Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.03.1975, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. af sinni hálfu greitt veru- lega fyrir sanngjarnri niö- urstööu kjarasamninga. Hverjum manni má vera ljóst, að kjarabætur í formi skattalækkana eru mun vænlegri til árangurs eins og sakir standa en beinar kauphækkanir, sem at- vinnuvegirnir geta ekki risiö undir. Jafnframt hafa menn verið á einu máli um, aó fyrst og fremst bæri aó koma fram úrbótum í þágu Upphaf skattkerfisbreytingar Meó frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um ráó- stafanir í efnahags- og f jár- málum er stefnt aó allum- fangsmiklum breytingum á skattalögum. Samhliöa því, aó þessi breyting hefur í för meö sér verulega lækk- un skatta fyrir láglauna- fólk er stigið fyrsta skrefið í þá átt aö einfalda skatta- kerfið meó sameiningu tryggingabóta og skatta.' Meö þessu frumvarpi er í fyrsta lagi lagóur grund- völlur aó lausn yfirstand- andi kjaradeilu á grund- velli þeirrar stefnu ríkis- stjórnarinnar aó leggja megináherzlu á aö bæta kjör láglaunafólksins. í öðru lagierhérumað ræða fyrsta áfanga í þeirri ný- sköpun skattakerfisins, sem ríkisstjórnin hefur unnió að. Talið er, að þær kjara- bætur, sem felast í þeim skattalækkunum er frum- varpið gerir ráð fyrir, jafn- gildi allt að 7% kauphækk- unum. Matthfas Á. Mathie- sen f jármálaráóherra sagói í útvarpsumræðum frá Al- þingi í síóustu viku, aó þessar úrbætur væru ætl- aðar hinum tekjulágu og þá helzt barnafjölskyldum. Með því móti væri stuðlaó að skynsamlegri nióur- stöðu kjarasamninganna. Þegar litið er á þá lækkun skatta og útsvara, sem frumvarpið mælir fyrir um, og heimildir til lækk- unar söluskatts og tolla, kemur í ljós, aó ríkisstjórn- in hefur komið til móts við þær kröfur, sem launþega- samtökin hafa sett fram um skattalækkanir. Ríkisstjórnin hefur því láglaunafólksins. Rfkis- stjórnin hefur nú greitt fyrir þessari niðurstöðu og nú er það hagsmunasam- takanna að standa við þessa stefnu í verki. Þó að frumvarpið sé mikilvægur þáttur í lausn yfirstandandi kjaradeilu, er ekki síður vert aó vekja athygli á þeirri nýsköpun í skattamálum, sem það markar. Fjármálaráðherra hefur lýst yfir því að áfram verði unnið að þeirri grundvallarbreytingu að sameina tryggingabætur og tekjuskatta. Þá hefur hann greint frá því, að von- ir standi til, að Alþingi fái til meðferóar áöur en þetta þing er úti tillögur um staðgreiðslukerfi opin- berra gjalda svo og sölu- skatt með virðisaukasniði. Loks hefur fjármálaráð- herra lýst yfir því, að ríkis- stjórnin hafi ákveðið að leggja fyrir næsta þing til- lögur um sérsköttun hjóna. Hér er um merk nýmæli að ræða og ber sérstaklega að fagna yfirlýsingu ráð- herrans um breytingar á skattlagningu hjóna. Rétt er að vekja hér athygli á, aö Magnús Torfi Ólafsson gat þess sérstaklega í út- varpsumræðunum í sl. viku, að málgögn stjórnar- flokkanna hefðu í forystu- greinum vakið máls á því hróplega misrétti, sem komizt hefði inn í skatta- kerfió með sérfrádrætti af atvinnutekjum giftra kvenna, og orðið hefði til þess að heimili þar sem fyr- irvinnur eru tvær búa við stórum léttari skattbyrði en heimili þar sem fyrir- vinna er