Morgunblaðið - 09.09.1975, Side 12

Morgunblaðið - 09.09.1975, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975 Frá Lelðbeinlngaslöð húsmæðra Kaup á vínsýru og notkun hennar i krækiberjasaft láta margir vln- sýru til þess að hún varðveitist betur og menn verði slður berja- bláir, þegar hennar er neytt. Vinsýra er duft sem kaupa má I lyfjaverzlunum og kostar 1 bréf með 25 g af vínsýru 75 kr. eða með öðrum orðum 3 kr. hvert g. Mjög auðvelt er að leysa upp vfn- sýruna I dálitlu heitu vatni og er hæfilegt að láta 5 g af vfnsýru f hvern saftlftra, en það skiptir ekki rneginmáli við saftframleiðsluna, þótt magnið sé ekki hárnákvæmt. Efnagerðir hafa látið á markað Iftil glös svipuð kryddglösum á stærð með uppleystri vínsýru. Í einni verzlun kostar slikt glas 55 kr. Engar leiðbeiningar fylgja um það, hve margar matskeiðar af þeirri upplausn þurfi að láta f hvern saftlftra og virðist ekki unnt að fá vitneskju um það í efna- gerðunum, hve mörg g af vfnsýru eru leyst upp f glasinu. Ef til vinn er það framleiðsluleyndarmál. Neytandi sem kaupir eitt glas með nokkrum matskeiðum af upp- leystri vfnsýru getur ekki heldur með nokkru móti gert sér grein fyrir á hvaða verði hann kaupir hvert g af vfnsýru. Sé 1 g f glasinu er verðið 55 kr. en skyldu 10 g vera f glasinu er verðið 5,50 kr. Sigrfður Haraldsdóttir 70 lærðu að sitja hest í Stykkishólmi Stykkishólmi 5. sept. MIKIÐ er um það f Stykkishólmi að menn eigi hesta og hefir verið stofnað þar Hestamannafélag Eins hefir verið komið upp góðri aðstöðu fyrir hestana fyrir utan bæin Þar hafa verið reist vegleg hesthús. Láta mun nærri að um 50 til 60 hestar séu í eigu Stykkis- hólmsbúa og einnig mikið um að ung- lingar eignist hesta og stundi hesta- mennsku. Eru þeir mjög natnir við hestana og áhugasamir. Eru bæði ung- ir og gamlir komnir með hesta. f ágúst mánuði var ráðinn til félags- ins kennari, Kolbrún Kristjánsdótir úr Reykjavlk og kenndi hún meðferð hesta og reiðmennsku, ungum sem gömlum Stóð námskeiðið í 10 daga og voru þátttakendur um 70. Hesta- mannafélagið hefir afnot af gamla flug- vellinum fyrir ofan Stykkishólm og jaar eru hestar reyndir og þar fer fram keppni og aðrár Iþróttir Sunnudaginn 31 ágúst s.l. þegar námskeiði Kolbrúnar lauk, var haldin sýning á árangri kennslunnar og börn- um og upglingum var veitt sklrteini fyrir hvað þau stóðu sig vel, en ein- kunnir voru ekki gefnárT Ýmis atriði fóru þarna fram og var margt manna viðstatt og hafði mikla ánægju af. Þau yngstu sýndu hvernig fara ætti með hesta og stjórna þeim og margt annað var þarna til skemmtunar. Þótti námskeið þetta vel takast og áhugi mikill hjá þeim sem þátt tóku I þessu. Fyrir mörgum—érum var það ein helzta skemmtun Stykkishólmsbúa að fara I útreiðatúra enda þá engir bllar komnir. Eiga margir góðar minningar frá þeim tímum svo sem segir I ævi- sögu Clausens og viðar. Siðar lögðust þessar hestaferðir’ niður, en nú hafa þær verið endurvaktar og eru þar lika að verki áhrif aðkomandi hestamanna- félaga. Yfirleitt er gaman að sjá svona marga hesta tölta hér um götur með góða hestamenn á baki. Fréttaritari. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN Golf BÍLL, SEM BYÐUR UPP A NÝJA MÖGULEIKA Hann er 3.70 m. langur og 1.60 m. breiður og er því einn af styttstu og breiðustu bílum í sínum flokki. Þó er hann „fullvaxinn" fólksbíll, reyndar mjög rúmgóður fimm manna fjölskyldubíll. Farángurs- rýmið er 350 lítrar, en það er hægt að stækka um helming eða í 698 lítra með einu hand- taki. Ef þér lítið undir vélarlokið, þá sjáið þér eina af ástæðunum fyrir því, að Golfinn er svo stutt- ur. Vélin er staðsett þversum. Tvær vélarstærðir er um að ræða 50 hö og 70 hö. Benzín- eyðslan er 7—8.9 I. á 100 km. Golfinn er fáanlegur tveggja dyra og fjögurra dyra, auk aftur- hurðar. ac>v Golfinn er mikill bíll og býður upp á mikla möguleika. — og þér munið njóta hans vet. Sýningarbíll á staðnum HEKLAH.F. £.AUGAVEGI 170—172 — SÍMI 21240. Verksmidiu — útsala ÁUtfoss Opid þridjudaga 14-19 fimmtudaga 14-21 á útsölunm: Flækjulopi Hespulopi Flækjuband Endaband Prjónaband Vefnaðarbútar Bílateppabútar Teppabútar Teppamottur & ALAFOSS HF MOSFELLSSVEIT STAKIR STOLAR OG SETT. KLÆÐI GÖMUL HÚSGÖGN. GOTT ÚRVAL AF ÁKL/EÐI. BÓLSTRUN ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Sími 1 6807._

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.