Morgunblaðið - 01.06.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.06.1975, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JUNl 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen einu sinni verið yður að geði; en lengi ætlið þér að neita mér um þessa einu bón, sem ég hef beðið yður, eða haldið þér, að þér munuð hafa nokkra ógæfu af því að fara til mín? Ónei, ég vona til, að þér viljið mér vel, og mér finnst, aö ég nú geti ekki annað en orðið við þeim tilmælum yðar, fyrst yður þykir nokkru um það varða. I því bili, að Sigríður sagði þetta, bar svo við, að Kristján og Guðrún, er gengu spölkorn á undan, sveigðu fyrir húsgafl einn, svo að dálítið bar af millum þeirra og Möllers og Sigriðar, er þau gengu fram með húshliðinni; tunglið skein í heiði, en hefði það þá getað mælt, mundi það þá líkast til hafa sagt: einn, tveir, þrír og sá seinasti ögn lengri en sá fyrsti, og ekki kalla ég það að kyssast, börn, einhvern tíma hef ég nú séð annað eins. En er þau Möller voru gengin fram með húshliðinni, stóðst það á, að kaupmaður Á. var kominn að dyrunum á húsinu sínu og staldraði þar við, þar til þeir Kristján —COSPER---------------------- V og Möller voru komnir. Þar skildu þeir Möller og Kristján við þær stúlkur sfnar. Sigríður var orðin örþreytt og úrvinda af svefni og féll undir eins í svefn, þegar hún var komin í rúmið, og svaf fast og draumlaust alla nóttina og fram á bjartan dag, fór síðan á fætur, en var mjög svo óglöð um daginn. En Guðrún lék als oddi og talaði varla svo eitt orð, að það lyti ekki eitthvað að því, er gjörzt hafði á dansleiknum, og hversu vel hún hefði skemmt sér þar; og ekki gat hún ímyndað sér neina aðra orsök til ógleði Sigríðar en þá, að hún mundi hafa fengið höfuðverk af dansi og missvefni. En það var þó í rauninni ekki tilefnið, heldur hitt, að Sigríður sá það eftir á, að hún hafði verið helzt til fljót á sér um það, er hún þegar hafði heitið Möller, og um leið Grunnhyggnu kerlingarnar „Ef þú hefir öxi, þá skal ég útvega þér nóg sólskin." Kerlingin fékk honum þá öxi, og hann hjó glugga á bjálkakofann, því þessu höfðu smiðirnir gleymt. Þá skein sólin strax inn, og kerlingin borgaði mann- inum þrjú hundruð dali. Þarna var ein jafnslæm og mín, hugs- aði maðurinn. Eftir nokkra stund kom hann að að öðru húsi, og heyrði þaðan ógurlega skræki og ólæti. Þar gekk hann inn og sá þar kerlingu, sem lamdi karlinn sinn í höfuðið með stóreflis spýtu, og reyndi um leið að færa hann í skyrtu, sem ekkert gat var á fyrir höfuðið að komast í gegnum. „Ætlarðu að gera út af við manninn þinn, kona góð?“ spurði maðurinn. „Nei, ég er bara að reyna að berja höfuðsmátt á þessa skyrtu.“ Karlinn bar sig illa og sagði: „Æ, mikið skelfing er að þurfa að fara í nýja skyrtu. Og ef einhver gæti búið til höfuðsmátt á skyrtuna með einhverju öðru móti, þá skyldi ég borga honum þrjú hundruð dali.“ „Ekki skal ég verða lengi að því, ef ég fengi skæri,“ sagði maðurinn. Honum voru fengin skæri, klipti höfuðsmátt á skyrtuna, og hélt svo áfram með pening- ana sína. Þarna var önnur jafn heimsk, hugsaði hann með sér. Eftir langa göngu kom hann að bæ VtM> MORöUK/ KAFflNU Hér virðist kyrrlátt og friðsælt. DA£> ER EKKÍ MATðRBiT/'J "TiL 8Ö&B/ UUMM •' HELTU) 'i OLASiÐ Mrrr aftur GÓÐA-'/t ’ LATTU MI& VÍTA ÞE&AR DÚ ) HEFUR LOSAÐ ÞÍ& VÍÐ ,< y AUKAKÍtðiljL^: S,TGrtúND 'O? ií- z Líkiö ö grasfletinum Eftir: Maríu Lang Þýðandi: Jóhanna Kristjónsdóttir 69 Margit hafði ekki minnsta tilfinn- ingu fyrir irónfu og þess vegna var ekki fráleitt að þessi grilla um afdrif nafna Thotmesar hefði smám saman æstst upp f hennar sjúka heila. Eg held ekki bein- Ifnis hún hafi trúað þvf að sú vera sem hún var að reyna að drekkja hafi verið kattargyðjan Bast eða faróinn Thotmes hefði komið á vettvang til að vernda hagsmuni veslings Tommys, en ég held að hún hafi verið eini aðilinn af þeim, sem við grunuðum, sem hafðí hinar sálrænu forsendur fyrir að geta stækkað svo hlut lítils kattar og gert hann að ein- hverju voðalegu og óskiljanlegu afli f málinu. En leyfið mér enn á ný að snúa mér aftur að játningum þeirra j hjónanna. Ef það, sem þau sögðu, var ekki rétt, hvers vegna komu þau þá með þessar yfirlýsingar. Ja, hvað ofurstann snertir get ég hugsað mér það sé sprottið af verndartilfinningu f garð heilsu- veíllar eiginkonu sinnar...