Morgunblaðið - 09.02.1975, Síða 1
48 SIÐUR
32. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 9. FEBRUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Friði hafnað
Bolla, bolla, bolla! A mánudag er bolludagurinn.
Sjö og hálf milljón
skráðir atvinnulausir
Addis Ababa,
8. febrúar. Reuter.
EÞlÓPÍA rambar á barmi, algerr-
ar borgarastyrjaldar þar sem her-
foringjastjórnin hefur lýst þvf yf-
ir að hún muni ekki veita Eritreu
sjáifstæði, og þar með hefur dreg-
ið verulega úr líkum á því að
Óbreytt
olíuverð
út árið ?
Nýju Delhi, 8. febr. Reuter.
OLÍURÁÐHERRA Saudi-Arabíu,
Ahmed Zaki Yamani, sagði f dag
að hann teldi að verð á olíu yrði
ekki hækkað á þessu ári.
Hann sagði á blaðamannafundi
f.Nýju Delhi að olíuframleiðslu-
rfkin hefðu þegar ákveðið að
halda olíuverðinu óbreyttu fram í
september og kvaðst vona að
þetta verðstöðvunartímabil yrði
framlengt.
Yamani sagði að stjórn Saudi-
Arabiu beitti sér fyrir því að olíu-
verðið yrði lækkað. Hann kvaðst
vona að olían yrði aldrei aftur
Framhald á bls. 47.
takast megi að finna friðsamlega
lausn.
Stjórnin sakaði jafnframt
Frelsisfylkingu Eritreu, ELF, um
hryðjuverk gegn óbreyttum borg-
urum. Skömmu eftir að stjórnin
birti yfirlýsingu sína blossuðu aft-
ur upp bardagar í Asmara, höfuð-
borg Eritreu, þar sem ástandið
hefur verið rólegt í þrjá daga.
Þrjár sprengingar heyrðust í
borginni, og siðan vélbyssuskot-
hríð. Harðir bardagar fylgdu í
kjölfarið, en þeir fjöruðu út. Sið-
an varð aftur kyrrt í borginni en
ástandið er ótryggt.
Herforingjastjórnin birti hina
harðorðu yfirlýsingu sina
skömmu eftir að valdamesti mað-
ur stjórnarinnar, Mengistu Haile-
Mariam majór, kom aftur til
Addis Ababa frá Asmara.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum fór majórinn til vigstöðv-
anna og tók við stjórninni þar
eftir ósigur stjórnarhersins fyrir
skæruliðum.
Agaleysi er vandamál í
stjórnarhernum samkvæmt öðr-
um fréttum og fólk sem hefur
flúið frá Asmara heldur því fram
að hermenn hafi rænt og myrt
óbreytta borgara í stórum stfl.
Að minnsta kosti 1600 manns
munu hafa fallið síðan átökin í
Eritreu snerust upp í algert stríð
inilli aðskilnaðarsinna og
Eþíópíuhers.
Washington, 8. feb., Reuter.
SJÖ OG hálf tniiljón manna voru
skráðir atvinnulausir í Banda-
ríkjunum í siðasta mánuði og
verkalýðsleiðtogar kröfðust þess í
dag að þingið og forsetinn hættu
deilum sínum og sameinuðust um
lausn efnahagsmálanna.
Atvinnulausum hefur fjölgað
um eina milljón síðan í desember
samkvæmt upplýsingum verka-
málaráóuneytisins i Washington.
Eitt öflugasta verkalýðsfélagið í
Bandarikjunum, samband flutn-
ingaverkamanna, hvatti til þess
að efnt yrði til neyðarráðstefnu
um efnahagsmálin í næstu viku.
Embættismönnum stjórnarinnar
og þingleiðtogum verður boðið til
ráðstefnunnar.
George Meany, leiðtogi stærsta
verkalýóssambandsins, AFL-CIO,
sagði að stjórnin yrði að gera ráð
stafanir til þess að auka atvinnu.
Hann sagði aó hið mikla atvinnu-
leysi væri hörmulegt fyrir þjóð-
ina og efnahagslífið.
Jafnframt sakaði Henry Jack-
son öldungadeildarþingmaður,
sem keppir að því að verða næsta
forsetaefni demókrata, Ford for-
seta um frámunalega lélega
stjórn á efnahagsmálunum. „Eng-
inn veit hver stjórnar efnahags-
málunum,“ sagði hann á fundi i
klúbbi blaðamanna í Washington.
