Morgunblaðið - 26.09.1975, Page 1
40 SIÐUR
308. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins:
Vísar Armannsfellsmálinu
til Sakadóms Reykjavíkur
„Höfum ekkert að fela”, segir borgarstjóri
Bréf borgarstjórnar-
meirihluta Sjálfstæðis-
manna til saksóknara
ríkisins.
Hér birtist mynd af
bréfi því, sem allir við-
staddir borgarfulltrúar
og varaborgarfulltrúar
S j álfstæðisf lokksins
undirrituðu í gær og
sendu Saksóknara ríkis-
ins.
Reykjavík 25. september 1975
Hr. saksóknari ríkisins,
bórður B.jörnsson.
Að undanförnu hafa birzt á opinberum vettnngi ásakanir urrt það.að
meint misferli hafi átt sér stað við úthlutun lóðar til Byggingarfólags-
ins Armannsfells h.f., scm samþykkt var í borgarráði hinn 29.f.ra. Borgarráð
hefir sumþykki að skipa nefnd til að rannsaka málið, en ljóst er af yfir-
lýsingum i>ínstakra borgarráðsmanna, að ekki muni nást samstaða su, sem þarf,
um skipun nelndarinnar. t>að er því ósk okkar aðal og varaborgarfu 111rúa
SJál f stacði sf lokksins , til yðar hr . saksóknari , að þér feiið Sakudómi
Reykjavíkur að kanna, hvort saknaemt atfcrli hufi átt sór stað í snmbundi
við framangrelnda lóðarúthlutun. Tekið «kal fram að nokkrir fulltrúunna
eru fjurverandi.
bess er óskað, að sakadómur hraði rannsókn málsins oftir föngum og
jafnframt að borgarráði verði gerð grein fyrir niðurstöðum hennar.
Sjá ennfremur samtal vió
^_Albert Guðmundsson á bls. 3.
BORGARFULLTRÚAR og
varaborgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins f Reykja-
vík héldu fund í gær og
ákváðu að senda bréf til
Saksóknara ríkisins með
beiðni um, að hann beiti
sér fyrir því að Sakadómur
Reykjavíkur rannsaki þær
ávirðingar, sem meirihlut-
inn er sakaður um vegna
svonefnds Ármannsfells-
máls. „Við höfum ekkert
að fela í þessu máli“, sagði
□
Sjá einnig bis. 19.
□ —o
Hamri, 25. september. NTB. AP. Reuter.
TRYGVE Bratteli forsætisráð-
herra tilkynnti á fundi lands-
stjórnar norska Verkamanna-
fiokksins f Hamri í dag að hann
mundi biðjast lausnar I janúar
þegar Störþingið kemur saman að
loknu jólaleyfi og Oddvar Nordli,
formanni þingflokks Verka-
mannafiokksins, yrði faiið að
mynda nýja rfkisstjórn.
Bratteli skýrði frá ákvörðun
sinni í bréfi sem hann las upp i
upphafi fundarins og landsstjórn-
in samþykkti síðan einróma til-
lögu frá formanni flokksins, Rei-
ulf Steen, þess efnis að Oddvar
Nordli yrði tilnefndur forsætis-
ráðherra. Bratteli skýrði frá því
að hann hefði sagt Ölafi konungi
frá ákvörðun sinni áður en hann
fór til fundarins.
Ákvörðun Brattelis kemur ekki
á óvart þar sem hann tilkynnti á
þingi flokksins i vor að hann
hygðist segja af sér fyrir næstu
Ford fækkar
ferðalögum
Washington, 25. september. Reuter.
FORD forseti ætlar að endur-
skoða ferðaáætlanir sínar á
næstu mánuðum og afiýsa
nokkrum ráðgerðum ferðum
að þvf er blaðafulitrúi hans
skýrði frá f dag.
Ron Nessen blaðafulitrúi
neitaði því að breytingarnar
ættu rætur að rekja til þess að
forsetanum hefur tvfvegis ver-
ið sýnt banatilræði. Hann
skýrði jafnframt frá þvf að
færri uppplýsingar yrðu veitt-
ar fyrirfram um ferðir Fords
en áður.
Birgir Isleifur Gunnarsson
í samtaii við Morgunblaðið
í gær.
Borgarstjóri gat þess
m.a. á biaðamannafundi
sfnum um þetta mál á
fimmtudag sl., að hann
væri reiðubúinn að feia
sakadómi meðferð máls-
ins, ef samstaða tækist
ekki í borgarráði um
nefndarskipan.
Þar sem mál þetta hefur
nú einkum beinzt að
Albert Guðmundssyni,
alþm. og borgarfulltrúa,
sneri Morgunblaðið sér
einnig til hans og spurði,
þingkosningar, sem eiga að fara
fram haustið 1977, og lét jafn-
framt af formennsku f flokknum.
Steen var þá kosinn flokksfor-
maður í hans stað og samþykkt
var ályktun þess efnis að Nordli
yrði næsti forsætisráðherra
flokksins.
Enn er allt á huldu um hver
taka muni við af Nordli sem for-
maður þingflokksins, hvaða nýir
ráðherrar fá sæti i stjórn hans og
hvaða ráðherrar segi af sér. Hins
vegar ákvað landsstjórnin að boða
til nýs fundar i janúar ásamt
þingflokknum til að fjalla um
stjórnarskiptin. Búizt er við
nokkrum breýtingum á stjórn-
inni, en engri stefnubreytingu.
