Morgunblaðið - 04.02.1975, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRUAR 1975
35
Sósíalistar
og kommar
deila í
Frakklandi
París 3. febr. Reuter.
FRANSKI kommúnistaflokkur-
inn fhugar nú að slfta tengsl við
Sósfalistaflokk landsins. Kemur
þetta fram f ritstjórnargrein
f málgagni kommúnista,
Humanité, sem Rene Andrieu
ritar, en hann á sæti f stjórnmála-
ráði flokksins. Hann segir, að ráð-
stefna Sósfalistaflokksins, sem
stóð um helgina, leiði það berlega
í ljós, að þörf sé fyrir „óháða
tilveru og athafnir flokks okkar“.
Var þetta f fyrsta skipti, sem
nokkuð ótvfræð vísbending hefur
verið gefin um að f vændum
kynni að vera rof milli flokkanna,
sem hafa starfað allmikið saman
og meðal annars í forsetakosn-
ingunum síðustu, þegar Mitter-
and, frambjóðandi þeirra, fékk
mikið fylgi.
Heyrir kjarn-
orkan brátt
sögunni til?
Tókíó 2. febr. Reuter.
JAPANSKUR eðlisfræðingur,
Kiyoshi Niu, prófessor við
Nagoyaháskólann, skýrði frá þvf
að hann hefði fundið nýja öreind,
sem veitt gæti þúsund sinnum
meiri orku en kjarnorkan, eða
sennilega eittþúsund sinnum
kröftugri.
Niu prófessor sagði að þetta
nýja efni væri þyngra í sér og
„lifði lengur“ en nokkuð annað
sem uppgötvað hefði verið áður.
Við Stanford-háskólann í
Bandaríkjunum fannst eind í
nóvember sl. sem þótti marka
tfmamót á þessu sviði, en sam-
kvæmt lýsingum Niu og
samstarfsmanna hans er hér um
mörgum sinnum kröftugri eind að
ræða.
Margrét til Sovét
Moskvu 2. febr. Reuter.
MARGRÉT Danadrottning og
eiginmaður hennar, Henrik prins,
fara í opinbera heimsókn til
Sovétríkjanna dagana 26. maí til
2. júní n.k. f boði sovézkra stjórn-
valda. Var skýrt frá þessu opin-
berlega í Moskvu f dag.
VILL
NIXON
TIL
KÍNA?
New York 3. febr. Reuter.
TIME skýrir frá þvf f dag og
hefur eftir ónafngreindum
vinum Richards Nixons, fyrr-
verandi Bandarfkjaforseta, að
hann hafi látið f Ijós áhuga á
að verða sendiherra Banda-
rfkjamanna f Peking eínn
góðan veðurdag. Pá segir f
sömu frétt, að einkalæknir
Nixons, dr. John Lungren, hafi
nýlega tjáð forsetanum fyrr-
verandi að batahorfur hans
hefðu vænkazt stórlega og
væri Nixon nú allur brattari
og bjartsýnni en fyrr.
Aftur á móti á Nixon við
fjárhagserfiðleika að strfða að
sögn Time, vegna gífurlegra
sjúkrahúss- og lyfjaútgjalda,
svo og mikilla skulda, sem
hvfla á húseignum hans f San
Clemente og Key Biscayne f
Florida. Hið sfðarnefnda er nú
á söluskrá, að þvf er Time
segir.
— Minning Riber
Framhald af bls. 27
var mikill aðdáandi íslenzkrar
náttúru. Af einhverjum ástæðum
hafði hann hrifist af fjallinu
Herðubreið. Hann hafði í tóm-
stundum gert líkan í réttum hlut-
föllum af fjalli þessu. Draumur
hans að klífa Herðubreið varð að
veruleika í Islandsferð 1972.
Lengi var hann búinn að hlakka
til að taka þátt í Þjóðhátíðinni s.l.
ár og að aka hringveginn um
iandið. Það auðnaðist honum.
Engan grunaði, að það yrði
síðasta ferð hans til landsins, sem
hann unni.
Að Riber Christensen látnum
leita minningar á hugann,
minningar frá stundum liðinna
ára, sem gert hafa dvöl okkar
hjóna hér í Danmörku rikari en
ella. Gönguferðir um hina fögru
náttúru Mols-skaga, gönguferðir i
maíbyrjun, þegar beykiskógurinn
laufgast, og svo ótal öðrum
sinnum. Jafnan var staðnæmst á
einhverri lítilli sveitakrá og þegin
hressing. Pílagrímsför í
steikjandi sól til Mariager á Jót-
landi á slóðir Islendingsins Ölafs
Olavíusar, sem endaði þar ævi
sína fyrir tæpum tveim öldum.