ein. í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar hefur fjármálaráðherra nú haft frumkvæði að verulegum umbótum á skattakerfinu. Hér er um flókið verkefni að ræða og því hlýtur það aó taka nokkurn tíma aó setja fram fullmótaðar til- lögur, en ástæða er til að fagna því að unnið skuli að framgangi þessara mikil- vægu mála. Málmblendiverksmiðja og mengunarvarnir Að undanförnu hafa spunnizt allverulegar umræður um fyrirhugaða málmblendiverksmiðju I Hvalfirði. Velflestir eru á einu máli um gildi þess að efla stóriðju í landinu. Menn eru jafnframt sam- mála um, að við slíkan iðju- rekstur verður að gæta fyllstu varkárni vegna mengunarhættu. Því hefur verið haldið fram, að meng- unarhætta af Hvalfjarðar- verksmiðjunni sé lítil eða engin. Ýmsir sérfræðing- ar hafa eigi að síður haldið hinu gagnstæða fram, sbr. grein Valgarðs Egilssonar læknis hér í Morgunblað- inu, þar sem m.a. er bent á hve stutt er í hættumörkin. Þess verður að krefjast að ekki verði látið sitja við neitt nema ýtrustu kröf ur um mengunarvarn- ir, byggðar á rækilegum rannsóknum, áður en haf- izt verður handa um stór- iðju, hvort sem er í Hval- firði eða annars staðar á landinu. i Reykj avíkurbréf *»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Laugardagur 22. marz Ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar Þegar fyrri vinstri stjórnin gafst upp í desembermánuói 1958, áttu islendingar vió mikla efna- hagsörðugleika að etja. Gjald- eyrissjóðurinn var . þorrinn, er- lendar skuldir gífurlegar, óða- verðbólga framundan og uppbóta- og haftakerfi í algleymingi, en sjálf var ríkisstjórnin í upplausn og því eðlilegt að forsætisráðherr- ann bæðist lausnar fyrir hana og gæfi um það skýlausa yfirlýsingu, að ekki væri samstaða í stjórninni um nein úrræði til lausnar að- steðjandí vanda. Þá var hafizt handa um að treysta efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar, fyrst með bráðabirgðaráðstöfunum, en síðan víðtækum efnahagsaðgerð- um, sem hlutu heitið viðreisn og stjórn sú, sem framkvæmdi við- reisnarráðstafanirnar hefur æ síðan verið nefnd Viðreisnar- stjórnin, en hún sat lengur en nokkur önnur ríkisstjórn, eða í fullan áratug. Þegar viðreisnarráðstafanirnar voru gerðar, trúðu menn því, að íslenzka þjóðin mundi ekki þurfa á ný að grípa Tii svo róttækra ráðstafana. Nú höfðu menn lært af reynslunni og ekki mundi fólk fýsa að leggja aftur útí svipað ævintýri og átti sér stað næstu árin á undan og leiddi tíl þeirra erfiðleika, sem landslýður varð að takast á við. Sú varð þó raunin, að smám saman gleymdist þetta, og síðustu árin hefur sagan endur- tekið sig. Viö höfum gengið gegn um nýtt tímabil upplausnar, óhófseyðslu og óðaverðbólgu, enda varð alþjóð það ljóst þeg- ar á síðasta vori, að víðtæk- ar ráðstafanir yrði að gera til að rétta við hag þjóðarinnar. Og í tvennum kosningum sýndu kjósendur, svo að ekki varð um villzt, að þeir treystu Sjálfstæðisflokknum bezt til að hafa forustu um þær aógerðir, sem nauðsynlegar væru. Ráðuneyti Geirs Hallgrfmssonar var síðan myndað og hófst strax handa um hina nýju viðreisn, og einmitt nú er verið að ræða loka- tillögur stjórnarinnar í þeirri röð efnahagsaðgerða, sem nauðsyn- legar eru til að rétta við fjárhag- inn