Morgunblaðið - 23.03.1975, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.03.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1975 35 Minning: Baldur Guðmunds- son frá Kirkjuferju Vilhjálmur Baldur Guðmunds- son frá Kirkjuferju lést á Land- spítalanum þann 14. febrúar, eft- ir rúmlega mánaðarlegu þar. Hann var fæddur þann 18. 12 1911 að Hesti í Önundarfirði, og ólst þar upp í stórum systkina- hópi. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Arngrímsdóttir og Guð- mundur Bjarnason er þar bjuggu. Móður sína missti hann 8 ára gamall og tók þá Ástríður systir hans að mestu við hússtjórn hjá föður sínum, en hann lést um 4 árum síðar og var Baldur hjá Ástu og Ingimundi manni hennar þar til þau fluttu suður til Hafnar- fjarðar um 1929. Átti hann og fjölskylda hans öll þeim mikið gott að þakka gegnum árin. Þar stundaði hann alla þá vinnu sem til féll. Ég ætla ekki að rekja æviferil hans í smáatriðum enda ekki að hans skapi. Hann var ekki vanur að halda á loft eða mikiast af því sem hann gerði en það kvað hann sína mestu gæfuför er hann hélt upp á Kjalarnes og hitti þar eftirlifandi konu sína Margréti Bjarnadóttur frá Gfund og hófu þau búskap i Reykjavík um 1936. Siðan var hann ráðsmaður hjá Arngrimi bróður sínum að Minni- Vatnsleysu um 5 ára skeið. Að Kirkjuferju í Ölfusi fluttust þau 1948 með barnahópinn sinn, til að freista gæfunnar, þvi ekki fannst þeim álitlegt að flytjast til Reykjavíkur meó 6 börn. Og þó kjörin væru stundum kröpp og vinnudagurinn oft Iangur þá tókst þeim með ást og umhyggju að koma okkur 11 systkinum af 12 til vits og ára, átta hafa stofnað sin eigin heimili en þrjú yngstu eru enn i föðurgarði og eru barna- börnin orðin 26. Baldur vann oft mikið utan heimilis með búskapnum því marga munna þurfti að fæða og vann hann þá mest við byggingar- vinnu og járnlagnir og núna síð- ustu árin vann hann hjá Slátur- félagi Suðurlands á Selfossi. Fyr- ir um það bil 4 árum hættu þau hjónin búskap og tóku 2 synir þeirra við jörðinni. Siðasta árið átti hann við sjúkdóm að striða en hann lét ekki bugast. Aldrei að gefast upp. Ég veit aó þetta eru sundurlaus og fátækleg orð, þvi af nógu er að taka, þegar litið er til baka, en minningin um ástríkan og góðan föður geymist. Hans siðustu jarðnesku leifar vorú lagðar til hinstu hvíldar í Kotstrandarkirkjugarði þann 8. mars, við hliðina á dótturinni ungu sem svo fljótt var tekin frá þeim en fagnar nú pabba. Við kveðjum þig með söknuði pabbi minn, en látum huggast í trúnni um, að nú líði þér vel. Ad sjálfsögdu vegna einstakra gæda Reyplasteinangrunar. 1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (iamdogiidi0,028 - 0,030) 2. Tekur nólega engan raka eóa vatn í sig ^BlilWI 3. Sérlega létt og meófœrileg Yfirburóir REYPLASTeinangrunar eru augljósir og ^ji|| enn sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi. VÍ REYPLAST hf. ÁRGERÐ 1975 — VÖIMDUÐUSTU HJÓLHÝSA- TJÖLD í EVRÓPU — ENGINN VAFI! AUKIÐ NOTAGILDI HJÓLHÝSANNA OG TVÖFALDIÐ FLATARMÁLIÐ MEÐ AÐEINS 10% VIÐBÓTAR-KOSTNAÐI!! SÉRSTAKLEGA HENTUG VIÐ ÍSLENZKAR AÐSTÆÐUR. 3JAÁRA REYNSLA HÉRLENDIS. ÚTVEGUM TJÖLD Á ALLAR GERÐIR HJÓLHÝSA. 2 VERÐFLOKKAR. LEITIÐ UPPLÝSINGA OG PANTIÐ TÍMANLEGA. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGOTU 1—3. HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919 miimm Alþjóðleg fegurðarsamkeppni Gestir kvöldsins velja fulltrúa Islands í feg- urðarsamkeppni IMorðurlanda sem haldin verður í Helsinki í októbermánuði. Einnig koma fram stúlkur, sem taka þátt í forkeppni sem fulltrúar íslands í alþjóðlegum fegurðar- samkeppnum. PORTÚGÖLSK HÁTIÐ sunnudagskvöld 23. marz Húsið opnar kl. 1 9. Veizlan byrjar kl. 19.30. Borðum verður ekki haldið lengur en til kl. 19.30. Þjóðarréttur Landaragout (Da Silva) Verð aðeins kr. 895. Söngur, gleði, grín og gaman. Sagt frá ódýrum ferðamöguleikum til Portúgals, Mall- orka, Costa Del Sol og Ítalíu. Norðurlandaforstjóri Portúgölsku ferðamálastofunnar mætir á samkomunni og segir frá Portúgal og sýnir litkvikmynd. Ferðabingó. Vinningar Portúgalsferð, Kanaríeyjaferð og Mallorka- ferð. Dans: Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Njótið skemmtunar- og gleðistunda sem alltaf eru á þessum vinsælu Sunnukvöldum. Tryggið yður borð hjá yfirþjóni sem fyrst í síma 20221 því áreiðanlega komast færri að en vilja. Skemmtunin verður ekki endurtekin. VERIÐ VELKOMIN Í SÓLSKINSSKAPI MED SUNNV rERDASKRlISTOFAH SDU LOKAHÁTÍÐ handknattleiksmanna verður haldin í Sigtúni miðvikudagskvöldið 26. marz n.k. og hefst með borðhaldi kl. 1 9.30 DAGSKRÁ: Hátíðin sett ★ Verðlaunaafhending í 1. deild karla og kvenna. ic Verðlaunaafhending í 2. deild karla. ýý Dregið í 4ra liða úrslit Bikarkeppni HSÍ. •fc Ómar Ragnarsson skemmtir •fc Hljómsveitin PÓNIK leikur fyrir dansi til kl. 2. Aðgöngumiðapantanir teknar í síma 85422 kl. 5 — 7 á morgun og þriðju- dag, og í Sigtúni á miðvikudag. Stjórn HSÍ Verzlunarhúsnæði til leigu í miðbæ Reykjavíkur er til leigu 60 fm verzlunarhúsnæði, sem gæti orðið laust fljót- lega. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. merkt: „Verzlunarhúsnæði — 7182" fyrir miðviku- daqskvöld. EF ÞÚ ERT HRIFIN(N) AF SOUL TÓNLIST, ER ÞETTA PLATAN SEM ÞÚ HEFUR BEÐIÐ EFTIR EF ÞÚ ERT EKKI HRIFIN(N) AF SOUL TÖNLIST, ER ÞETTA PLATAN SEM MUN BREYTA HUGARFARI ÞÍNU. FÆST 1 FLESTUM HELSTU hLJÚMPLÖTUVERZLUNUM LANDSINS. UMBOÐIÐ SÍMI 13008 G.B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.