Morgunblaðið - 06.03.1975, Page 23

Morgunblaðið - 06.03.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1975 23 UMHORF Umsjón: Jén Ormur Halldórsson Jón Magnússon Sigurður Sigurjónsson Hvereru heiztu vandamál, sem við er að etja í húsnœðismálum? ÞAÐ er eitt svar öllum öðrum fremur, sem gildir, þegar spurt er um vandkvæði í húsnæðis- og byggingarmálum hér á landi: Fjármagnið er ranglega notað og því illa notað. Orsökin er misheppnað „kerfi“ í fram- kvæmd, eða á ég að koma befnt framan að efninu: Blind stjórn- un. Og ég dreg sökudólgana ekki í pólitíska dilka, þeir hafa á þessu ferðalagi allir lent í sömu vilpunni. Hvaða rök legg ég til grund- vallar? Á árinu 1974 var áætlað, að fjárfesting í íbúðarhúsnæði hér á landi næmi 10 milljörðum króna, en það ár var öll fjár- munamyndun í þjóðfélaginu áætl. 43 miiljarðar — þetta var því næstum fjórðungurinn. Á sama ári og raunar fyrr, sannaði eitt byggingarfyrir- tæki, Breiðholt hf., að hægt er að byggja ibúðarhúsnæði hér- lendis á 25—40% lægra verói en gerist og gengur, eða þetta miklu ódýrar en byggingarvisi- tala Hagstofunnar segir til um. Þetta eru engir smámunir. Sé gróft reiknað með 10 milljarð- ana í huga, þýddi þetta annað hvort 2500—4000 milljóna sparnað eða samsvarandi við- bótarhúsnæði. Nei, þetta eru engir smámunir, þótt af tölun- um kynni að slipast ögn við mat á smærri liðum. Þetta gat Breiðholt hf. af því, að það er eina íslenska byggingarfyrir- tækið, sem fengið hefur tæki- færi til að framleiða ibúðarhús- næði við sæmilegar aóstæður, eftir þvi, sem um er að ræða i rekstri hér. Vegna þess, að þetta fyrirtæki varð á sinum tima og síðan hlutskarpast i samkeppni um byggingarfram- kvæmdir, sem fengu eðlilega lóða- og fjármagnsfyrir- greiðslu, aðeins eðlilega. Þar með var hægt að koma við nútíma tækni, og framleiðslu og rannsóknum. Þetta var sem sé allur galdurinn. Það er staðreynd að opinber forysta og reglur þar að lút- andi, hafa í framkvæmd haldið niðri framþróun í byggingar- iónaði — á öllum stigum, hvar sem gripið er á, nema i þessu eina tilviki, sem nefnt var. Ég nenni ekki að rekja það allt: Sýndarmennsku í rannsóknum — eða alls engar rannsóknir á flestum sviðum, af þvi að rann- sóknarstofnanir eru sveltar eins og ógæfusamir niðursetn- ingar á fyrri öldum, fáránlega * ráóstöfun lánsfjár úr opinber- um sjóðum, sem miðast við handverk líkast og tiðkað var fyrir iðnbyltinguna, sambands- leysi milli fjármögnunaraðila, úrelta iðnmenntun o.fl. o.fl. Nei. Þetta eru stór órð, það veit ég mætavel.En þvi miður er allt of mikill sannleikur í þeim fólg- inn. Og þeir eiga þau, þessir „fyrir ofan“. Spurningin er sú, hvort þeir kunna að taka þeim af manndómi og sjá villu sins vegar, breyta eftir því og bæta um svo máli skipti. Löggjöf þeirra sem slik er hreint ekki sem verst, en framkvæmdin er Skúli Sigurðsson. út í bláinn, þegar miðað er við aðstæður allar. Þar liggur hundurinn grafinn. Undantekningin sannar regl- una. Breiðholt hf. hefur sannað þessi orð mín áður en þau eru sögð. Ekki af því að það fyrir- tæki beri af öllum öðrum, að þvi ólöstuðu, heldur af því, að það fékk, nánast fyrir tilviljun, tækifæri til að starfa utan við „kerfið" og sannaði um leið að þróaður iðnaður í íbúðarhúsa- byggingum á erindi á Islandi sem annars staðar. Skúli Sigurðsson svarar: Þau vandamál, sem ég tel að fyrst og fremst sé við að etja i húsnæðismálum eru tvíþætt: 1. Fjárskortur Byggingar- sjóðs rikisins. 