Morgunblaðið - 23.03.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975
33
MagnúsF. Jónsson
—Minningarorð
F. 2. júní 1891.
D. 14. marz 1975.
MAGNUS F. Jónsson fæddist að
Torfustöðum i Miðfirði í Húna-
þingi 2. júní 1891, dáinn 14. marz
1975.
Hann var sonur Jóns Jónssonar
bónda þar, og ólst þar upp. Hann
lærði trésmíði og var um tíma i
siglingum. Eftir það giftist hann
Guðfinnu Björnsdóttur. Þau fóru
þá að búa á Torfustöðum og
bjuggu þar um 25 ára skeið.
Meðan hann var bóndi gegndi
hann mörgum trúnaðarstörfum
fyrir sveitina. Þegar ég fluttist til
Reykjavíkur árið 1950, var
Magnús fluttur þangað fyrir 6
árum eða 1944, og var þá til
heimilis á Hagamel 47. Svo var
það 8 árum síðar, að ég keypti
íbúð i fjölbýlishúsi við Hagamel
41—45, og þá vorum við Magnús
orðnir nágrannar, aðeins mjótt
sund á milli okkar. Enda kom ég
oft á heimili hans og var alltaf
tekið þar á móti mér með ágætum.
Það sem dró mig fyrst að Magnúsi
var hin prúðmannlega framkoma
hans og hlýleiki, enda var hann
með menntuðustu mönnum, sera
ég hef kynnst. Og einn af þeim
fáu sem sérstaklega var gaman að
tala við. Hann átti mikið bókasafn
og var mjög bókhneigður. Enda
mátti með sanni segja að hann
gæti talað um flest milli himins
og jarðar. Ættfræðin var honum
mjög hugstæð, og minnið var frá-
bært. Öllum alþýðufróðleik vildi
hann halda til haga, og færðist
hann þá allur í aukana, þegar
slikt efni barst i tal. Einn af mörg-
um hæfileikum Magnúsar var sá,
að hann var prýðilega vel ritfær
og hefði orðið vinsæll rithöf-
undur, ef hann hefði lagt það
starf fyrir sig. Það sýnir bókin
„Skammdegisgestir —, og þætt-
irnir: Borðeyrarförin, ásamt fleir-
um, sem komu í Lesbók Alþýðu-
blaðsins.
Lýsingin á Stefáni á Brandagili
er svo lifandi, að maður þekkir
manngerðina, þó maður hafi
aldrei séð manninn. Eitt var þaó
sem Magnús talaði einna oftast
um, núna á síðari árum, það voru
eilífðarmálin. En svo var hann
skynsamur og sannur, að hann
viðurkenndi að hann gæti ekki
sannaó að annað lif væri tíl, og
ekki heldur afsannað, en margar
líkur bentu þó til þess, aó fram-
haldslíf væri til —.
Ég átti margar ógleymanlegar
stundir með Magnúsi, og að síð-
ustu vil ég kveðja hann með þökk
og virðingu fyrir þær.
Jóh. Ásgeirsson.
Mánudaginn 24. þ.m. verður
jarðsunginn frá Neskirkju
Magnús F. Jónsson, Hagamel 47,
Reykjavík, fyrrum bóndi að
Torfastöðum í Miðfirði, en hann
andaðist að Hrafnistu, þar sem
hann hafði dvalist um skeið,
föstud. 14. þ.m. á 84. aldursári.
Hann var fæddur að Torfastöð-
um í Miðfirði 2. júni 1891, sonur
hjónanna Jóns Jónssonar bónda á
Goddastöðum í Dalasýslu og konu
hans Ólafar Jónasdóttur bónda og
smiðs i Svaröbæli í Miófirði. Eldri
sonur þeirra hjóna var hinn
kunni skólamaður Björn H. Jóns-
son, f. 1888, síðast skólastjóri á
ísafirði. A uppvaxtarárum þeirra
bræðra var í sveitum landsins
ekki um aóra fræðslu að ræða en
þá, er heimilin gátu í té látið og
foreldrarnir önnuðust, oft þó með
hjálp sjálfmenntaðra kennara, er
ferðuðust milli bæja og veittu til-
sögn skamman tíma í senn, svo og
sá undirbúningur er prestum bar
að sjá um fyrir fermingu. Magnús
naut ekki skólagöngu, en eigi að
siður var hann vel menntaður,
enda góðum gáfum fæddur. Hann
las snemma allar þær bækur, sem
hann komst yfir og hagnýtti vel
sýslubókasafnið á Hvámmstanga,
þar sem var margt ágætra ís-
lenzkra og á norðurlandamálun-
um, bæði skáldrit og fræðibækur.
Einnig keypti hann bækur eftir
því sem efni leyfðu og átti að
lokum mikið og gott bókasafn,
sem hann naut í ríkumælimeðan
heilsan leyfði. Hafði hann yndi af
að ræða um bókmenntir við þá, er
það kunnu að meta. Hann var líka
vel ritfær, þó eigi leyfðu
kringumstæður mikil afrek á því
sviði. Árið 1950 kom út allvæn
bók, er hann hafði skrifað og
nefnist Skammdegisgestir, en það
eru sagnaþættir úr Húnaþingi.
Jónas frá Hriflu skrifar þar merk-
an formála og segir meðal annar:
þegar Magnús Jónsson byrjar að
skrifa nýja Islendingaþætti, þarf
hann ekki að leita að orðum eða
orðatiltækum. Hann þarf ekki að
opna málfræðibækur eða orða-
söfn. Hann hefur allan efniviðinn
heima við. Hann ritar eins og vit-
menn landsíns hafa talað og skrif-
að málið siðan á dögum hins forna
þjóðveldis.
