Morgunblaðið - 01.06.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.1975, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNl 1975 11 Ml.ún kemur akandi i litlu Fiat-bifreiöinni sinni eftir einni af götum Parisarborgar og þar sem hún staðnæmist vindur pels- klædd dóttir næturinnar sér að bifreiðinni og hvíslar „gættu þín prinsessa, þeir bíða handan við hornið". Stúlkan í bílnum selur upp svip og spyr: „Hve margir?“ „2—3“, er svarið og hún stígur fast á bensíngjöfina, snýr bifreið- inni og ekur til baka. Ljósmyndar- arnirkoma hlaupandi f.vrir hornið og bölva hástöfum, en prinsessan er gengin þeim úr greipum i þetta sinn. Eftirlætisfórnarlamb ljós- myndara og ein aðalpersóna slúðurdálka heimsblaðanna í dag er Caroline Louise Margurite Grimaldi af Monaco, 18 ára gömul fegurðardís, dóttir leikkonunnar heimsfrægu Grace Kelly og Rainers prins. II ÆMún dvelst um þessar mundir í Paris, ásamt móður sinni og yngri systur, Stefanie 10 ára, en bróðir hennar, Albert 17 ára erfðaprins, er hjá föður sinum i Monaco. Caroiine stundar nám í stjórnmálafræðum við Science Po í Paris og stendur sig með af- brigðurn vel. Móðir hennar sagði nýlega í viðtali við Time: „Caroline er ákaflega heilsteypt stúlka, hún er hörkudugleg og ég er stoit af henni. Hún hefur ákveðin markmið í lifinu og ætlar sér að ná þeim.“ Þetta er allt rétt og satt. 1 kaþólska einkaskólanum i Monaco var hún talin mjög vel gefin, opinská og sifellt að spyrja og sætti sig ekki við loðin svör. Hún lauk prófi þaðan með ágætis- einkunn. Hún er mikil mála- manneskja, talar ensku, frönsku, þýzku og spönsku reiprennandi og hefur hug á frekara tungu- woodframleiðandi Sam Spiegel elskaði að fá að fara með hana í siglingar um borð í snekkju sinni um höfnina í Monte Carlo á eftir- miðdögum. Ein besta æskuvin- kona Caroline, Helen Faggioento, sagði í viðtali: „Grimmy (eins og vinir hennar kalla hana) átti allt. Dúkkueldhús sem hægt var að elda í, bíla, sem hægt var að keyra i, öll þau gæludýr sem hana lang- aði í og yfirleitt öll þau leikföng, sem flest börn aðeins dreymir uin.“ f V/aroline gerði sér ekki grein fyrir þvi að hún hefði sér- stöðu fyrr en hún byrjaði skóla- göngu. Fram til þess tíma hélt hún að nöfn allra enduðu með „af Monaco", en hún lærði fljótt. Þeg- ar hún var sex ára fór hún með foreldrum sinum í opinbera heim- sókn til Irlands og Winston Churchill var um borð í sömu flugvél. Þegar hún tók eftir því hve fólk snerist í kringum hinn aldna stjórnmálamann spurði hún: „Er hann mikilvægari en pabbi?“ ú þegar Grace litur yfir skólagöngu dóttur sinnar í París vill hún að Caroline sæki nám- skeið I matreiðsluskóla Maxims, til þess að læra að dekka borð, velja silfur og vera gestgjafi. Þessu svarar dóttirin glettnis- lega: „Ég þarf þess ekki mamma, við höfum þræla til þess.“ „Já,“ svarar Grace „og ég er þinn þræll.“ Hin aldagamla spenna milli móður og dóttur, misjafnlega áberandi, en alltaf til staðar, á eins við um þær Grace og Caro- line. Eitt sinn fyrir skömmu voru þær að glettast léttilega, er eitt- hvað breytti skyndilega andrúms- loftinu og Caroline sagði striðnis- lega við móður sína: „Ég get plat- að þig hvenær sem er.“ Grace sezt og starir á dóttur sina en segir ekkert. r v/aroline gengur út að glugganum og horfir út og sér kunna sjónvarpsstjörnu hleypa vændiskonu út úr bifreið sinni á horninu á Foch-breiðgötu. Caroline glottir og segir: „Ekki skil ég hvernig þessar dömur geta haldið hár- greiðslunni i Iagi.“ Móðir hennar roðnar og gefur ákveðið í skyn, að hún kæri sig ekki um að dóttirin láti slikar athugasemdir út úr sér. Lífið er ekki bara dans á rósum þótt maður heiti Caroline málanámi. Sjálf segir hún; „Ég legg hart að mér við námið, kannski ekki harðara en annað fólk, en ég lifi ekki í drauma- heimi.