Morgunblaðið - 26.09.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
„íslendingar eiga
ekki minnstan
þátt í því að í dag
er jarðhiti viður-
kenndur orkugjafi
rétt eins og olía ”
Samtal við dr. Josep Barnea, fgrrverandi
forstöðumann jarðhitadeildar Sameinuðu þjóðanna
Dr. Joseph Barnea, einn
kunnasti jarðhitafræðingur
heimsins, hafði stutta viðdvöl á
íslandi f sfðustu viku. Dr.
Barnea er ísraelsmaður en
hefur búið í Bandarfkjunum
frá árinu 1951 er hann réðst til
jarðhitadeildar Sameinuðu
þjóðanna f New York. Hefur
hann lengst af veitt deildinni
forstöðu en hefur nýlega látið
af þeim störfum. Hann er sá
maður sem mótað hefur öðrum
fremur rannsóknarstörf Sam-
einuðu þjóðanna á hagnýtu
gildi jarðhitans og undir hans
stjórn hafa fjölmargir ls-
lendingar unnið. Morgunblaðið
ræddi stuttlega við dr. Barnea
þegar hann dvaldist hér.
ISLENDINGAR HAFA
UNNIÐ MIKIÐ STARF
Jarðhitadeild Sameinuðu
þjóðanna hefur undir minni
stjórn beint kröftum sinum að
jarðhitaorkunni og nýtingu
hennar til allra þarfa, til raf-
orkuframleiðslu og til hitunar
húsa svo eitthvað sé nefnt,
sagði dr. Barnea í upphafi sam-
talsins. Þegar ég fluttist frá
Israel til Bandaríkjanna árið
1951 og hóf störf að þessum
rannsóknum hjá Sameinuðu
þjóðunum mátti telja starfs-
menn deildar minnar á fingr-
um annarrar handar. I dag
starfa um 100 sérfræðingar í
aðalstöðvunum í New York og
aðrir 600 víðs vegar um heim-
inn, þar á meðal nokkrir ís-
lepdingar sem reynzt hafa af-
bragðs góðir starfskraftar og
eiga þeir ekki lítinn þátt í því
að í dag er jarðhiti viðurkennd-
ur orkugjafi rétt eins og olía. í
nokkrum löndum heims, t.d. Is-
landi, Italíu og Nýja-Sjálandi
hafa um langa hrfð farið fram
rannsóknir á möguleikum jarð-
hitans sem orkugjafa en það
var fyrst og fremst olíukreppan
og ört hækkandi verð á olíu
henni samfara sem beindu
augum manna að jarðhitanum.
HVERAGERÐI ALÞJÓÐLEG
SKÓLAMIÐSTÖÐ
YLRÆKTAR?
— Island hefur lagt mikið af
mörkum til rannsókna á jarð-
hitanum og möguleikum hans
og ég vona að svo verði áfram. I
tveimur tilfellum a.m.k.
stendur tsland f fremsta flokki
og á ég þar við upphitun húsa
með jarðhita og ylrækt í gróð-
urhúsum með jarðhita. Ég fór í*
gær til Hveragerðis með vini
mfnum Baldri Lfndal og sá þar
hvað Islendingar hafa gert á
sviði ylræktar og það eru
sannarlega stórkostlegir hlutir.
1 fyrsta lagi hafið þið sannað að
það er tæknilega mögulegt að
rækta hvað sem er í gróður-
húsum, grænmeti, blóm, já,
hvað sem er. Þið eigið reyndar
að búa við takmarkanir á þessu
sviði og á ég þar við hina tak-
mörkuðu sólarbirtu en nú fara
einmitt fram viðtækar athug-
anir á heppilegum gerðum
gerviljósa sem gætu breytt
þessu stórlega. Og í öðru lagi er
Island fyrsta landið þar sem
garðyrkjumönnum er sérstak-
lega kennd ylrækt í gróður-
húsum. Það er mín skoðun að
íslenzk stjórnvöld ættu að
íhuga þann möguleika að opna
Garðyrkjuskólann f Hveragerði
fyrir erlendum nemendum sem
vildu læra þetta fag. Ég veit að
það er áhugi i mörgum löndum
fyrir námi í ylrækt. Þannig
gæti skólinn ykkar orðið alþjóð-
legur skóli og gæti það leitt
margt gott af sér að mínu mati.
Ég færði þetta í tal við skóla-
stjórann (Reynir Unnsteinsson
— innsk. Mbl.) og hann sýndi
málinu mikinn áhuga. En ef af
þessu yrði þyrfti að gera ýmsar
endurbætur á skólahúsnæðinu.