ég vissi ekki þá að hann hefði slæma samvizku gagnvart þeirri konu, sem hann hafði gengið að ciga en aldrei getað elskað .... En Margit Holt f hlutverki þess sem fórnar sér fyrir aðra? Ég verð að viður- kenna að ímyndunarafl mitt hrökk ekki svo langt! Allt, sem ég vissi um hana, benti til þess að hún væri manneskja sem alla sína ævi hefði látið aðra sýna sér umhyggju og umönnun og ég gat varla fmyndað mér að þessi stjórnsama, blfðlynda og eigin- gjarna kona fylltist allt í einu hvöt til að láta loka sig f fangelsi til að vernda annan aðila. En ég þurfti ekki að leggja sér- lega hart að mér til að ímynda mér hana sem morðingja. Ilún hafði sjálf ekki gefið upp aðra ástæðu fyrir morðinu en að Tommy hefði gert sér svo margt illt, en augljós taugaspenna hennar ásamt þeirri mynd sem Puek, Johannes, Agneta og Wilhelm drógu upp af henni, komu fljótlega upp um hana. Hún hefur litið svo á að Agneta væri eign hennar... að hún ætti f einu og öllu að fara að hennar óskum og lifa einvörðungu fyrir sig — hina göfugu, mildu móður. Hún var afbrýðissöm út f eiginmann sinn og allt bendir til að tilfinn- ingar hennar f garð dóttur sinnar hafi verið enn tillitslausari og skefjalausari. Að hennar dómi hafði Tommy forfært Agnetu á þann hátt sem vissulega hefði komið hverri venjulegri móður úr jafnvægi... og nú var hann kominn heim aftur og hafði lokkað stúlkuna tii að koma á stefnumót við sig. Og Margit beið ... staðráðin f að verja afkvæmi sitt og berjast fyrir eign sinni. Á grundvelli þessara ástæðna — sem hver um sig er veik og óljós — hallaðist ég að því, að morðinginn væri enginn annar en Margit Holt. Ég var feginn að hugboð mitt reyndist rétt. Ég gleðst einnig yfir því að cndirinn skyldi verða á þennan veg. Hefði hún verið leidd fyrir dómstól hefði niðurstaðan einfaldlega orðið sú að hún hefði ekki vcrið úrskurðuð sakhæf og síðan hefði hún verið sett á geðsjúkrahús og væntanlega sleppt þaðan fljót- lega. Því að hún var f rauninni ekki geðveik í orðsins fyllsta skilningi.... En ég get unnt Wilhelm Holt þess að hann fái loks tækifæri til að lifasfnu eigin lffi...og hið sama á við um Agnetu. Hvorugt þeirra hefur átt auðveida daga þessi síðustu ár. Og þó er spurningin hvort þriðji aðilinn hefur ekki liðið enn meira en þau nokkurn tfma. — Tommy ... sagði ég hljóð- lega. Við sátum öll þegjandi. Eina hljóðið sem heyrðist var malið í Thotmes III. — Það er skrftið, sagði Einar að lokum, — hversu mörg leynd- armál og hve mikið af sóðalegum uppljóstrunum kemur fram í dagsljósið þegar einhverjir slíkir atburðir gerast. Allt mögulegt sem kemur hinum eiginlega glæp ekki við, en verður þó að draga fram og rannsaka.... Faðir minn hristi silfurhvftt höfuðið. — Ekki aðeins sóðamál, sagði hann mildilega. — Við höfum einnig heyrt um ást — mikla ást og óeigingirni. Og ég hef lært mikið um meðbræður mínar og systur. Kannski meira en hefði ég fengið tóm til að lesa ritgerðina um Hómer. Og glettnisbjarminn í augum hans var augljós, þegar hann rétti Christer höndina í kveðjuskyni: — Ég vona þú komir aftur. Mig minnir þú hafir verið að orða eitthvað um ieiðindamál, scm þú hefðir verið að vinna við upp á sfðkastið. Einhverra hluta vegna vissi ég aldrei hvernig það endaði. SÖGULOK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.