Morgunblaðið - 26.09.1975, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
12
Beiðni Iscargo liggur
enn í ráðuneytinu
— Við höfum enn ekkert svar
fengið frá utanríkisráðuneytinu
við beiðni okkar um vöruflutning
fyrir Varnarliðið, sagði Lárus
Gunnarsson, einn af eigendum
Iscargo, f samtali við Morgun-
blaðið f gær. Sem kunnugt er hef-
ur Iscargo farið þess á leit við
utanríkisráðuneytið að það fái að
annast vöruflutninga f lofti fyrir
varnarliðið, enda sé það stefna
fslenzkra stjórnvalda að Islend-
ingar annist sem mest af störfum
Varnarliðsins, sem ekki eru
hernaðarlegs eðlis.
Morgunblaðið hafði samband
við Pál Ásgeir Tryggvason,
deildarstjóra í Varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins, og spurði
hann hvort þessi beiðni hefði
verið tekin fyrir hjá varnarmála-
nefnd. Hann kvað svo ekki vera,
enda hefði þessi beiðni ekki bor-
izt nefndinni til umfjöllunar enn,
— en Iscargo sendi beiðnina til
utanrikisráðherra.
Lárus Gunnarsson hjá Iscargo
kvað nóg hafa verið að gera hjá
félaginu að undanförnu. Hann
sagði að alltaf væri eitthvað um
hestaflutninga og þá fyrst og
fremst til Þýzkalands. Lengi vel
hefðu hestarnir verið fluttir
margir saman í hverri ferð, en nú
væri farið að flytja þá með öðrum
varningi og hefðu þeir fluttí—10
hesta I ferð.
Þá sagði Lárus, að mikil eftir-
spurn væri nú eftir fiskflutning-
um frá íslandi og væru margir að
kanna markaði erlendis fyrir ís-
lenzkan fisk fluttan með flugvél-
um. Oftast væri það svo, að þessi
mál strönduðu á því, hve dýrt
þykir að flytja fiskinn á þennan
hátt, en nú er ýmislegt sem bend-
ir til að breyting sé að verða hér á,
enda kostar orðið mjög mikið að
flytja ferskan fisk út með skipum,
vegna hins háa olíuverðs og þess
tíma sem tekur að sigla með afl-
ann. T.d. hefur Iscargo þegar
farið eina ferð með fisk til Dan-
merkur á þessu haust.
Orðsending til formanna flokks-
samtaka Sjálfstæðisflokksins vegna
STJÓRIMMÁLASKÓLANS
Formenn flokkssamtaka Sjálfstæðisflokksins, sem þegar hafa móttekið
bréf frá skrifstofu miðstjórnar flokksins með upplýsingum um skólahald
Stjórnmálaskólans o.fl., eru vinsamlega beðnir um að hafa samband
við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, skólastjóra Stjórnmálaskólans sem allra
fyrst i sima 17100 eða 18192.
Frá Norræna húsinu:
Danski listamaðurinn
Jens Urup
sýnir málverk og frumdrög að glermynd-
um, veggmyndum og myndvefnaði í sýn-
ingarsölum hússins. Sýningin er opin
daglega kl. 13 — 19
og laugardag og sunnudag kl. 13—22.
Kaffistofan er opin kl. 9 — 18.
NORRíNA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
VIÐTALSTIMI
o O
Alþingismanna og
borgarffulltrúa
i ReykjaviK
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Galtafelli
Laufásvegi 46 frá kl. 14—16. Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 27. september
verða til viðtals:
Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður,
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi
og Sigriður Ásgeirsdóttir, varaborgar-
fulltrúi.
1
Músikleikfimi
hefst 2. okt. Styrkjandi æfingar og
slökun fyrir konur. Tímar í húsi
Jóns Þorsteinssonar. Kennari Gígja
Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022,
föstudag, laugardag og sunnudag.
VlamliQrq
Pottasett úr áli
með teflon húð
Kr. 8.700.-settið Margir litir
Nýkomið
mikið úrval af
tréklossum fyrir
dömur og herra.
V E R Z LU N I N
GEfsiB"