Sumarkvöld á veröndinni við
fallega húsið hans í Ebeltoft,
þegar kvöldkyrrðin var aðeins
rofin af tali okkar og hljóði ein-
staka mótorbáts utan frá Ebeltoft-
vik. Og við hlýddum á hann skýra
frá íslendingasögunum eða rædd-
um um ísland nútímans. Ætið var
hann veitandinn, við þiggjendur.
Riber Christensen var meir en
meðalmaður á hæð, þrekvaxinn,
skarpleitur og bjartur yfirlitum.
Hið ytra gat hann virzt hrjúfur en
undir niðri var lundin viðkvæm
og næm. Hann var manna látlaus-
astur, og ég veit hann kynni mér
litla þökk fyrir þessar linur. Hann
lauk embættisprófi í læknisfræði
frá Hafnarháskóla 1951. Áður
hafði honum hlotnazt sérstök
viðurkenning fyrir rannsóknir i
lífefnafræði og var honum spáð
frama á vísindabraut. Þess í stað
kaus hann að starfa meðal fólks-
ins, gerðist heimilislæknir og
starfaði lengst af i Ebeltoft, þar
sem hann var óvenju dáðui^g
virtur sem læknir til dauðaaQT
Hann lætur eftir sig konu og þrjú
börn, það yngsta 17 ára. íslenzkir
vinir senda þeim samúðarkveðjur
I sorg þeirra, og um leið
minnumst við með djúpum sökn-
uði og þakklæti Islandsvinarins
Ribers Christensens.
Árósum, 12. janúar 1975.
Ástráður B. Hreiðarsson.
— Launauppbót
Framhald af bls. 23
en langt liður komast að raun
um að „gönuhlaupið" sem hann
heimfærir uppá okkur fjór-
menningana hæfi betur sem
lýsingarorð á ferðalagi hans i
ritlaunanefndina og úr henni.
Ég vona bara að ég eigi aldrei
eftir að hafa spurnir af honum í
nefnd sem dæma skal bók-
menntir Islendinga. Alls staðar
annars staðar verður hann
vafalaust nýtur maður. Það er
meira en ég treysti mér til að
fullyrða um formann nefndar-
innar, Þorleif Hauksson
kennara. Læt ég svo útrætt um
þetta dæmalausa mál og harma
það að lífsvon bókmenntanna í
landinu skuli vera orðið árvisst
afþreyingarefni þjóðarinnar.
Ég beini svo þeim eindregnu
tilmælum til rithöfunda sem
telja sig hafa verið hlunnfarna
og ekkert síður til hinna sem
ávinning höfðu af þessu niðr-
andi ritlaunakerfi, að þeir
sendi alþingi svohljóðandi
áskorun i simskeyti:
„Skora á alþingi að fram
verði látin fara rannsókn á
ósamræmi í vinnubrögðum út-
hlutunarnefndar viðbótarrit-
launa 1973 og 1974 og hraðað
verði löggjöf i anda þjóð-
hátíðarársins um launasjóð rit-
höfunda."
öllum rithöfundum, hverjum
einasta, hvar i flokki sem þeir
standa, er málið skylt og
nauðsynlegt að þeir standi
saman sem einn maður gagn-
vart þinginu um lagfæringar á
kjörum sínum.
— Margrét
Thatcher
Framhald af bls. 10
Sumir halda þvi fram, að hún
mundi fá nokkur atkvæði út á
það eitt að vera kona, aðrir
telja að það hljóti óhjákvæmi-
lega að draga úr sigurlíkum
hennar. Sjálf lýsti hún því yfir í
sjónvarpi fyrir skömmu, að
slíkur málflutningur væri á
undanhaidi og þegar nær drægi
leiðtogakosningunni mundi það
ráða úrslitum hvaða stefnu
meirihluti þingmanna Ihalds-
flokksins vildi fylgja í nánustu
fratíð.
mbj. tók saman.
