Morgunblaðið - 04.02.1975, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
33
Maria
Lang:
Morö ö kvenréttindarööstefnu
Jöhanna
Kristjönsdöttir
hýddi
33
inga og ljósmyndara inni í litla
herberginu, þar sem likið var....
óljósar og loðnar yfirlýsingar I
stuttu sjónvarpsviðtali og byrj-
unaryfirheyrslur af ólýsanlegum
fjölda kvenna. Og klukkan er
orðin níu, áður en mesta hrinan
er um garð gengin. Líkið hefur
verið fjarlægt og flestir klúbb-
fulltrúanna eru farnir — tauga-
óstyrkir og nötrandi eftir reynslu
dagsins.
Á tröppunum við aðaldyrnar
rekst hann á Ruth Zettergren
prófessor. Hún situr á ferðatösk-
unni sinni og hefur vafið um sig
hlýju sjali og hún starir óræðum
augum í átt að innkeyrslunni.
Hún hefur dregið ullarhúfu yfir
hárið og hallar eilltið undir flatt
og tautar fyrir munni sér.
Christer sezt I tröppurnar við
hlið henni og dregur pipuna og
tóbakspunginn fram.
— Trufla ég yður I mikilvægum
heilabrotum?
— Nei, alls ekki. Ég sat bara og
var að fara með I huganum ljóð
eftir Lenngren. Það er óvani, sem
ég hef tamið mér, að tuldra upp-
hátt. Sumir halda ég sé eitthvað
skrítin þegar ég byrja — til
dæmis I lestinni á leið inn I bæ-
inn.
— Og I hvaða ljóð var prófessor-
inn að vitna?
Nokkur spök orð úr ljóðinu um
Betti....
— Já, ég býst við maður geri sér
grein fyrir tengslunum.
— Betti var skírð eftir stúlk-
unni I ljóðinu. Móðir hennar var
bezta vinkona min, jú, ég sé að
þér leggið saman og dragið frá, en
þér fáið ekki dæmið til að ganga
upp. Aftur á móti er þess að geta
að bæði yngsti sonur minn og
Betti voru langyngst. Ég er fegin
því að Clara skyldi ekki þurfa að
lifa þennan dag, en það er
kannski að einhverju leyti hennar
sök, að Betti varð eins og hún
varð og að lokum fór sem fór. Það
var eins og engum I fjölskyldunni
þætti vænt um þetta barn. Auk
þess lapti fjölskyldan dauðan úr
skel, en það sem var þó allra verst
var að þau voru öll að kafna úr
gáfum...
— Lítið þér á það sem neikvæða
eiginleika?
— Ekki beinlínis. En ég held
ekki það sé æskilegt að koma
fram við dóttur slna eins og van-
gefna af þvl að hún var ekki eins
gáfuð og sum hinna. Og Clara tók
þá afstöðu. Stúlkan var mjög erfið
I skapi. Sá eini, sem hafð snefil af
þolinmæði með henni var Henrik,
sonur minn. Það er hann, sem
kemur að sækja mig — þarna er
bíll að koma, ég vona það sé hann
— nei, svona lúxuskerru á hann
ekki. Ætli það séu ekki einhverjir
undirmanna yðar.
En berhöfðaði, dökkhærði
maðurinn, sem stekkur út úr
Cadilljákinum sínum, nánast áður
en hann stöðvast er ekki lögreglu-
maður. Án þess svo mikið sem
hvarfla augum á þau sem úti sitja,
tekur hann tröppurnar i einu
stökki.
Að dómi Christers er mjög
sennilegt að hann sé ein af lykil-
persónum I Blachtstaharmleikn-
um....
— Ég fékk aldrei að vita, hvern-
ig tilvitnunin hljóðaði....
— Æ, hverju skiptir það héðan
af.... Eitthvað I þeim dúr að það
sé jafn slæmt að vera of tortrygg-
inn og að vera auðtrúa. Annað
vekur hatur og hitt iðrun....
— Og hvaða tengsl sjáið þér
þarna á milli? Og hver var auð-
trúa og hver var tortrygginn?
— Þarna kemur hann loksins!
Hún rís áköf upp og veifar og
Christer finnst hún minna á
aldurhnigna Isolde sem stendur
frammi fyrir kastalanum. En sá
sem kemur þjótandi er ekki neinn
Tristan, heldur örvæntingar-
fullur og æstur ungur maður.
— Mamma! Þaó var I
fréttunum, að Betti... að Betti
hefði verið.... En það getur ekki
verið satt.... Segðu að það sé
ekki....
— Það tölum við um á leiðinni,
segir prófessorinn mynduglega og
stígur inn I Volksvagninn og
hefur fengió Henrik til að aka af
staó án þess að Christer hafi haft
nokkurt tækifæri til að líta nánar
á unga manninn, sem er sá eini ef
Katarina Lönn er frátalin, —
sem virðist syrgja ungu stúlkuna.
Hann veitir því þó athygli, að
karlmennirnir eru farnir að stíga
fram á sviðið og hann hugsar sér
þvl að hitta að máli manninn, sem
kom I Kádiljáknum.
