Morgunblaðið - 01.06.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JUNI 1975
Frystihús innan SH:
Heildarútflutningurinn
63,725 lestir á sl. ári
Sjávarafurðadeild SÍS:
HEILDARUMSETNINGIN UM
FJÓRIR MILLJARÐAR KR.
„SE litið á árið 1975 I heild kem-
ur f ljós, að frystihúsin vantar 150
millj. kr. til þess að eiga fyrir
afskriftum, sem eru um 450 millj.
kr. Er þá gert ráð fyrir að úr
frystideild Verðjöfnunarsjóðs
sjávarútvegsins verði greiddar
um 1700 miilj. kr., en nú er inn-
stæða f sjóðnum tæpar 1500 miilj.
kr. Til þess að hægt verði að
greiða úr sjóðnum þetta ár,
vantar þvf rösklega 200 mrillj. kr.
við núverandi framleiðslukostnað
og markaðsverð.“ Þetta segir m.a.
á ályktun aðalfundar Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, sem
lauk f Reykjavík í fyrradag.
A aðalfundinum kom fram að
heildarútflutningur frystihúsa
innan SH var á s.l. ári 63.725
lestir og var þá um einhverja
minnkun að ræða frá síðasta ári.
Heildarvelta Coldwater, dóttur-
fyrirtækis SH í Bandaríkjunum
varð alls 78.1 millj. dollara á móti
72.4 millj. dollara 1973. Það kom
fram á fundinum í ræðum fram-
kvæmdastjóra og sölustjóra, að
við mikla erfiðleika var að glíma í
Fyrsta konan
bílstjóri SVR
ÞAÐ GETUR farið svo, að far-
þega, sem ætla með leið 4 í dag
hjá SVR reki í rogastan/,
þegar þeir sjá konu undir
stýri. En í dag, sunnudag,
tekur fyrsla konan við starfi
vagnstjóra hjá Slrætisvögnum
Reykjavíkur og heitir hún
María Jónsdóttir. Þá hafa tva-r
stúdínur falazt eftir starfi hjá
SVR og eru þær í þjálfun, ef
starf skyldi losna. Hér er um
sumarstörf að ræða, en stúlk-
urnar (aka þetta sem valgrein
við Menntaskóiann við Tjörn-
ina.
Bygging íþrótta-
hallar hafin í
Vestmannaeyjum
t gær kl. 5 tók Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra fyrstu skóflustunguna að
byggingu fþrótta- og sundhallar f
Vestmannaeyjum og verður hún
við Brimhólalaut f vesturjaðri nú-
verandi byggðar þar sem grasvöll-
ur Eyjamanna er og fyrirhuguð
er margháttuð fþróttamannvirki.
íþrótta- og sundhöllin er keypt
tilbúin frá Danmörku og verður
lokið við að byggja hana um mitt
næsta ár. Fullgildur og fullkom-
inn keppnissalur auk annarrar
aðstöðu er í íþróttahúsinu og
sama er að segja um sundhöllina.
Engin sundlaug er nú f Eyjum
þar sem gamla laugin fór undir
hraun í eldgosinu.
RUttKWAII
VEGNA veikinda og fæðingar-
hríða við komu Stuttsíðunnar í
heiminn fellur Slagsíðuopnan
niður þennan sunnudag.
I DAG, sunnudaginn 1. júní,
ganga í gildi nokkrar breytingar
á ferðum strætisvagna Reykja-
víkur, og snerta þær einkum
ferðir vagnanna á kvöldin og á
laugardagsmorgnum.
í fréttatilkynningu frá SVR
segir, að við tímasetningu ferða
vagnanna verði lögð sérstök
áherzla á greiðar samgöngur frá
eystri hverfunum til miðborg-
sölu frystra sjávarafurða á öllum
mörkuðum. Þrátt fyrir það tókst
fyllilega að halda hlut tslands á
mörkuðunum, borið saman við
ýmsa aðra keppinauta. Aðal-
markaðurinn er sem fyrr Banda-
ríkin og síðan koma Sovétríkin.
Hins vegar fer hlutdeild V-
Evrópu sífellt minnkandi og
hefur sjaldan verið minni en á s.l.
ári. í skýrslu stjórnar kom það
fram, að verðmæti frystra sjávar-
afurða í heildarútflutningi lands-
manna var á s.l. ári 32,6%.
í ályktun fundarins segir m.a.