Er Magnús hafði aldur til, fór
hann nokkrar vertiðir til sjóróðra
á Suðurnesjum, sem fleiri ungir
menn þeirra tíma úr sveitum
landsins, en starfaði að búi for-
eldra sinna um sumur. Seinna
réðst hann á norsk farmskip og
var i þeim siglingúm um skeið og
kynntist þannig lífi og starfi er-
lendra farmanna og kom til
margra borga, sérstaklega við
Eystrasalt og Norðursjó. Vikkaði
það drjúgum sjóndeildarhring
sveitamannsins og skýrði þær
myndir sem lestur bóka um
ókunn lönd höfðu áður gefið. —
En römm er sú taug er rekka
Framhald á bls. 34
Vegna jarðarfarar
JÓHANNESAR ELÍASSONAR bankastjóra,
verður bankinn lokaður þriðjudaginn 25. marz milli kl. 1
og 3.30.
Útvegsbanki íslands.
Fiskveiðasjóður íslands.
I Nl
jazzBaLL©CCsKóLi Búru.
Dömur athugiö
Sex vikna vor-
námskeið hefst 1.
aprít.
Líkamsrækt og
megrun fyrir konur á
öllum aldri.
★ Morgun-, dag-
og kvöldtímar.
h Sturtur —
Sauna — Tæki.
Upplýsingar og innritun í síma 83730 (
mánudag, þriðjudag og miðvikudag. :
jazzBaiL©ö3SKóu búpu
líkcini/fcckl
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á ENDUR
HÆFINGARDEILD spítalans nú þegar eða eftir
samkomulagi. Starfið verður tengt aðstoðarlæknisþjón-
ustu lyflækningadeildar að töluverðu leiti. Nánari upplýs-
ingar veitir yfirlæknir deildarinnar.
MEINATÆKNIR óskast til starfa á Heilaritunardeild
spítalans frá 15. apríl n.k. eða eftir samkomulagi. Um-
sóknarfrestur er til 10. apríl n.k. Upplýsingar veitir
starfsmannastjóri sími 1 1 765.
FORSTÖÐUKONA (FÓSTRA) óskast til starfa á
dagheimili spitalans frá 1. mai n.k. eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k. Upplýsingar veitir
forstöðukona Landspitalans, simi 241 60 og Starfsmanna-
stjóri simi 1 1765.
KLEPPSSPÍTALINN:
HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa á hinar
ýmsu deildir spitalans. Vinna hluta úr degi kemur til
greina. Upplýsingar veitir forstöðukona, simi 38160.
FÓSTRA óskast til starfa á dagheimili spítalans nú
þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðu-
kona, sími 381 60.
SKRIFSTOFA
RlKISSPlTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
Megrunarfæðii
Vegna mikillar eftirspurnar hefst nýtt námskeið miðvikudagii
26. marz
Kennt verður:
Grundvallaratriði næringarfræði
Hvaða megrunaraðferð hefur gefið beztan og
varanlegastan árangur.
0 Gerð matseðla. Áherzla er lögð á næringarrfkt, Ijúffengt og
hitaeiningarýrt megrunarfæði.
0 Sýndir verða grænmetis-, ávaxta- og baunaréttir.
Forðist skaðlegar megrunaraðferðir.
Innritun og upplýsingar Kristrún Jóhannsdóttir
í síma 86347 manneldisfræðingur.
Sýnikennsla
Tilkynning.
Að gefnu tilefni viljum vér hér með vekja
athygli á eftirfarandi reglu, er gildir um úthlut-
un ferðagjaldeyris til íslenskra ferðaskrifstofa.
Yfirfærslur til ferðaskrifstofa vegna
IT- og hópferðafarþega til greiðslu á
hótelkostnaði og skoðunarferðum eru £ 3.50
á dag fyrir hvern farþega að hámarki í 15
daga.
I samræmi við framanskráð er íslenskum ferða-
skrifstofum óheimilt að selja hópferðir til út-
landa, er standa lengur en 1 5 daga.
Gjaldeyrisdeild bankanna
MAZDA EIGENDUR ATHUGIÐ.
Með bættri aðstöðu i nýjum húsakynnum getum við
tekið notaðar Mazda bifreiðar í umboðssölu.
Bifreiðarnar eru sýndar innan dyra í björtum og
rúmgóðum sýningarsal.
Þeir Mazda eigendur, sem vilja nota sér þessa þjón-
ustu, hafi samband við okkur, sem fyrst.
BÍLABORG HF
Borgartúni 29 sími22680
^»»»»>»> •>»»»»»» »»»^
%
í
|
A
A
I
*
£
A
Eg vil
vera
með
í hinum nýja Bókaklúbbi AB. Vinsamlega skráið nafn mitt á
félagskrá Bókaklúbbs AB og sendið mér jafnframt Fréttabréf
AB og aðrar upplýsingar um bækur á Bókaklúbbsverði.
nafn
nafnnúmer
A heimilisfang
A<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<V
Y
Y
K/
y
y
Y
y
Y
v
Y
Y
Y
Y
y
y
y
y
y
y
GOÐIR
ÍSLENDINGAR
Vegna fjölda bréfa sem Handknattleikssamband-
inu hafa borist vegna íbúðarhappdrættisins, vilj-
um við einfalda ykkur bréfaskriftirnar með
pöntunarseðli þessum. Vonumst við til að sem
flestir sjái sér fært að kaupa miða í happdrættinu
og styrkja þar með handknattleiksíþróttina.
Kær kveðja,
Stjórn H.S.Í