Morgunblaðið - 26.09.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Albert Guðmundsson í
samtali við Morgunblaðið:
„ÉG VIL þakka þeim, sem hafa
sent mér kveðjur og hvatning-
arorð, bæði hinum ýmsu flokks-
félögum Sjálfstæðisflokksins
og einstaklingum sem hafa sent
mér kveðjur og skeyti vegna
hinna pólitfsku árása, sem
öfundarmenn Sjálfstæðishúss-
ins hafá einkum beint að mér.
Allar þessar kveðjur hafa örvað
mig til frekari starfa fyrir
Sjálfstæðisfiokkinn. Það er
gott að finna á erfiðleikastund-
um að maður er ekki ber að
baki“.
Þannig komst Albert Guð-
mundsson, alþm. og borgarfull-
trúi, að orði við Morgunblaðið,
þegar það sneri sér til hans í
gær í tilefni af þeirri ákvörðun
borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík að snúa
sér til Saksóknara ríkisins og
óska eftir þvi að svonefnt Ar-
mannsfellsmál verði rannsakað
fyrir Sakadómi Reykjavíkur.
Albert Guðmundsson kvaðst
ekki á þessu stigi máls vilja
fjalla um mál þetta I löngu sam-
tali, „því að ég tel rétt“, sagði
hann, „að ég opni ekki minn
hug að fullu I blaðaviðtölum,
fyrr en hin opinbera rannsókn
hefur farið fram og niðurstöður
hennar liggja fyrir.“
Eins og borgarstjórinn I
Reykjavík, Birgir Isl. Gunnars-
son, skýrði frá á blaðamanna-
fundi sínum I fyrradag, þótti
honum ekki óeðlilegt að málið
færi til sakadóms, en slíkt er
einsdæmi I Islenzkum stjórn-
málum, a.m.k. hin siðari ár.
ÆTLUN MlN FRÁ
UPPHAFI AÐ ÓSKA
RANNSÓKNAR
Þar sem mál þetta hefur sér-
staklega beinzt að Albert Guð-
mundssyni, spurði Morgunblað-
ið hann hvers vegna hann hefði
verið stuðningsmaður og jafn-
vel hvatamaður þess, að mál
þetta yrði lagt fyrir sakadóm.
Hann svaraði:
„Það var ætlun mín frá því
þetta mál kom fyrst fram fyrir
almenning frá andstæðingum
Sjálfstæðisflokksins, og þá sér-
staklega I Alþýðublaðinu að
fara þess á Ieit, að ásakanir þær
sem bornar hafa verið fram
verði kannaðar til hlítar og sá
rógburður sem fram hefur
komið I þessu svokallaða Ár-
mannsfellsmáli verði kveðinn
niður I eitt skipti fyrir öll.
Ákvörðun um opinbera rann-
sókn hefur aftur á móti tafizt
bæði vegna fjarveru borgar-
stjóra, sem er forystumaður
borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
ismanna, og eins vegna fram-
kominnar tillögu frá borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins I
borgarráði um skipun sérstakr-
ar nefndar innan borgarráðs til
þess að rannsaka þær fullyrð-
ingar, sem fram hafa komið i
þessu máli. Nú þegar ljóst er,
að ekki næst samstaða innan
borgarráðs um skipun nefndar-
innar, er ekki eftir neinu að
bíða að rannsókn á vegum hins
opinbera hefjist, enda á al-
menningur rétt á fullkomnustu
upplýsingum um allt þetta mál.
Ágreiningur innan borgar-
ráðs um skipan nefndarinnar
varð vegna þess, að fulltrúar
minnihlutaflokkanna I borgar-
ráði kröfðust þess að meiri-
hlutavald það sem borgarbúar
hafa falið Sjálfstæðisflokknum,
yrði þeim afhent, þar eð þeir
vildu fá meirihluta I sllkri
rannsóknarnefnd.