Hann hittir þau fyrir I einni af
Snertu mlg ekki — ég man allt í einu, að ég
gleymdi að slíta trúlofuninni við hann Kalla.
setustofunni, hann ásamt Louise
Fagerman og Evu Gun Nyren
Eva Gun lætur fara vei um sig og |
lygnir aftur augunum og Louise •
hallar sér að öxl mannsins og er *
að sjálfsögðu að gráta. En þegar I
Christer kemur inn, ýtir hann
henni frá sér og hún snöktir með
fengins hljómi I röddinni:
— Má ég kynna.... Wijk
lögregluforingi... og maðurinn
minn.
Robert Fagerman er myndar-
legur maður og geófelldur aó sjá,
Christer verður að viðurkenna
það. Hann er meðalmaður á hæð
og hefur hreinskilnislegt andlit,
en kannski örlar á veiklyndi I
andlitsdráttum hans.
— Ég kom strax og mér barst
skeytið frá Louise.
En ég ... get ekki trúað þessu.
Morð ... hér. Og meðan ráð-
stefnan stendur yfir, sem virtar
og velmegandi konur taka þátt I!
Eruð þér alveg vissir um það,
lögregluforingi, að yður hafi ekki
skjátlazt?
— Ég er svo sem ekki sannfærð-
ur, hvorki um eitt né neitt.
En það eru svo mörg óskýranleg
atriði I sambandi við andlát Betti
Borg að við erum neyddir til að
láta rannsókn fara fram.
— Neyddir til!
Beizkjan i rödd Evu Gun er svo
ótviræð að Robert Fagerman litur
undrandi á hana. Og Christer |
starir án afláts á hann.
— Þekktuð þér Betti Borg vel?
Hann hrekkur við, þegar þessi |
óvænta spurning er borin fram.
— Ég þekkti hana ekki. Alls
ekki.
— Vissi ég ekki! Brún augu
Louise horfa ljómandi á hann. —
Og ég SAGÐI það líka við hana.
En þessi viðbjóðslega manneskja
var samt sem áður svo ósvífin að
gefaþað I skyn.
Hann horfir forviða á hana.
— Að gefa hvað í skyn? Hvað
áttu eiginlega við Louise?
Eva Gun hefur setzt upp. Henni
er ekki lengur rótt.
En Louise hrópar fagnandi og
sigri hrósandi:
— Að þú .. . þú hefðir haldið
fram hjá mér með — með henni.
EIli- og
örorku-
þegar fylgi
vísitölunni
AÐALFUNDUR Bandalags
kvenna i Reykjavík haldinn 6. og
7. nóvember 1974, beinir eftir-
farandi tilmælum til hæstvirts
Alþingis og ríkisstjórnar:
1. Aðalfundurinn telur
sjálfsagt, að laun elli- og örorku-
lífeyrisþega svo og ekkjulífeyris-
þega fylgi vísitölu framfærslu-
kostnaðar.
2. Aðalfundurinn telur æski-
legt, að elli-, örorku og ekkju-
lifeyrisþegar, sem eru algerlega
tekjulausir og sjúkratryggingar
greiða fyrir vegna langdvalar á
stofnunum, fái greidd a.m.k. 25%
lágmarksbóta I vasapeninga.
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
% Borgar sig
aö spara?
Brynja Bjarnadóttir, Skúlagötu
51, skrifar:
„Til er gamalt orðtak, sem segir
að „betri sé treiningur en trað-
gjöf“. Við Islendingar höfum
vissulega búið við traðgjöf undan-
farið, enda eru sýnilega margir
ofhaldnir af óhófinu, og margur
virðist með öllu hafa kastað því
fyrir róða, sem talið var til hóf-
semi og gætni með fjármuni.
Jafnvel hefur verið haldið uppi
þeim áróðri, að ekki borgaði sig
að spara, — það væri bara gamla
fólkið, sem gerði það, og stundum
börnin.
Það má teljast fullvlst, að sömu
lögmál gilda hjá einstaklingum
annars vegar og þjóðarbúinu hins
vegar, að þegar meiru er eytt en
aflað er, og ekkert er lagt til hlið-
ar til gömlu áranna, þá kann
sjálfsforræðinu og frelsinu að
vera hætta búin.
Eftir ýmsum merkjum að dæma
kann þjóðin nú að standa and-
spænis þeirri hættu að verða um
of upp á aðra komin í fjárhags-
legu tilliti.
Vist er, að nú þarf umfram allt
sterkar og hiklausar stjórnarað-
gerðir. Það má ekki gerast, eins
og oft áður, að fámennir hags-
munahópar ráði ferðinni og „for-
djarfi" þjóðfélagið.
Valdhafarnir verða að hafa vit
fyrir vissum hluta þjóðarinnar,
svo ráðvillt sem fólkið hefur verið
I hegðun sinni.
Það mun koma í ljós, ef á reyn
ir, að fólkið vill láta stjórna sér ef
það er gert af festu og markmiðin
eru sýnileg og jákvæð. Þá skiptir
engu þótt viss niðurrifsöfl geri
hávaða um stundarsakir, enda er
aldrei um að ræða nema fámenn-
an hóp.