Hins vegar gagnrýndi dr.
Arthur Burns, bankastjóri seðla-
Framhald á bls. 47.
Harðnar í ári
hjá Playboy
Chicago 8. febrúar Reuter.
PLAYBOYfyrirtækið i Banda-
ríkjunum skýrði frá því nú um
helgina að sióustu þrjá mánuði sl.
árs hefði í fyrsta skipti í sögu
fyrirtækisins orðið tap á rekstri
þess, alls um 350 þúsund dollarar.
Árið þar á undan varð 1,4 milljón
dollara hagnaður á sama tímabili.
Tekjur á timabilinu námu um 52
milljónum dollara, sem var um
7% lægra en á fyrra ári. Hafa
miklar sparnaðarráðstafanir
verið gerðar hjá Playboy og
byrjaði Hugh Hefner á þvi að
lækka eigin laun úr 305 þúsund
dollurum á ári niður í 220 þúsund
dollara.
Finnar kaupa mengaðan fisk
FINNAR kaupa þúsundir
punda af sovézkum túnfiski
þótt vfsindamenn telji hann
hættulegan vegna kvikasilfurs-
mengunar að sögn brczka
blaðsins Sunday Times.
Matvælasérfræðingar komust
að þeirri niðurstöðu að kvika-
silfursmagnið í fiskinum væri
þrisvar sinnum meira en leyfi-
legt væri.
Heilbrigðisráðuneytið stað-
festi þessa niðurstöðu vísinda-
mannanna og sagði að tún-
fiskurinn gæti verið hættuleg-
ur heilsu fólks.
Hins vegar hefur yfirstjórn
matvæla í Finnlandi haft
þessar viðvaranir að engu sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um.
Fiskurinn er til sölu f
verzlunum þótt hann sé
mengaður og innflutningi hans
er haldið áfram. Þó er vitað, að
kvikasilfursmenguð fæða getur
valdið vansköpun.
Finnska stjórnin er greini-
lega talin óttazt, að bann við
innflutningi túnfisksins geti
komið Rússum f bobba og orðið
hættulegt vinsamlegum sam-
skiptum Finna og Rússa.
Ford ver
Kissinger
Washington, 8. febr. Reuter.
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra lagði upp í enn eina friðar-
ferð til Miðausturlanda í dag,
jafnframt þvf sem gagnrýnin á
1800
gift 1 einu
Seoul, S-Kóreu, ». febrúar,
Reuter.
1800 PÖR frá S-Kóreu og 19
öðrum löndum voru gefin
saman f hjónaband í einni at-
höfn í íþróttahúsi í Seoul í
S-Kóreu í dag og er þetta
mesta giftingarathöfn, sem
fram hefur farið. Athöfnin fór
fram á vegum safnaðarins
„Samtök heilags anda til sam-
einingar kristnum mönnum í
heiminum". Söfnuðurinn
telur hjónahand mikilvægasta
þáttinn í trú sinni og framhjá-
hald versta glæp í heimi. At-
höfnin tók 2H klst. og voru öll
pörin gefin saman í einu.
utanrfkisstefnu hans hefur orðið
háværari.
Skömmu áður en Kissinger
lagði af stað birti Ford forseti
óvenjulega yfirlýsingu þar sem
hann hvatti til stuðnings þjóðar-
innar við Kissinger og varði störf
hans í utanríkisráðuneytinu og
Þjóðaröryggisráðinu.
Ford birti þessa yfirlýsingu til
þess að visa á bug gagnrýni eins
þeirra manna sem keppa aó því að
verða næsta forsetaefni
demókrata, Lloyd Bentsens,
öldungadeildarmanns frá Texas,
sem krafðist þess í gær að Kíss-
inger hætti einu af þremur störf-
um sínum, starfi sínu sem utan-
rikisráðherra, forseti Þjóðar-
öryggisráðsins eða „farandsendi-
herra“.
Yfirlýsing forsetans þykir
óvenjuleg meðal annars vegna
þess að Bentsen er tiltölulega litt
þekktur, en hann mun gefa kost á
sér sem forsetaefni í næstu viku,
og einnig vegna þess að helztu
blöö Bandaríkjanna gerðu ekki
mikið úr gagnrýni hans. Auk þess
Framhald á bls. 47.