Bratteli sagði á blaðamanna-
fundi að hann væri ekki farinn að
velta því fyrir sér hvað gerast
mundi í janúar. „Ég verð for-
sætisráðherra þangað til ég verð
leystur af hólmi, þetta verður
enginn hvíldartími, stjórnin
heldur áfram störfum. Ég býst
ekki við sérstökum erfiðleikum,“
sagði hann. Hann tilgreindi engar
ástæður fyrir ákvörðun sinni.
Nordli sagði að hann mundi
ekki nota lengri tíma en hann
nauðsynlega þyrfti til að mynda
nýja stjórn og kvaðst mundu hafa
samráð við verkalýðshreyfinguna
og nefndir flokksins um myndun
hennar. Hann taldi ekki að telj-
andi breytingar yrðu á samstarf-
inu á þingi og sagði aðspurður að
hann hefði ekki verið eins óþolin-
móður að taka við stjórninni og
sum blöð vildu vera láta.
Norskur forsætisráðherra
hefur aldrei áður ákveðið að segja
af sér með þriggja mánaða fyrir-
vara. Bratteli benti þó á að þess
væru.dæmi að Verkamannaflokk-
urinn og borgaraflokkar hefðu
ákveðið hvenær stjórnir þeirra
segðu af sér.
Steen flokksformaður sem kom-
Framhald á bls. 22
hvers vegna hann hefði
verið hvatamaður þess, að
máiið yrði lagt fyrir saka-
dóm. Svar Alberts, ásamt
samtali við hann, birtist á
3ju síðu blaðsins í dag, en
þar segir hann m.a. að
hann viiji leggja málið fyr-
ir sakadóm, svo að „ásakan-
ir þær, sem bornar hafa
verið fram, verði kannaðar
tii hlítar, og sá rógburður,
sem fram hefur komið í
þessu svokallaða Ármanns-
fellsmáli verði kveðinn
niður í eitt skipti fyrir
öll“, eins og hann kemst að
orði.
Bréf það sem borgar-
stjórnarflokkur Sjálfstæð-
ismanna hefur skrifað sak-
sóknara er svohijóðandi:
Hr. saksóknari ríkisins,
Þórður Björnsson.
AÐ undanförnu hafa birzt á opin-
berum vettvangi ásakanir um
það, að meint misferli hafi átt sér
stað við úthlutun lóðar til bygg-
ingarfélagsins Ármannsfells h.f.,
sem samþykkt var í borgarráði
hinn 29. f.m. Borgarráð hefir sam-
þykkt að skipa nefnd til að rann-
saka málið, en ljóst er af yfirlýs-
ingum einstakra borgarráðs-
manna, að ekki muni nást sam-
staða sú, sem þarf, um skipun
nefndarinnar. Það er því ósk okk-
ar aðal og varaborgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, til yðar hr.
RÁÐSTEFNA Samtaka olíufram-
leiðslurfkja, OPEC, náði ekki
samkomulagi ( dag um hækkað
saksóknari, aó þér felið Sakadómi
Reykjavíkur að kanna, hvort sak-
næmt atferli hafi átt sér stað í
sambandi við framangreinda lóð-
arúthiutun. Tekið skal fram að
I verð á olfu. Ahmed Zaki Yamani
frá Saudi-Arabíu vildi f mesta
lagi 10% hækkun en fulitrúar
j alira hinna OPEC-Iandanna 15%
nokkrir fulltrúanna eru fjarver-
andi.
Þess er óskað, að sakadómur
hraði rannsókn málsins' eftir
Framhald á bls. 22
hækkun samkvæmt góðum heim-
ildum.
Yamani sagði að „gífurlegur á-
greiningur" hefði rikt á fundin-
um og aðrir fundarmenn sögðu að
ágreiningurinn væri „óbrúanleg-
ur“.
Seinna fór Yamani til Lundúna
og sagði við komuna þangað: „Ég
hef ekkert að segja. Ég er hingað
kominn til að tala við sendiherr-
ann.“ Talið er að Yamani fari
aftur til Vínar á morgun og störf-
um ráðstefnunnar verður haldið
áfram.
Seinna sagði Yamani þegar
hann hafði haft samráð við ríkis-
stjórn sína að hann teldi sig ekki
geta fallizt á meira en 5% hækk-
un. „Ég geri mér grein fyrir að
aðrir krefjast allt að 20% hækk-
unar og að við eigum í erfiðleik-
um,“ bætti hann við.
H.ann neitaði því að hafa gengið
af fundi í Vfn. „Ég náði ekki
sambandi við stjórn mína frá
Vín,“ sagði hann.
Yamani reyndi i fjóra klukku-
tíma að koma í veg fyrir óhóflega
Framhald á bls. 22
Ahmed Zaki Yamani frá Saudi-Arabfu gengur af fundi OPEC f Vfn
Hann sagói að „gffurlegur ágreiningur" rfkti á fundinum.
Nordli tekur
við í Noregi
Yamani einn á móti
15% olíuverðhækkun
Vfn, 25. september. Reuter.