0 Sóun á
gjaldeyri
Hina óafsakanlegu meðferð á
dýrmætum gjaldeyri þjóðarinnar
I lúxusflakk út um öll lönd á að
stöðva án tafar, þannig að aðeins
þeir fái gjaldeyri, sem hafa nauð-
synlegum erindum að gegna.
Það er engin lausn að leggja
háan skatt á þennan gjaldeyri.
Slíkt er ranglátt og leiðir aðeins
af sér að þeir, sem mesta hafa
peningana, halda flakkinu áfram,
auk þess sem venjunni samkvæmt
yrði sá skattur aldrei afnuminn,
heldur héldi áfram að hafa sin
áhrif á verðbólguna.
Þessu fólki, sem nú biður mál-
þola eftir að fá gjaldeyri fyrir
aurana sina, má benda á, að því
ætti ekki að vera vandara um en
t.d. gamla fólkinu og börnunum,
að geyma þá um tíma á vöxtum I
bönkum, þvi að vextirnir hafa
oft verið lægri en nú er.
Bílainnflutningur-
inn
í annan stað má benda á, að
meiri gætur þarf að hafa á hinum
hóflausa bílainnflutningi en verið
hefur. Strax á öndverðu slðasta
ári hefði átt að setja strangar
reglur, sem meðal annars hefðu
falið I sér, að ekki mætti flytja inn
dýrari bíla en þá, sem kostuðu um
5—600 þús. krónur, og væru þá
litlir og sparneytnir, I stað þess að
flytja inn bíla, sem eru þrisvar til
fjórum sinnum dýrari og eyðslu-
frekari.
Hér er engin spurning um frelsi
eða haftastefnu og það eru aðeins
veiklundaðir menn, sem ljá slíku
eyra. Hér er um það að ræða að
bjarga þvi sem bjargað verður
þegar I óefni er komið.
I sambandi við þá tvo þætti,
sem hér hefur verið drepið á
hefði sennilega verið hægt að
spara þjóðarbúinu I beinum gjald-
eyri sem svarar um 4-r-5 milljörð-
um á einu ári.
Þá ber nauðsyn til að koma á
meiri launajöfnuði og tilfærsium.
Enginn, sem þiggur laun hjá öðr-
um, ætti að fá hærri laun en sem
svara 120 þús. krónum á mánuði,
að sjómönnum undanskildum,
sem mestra verðmæta afla. Slíkar
launatilfærslur ættu að ganga
fyrst og fremst til hinna lægst
launuðu.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Br.vnja Bjarnadóttir."
0 Góðir jazzþættir
Hér er þakkarávarp til sjón-
varpsins:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins fyrir sýningar á
þáttunum Faces of Jazz.
Þessir þættir eru með því bezta, I
sem sjónvarpið hefur flutt af jazz- |
tónlist og er þetta framtak Dön- .
um til mikils sóma. Ég vona einn- I
ig, að þetta sé upphaf nýrrar
stefnu hjá lista- og skemmtideild
sjónvarpsins að flytja íslending-
um góða jazztónlist. Einnig ber að
þakka íslenzku jazzþættina, sem
fluttir hafa verið að undanförnu.
Kærar þakkir.
Einn ánægður."
0 Menningarleysi
almennings.
Húsmóðir skrifar:
„Ég er lengi búin að undra mig
á þvi fólki, sem hefur mestar
áhyggjur af menningarleysi al-
mennings, og hefur ekki enn kom-
ið með þá hugmynd, að sýna ætti
hér á landi leikrit eftir Soltsénit-
sín. Ekki þarf að efa það, að rit-
höfundur af guðs náð getur gefið
sanna lýsingu á lífi fólks i fanga-
búðum, þar sem hann hefur sjálf-
ur lifað sliku lifi i nokkur ár.
Auðvitað er það sáralítið brot af
mannskapnum, sem fer I fanga-
búðir, en allir þurfa að taka tillit
til fangabúðanna I daglegu lífi
sinu, þar sem óttinn við þær hang-
ir eins og sverð yfir höfði fólksins. |
Enda þótt leikrit Soltsénitsíns
um fangabúðir gerist I Rússlandi,
ætti það að eiga erindi til fólks I I
flestum löndum, og ekki getur |
verið dýrt að setja svona leikrit á .
svið, — hvorki hvað leiktjöld eóa •
búninga snertir.
Húsmóðir." >
RETTUR
DAGSINS:
Réttur dagsins er:
Ungverskt Gullash og
ananasfromage.
Verð aðeins kr. 335.—
og nú kynnum við ekta
ítalskt Pizza, TOCONA
PIZZA.
Munið okkar
ódýru sérrétti.
l
GOOD^EAR
AMERISKIR
GOODfÝEAU
hjólbaröar
fyrir
Land-Rover
komnir aftur
Verð
kr. 9609.—
HJOLBARÐA-
ÞJÓNUSTAN,
Laugavegi 172- sími 21245
HEKLAH.F