Mér þykir rétt að það komi
fram, að á sfðasta borgarráðs-
fundi, þegar rætt var um skip-
an þessarar rannsóknarnefndar
og ljóst var að minnihlutaflokk-
arnir mundu ekki sætta sig við,
að þessi nefnd borgarráðs yrði
skipuð á þenn hátt, sem venja
er til um nefndir á vegum borg-
arráðs, bauðst ég til að flytja
tillögu þess efnis, að minni-
hlutaflokkarnir einir skipuðu
þessa nefnd, án þátttöku Sjálf-
stæðismanna, til þess að gefa
þeim tækifæri til að vinna að
rannsóknum sínum án Ihlutun-
ar okkar Sjálfstæðismanna,
sem liggjum undir þungum
ásökunum af þeirra hálfu, og
óskaði ég eftir stuðningi þeirra
við þessa tillögu en þeir vildu
ekki veita hann. Ástæðan til
þessa er að sjálfsögðu sú, að
mér vitanlega hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn hreinan skjöld og
ekkert að fela.
Þetta var gott tækifæri fyrir
minnihlutaflokkana til að haga
rannsóknum sínum á þann veg,
sem þeim hefði hentað, ótrufl-
aðir af „sakborningum". Ég
býst við, að þeim hefði að
þeirra mati gengið betur að
þyrla upp enn meira pólitísku
moldviðri með minnihluta þátt-
töku Sjálfstæðismanna I slíkri
rannsóknarnef nd. “
FRAMLAG
ÁRMANNSFELLS HAFÐI
ENGIN AHRIF
„Þvl er haldið fram, að það
sem þú hafir veitt móttöku fjár-
framlagi Ármannsfells I Sjálf-
stæðishúsið og beittir þér síðan
sem borgarfulltrúi fyrir lóðaút-
hlutun til byggingarfélagsins,
hafi verið tengsl á milli fram-
lagsins og úthlutunar lóðarinn-
ar. Hvað'viltu segja um þessa
ásökun?"
„Ég vil fyrst og fremst segja
það, að ég harma að góður
stuðningsaðili Sjálfstæðis-
flokksins skuli að ósekju dreg-
inn inn I slíkt pólitlskt fjaðra-
fok, sem hér um ræðir. Það er
rétt að Ármannsfell studdi
byggingu Sjálfstæðishússins
myndarlega, eins og fram hefur
komið hjá borgarstjóra, en því
verður fólk að trúa, að framlag
Armannsfells hefur engin áhrif
haft á afstöðu mína til
umræddrar lóðaúthlutunar,
hvorki beint né óbeint.
Hugmynd að skipulagi, sem
Ármannsfell bað mig sem
borgarfulltrúa að kynna mér
með það fyrir augum að leita
upplýsinga hjá skipulagsstjóra,
hvort hugsanlega fengizt sam-
þykkt á umræddri lóð, leizt mér
strax vel á, þvf að I henni komu
fram nýjungar, sem ég taldi að
auka mundu fjölbreytni I byggð
borgarinnar.
Ég hef sem borgarfulltrúi
tekið á móti fjölda fólks með
alls konar vandamál, sem það
telur að borgin geti aðstoðað
það við, og daglega koma marg-
ir á skrifstofu mína til að ræða
vandamál sín. Ég hef aldrei
neitað nokkrum aðila sem
aðstoðar minnar hefur leitað,
að flytja mál hans og ávallt
reynt að stuðla að jákvæðri af-
greiðslu fyrir hvern og einn,
hvar I flokki sem þeir hafa stað-
ið, enda er mér yfirleitt ekki
kunnugt um hvaða stjórnmála-
flokki fólk, sem til mín leitar
tilheyrir. Ég hef sagt I umræð-
um I borgarstjórn að öll erindi
borgarbúa, sem berast borgar-
stofnunum eigi að afgreiða já-
kvætt og með hraði, nema ótví-
ræð rök séu fyrir hinu gagn-
stæða. Það hefur að sjálfsögðu
mikla vinnu I för með sér að
fylgja málum eftir, en borgar-
starfsmenn vita af reynslu, að
ég fylgi eftir hverju máli, sem
ég tek að mér, með sömu ákefð
og Ármannsfellsmálinu. Það
var engin undantekning.