Útlitið væri ekki eins slæmt, ef
sýnilegt væri að framundan væru
betri tímar og verðlag á mörkuð-
um frystra sjávarafurða hækk-
andi, en þann veg er málum því
miður ekki háttað. Verðlag fer
hvergi hækkandi og í mörgum
tilfellum er veruleg hætta á verð-
lækkun. Auk þess er um tölu-
verða birgðasöfnun að ræða á
nokkrum tegundum, þrátt fyrir
þrotlaust starf margra manna
sem tekizt hefir að selja afurðir
okkar á hærra verði en keppi-
nautarnir.
Kröfur launþegasamtakanna
um 38% kauphækkanir eru þvi
óraunhæfar og ofviða greiðslu-
getu frystihúsanna. Væri gengið
að framangreindum kröfum
þýddi það, að framleiðslu-
kostnaður hækkaði á einu ári um
eigi minna en 2000 millj. kr. og er
þá ekki reiknað með þeirri út-
gjaldaaukningu, sem hlyti að
fylgja í kjölfarið vegna fiskverðs-
hækkana. Afleiðingin yrði annað
hvort stöðvun frystihúsanna,
gegnislækkanir eða aðrar álíka
efnahagsráðstafanir, sem teljast
verða neyðarúrræði, öllum til
tjóns.
LISTDANSSKÓLI Þjóð-
leikhússins og Islenzki
dansflokkurinn héldu sýn-
ingu í Þjóðleikhúsinu um
síðustu helgi, en sú sýning
verður endurtekin í dag kl.
15. Stjórnandi er Ingibjörg
Björnsdóttir. Allir dans-
arnir eru samdir af íslenzk-
um dönsurum, en um 100
nemendur dansskólans og
dansarar Islenzka dans-
flokksins taka þátt í sýn-
ingunni.
arinnar. Fækkun ferðanna er frá
kl. 19.00 til kl. 01 á rtóttunni er
akstri lýkur og nú veróur fyrir-
komulagið þannig, að vagnarnir
aka á hálftfma fresti, þannig að
allar tímasetningar eiga að stand-
ast algjörlega. Rétt er að taka
fram að engar breytingar verða á
akstri vagnanna á virkum dögum
til kl. 19.00, né heldur á sunnu-
dögum og helgidögum til kl. 19.00.
HEILDARUMSETNING Sjávar-
afurðadeildar S.l.S. var á s.l. ári
3.941,6 millj. kr. á ipóti 3.623,9
millj. kr. 1973, sem er aukning
um 8,8%. Kemur þetta fram f
fréttatilkynningu frá aðalfundi
Sambands frystihúsa, sem hald-
inn var f Reykjavfk dagana 29. og
30. maf s.l. A fundinum kom einn-
ig fram, aðstarfsemi Iceland Pro-
ducts, sölufélags SAFF f Banda-
rfkjunum, gekk ekki nógu vel á
s.l. ári og var fyrirtækið fyrir
DR. A.H. Boerma, for-
stöðumaður Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar
Brucella fór
beint á veiðar
VIÐGERÐ á brezka togaranum
Brucellu lauk um s.l. helgi, en
varðskip dró togarann til hafnar
fyrir nokkru síðan eftir að leki
hafði komið að honum útaf suður-
strönd landsins. Skipshöfn togar-
ans kom til landsins á mánudag-
inn og hélt Brucella beint á-veiðar
hér við land á þriðjudaginn eftir
að hafa tekið ís, vatn og vistir.
Aðeins helmingur hinnar nýju
skipshafnar var á togaranum fyr-
ir óhappíð..
Fjórir þessara nýju vagna verða
notaðir á leið 12. Þá hafa strætis-
vagnstjórar fengið nýjan ein-
kennisklæðnað í stað þess gamla
og hefur litum verið breytt. Nýi
klæðnaðurinn er blágrænn og
leysir þann brúna af hólmi.
Sumaráætlun SVR verður af-
hent endurgjaldslaust í miðstöð
SVR á Lækjartorgi og við Hlemm.
þungum búsifjum sem má rekja
að verulegu leyti til þeirra
ötryggu markaðs- og rekstrarað-
stæðna, sem eru á mörkuðunum f
Bandarfkjunum.
t skýrslu um starfsemi Sjávar-
afurðadeildarinnar kom fram, að
deildin endurgreiddi til frysti-
húsa og fiskvinnslustöðva 26,9
millj. kr. fyrir sfðasta ár. Hlut-
deild deildarinnar af heildarvöru-
útflutningi landsmanna var 9,5%,
en af heildarútflutningi sjávaraf-
Sameinuðu þjóðanna,
FAO, er staddur hér á
landi ásamt tveimur öðr-
um starfsmönnum FAO.