og treysta atvinnulífið. Hvað gera menn? Sumir segja kannski, aó úrræði ríkisstjórnarinnar séu ekki tii- takanlega frumleg, og satt er það, að fátt er nýtt undir sólinni. Vandi sá, sem ríkisstjórnin hefur átt við aö glíma, er fyrst og fremst fólginn í því, að þjóðarheildin hefur eytt miklu meira en hún hefur aflað, en samhliða hafa tekjurnar minnkað stórlega og út- gjöldin vaxið vegna hækkandi verðlags innflutnings. Og hvað gera menn, þegar þeir standa frammi fyrir slíkum stað- reyndum? Hyggin fjölskylda þarf ekki lengi að spyrja sig. Hún dregur úr útgjöldum, frestar fjár- festingaráformum og leggur meginkapp á að nýta þá aðstöóu, sem hún hefur til tekju- öflunar. Ef um atvinnurekanda er að ræða, t.d. bónda eða útgerðar- mann, þá leitast hann við að hag- nýta til hins ýtrasta þau tæki, sem hann hefur aflað sér f góðærinu, tíl að grynnka á skuldunum og undirbúa næsta átak til endurnýj- unar og styrktar atvinnurekstrin- um. I rauninni er það þetta, sem stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknar- flokkurinn, hafa forustu um, að þjóðin í heild geri nú. Auðvitað er dæmið flóknara, þegar um er að ræða heilt þjófélag í stað einnar fjölskyldu, en í eðli sínu er vand- inn svipaður, og kannski skilja menn hann betur, ef þeir einfalda myndina. Við höfum í mesta góð- æri eytt um efni fram. Þær byrðar verðum við að axla, og svo illa vill til, að þær lenda á okkur, þegar aðstaðan hefur versnað, viðskiptakjör okkar eru miklum mun lakari og heildartekjurnar þar af leiðandi minni. En við lát- um ekki hugfallast. Efnuð fjöl- skylda leggur ekki árar í bát, þótt tekjur hennar rýrni um sinn, heldur snýst hún gegn vandanum og treystir svo fjárhaginn, að á ný verði lífskjör jafn góð og áður og efnahagsöryggið enn meira. Hjólinu snúið við Er ríkisstjórnin hafði ákveðið fyrstu aðgerðir sínar í efnahags- málum á liðnu hausti, vonuðu menn, að viðskiptakjör myndu batna, eða a.m.k. ekki rýrna frá því, sem þá var, og þess vegna var því líka treyst, að þær ráóstafanir myndu nægja að sinni. En því miður fór allt á annan veg. Út-, flutningsverðlag lækkaði og inn- flutningsverðlag hækkaði. Menn gerðu sér fljótt grein fyrir því, að þessar ráðstafanir myndu ekki nægja og kaupæðið hélt áfram. Um áramótin töluðu menn opin- skátt um vandann og leiðtogar þjóðarinnar vöruðu við erfið- leikunum. Sérfræðingar og stjórnmálamenn tóku til óspilltra málanna, og síðan hefur stöðugt verið unnið að þessu viófangs- efni. Sumir segja að vísu, að allt of seint hafi gengið. Allar aðgerðir hefðu átt að vera miklu fyrr á ferðinni. Sannleikurinn er nú samt sá, að skyndiákvarðanir geta verið verri en engar ákvarðanir. Fólkió veróur að skilja eðli vandans til þess að sætta sig við þær aðgerðir, sem ætlað er að vinna bug á honum. Staðreynd er það líka, að þær ráðstafanir, sem þegar eru komn- ar til framkvæmda og vitneskja um aðrar, hefur þegar valdið því, að drégið hefur úr fjárfestingar- áformum manna og innflutningi, en samhliða hafa atvinnutæki verið rekin af fullum þrótti og allir haft verk að vinna. Ríkis- stjórninni hefur þannig, þrátt fyrir þann drátt, sem orðið hefur, tekizt að treysta undirstöðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.