Morgunblaðið - 26.09.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
11
„Starfið s.l. ár kostaði um 103
þús. eþíóplska dollara eða um
7,5 millj. Isl. kr. Áætlun um
fjármagn frá Islandi á þessu ári
er 113 þús. eþíópfudollarar.
Eþíópfska, lútherska kirkjan,
sem heitir Mekana Jesús —
Staðurinn þar sem Jesús býr —
borgar helming af starfinu f
héraðinu á móti íslenzka
kristniboðssambandinu, sem
auk þess borgar eitt allan
kostnað við rekstur stöðv-
arinnar, 400 nemenda skóla og
í'leira. Ætlunin er að Mekana
Jesús taki smám saman við
öllum rekstrinum, en Mekana
Jesús starfar um allt landið og
Á leiðinni til Konsó festum við bílinn illa í eðjunni en íbúar frumskógarins komu til
hjálpar, án árangurs þó, því að lokum urðum við að tékka bllinn upp og hlaða trjástofnum
undir hjólin.
upp kollinum hjá okkur eins og gorkúlur # Samvinnufélög skjóta upp kollinum hjá okkur eins og gorkúlur £ Samvinnufélög skjóta
fslenzku kristniboðarnir I Eþíópíu. Frá vinstri: Jóhannes Ólafsson læknir og kona hans
Áslaug, Jónas Þórisson og kona hans Ingibjörg, sem sagði brandarann svo að allir færu að
hlæja, eins og sjá má, Kjellrún og Skúli Svavarsson. Og fyrir framan þau eru íslenzku
börnin I Konsó. Strákofinn sem þau standa við er eign Skúla og Jónasar og þeirra eina
fjárfesting í Eþíópíu.
því að hann hefur leyst okkur
undan valdi hans, — þetta er
algengur vitnisburöur hjá þeim
í byrjun. Sfðan koma til nám-
skeið og áhuginn er mikill. Við
fáum mörg hundruð manns á
samkomur og upp á sfðkastið
hef ég undantekningarlítið
orðið að vera utan dyra með
þessar samkomur, því að engir
samkomusalir eru nógu stórir
lengur.
I byrjun veit þetta fólk oft
lítið um það sem það trúir á
nema að það er hætt að trúa á
illa anda og þá vill það koma f
fræðslu hjá okkur og um leið
hefur fólkið möguleika á að
komast inn i skólakerfið. Við
erum með 68 Eþíópíumenn úti f
héraðinu, sem eru bæði kenn-
arar og prédikarar auk p/est-
anna fjögurra og fjögurra
manna, sem kenna matvæla-
fræði, heilsufræði, land-
búnaðaraðstoð og biblfu-
fræðslu. Við erum einnig með
sérfræðing hér f landbúnaðar-
tilraunum fyrir fólkið, til að
prófa hina ýmsu áburði, fræ og
korntegundir og mismunandi
jarðveg. Þetta starf fer einnig
fram úti í þorpunum, en Konsó-
búar lifa mest á akuryrkju. Það
er mjög mikill áhugi á þessum
tilraunum og einnig hefur
verið unnið að því að stofna
samvinnufélög til þess að þeir
geti selt afurðir sínar saman og
fengið þannig meira fyrir þær.
Samvinnufélög skjóta upp koll-
inum hjá okkur eins og gor-
kúlur og þannig höfum við
komið þeim í betri og tryggari
verzlunarsambönd."
„Nú eruð þið með bókasölu
hér.“
„Já, lestraráhuginn er mikill
hjá þeim sem ráða við það. Mest
er keypt af lestrarbókum, við
erum búin að selja mörg þús-
und í ár og einnig af æfinga-
bókum. Sfðan koma biblfusög-
ur, nýjatestamentið og biblfur.
Konsóbúar hafa eigið mál en
skólakerfið byggir á amharisku
og því verða íbúarnir að læra
það fyrst á skólabekk, en þessi
mál eru gjörólfk. Strax og þeir
geta farið að stauta í amhar-
isku, biðja þeir um biblíusögur
og biblíur."
„Hver er kostnaðurinn við
þetta starf hér?“
er sjálfstæð stofnun innan
rfkisins. Engin kirkja fær nú
stuðning frá rfkinu eftir bylt-
inguna.
Hin nýju stjórnvöld hafa sent
hingað stúdenta til að kenna
fólkinu og þeir eru rétt ný-
komnir hingað. Við höfum
reynt að hjálpa þeim þegar þeir
leita til okkar, en það er mjög
erfitt fyrir þá að vera hér, mjög
afskekkt og fæstir undir það
búnir að vera á svona stöðum.
