Morgunblaðið - 26.09.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Nokkrar af bókunum sem verða á uppboðinu, Ný félagsrit, lækn
ingabók o.fl.
Bókauppboð Klausturhóla;
Hœstaré ttardómar
í 44 bindum í boði
GUÐMUNDUR Axelsson í
Klausturhóium mun halda
bókauppboð í Tjarnarbúð n.k.
laugardag kl. 14. Bækurnar
verða til sýnis í Klausturhólum
Lækjargötu 2 í dag föstudag, en
á uppboðinu verða 100 númer
og er þar margt fágætra bóka
og forvitnilegra. Meðal annarra
bóka má nefna Manntal á ts-
landi árið 1703, fslénzk-danska
orðabók Sigfúsar Blöndal,
Lækningakver dr. Jóns Hjalta-
lín frá 1840 og Lækningabók
fyrir almúga eftir Jón Péturs-
son, gefin út í Kaupmannahöfn
1834. Islenzkar sögur og sagnir
sem Þorsteinn Erlingsson hef-
ur safnað, gefin út í Reykjavík
1906, Fiskimál eftir Jón í Hlíð-
arendakoti, Alþingisbækur ts-
Framhald á bls. 22
Leyfið þið mér, vinir mínir, að þakka ykkur öllum
þann einstæða hlýhug og höfðingslund, sem þið
sýnduð mér sextugum.
Guð blessi ykkur öll og varðveiti.
Þrengt að starfi
Öldutúnsskólakórsins
Áminning til
bíleigenda
fyrir veturinn
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Félagi fslenzkra bifreiðaeigenda
til þess að minna bifreiðaeigend-
ur á hvað æskilegt er að huga að f
bifreiðinni fyrir veturinn:
1. Yfirfarið kveikju og rafkerfi,
stillið kveikjutfma og blöndung.
Athugið hvort viftureim er rétt
strekkt og ósprungin.
2. Athugið hve mikið frost kæli-
vatnið þolir. (Það fæst mælt á
benzfnstöðvum)
3. Athugið og látið stilla ijós fyrir
31. október.
hvort rúðuþurrkur
4. Athugið
eru f lagi.
5. Ef bremsur taka ójafnt í, getur
bifreiðin verið stórhættuleg í
hálku, látið því stilla bremsurnar.
6. Takið tillit til náungans og haf-
ið aurhlffar í lagi.
7. Athugið að frá 15. október til
1. maf er heimilt að nota neglda
hjólbarða (Skulu þeir þá vera á
öllum hjólum).
munum halda áfram að æfa. Það
eru nú um 50 i kórnum og við
æfum mjög mikið, eða átta og
hálfa klukkustund á viku sem
gera þrettán og hálfa kennslu-
stund sem miðast við 45 mín. Við
æfðum t.d. út allan júní og byrj-
uðum í ágúst þannig að þetta er
mikið starf, en nú veit maður ekki
hvar maður stendur. Það er sýnt
og ekki bara vegna kórstarfs, að
það verður að skera niður ýmsa
þætti félagsstarfs í skólum, ef
kennarar eiga ekki að fá greitt
fyrir þann þátt starfs síns, en
vonandi verður þessum málum
kippt í lag á eðlilegan hátt.“
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
AÐFARARNÓTT sfðastliðins
miðvikudags var ekið á kyrrstæða
Fiatbifreið, dökkbláa að lit, R-
3834, þar sem hún stóð á Fálka-
götu framan við húsið númer 17.
Vinstra frambretti bifreiðarinnar
skemmdist. Rannsóknarlögreglan
óskar eftir að þeir, sem kynnu að
hafa orðið varir við áreksturinn,
hafi samband við hana þegar í
stað. Ennfremur er skorað á tjón-
valdinn, að hann gefi sig fram.
Leiðrétting
I FRÉTT af ársfundi Norrænna
rithöfunda, sem birtist á baksíðu
blaðsins í gær kom fram meinleg
prentvilla f fyrirsögn. Þar var að
sjálfsögðu átt við Rithöfundasam-
band íslands, en ekki Rithöf-
undaráð, eins og raunar kom
skýrt fram í fréttinni. Þá hafði
önnur prentvilla orðið í fyrstu
málsgrein sömu fréttar. Rétt er
málsgreinin þannig: „Mbl. hafði í
gær samband við þrjá fulltrúa á
ársfundi Norræna rithöfunda-
ráðsins, þá Hans Jörgen
Lembourn sem er formaður ráðs-
ins, Per Olaf Sundmann og Björn
Nielsen, og spurði þá um erindi
Sigurðar A. Magnússonar á fund-
inum viðbrögð við þvf og greinar-
gerð Varins lands, sem lögð var
fyrir fundinn."