— Minning
Jónas
Framhald af bls. 27
hverju leyti vegna almennra
mannkosta hans, ef til vill að ein-
hverju leyti af því, að hann var
mikill garð- og trjáræktarmaður,
en óefað mest vegna þess, að hann
gerði okkur einu sinni ómetanleg-
an greiða, en sér mikið ómak,
vandalaus maðurinn, þegar erfið
veikindi steðjuðu að. Það dreng-
skaparbragð er geymt, en ekki
gleymt, og nú er siðbúinni þökk
komið til skila.
Aðalstarf Jónasar Kristjánsson-
ar var að efla samtið til hags fyrir
framtið, hefja íslenska búnaðar-
háttu á hærra stig, bæta afrakstur
landsins og árangur af erfiði
fólksins. Við þessi viðfangsefni
hafði hann i senn vítt útsýni og
skyggn augu á hagkvæmar nýj-
ungar, áræði til að taka þær upp
fyrstur hér um slóðir og trausta
fótfestu á fjármálalegum og ver-
aldlegum grunni. En þir að auki
hneigðist hugur hans að ræktar-
semi við fortíðina og gengnar
kynslóðir, lifnaðarhætti þeirra,
lifsstrit og menningu. Hann vildi
kynna hið gamla fyrir unga fólk-
inu, glæða skilning þess á hinu
eilífa kraftaverki, lífi fólksins i
landinu gegnum aldirnar, með
því að hafa til sýnis áþreifanlegar
minjar um lif og störf feðra og
mæðra, viðhalda samhenginu í
menningarsögu þjóðarinnar á
miklum umbrota- og breytinga-
timum.
En nú er foringinn fallinn og
rödd hans hljóðnuð. Fundi er slit-
ið. Eða eigum við heldur að bóka:
Fundi er frestað?
Sverrir Pálsson.
r
— Ur samtali
Framhald af bls. 4
framfarir í vísindum og tækni
gáfu okkur fyrirheit um. Þessi
bjartsýrti beið hnekki árið 1914.
Og siðan aftur 1939. Það var
þungt áfall. Ég hafði að sjálf-
sögðu trúað á sigurgöngu
þróunarinnar. Ég hafði drukkið
i mig bjartsýnina með móður-
mjólkinni. Því eimir eitthvað
eftir af henni i skáldverkum
mínum. Þetta hefur i för með
sér nokkra tvöfeldni, hvað mig
varðar sjálfan. Þetta speglast í
ljóðum minum. En i óbundnu
máli tilheyri ég gamla timan-
um. Og það þvi heldur að ég
sæki oftast yrkisefni til lióinna
stunda. En í ljóðum mínum hef
ég gert tilraun til að taka af-
stöðu til þessa nýja ástands.
— En það sorglegasta er þó
að ég get ekki varist þvi að
hugsa um þá sem eru ungir nú
— börnin okkar. Þau standa
andspænis þessu. Og þvi skil ég
svo fjarska vel nútíma list og þá
örvæntingu sem í henni felst. í
bókmenntum, tónlist og i mál-
verkum. Því er nú svo farið að
þessi tortímingarógnun hefur
fallið saman við ævi mina. Þar
á ég við ellina. Maður veit að
eftir fáein ár er maður horfinn
fyrir fullt og allt út úr mynd-
inni... Besti timinn var á árun-
um milli 1930 og 1940. Þegar ég
var nýkvæntur. Og börnin voru
hér lítil. Að hafa lítil börn í
kringum sig er það ailra unaðs-
legasta... hann stendur bara
svo stutt... og síðan lifir maður
lífinu.
Suðurnesjamenn
Nýtt vandað steinsteypt iðnaðarhúsnæði á góðum stað í Ytri Njarðvik til
sölu. Húsið er 500 fm á einni hæð. Rúmmetrafjöldi er 2 þús. rúmm.
Húsið stendur á eignarlóð við góða aðkeyrslu. 3 stórar hurðir eru á því
fyrir innkeyrslu. Nánari uppl. gefur Guðmundur Kristjánsson, Reykja-
nesveg 8, simi 1 728.
TOYOTA
SAUMAVÉLAR
Model Z-444
Verð kr. 18.600.-
Model 3000
,1 m
Verð kr. 21.950,-
Model 5000
Verð kr. 26.900 -
KYNNIÐ YÐUR GÆÐI
TOYOTA-SAUMAVÉLANNA
TOYOTA ER TRYGGING
YÐAR FYRIR GÆÐUM
TOYOTA —
Ármúla 23, Reykjavík,
símar 81733 og 31226.