Starfið í Konsó er í föstum
skorðum, við erum komnir með
góða leiðtoga sem stjórna þessu
orðið að mestu, en 21 ár er nú
liðið síðan Felix Ölafsson og
hans fólk kom hingað og þá var
þetta algjörlega einangrað
hérað, enginn skóli, engin
hjúkrunaraðstaða og engir
hvftir menn. Allir sem hafa
arðið einhverja menntun í
Konsó er fólk sem hefur verið f
okkar skólum og allir nýir
Konsóleiðtogar koma úr okkar
skólum."
„Hvernig er sambýli Konsó-
manna við nágrannaþjóðflokk-
ana?“
„Konsóbúar eiga f stöðugum
erjum við þjóðflokkana f kring,
Borana og Gúdjf, en Konsóbúar
,Þar sem
lllir andar
eru
ríkjandi
Áslaug og Jóhannes að
skoða heimavist stúlkna I
Konsóskólanum. Fremst á
myndinni, næst, er eldhús-
ið, gamaldags eldhús með
hlóðum og þykir það þó fínt
þar I landi. Stúlkurnar, sem
eru allt frá 8 ára aldri,
hugsa algjörlega um sig
sjálfar í heimavistinni.
þykja góðir hermenn, hug-
rakkir þegar á hólminn er kom-
ið, og það þykir frægð að hafa
drepið Konsóhermann. Klukk-
an 5 í morgun blésu þeir út
herlið Konsómanna til þess að
fara f stríð hér 20 km frá, vega-
lengd eins og milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar, og þetta er
algengt. Allir daglaunamenn-
irnir mínir, 10 að tölu, urðu að
fara í strfðið, því hér verða
menn að borga sekt ef þeir
mæta ekki þegar ræst er. Bor-
anar og Konsómenn nota bæði
byssur og spjót f sínum erjum
og einnig Gúdjíar, en það eru
þeir sem skera undan mönnum
til að geta kvænzt. Gúdjfar búa
fyrir austan Konsó og Boranar
fyrir sunnan en báðir þessir
þjóðflokkar eru árásargjarnir.
Fyrir norðan Konsó er Gidole-
þjóðflokkurinn, frændflokkur
Konsóa og þar eru engin vanda-
mál á milli. Gúdjíar eru mun
fjölmennari en Konsómenn og
það eru Boranar einnig, en þeir
eru hirðingjar sem flakka
mikið um á stórum svæðum.
Aðeins um 40 km f burtu héðan
er þjóðflokkur, sen) hefur
aldrei séð hvfta menn. Þeir
heita Damahai og búa f trján-
um.“
Mikil hungursneyð hefur
verið á þessu svæði f liðlega tvö
ár vegna langvarandi þurrka og
hefur Skúli m.a. orðið að sjá um
dreifingu korns bæði frá yfir-
völdum landsins og öðrum þjóð-
um og það var einmitt í Konsó
sem korni fyrir íslenzka
hjálparpeninga var dreift í
marga mánuði í fyrra og tug-
þúsundum mannslffa bjargað,
því fslenzka kristniboðssam-
bandið sá um að hjálparféð
kæmist raunverulega til skila
án þess að nokkrir milliliðir
kæmust í það og m.a. fór Gfsli
Arnkelsson frá íslenzka
Kristniboðssambandinu til
Eþíópíu í þeim erindagjörðum.
„Nú sér norska neyðarhjálp-
in um að koma korninu," sagði
Skúli, „og um mitt sumar var
búið að dreifa 1500 tonnum af
þeim 2500 tonnum korns, sem á
að úthluta Konsóbúum auk 50
tonna af þurrmjólk.
Þeir ríku hér vilja líka fá sitt
og eru ekkert feimnir að lftil-
lækka sig þannig. Þeir heimta
sín kíló þótt þeir eigi jafnvel
tugi tonna af korni heima, en
það er um svo fáa að ræða að
við gerum ekkert í því. Reiknað
er með að hver maður fái 4 kg
af korni á mánuði og auka-
skammtar eru á sjúkraskýlinu
fyrir þá sem lengst eru leiddir,
en auk þessara fjögurra kílóa
borða þeir rætur og lauf til
uppfyllingar. I Konsó eru nú
100 stúdentar til að vinna þetta
starf og fylgjast með og þar af
eru tveir sem vinna hér á stöð-
inni hjá okkur. Það eru mörg
verkefnin hér og vantar fleira
fólk, en samstarfið milli kristni-
boðsstöðvarinnar og Konsóbúa
er mjög gott.“
Ur
Eþíó-
píu-
ferö
Texti & myndir
Árni Johnsen
r