrir valinu
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, ein
af mörgum Lómatjarnar-systrum,
sem kunnar voru að glæsileik og
S. Helgason hf. STEINIÐJA
Hnhohi 4 Slmcir 26677 og 14254
útfaraskreytingar
blómoual
Gróðurhúsið v/Sigtun simi 36770
t
Sonur minn dóttursonur og faðir okkar
KRISTMUNDUR INGVAR EDVARDSSON,
Barónsstíg 63,
lézt í Noregi 24 desember sl
Jóna Kristmundsdóttir,
Jónlna Jóhannsdóttir
og börn hins látna.
t Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar,
JENNÝ MAGGY ÁSGEIRSDÓTTIR.
frá Klængseli,
Gaulverjabæjarhreppi,
andaðist að Landspítalanum, laugardaginn 1 febrúar.
Sigurður Björnsson,
Ólöf Ásta, Rúrik Lyngberg,
Anna Rut, Ægir Stefán,
Diana Linda, Mary Björk,
Sigurðardætur.
t
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR SIGURÐSSON,
yfirvélstjóri,
Melabraut 69.
andaðist aðfaranótt 2. febrúar í Borgarspítalanum.
Fyrir hönd ættingja
Þurlður Guðmundsdóttir.
mm Móðir okkar, ELÍN G. lézt I Borgarspítalanum 31. janúar h HLÍÐDAL
Gunnlaugur Björnsson, Þorvaldur Björnsson, Guðmundur Björnsson.
t
Útför eiginmanns mins
FRIÐJÓNS ÞÓRARINSSONAR
Hofteig 32
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. febrúar kl. 1 3.30
Fanney Tryggvadóttir.
Útför móður okkar,
GUÐRÍÐAR AUÐUNSDÓTTUR
frá Teygingalæk,
sem andaðist 31. janúar, fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugar-
daginn 8. febrúar kl. 11. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju
föstudaginn 7. febrúar kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á líknarstofnan-
ir.
Ólafur Jón Jónsson,
Sigrfður Jónsdóttir.
Ólöf Jónsdóttir.
t
Eiginkona mín,
STEINUNN JÓNSDÓTTIR,
Vlkurbraut 54, Grindavík,
lézt i Borgarspítalanum aðfaranótt 1. febrúar.
Ragnar Magnússon.
t
Eiginmaður minn,
THEODÓR B. LÍNDAL
prófessor,
lézt sunnudaginn 2. febrúar.
Þórhildur Pálsdóttir Llndal.
t
Minningárathöfn um
BJARNA GUÐMUNDSSON,
fv. blaðafulltrúa
verður haldin i Dómkirkjunni, miðvikudaginn 5. febrúar kl 1 3.30. e.h.
Kristfn Bjamadóttir.
Hildur Bjarnadóttir,
Steinunn Bjarnadóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÁLL GEIRMUNDSSON,
er lézt á Héraðshælinu, Blönduósi, þriðjud. 28. jan., verður jarðsung-
inn frá Blönduóskirkju laugard. 8. febr. kl. 2 eftir hádegi.
Hjálmfrlður Anna Kristófersdóttir
Guðný Pálsdóttir Kristinn Pálsson
Hjálmar Pálsson Sigrlður Þ. Sigurðardóttir
og barnabörn.