“ r V/aroline er engin Grace Kelly 8. áratugarins. Það er þó einhver svipur með þeim, augun og munnsvipurinn, en þar með er það líka búið. Caroline likist meira föðurættinni og kunnugir segja aó henni svipi helzt til ömmu sinnar, Carlottu, sem þótti forkunnarfögur og þokkafull á yngri árum og var þekkt fyrir feiknalegt skap. Greinilega ekki leiðum að likjast fyrir unga prinsessu. r Urace Kelly lagði frá upp- hafi áherzlu á að uppeldi barna sinna yrði með eins eðlilegum hætti og kostur væri, sem ekki var auðvelt i þvi draumariki, sem Monaco er. Monaco er eins og ostur á samloku milli Nice og ítölsku landamæranna, aðeins um 470 ekrur að flatarmáli og íbúarn- ir eru 24 þúsund. Veðráttan er eins ákjósanleg og helzt er hægt að hugsa sér við strendur Miðjarðarhafs og meðalárshitinn um 18 gráður á celcíus: Helztu tekjur furstadæmisins eru af ferðamönnum, hinu fræga Monte Carlo spilavíti, ilmvatnafram- leiðslu og sölu frímerkja. Aðeins um 4000 þúsund íbúa eiga ættir sinar aó rekja til Monacobúa, hin- ir eru af 88 þjóðernum, og eru það einkum hin milda veðrátta og hagstæðir tekjuskattar, sem hafa laðað þá tíl búsetu. Mestu viðsjár, sem steðjað hafa að Monaco í nútímasögu þess, voru árið 1962, er De Gaulle Frakklandsforseti hótaði að loka fyrir vatn og raf- magn til furstadæmisins, vegna þess að ríkir Frakkar fundu þar skattaparadis, án þess að frönsk D MPlöðin eru búin að gifta Caroline allt frá Charles Bretaprins til sonar Valery Giscards D’Estaings Frakk- landsforseta, en sannleik- urinn er sá að hún er ekki á föstu og hefur ekki verið. Hún hefur átt sína kunningja og góða vini, ein- stöku betri en annan, en hún er fjarri þvi að hugsa um hjónaband. Hún kann best við að fara út að skemmta sér með hópi fólks og sækir gjarna fínni veitingahúsin og diskótekin i París með vinum sínum, þar sem hún dansar og syngur eins og hver annar ungl- ingur á hennar aldri. Eini munur- inn er sá, að lífvörðurinn er ætíð nærstaddur. r \/aroline er ekki farin að hugsa alvarlega um hvað hún tekur sér fyrir hendur að loknu náminu í Paris. „Mér finnst ég vera meiri Frakki en Bandarikjamaður og ég vil búa í Evrópu, i eða sem næst Monaco, en þetta er minn tími til að gera það sem mig langar til án þess að þurfa að brjóta það til mergjar áður. Hins vegar skiptir ekki mestu máli, hvar maður býr, heldur hver maóur er, hvernig maður hugsar og hvað maður ger- ir.“ Hún vili ekki útiloka neina möguleika, en: „Þetta er sá tími sem maður getur Iátið stjórnast af hugdettum, því aó siðar í lifinu verður allt skipulagt.” u MMins vegar er ákaflega erf- itt að láta stjórnast af hugdettum og gera það sem mann langar til, þegar lífvörðurinn er alltaf eins og skuggi manns og Ijósmyndar- arnir bíða handan við hornið. Líf- ið er þvi ekki bara dans á rósum þótt maður heiti Caroline og sé prinsessa af Monaco. Caroline og hin ýmsu andlit prinsessunar af Monaco yfirvöld fengju að gert. Rainer brá við skjótt og skipaði 80 manna hallarvarðsveit sinni og 207 lög- reglumönnum í viðbúnaðarstöðu. Skynsemin réð þó að lokum og það varð að samkomulagi að Frakkar, sem höfðu haft löglega búsetu í landinu frá 1957, fengju að halda skattafríðindum sinum, en þeir sem styttri búsetu áttu að baki urðu að greiða skatta í Frakklandi. Þar með var styrjöld afstýrt. r \/aroline hitti ótrúlegasta fólk á uppvaxtarárum sínum og það átti sinn þátt i að móta hana, að sögn móður hennar. Hún var tveggja ára, er hún hitti drottn- ingu Spánar, De Gaulle heilsaði hún þriggja ára, Aristotles Onassis var mikill vinur hennar og gaf henni m.a. smábíl meó bensínmótor. Hinn frægi Holly- Með pabba við veizluborð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.