Ég bauð mig fram til
þjónustu, þegar ég fór I fram-
boð, og sú þjónusta stendur öll-
um til boða án skilyrða um
framlaga til Sjálfstæðishússins
eða Sjálfstæðisflokksins, eins
og það fólk, sem til mín hefur
leitað, getur sjálft bezt dæmt
um.“
FJARFRAMLÖG MEÐ
SKILYRÐUM?
„Eru þess dæmi að fjárfram-
lög hafi verið boðin fram til
Sjálfstæðishússins með skilyrð-
um?“
„Ég get ekki neitað því, að I
2—3 tilvikum hefur það komið
fyrir, og ég hef jafnharðan
skýrt frá þvi á fundum
byggingarnefndar og einnig að
þessum aðilum hafi ég vlsað á
dyr. Ástæðan fyrir því, að ég
taldi nauðsynlegt að skýra
byggingarnefnd frá þessu, var
sú, að ég vildi ekki að framlög
bærust frá þessum aðilum I
gegnum aðra byggingar-
nefndarmenn.
öll fjármál byggingarnefnd-
ar og Sjálfstæðisflokksins eru
að sjálfsögðu trúnaðarmál og
mun ég ekki brjóta þann
trúnað, þótt að mér sé sótt,
frekar en bregða fyrir mig ýms-
um sögusögnum okkur til varn-
ar um aðra flokka, svipaðar
þeim sem andstæðingar okkar
nota til að reyna að gera Sjálf-
stæðisflokkinn tortryggilegan.“
FULLGILT SVAR A
FLOKKSFUNDI
„I þeim blaðaskrifum, sem
orðið hafa um þetta mál, kom
það m.a. fyrir, að Alþýðublaðið
auglýsti eftir, að þú hefðir sam-
band við blaðið til þess að svara
spurningum þess. Gerðir þú
það?“
„Nei, ég hringdi ekki I Al-
þýðublaðið, enda las ég ekki
sjálfur þessa orðsendingu, en
mér var sagt frá henni. Ég er
nefnilega einn af þeim mörgu,
sem ekki sjá Alþýðublaðið
nema endrum og eins, og
hvernig I ósköpunum dettur
nokkrum manni I hug, að ég
fari að láta Alþýðublaðinu I té
svör við rógburði þess — og
hjálpa þannig til að selja það?
Ég vil gjarnan að það komi
hér fram að á margumræddum
fundi borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðismanna, þar sem
Davfð Oddsson bar fram fyrir-
spurnir um hugsanleg tengsl
milli framlags Ármannsfells I
byggingarsjóð okkar Sjálf-
stæðismanna og lóðaúthlutun-
arinnar, svaraði ég honum á
þann hátt, sem allir viðstaddir
tóku sem fullgilt lokasvar. En
þetta svar virðist ekki hafa lek-
ið út með fyrirspurn hans til
annarra blaða en Morgunblaðs-
ins og gefur það til kynna að
mitt svar á umræddum fundi
hafi verið aukaatriði fyrir and-
stæðingablöð okkar. Sannleik-
urinn hefur augsýnilega ekki
Framhald á bls. 22
„Nú krefjumst við þess að
þeir sanni þá sök, sem
þeir hafa borið á okkur”
JÚDAS
frá Spáni í
JUDAS
STAPA
í kvöld
Gestur kvöldsins:
RÚNAR MARVINSSON
Gestir frá Club 33 Majorka.
Mætum öll og takið með
ykkur gesti.
Sætaferðir frá B.S.Í 9.30 Munið nafnskirteinin.
JUDAS