2. Ibúðarlánakerfi, sem þegar hefur gengið sér til húðar. Byggingarsjóóur ríkisins hef- ur það meginhlutverk að veita almenn lán til ibúðarbygginga. Þessi sjóður er all öflugur, og er gert ráð fyrir að hann hafi til ráðstöfunar á þessu ári um 3 milljarða króna. En á þessum sjóði hvíla einnig miklar skyld- ur, og er ljóst að það fé sem sjóðurinn hefur til umráða á þessu ári hrekkur hvergi nærri til. A undanförnum árum hafa stöóugt verið lagðar nýjar skyldur á sjóðinn, en hins vegar hefur minna verið hugsað til þess, að gera sjóðnum fjárhags- lega kleift að rækja þessar skyldur. I þessu sambandi er skemmst að minnast laganna um byggingu 1000 leiguíbúða á vegum sveitarfélaga, utan Reykjavíkur. Við könnun, sem fram fór á þörfinni fyrir íbúðir af þessu tagi, og áhuga sveitar- félaga á byggingu íbúða þess- ara, kom í ljós mikill áhugi fyr- ir þeim og töldu sveitarstjórn- armenn vera mikla þörf fyrir þær. Framkvæmdir eru þegar hafnar eða um það bil að hefj- ast viða úti um land. En eitt atriði varðandi þessa þörfu framkvæmd hefur ekki verið undirbúið sem skyldi, og það er fjárhagshlið málsins. Að vísu var með lögum aukið 1% af launaskatti við tekjur Bygging- arsjóðs, en þess er ekki gætt að fjárhagur sjóðsins var mjög slæmur fyrir. Er enn ekki vitað á hvern hátt Byggingarsjóði ríkisins verður gert kleift að veita lán, sem svarar til 80% byggingarkostnaðar þessara íbúða, til viðbótar allri annarri lánafyrirgreiðsiu, sem sjóður- inn hefur veitt undanfarin ár, auk þeirrar hækkunar lána, sem nauðsynleg er vegna hinn- ar miklu hækkunar sem orðið hefur á visitölu byggingar- kostnaðar á undanförnum ár- um. Þessi fjárhagsvandi er ekki talinn i tugum milljóna heldur í hundruðum milljóna. Sá mikli fjárhagsvandi, sem hér að framan hefur lítillega verið greint frá, hlýtur að vekja menn til umhugsunar um það, hvort ekki kunni að vera eitt- hvað athugavert við það, hvern- ig staðið er að breytingum á húsnæðislöggjöfinni, svo og hvort ekki sé eitthvað athuga- vert við sjálft húsnæðislána- kerfið. Stundum hefur verið sagt, að úrbætur í húsnæðismálum séu raunhæfasta kjarabótin, sem völ sé á, og er það hverju orði sannara. Þess vegna skýtur það dálítið skökku við, að ekki skuli með skipulegum vinnubrögðum reynt að tryggja það, að gerðar verði raunverulegar úrbætur í húsnæðismálum, sem verulega muni um. Bygging hinna 1000 leiguíbúða á vegum sveitarfé- laga er vafalaust mikið fram- faraspor og veruleg kjarabót fyrir þá, sem þeirra munu njóta. Lögin um byggingu verkamannabústaða var og stórt spor í framfaraátt, ekki hvað sist eftir þá breytingu, sem á þeim var gerð árið 1970. En hver er ávinningurinn ef í ljós kemur, að bygging hinna 1000 leiguíbúða dregur allt að þvi samsvarandi úr byggingu verkamannabústaða? Hver er ávinningurinn ef í ljós kemur, að vegna byggingar hinna 1000 leiguíbúða reynist nauðsynlegt að draga mjög verulega úr veit- ingum almennra lána, svo- nefndra húsnæðismálastjórnar- lána? I þessu sambandi má og benda á það, að þessar íbúðir sem byggðar verða á vegum sveitarfélaga, eiga að vera leiguibúðir, ekki almennar söluibúðir. Nýlega hafa komið fram kröfur frá sveitarfélögun- — SKORAÐ er á rikisstjórnina aó stofna nú þegar til úttektar á byggingar- og húsnæðismálum þjóðarinnar og í framhaldi af því að móta langtíma-defnu og hrinda i framkvæmd stórfelld- um, skipulegum úrbótum á þessu sviði. — Aðgerðir þessar taki i heild til tæknilegra og félags- legra þátta, fjármögnunar og Herbert Guðmundsson. um að heimilt verði að selja þessar ibúðir þegar eftir að þeim verður lokið. Slik krafa er vissulega skiljanleg, þar sem Ijóst er að leiga fyrir þessar íbúóir, sem standa ætti undir öllum kostnaði, yrði mjög há. Sveitarfélög yrðu óhjákvæmi- lega að greiða sjálf verulegan hluta kostnaðarins, með svipuð- um hætti og Reykjavíkurborg hefur gert. Er líklegt að fá- menn sveitarfélög hafi fjár- hagslegt bolmagn til þess