Austfirskir skuttogaraskipstjórar:
„VIÐ eigum við erfiðleika að
glfma núna í kór Öldutúnsskóla,"
sagði Egill Friðleifsson söng-
stjóri kórsins þegar Mbl. hringdi
f hann f gær og innti frétta af
starfi kórsins, sem hefur getið sér
gott orð bæði heima og erlendis á
undanförnum árum.
„Við stefnum að því að halda
upp á 10 ára afmæli kórsins,"
sagði Egill,“ og æfum af fullum
krafti og kórinn sjálfur er hinn
hressasti, en það er að koma á
daginn að kerfið gerir ekki ráð
fyrir kórstarfi, því reglugerðin
um tímafjölda f skólum og skipt-
ingu milli greina virðist hafa
gleymt að taka kórstarf með f
dæmið. Þetta má að vísu setjast á
félagsstörf og hefur ekki verið
vandamál hjá okkur því öldu-
túnsskóli hefur haft svo rúman
tfmakvóta vegna fjöldans í bekkj-
um, en nú fer fækkandi i skólan-
um og um leið þrengist kvótinn.
Þetta mál er ekki útkljáð en við
Geigvænleg minnkun fiskgengdar
BYRJAÐ er að vinna f grunni
hinnar nýju viðbyggingar
Kvennaskólans og er þar með
hafinn áfangi að þvf marki að
þessi rótgróna og viðurkennda
stofnun fái til notkunar aðkall-
andi húsrými, en um langan
tfma hefur skólinn búið við
mjög þröngan húsakost. A
meðfylgjandi mynd sést líkan
af Kvennaskólanum ásamt
væntanlegri viðbyggingu sem
vonandi verður fullbúin áður
en langt um lfður.
Neskaupstað, 25. sept.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
skipstjórum á austfirska skuttog-
araflotanum.:
Ríkisstjórn tslands
Stjórnarráðinu Reykjavfk.
Við undirritaðir skipstjórar á
austfirska skuttogaraflotanum
skorum á stjórnvöld að ljá ekki
máls á neinum undanþágusamn-
ingum við útlendinga innan 200
sjóml. fiskveiðilögsögunnar eftir
gildistöku hennar nú í haust.
Fiskgengd á Austfjarðamið hefur
minnkað geigvænlega á undan-
förnum árum og ljóst er að í al-
gjört óefni er komið ef ekki tekst
að bægja hinum erlendu veiði-
skipum frá miðunum nú þegar.
Við fordæmum harðlega þá
ákvörðun stjórnvalda að virða
ekki þá kvótaskiptingu sem
ákveðin hefur verið fyrir síldveið-
Látbragðs-
leikflokkur
frá Tékkó-
slóvakíu sýnir
t BYRJUN næsta mánaðar
kemur hingað tékkneski lát-
bragðsleikflokkurinn „Leik-
flokkurinn á grindverkinu",
sem kenndur er við stofnand-
ann, Ladislav Fialka. Flokkur-
inn kemur fram á sviði Þjóð-
leikhússins fimm sinnum, en
tvær mismunandi sýningar
verða á boðstólum.
Leikflokkurinn var stofnaður
árið 1958 í Prag. Fialka er enn
stjórnandi, aðalhöfundur og
leikari í flokknum, sem hefur
getið sér frægðarorð víða í Evr-
ópu. Leikflokkurinn hefur far-
ið árlega í leikferðir og hefur
sýnt í flestum Evrópulöndum,
Bandaríkjunum og hefur auk
þess gert sjónvarpsþætti og
kvikmyndir. A verkefna-
skránni eru fjölbreytileg verk,
allt frá stuttum látbragðsatrið-
um upp í löng frumsamin leik-
rit, þar sem fléttað er saman
texta, tónlist og látbragðsleik.
