Morgunblaðið - 26.09.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
15
Bók um tungumálanám byggir
á dönskukennslu á Islandi
KOMIN er út á vegum Danmarks
Pædagogiske Institut bók um
kennslu erlendra tungumála og
móðurmálsins, þar sem byggt er á
athugun á dönskukennslu á ts-
landi. Er þetta stór bók, 295 bls.
og nokkuð sérhæfð, og fylgirit
með skýrslum og tölulegum upp-
lýsingum. Bókin kemur út í
flokknum Scandinavian Uni-
versity Books og gefin út hjá
Munksgaard f Kaupmannahöfn,
Universitetsforlaget f Ósló,
Bergen og Tromsö og Esselte
Studium f Stokkhólmi, Gautaborg
og Lundi. Höfundur er Mogens
Jansen.
Bókin er í þremur aðalþáttum. I
fyrsta hluta eru umræður um
ýmsa þætti varðandi kennslu
móðurmálsins og erlendra tungu-
mála og m.a. fjallað um hugsanleg
mörk milli þeirra tungumála.
Eftir þennan inngang fjallar
annar hlutinn um vettvangsrann-
sókn, sem fór fram á íslandi
veturinn 1972—1973. Sá þáttur er
Iiður í stærra verkefni, sem rann-
sóknadeild Pædagogisk Institut f
Danmörku hefur haft með
höndum siðan 1967. Er síðar i
bókinni yfirlit yfir þau tengsli. Er
lýst athuguninni, efninu sem þar
fékkst, og úrvinnslu þess, og
síðan lögð fram niðurstaða. í
þriðja kaflanum eru rædd
hugsanleg áhrif þeirrar athug-
unar, sé^ I ljósi þess sem fjallað
var um i fyrsta kafla. Þakkar höf-
undur i formála öllum þeim
fjölda fslenzkra nemenda, kenn-
ara, skólamanna, skólabókahöf-
unda, embættismanna, vfsinda-
manna og skólafulltrúa fyrir ein-
staklega vinsamlega aðstoð og
einnig ýmsum dönskum sérfræð-
ingum, sem hafa unnið með
honum að efninu.
Strætisvasnafarbegar 73%
gnafarþi
eafiölda
af farþegafjölda 1962
FARÞEGUM með strætisvögnum
f Reykjavfk fækkar stöðugt, þótt
samanlagður aksturstfmi lengist
og eknum kflómetrum fjölgi.
Þetta má sjá f Árbók Reykja-
víkurborgar, þar sem eru m.a.
töflur yfir akstur S.V.R. og
farþegaf jölda á árunum
1962—1974. Kemur f ljós að far-
þegafjöldi á árinu 1974 er ekki
ísland greiðir
1% af „menn-
ingarfjárlögum
Norðurlanda
Á ÞESSU ári munu Norðurlöndin
greiða 40,5 milljónir króna til
„menningarfjárlaga“ Norður-
landa og af þessari upphæð
greiðir Island 1%. Kemur þetta
fram f fréttatilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu um
fund menntamálaráðuneyta
Norðurlanda, og sameiginlegan
fund ráðherra og Menningar-
málanefndar Norðurlandaráðs,
sem haldinn var f Árósum f Dan-
mörku 16. og 17. september s.l.
Á fundinum var m.a. rætt um
vinnuaðferðir við sameiningu
hinna svokölluðu, menningarf jár-
laga, þ.e. áætlunar þeirrar sem
gerð er árlega um fjárframlög
Norðurlandarfkjanna til sam-
starfsverkefna á sviði menningar-
mála. En það eru þjóðþing land-
anna, sem ákveða fjárframlög
árlega.
Frá því 1973, hafa verið gerð
svonefnd „menningarfjárlög" og
hafa þessar sameiginlegu greiðsl-
ur verið þannig, að 1973, voru
greiddar 33.2 millj. d. kr„ 1974
35,4 millj. d. kr. og 1975, 40.5
millj. d. kr. eins og fyrr segir, og á
næsta ári er gert ráð fyrir 47,5
millj. d. kr. fjárveitingu.
Á fundinum var fjallað um að
koma upp menningarmiðstöð í
Færeyjum, sem allir fundarmenn
voru sammála um, að hrinda beri
f framkvæmd sem fyrst.
Þá kom fram á fundinum, að
óánægja ríkir nú með norræna
sumarháskólann, þar sem val
verkefna og þátttakenda væri
nokkuð einstrengingslegt.
nema 73,7 af hundraði miðað við
það sem hann var 1962.
Á árinu 1974 er farþegafjöldinn
ekki nema 13 milljónir 439
þúsund, en 1962 var hann 18
milljónir 238 þúsund. Fór farþeg-
um sífækkandi til ársins 1969. Þá
virðist farþegum hafa aðeins
fjölgað á næstu fjórum árum, en
lækkar svo aftur nú. Gert er ráð
fyrir að 40% af farþegum séu
börn en 60% fullorðnir. I töflum
yfir árið 1974 sést að afsláttar-
miðar eru 10.230.139, en stað-
greiðsla 3.208.922. Afsláttarmiðar
aldraðra eru 740.778. Aætlað er
að afsláttarmiðar barna séu
1.506.260, en staðgreiðsla
1.283.568. Afsláttarmiðar fullorð-
inna eru 7.983.101 á móti
1.925.354 í staðgreiðslu.
Á árinu 1974 óku strætisvagnar
4.153.6 þúsund km en árið áður
3.851,5 þúsund km og hefur vega-
lengdin aukizt á hverju ári síðan
1962, þannig að miðað við vega-
lengdina þá er aukningin 34%.
Eknum klukkustundum fjölgar
einnig jafnt og þétt, og voru árið
1974 237.684 klst.
Vi4 getum auávitaá ekki ábyrgzt þér
10 í vélritun
á vorpröfinu.
En Ifkur þess aukast notir þú
skólaritvél
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
% -f- — -r Hverfisgötu 33
: X Simi 20560 - Pósthólf 377
BANKASTRÆTI 9, SIIVll 11811.
OPIÐ TIL 7 í KVÖLD OG TIL HÁDEGIS LAUGARDAG