Morgunblaðið - 26.09.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
17
Bragi Björnsson lögfræðingur:
Landbúnaðarmál
Þegar menn reka augun í þessa
fyrirsögn, verður víst mörgum á
að hugsa: „Kemur einn öfga-
maðurinn enn.“
Ég hef lengi velt fyrir mér og
reynt að komast til botns í land-
búnaðarpólitík okkar. Við lestur
skrifa um þessi mál hef ég orðið æ
ruglaðri eftir þvi sem lestrinum
hefur miðað áfram. Til þess að
spara mér þá fyrirhöfn að reyna
að hugsa sjálfstætt um þessi mál,
hef ég verið sá einfeldningur að
halda að ég gæti tileinkað mér
einhverja skoðun einhvers
manns, sem um mál þessi hefur
ritað, en þeir eru legió. Allt hefur
komið fyrir ekki og nú er ég orð-
inn einn af „sérfræðingunum“.
Ég vil taka það fram i upphafi
þessara hugleiðinga minna að ég
horfi fram hjá verðlagningu Iand-
búnaðarvara sem hagstjórnar-
tækis, enda fellur allt tal um þessi
efni um sjálft sig, ef reikni-
meistarar vísitölu, verðlags og
kaupgjalds svo og verðbólgu-
banar, fá einhversstaðar nærri að
koma.
Við skoðun landsins blasir sú
hryggilega staðreynd við að
nánast hvar sem augum litur,
glittir i rofabörð, gróðurvana
melar teygja sig inn í þrautnag-
aða bithaga og stækka ár frá ári.
Frekari lýsingu á þessu ástandi
þarf ekki að tiunda hér, hún er
landsmönnum þegar kunn. Orsak-
ir þéssarar landeyðingar eru að
mínu áliti að miklu leyti að kenna
ofbeit.
I ár er talið að um tvær milljón-
ir fjár komi af fjalli þe.a.s. að
næstum 10 fjár koma á hvert
mannsbarn í landinu. Þótt Islend-
ingar séu miklir matmenn, þá
held ég að ofrausn sé, að stofna til
svo mikillar fæðuöflunar, þótt
fyrningar séu góðar út af fyrir
sig.
Væri nú ekki ráð að reyna að
koma einhverju skipulagi á mál
þessi án þess að þurfa að særa of
marga?
Ég skil fyllilega það sjónarmið
bænda að framleiða sem mest
dilkakjöt án tillits til þess hvort
þörf er fyrir það eður ei. Stjórn-
málamenn hafa komið því svo
fyrir að framleiðsla dilkakjöts
hefur verið hagkvæm bændum og
hafa þeir af eðlilegum ástæðum
beint framleiðslu sinni í þá átt.
Ef breyta ætti um búnaðarhætti
með einu pennastriki yrði um
stórkostlega röskun í sveitum
landsins með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Bændum yrði lítil
not af þeim húsum sem þeir hafa
komið upp hjá sér. Ræktun gengi
öll á misvfxl og framtíðaráætlanir
hryndu Sem spilaborg.
Væri nú ekki hægt að slá tvær
flugur f einu höggi, græða upp
landið og beina búskaparháttum í
þann farveg að allir mættu vel við
una.
Þessu takmarki hef ég í fáfræði
minni látið mér koma til hugar að
framkvæma á eftirfarandi hátt:
Alfriða stór svæði á þeim afrétt-
um, sem verst eru farnir og fækka
ítölu á þvf landi sem beitt yrði.
Fullnýta beit á þeim stöðum,
t.d. á Vestfjörðum, þar sem enn er
rúm fyrir fleira fé, að því er mér
er sagt, án hættu fyrir landið.
Nota þá fjármuni, sem nú er
eytt í niðurgreiðslur og útflutn-
ingsbætur, til þess að styrkja þá
bændur, sem þyrftu að fækka hjá
sér fé eða farga að öllu leyti, til
þess að aðlaga sig öðrum
búskaparháttum, sem heillavæn-
legri yrðu fyrir land og lýð.
Selja afurðirnar á kostnaðar-
verði til eflingar verðkyns al-
mennings.
Dreifa byrðum barnafjöl-
skyldna, enda yrði tekið tillit til
efnahags heimilanna, með
greiðslu fjölskyldubóta.