að greiða tugi eða hundruð þús- unda króna á mánuði með þess- um íbúðum? Má ekki búast við því að sveitarfélög leggi áherzlu á að ibúðir þessar verði seldar mjög fljótt eftir að þær eru fullgerðar? Ekki er grun- laust um, að slíkar hugmyndir liggi að baki áætlana margra sveitarfélaga um byggingu þessara íbúða og séu jafnvel forsenda þeirra. Sýnist þvi ekki vera nema um tvo kosti að velja. Annars vegar að gera sveitarfélögum ljóst nú þegar, að sala íbúðanna verði ekki leyfð, nema skv. ákvæðum gild- andi reglugeróar í þessu efni, eða hinsvegar að ganga hreint til verks og viðurkenna þessa forsendu fyrir byggingu íbúð- anna. Allt þetta mál ætti að sýna mönnum fram á, hve handa- hófskennd vinnubrögð eru var- hugaverð þegar um er að ræða tengsla við önnur svið þjóðfé- lagsmála. — A grundvelli itarlegrar út- tektar verði samin 10 ára áætl- un um opinberar aðgerðir í byggingar- og húsnæóismálum, þar sem m.a. verði stefnt að jafnvægi framboðs íbúðarhús- næðis og eftirspurnar innan 2—3 ára og verulegri beinni lækkun byggingar- og húsnæð- iskostnaðar. breytingar á húsnæðislöggjöf- inni. Það er vissulega skiljanle'gt, þegar launþegasamtök setja fram kröfur um úrbætur í tais- næðismálum, jafnhliða kröfum um bætt launakjör. A undan- förnum árum hafa margar sUk- ar kröfur komið fram og að þeim verið gengið. Forsenda þess, að slík kröfugerð beri ár- angur er að hún byggist á fast- mótaóri húsnæðismálastefnu. Slíkri stefnu hefur ekki verið til að dreifa á undanförnum árum. Stjórnvöld hafa ekki til þessa haft kjark til þess, að taka húsnæðismálin fyrir sem heild til endurskipulagningar. Þær úrbætur, sem gerar hafa verið hafa verið einangraðar við tiltekin svið, sbr. áður- nefnda framkvæmd um bygg- ingu leiguibúða. Frá fyrri tíma má nefna byggingu FB-íbúða i Reykjavík. Nýlega hafa komið fram hugmyndir um stofnun sérstakra útibúa Húsnæðis- málastofnunarinnar úti um land, stofnunin verði skylduð til þess að kaupa íbúðir í byggð- um, þar sem ekki er unnt að selja íbúðir við sannvirði og fleira mátti nefna í þessum dúr. Þessar hugmyndir eru vafa- laust góðra gjalda verðar, en þær varða aðeins einangruð vandamál, en koma hvergi nærri kjarna vandans, sem er húsnæðislánakerfið sem slikt. Það heyrast aldrei hugmyndir t.d. um að veita mismunandi há lán til hinna ýmsu ibúðastærða, að gera beri áætlun um stig- hækkun lána þar til þau hafa náð ákveðnu hlutfalli bygging- arkostnaðar, að kannað verði, hvort unnt sé að tengja saman lánakerfi banka og slíkra lána- stofnana annars vegar og hús- næðislánakerfið hins vegar, og reyna með þeim hætti að nýta betur þao fjármagn, sem hér er árlega varið með það fyrir aug- um að hér verði komið á hús- næðislánakerfi sem svarar þeim kröfum, sem gerðar eru í dag. Það er alls ekki eins fráleitt og hingað til hefur verið talið, að eitthvað sé unnt að læra af frændþjóóum okkar i þessum efnum. Hver veit nema þær hafi gert eitthvaó i húsnæðis- málum á undanförnum árum og áratugum, sem Islendingar hefðu gott af að kynnast nánar. — Við úttekt og áætlunar- gerð verði efnt til viðtæks sam- starfs hlutaðeigandi innan- lands og erlend reynsla og sér- fræðikunnátta nýtt svo sem kostur er á ýmsum vettvangi fjölþjóðasamstarfs, sem Islend- ingar eiga þátt í. — A sama tima verði gerðar bráðabirgðaúrbætur til þess að tryggja að ekki komi til veru- legs samdráttar i byggingar og húsnæðismálum uns framtiðar- stefna og framkvæmd ná fram að ganga. — Jafnframt framansögðu er vakin athygli á nauðsyn þess að sambærilegar aðgerðir i tengd- um opinberum þjónustugrein- um nái jafnhliða fram að ganga. Askorun frá ungum sjálfstæðismönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.