12 manns eru í leikflokknum,
sem hingað kemur. Meðal þess,
sem sýnt verður hér er „Leikir
án orða“, sem byggist á hug-
mynd Ionescos og „Leikur án
orða“, sem byggður er á sam-
nefndu verki Samuels Beckett.
Framhald á bls. 22
ar í Norðursjó. Við teljum að
þessi ákvörðun veiki málstað okk-
ar í landhelgismálinu.
Virðingarfyllst:
Skipstjórinn Barða NK. Birgir
Sigurðsson
Skipstjórinn Bjarti NK, Magni
Kristjánsson
Skipstjórinn Brettingi NS,
Tryggvi Gunnarsson
Skipstjórinn Gullver NS, Jón
Pálsson
Skipstjórinn Hólmanesi SU, Finn-
bogi Böðvarsson
Skipstjórinn Hólmatindi SU, Jón
Níelsson
Skipstjórinn Hvalbak SU, Pálmi
Pálsson.
Skipstjórinn Ljósafelli SU, Guð-
mundur Isleifur Gíslason
Skipstjórinn Skinney SF, Birgir
Sigurðsson.
—Asgeir
Mýrarhúsaskóli 100 ára
1. OKTÖBER verður Mýrarhúsa-
skóli 100 ára. Skólinn var fyrst
settur þennan dag árið 1875 og
var fyrst til húsa f verbúð f Mýr-
arhúsalandi. Skömmu síðar var
byggt skólahús norðanvert f Val-
húsahæð, þar sem skólinn var til
ársins 1906, en þá fluttist hann í
það hús, sém f daglegu tali er
kallaður gamli Mýrarhúsaskóli,
en þar eru nú skrifstofur Sel-
tjarnarnesskaupstaðar.
Bygging þess húss sem skólinn
starfar í nú, hófst árið 1958 og
hófst kennsla þar árið 1960, en
fullbúið varð húsið árið 1965.
Skólinn hefur alla tið haft rúm-
gott húsnæði til afnota og er hann
nú einsetinn.
Skólastjórar frá upphafi hafa
verið sex að tölu, þeir Sigurður
Sigurðsson, 1875—1904, Einar G.
Þórðarson, 1904—1914, Sigurður
Heiðdal, 1914—1919, Þorsteinn G.
Sigurðsson, 1919—1922, Sigurður
Jónsson, 1922—1959, og Páll Guð-
mundsson frá 1959 og síðan.
Frá Mýrarhúsaskóla hafa verið
rekin þrjú „útibú“, í Viðey
1912—1941, í Skildinganesi 1930-
—1932 og í Kópavogi 1945—1947.
Aldarafmælisins verður minnzt
á margvíslegan hátt í skólanum í
vetur, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá skólanum. 1. októ-
ber verður hátíðleg skólasetning í
Félagsheimili Seltjarnarness, þar
sem nemendur kynna sögu skól-
ans f stórum dráttum og nokkrir
eldri nemendur skemmta og
flytja ávörp. Athöfnin hefst kl.
17.15. Þá er fyrirhugað að kennar-
ar og nemendur fari í skrúðgöngu
um bæinn sama dag.
Síðar í vetur er ætlunin að
bjóða foreldrum og öðrum að
koma og fylgjast með skólastarf-
inu í einn eða tvo daga, en áður en
skóla lýkur í vor fá nemendur
Framhald á bls. 22
Nessóknarkosningan
Séra Guðmundur
» r
Oskar Olafsson
hlaut fleiri atkvæði
TALIN voru atkvæði á skrifstofu
biskups f dag 25. sept. frá prest-
kosningu í Nesprestakalli Reykja-
víkurprófastsdæmi, sem fram fór
sl. sunnudag 21. sept. Tveir
umsækjendur buðu sig fram, séra
Guðmundur Óskar Ólafsson, frf-
kirkjuprestur f Hafnarfirði, og'
séra örn Friðrikssón, sóknar-
prestur á Skútustöðum Þingeyjar-
sýslu. Á kjörskrá voru 6024,
atkvæði greiddu 2732. Séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson hlaut
1570 atkvæði og séra örn
Friðriksson hlaut 1107 atkvæði.
Auðir seðlar voru 46 og ógildir 9.
Kosningin er ólögmæt vegna
ónógrar þátttöku.