Stóraukin áherzla yrði lögð á
landgræðslu.
Mér er ljóst að þetta verður
ekki framkvæmt á einum degi
en ef unnið yrði að þessum
málum markvisst og not-
aðir yrðu tilhþess þeir fjár-
munir, sem nú fara án nokk-
urrar fyrirhyggju til niður-
greiðslu og útflutningsbóta,
mundum við vakna upp við það
einn góðan veðurdag að við byggj-
um í mun betra landi og hefðum
öðlazt um leið skýrari hugsun auk
þess sem úr væri sögunni tilbúinn
rígur milli þegna þjóðfélagsins.
Tilræði við Jack
Anderson aflýst?
Washington, 22. september. Reuter.
DÁLKAHÖFUNDURINN Jack
Anderson hafði svo greiðan að-
gang að ieyniskjölum að háttsett-
ir starfsmenn ríkisstjðrnar Nix-
ons ákváðu að koma honum fyrir
kattarnef að sögn biaðsins Was-
hington Post.
Sá sem gaf skipunina var hátt-
settur en ðnafngreindur starfs-
maður Hvfta hússins samkvæmt
fréttinni. Sá, sem var beðinn um
að ryðja Anderson úr vegi, var
einn þeirra sem dæmdir hafa ver-
ið fyrir innbrotið f Watergate-
bygginguna, E. Howard Hunt.
Höfundur fréttarinnar í Was-
hington Post er Bob Woodward
sem ásamt Carl Bernstein afhjúp-
aði Watergate-hneykslið er varð
til þess að Nixon sagði af sér. Þeir
vitna f „áreiðanlegar heimildir".
Skipunin um tilræðið var gefin
í desember 1971 eða janúar 1972
samkvæmt fréttinni, en var aftur
kölluð á siðustu stundu og ékki er
vitað af hverju. Byrla átti Ander-
son eitur samkvæmt fréttinni og
læknir hjá leyniþjónustunni CIA
átti að útvega eitrið.
Undirbúningur tilræðisins var
svo langt kominn, að ákveðið
hafði verið að láta líta út fyrir að
Anderson biði bana í „slysi".
Komdu
og kíktu á
VOLVO 76
BÍLASÝNING VOLVO 76 27-28. sept.
argus
— Fiskkassar
Framhald af bls. 14
að fara heim um miðjan daginn
til þess að líta eftir búi og börn-
um. Langflestir fara heim í mat
f einkabílum, en annars gengur
hingað strætisvagn, sem eitt-
hvað er notaður.
— TVú er orðin brýn þörf á
viðbyggingu við frystihúsið, og
einmitt i dag vorum við að
senda frá okkur umsókn til
bæjaryfirvalda um allmikla
stækkun lóðarinnar til suðurs
til þess að við getum sfðan tekið
lokaákvarðanir um stækkun
hússins. 1 þessari fyrirhuguðu
viðbyggingu á fyrst og fremst
að vera ný fiskmóttaka og hrá-
efnisgeymsla, því að gamla fisk-
móttakan hentar engan veginn
fyrir kassafisk og er þar að auki
ekki kæld eins og ný mundi
verða. Við fengjum lfka aukið
rými fyrir fiskvinnsluvélar og
starfsfólkið nýjar fatageymslur
og snyrtingu.
Við ætlum að byrja á þessum
framkvæmdum strax o£ fé
fæst, fyrst og fremst úr Fisk-
veiðasjóði, en þangað til þau
lán fást, vonum við, að við-
skiptabankar okkar brúi bilið.
Þessum byggingarframkvæmd-
um átti að vera lokið núna og
þeim hefði reyndar þurft að
vera lokið, en nú er ekki hægt
að skjóta þeim á frest lengur.
— Jafnframt erum við að vona,
að núverandi bryggja framan
við hraðfrystihúsið verði lengd
til suðurs, þannig að fiskurinn
geti eins og núna komið upp úr
skipi þvert yfir bryggjuna og
inn í frystihúsið. Að því er bæði
mikið hagræði, þægindi og
þrifnaður.
Sv. P.
OPIÐ LAUGARDAG KL.14-19 OG SUNNUDAG KL.10-19
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
1
i
I
i
<
\
i