Hér er hann til skrafs og
ráðagerða við íslenzka for-
svarsmenn. Dr. Boerma er
hollenzkur að ætt, kunnur
víða um lönd fyrir störf
sfn, en hjá FAO hefur
hann unnið sl. 27 ár.
Á blaðamannafundi með dr.
Boerma kvaðst hann vera mjög
ánægður með samstarfið við ts-
lendinga, en nú vinna 12 íslend-
ingar á vegum FAO vfða um
heim. „Aðalástæðan fyrir hungri í
heiminum er fátækt,“ sagði dr.
Boerma, „en ég tel að ræktun
megi auka að miklum mun og að
meiri árangri megi ná í fæðuöflun
ef rétt er á haldið og framkvæmd-
ir fá brautargengi."
Þá vék forstöðumaðurinn að
þeirri nauðsyn aó forðabúrum
verði komið upp víða um heim,
sem hægt væri að grfpa til þegar
illa áraði og einnig vék forstöðu-
maðurinn að mikilvægi fiskveiða
I heimi fæðuskorts. Dr. Boerma
hefur heimsótt 125 lönd af þeim
131, sem eru í SÞ, en starfsmenn
FAO eru um 3000 talsins. „Það er
föst og ákveðin uppbygging, sem
FAO vinnur að,“ sagði dr.
Boerma, ,,og við vonum að við
náum föstum tökum áður en það
er um seinan.“
urða 12,7%. Freðfiskframleiðsla
frystihúsanna á vegum deild-
arinnar var 17,933 lestir á móti
17,661 lest 1973. Framleiðsla allra
frystra afurða varð 22,406 lestir á
móti 21,921 lest 1973 eða hafði
aukizt um 2,2%.
Á aðalfundinum urðu miklar
umræður um vörugæði og voru
menn á einu máli um nauðsyn
þess að leggja áherzlu á vöru-
vöndun til að tryggja íslenzka
fiskinum áframhaldandi öruggan
sess á Bandarfkjamarkaði. Guð-
jón B. Ölafsson framkvæmda-
stjóri Iceland Products komst
m.a. þannig að orði:
„Ef íslendingar tapa því orði,
sem fer af íslenzkum fiski á
Bandaríkjamarkaði og þar með
því verði sem fæst umfram sam-
bærilegar pakkningar frá öðrum
þjóðum, myndi árlegur skaði
þjóðarbúsins nema meiru en 1000
millj. kr. vegna þorskflaka einna.
Stjórn SAFF var öll endurkjör-
in, en hana skipa: Arni Bene-
diktsson, Benedikt Jónsson, Mar-
teinn Friðriksson, Páll Andreas-
son, Ríkharð Jónsson, en til vara
Asgrímur Halldórsson, Jón Karls-
son og Tryggvi Finnsson. í stjórn
Iceland Products voru endur-
kjörnir Erlendur Einarsson,
Benedikt Jónsson, Guðjón B.
Ólafsson, Marteinn Friðriksson
og William D. Boswell.
Fyrsti kven-
vélstjórinn
útskrifaður
VÉLSKÓLA tslands var slitið f
gær f sextugasta sinn. Þá var
fyrsti kvenvéistjórinn útskrif-
aður eftir fyrsta hluta með 500
tonna vélstjóraréttindi. Heitir
hún Guðný Lára Pedersen
Hraunbæ 120.
Að sögn Andrésar Guðjónsson-
ar skólastjóra hefur Vélskólinn
skrifað út 2000 vél'stjóra sfðan
1915. Á þessu ári útskrifast 221
vélstjóri frá Reykjavík, en frá
Vélskólanum á Akureyri, í Vest-
mannaeyjum, Siglufirði og tsa-
firði útskrifast 272 vélstjórar alls
að þessu sinni.
Breytingar á ferðum SVR
bocca rlaoono or troriA
5 nýir Volvo vagnar
Þessa dagana er verið að taka i
notkun fimm nýja strætisvagna.
Þeir eru allir af Volvo-gerð og
voru vagnhúsin smíðuð í Belgíu.
Forstöðumaður FAO í heimsókn