HEITAVATNSFLUTNING-
ARNIR
SKEMMTILEG HUGMYND
— I þessari stuttu ferð minni
hingað til lands hefur mér
einnig gefizt kostur á að skoða
Hitaveitu Reykjavfkur. Þetta er
stórmerkilegt fyrirtæki, vel
hannað og vel rekið. Það er
alveg makalaust áð ekki þurfi
nema 70 manna starfslið til að
reka þetta mikla fyrirtæki
Hitaveitustjórinn Jóhannes
Zoéga er einmitt einn þeirra
mörgu íslendinga sem jarðhita-
deild Sameinuðu þjóðanna
hefur fengið f lið með sér vio
leiðbeiningarstörf á sviði jarð-
hitarannsókna. Hann hefur
fyrir milligöngu deildarinnar
farið til Tyrklands og leiðbeint
þarlendum við hönnun hita-
veitu þar sem jarðhiti yrði
notaður til upphitunar húsa og
á næstunni fer hann í mánaðar-
ferð til Tyrklands í sömu er-
indum fyrir jarðhitadeild SÞ.
(Frá för Jóhannesar var skýrt f
frétt í Mbl. sunnudaginn 21.
september s.l. — innsk. Mbl.).
Mér var skýrt frá þeirri hug-
mynd sem nýlega hefur skotið
upp kollinum, að ef til vill væri
hagkvæmt að flytja heitt vatn
með stórum tankskipum til Svf-
þjóðar. Þetta er ákaflega
skemmtileg hugmynd vægast
sagt og allrar' athygli verð þótt
ég verði að játa það hrein-
skilnislega að ég hef ekki áttað
mig fyllilega á henni ennþá. En
það er vissulega ástæða til að
kanna alla möguleika, ekki síst
fyrir land eins og Island sem
býr yfir svo mikilli orku en
hefur svo lítinn markað fyrir
hana sem raun ber vitni.
LÆKNINGAMÁTTUR jarð-
HITANS KANNAÐUR HÉR?
— Eins og ég sagði hér áður
hafa mjög margir Islendingar
starfað hjá jarðhitadeild Sam-
einuðu þjóðanna og hafa lagt
þar fram ómetanlegt starf. Ég
hef oft velt því fyrir mér
hvernig á því stæði að lítil þjóð
eins og þið Islendingar getið
,Jramleitt“ eins marga leiðandi
menn á þessu sviði og raun
hefur orðið á. Ég gæti nefnt
mörg nöfn, en það er óþarfi,
þeir hljóta allir að vera þekktir
hér f heimalandinu. Þetta er
fyrsta heimsókn mfn hingað til
Islands og er ástæðan fyrst og
fremst sú að starf minnar deild-
ar hefur fyrst og fremst beinst
að aðstoð við þróunarlöndin en
ísland er langt frá því að vera
vanþróað á þessu sviði. Ég hef
áður bent á tvö svið þar sem þið
íslendingar standið í fremstu
röð, þ.e. upphitun húsa með
jarðhita og ylrækt f gróðurhús-
um. Ég vil benda á eitt svið
ennþá sem hér mætti að mínu
viti rannsaka á næstu árum og
á ég þar við lækningamátt heita
vatnsins. Á því sviði gæti Is-
land orðið virkur þátttakandi.
1000—1500 MANNA
JARÐHITARÁÐSTEFNA
HALDIN HÉR 1978?
Dr. Joseph Barnea lét fyrir
skömmu af störfum sem for-
stöðumaður jarðhitadeildar
Sameinuðu þjóðanna fyrir
aldurs sakir, en hann hafði þá
veitt deildinni forstöðu i rúm
20 ár. Hann hætti þó ekki störf-
um hjá Sameinuðu þjóðunum
heldur færði sig aðeins um set
og starfar nú hjá UNITAR, en
sú stofnun innan SÞ hefur með
að gera leiðbeiningar og rann-
sóknir á náttúruauðlindum og
orkumöguleikum i framtíðinni.
Framhald á bls. 30
NÝTT FRÁ SVÍÞJÓÐ
EDEN-
sófasettiö
er sófasettiö,
sem fer alls staöar vel.
Þriggja sæta sófi,
tveggja sæta sófi og stóll.
OPIÐ TILKL.10
Vðrumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-1 12
Matvörudeild S 86 1 1 1, Vefnaðarv.d S 86 1 1 3
Hverjir unnu I bíl-
beltahappdrættinu?
ÞANN 15. september s.l. var
dregið í bílbeltahappdrætti því
sem Umferðarráð f samráði við
lögreglu og bifreiðatrygginga-
félögin efndi til í júlí- og ágúst-
mánuði s.I. Á þeim tíma var
gefinn út bílbeltabæklingur sem
jafnframt var happdrættismiði. I
bæklingi þessum var ýmis fróð-
leikur um bílbelti og önnuðust
lögreglumenn um land allt dreif-
ingu hans. Dreift var samtals 50
þús. bæklingum.
Vinningar f happdrættinu voru
samtals 25, hver að upphæð 10
þús. kr. og gáfu tryggingafélögin
vinningana, en eftirtalin númer
hlutu vinning:
1314, 3466, 5793, 6648, 7471, 9296,
10069, 13026, 16673, 18333, 21640,
23939, 23948, 29038, 31994, 33308,
33431, 34712, 37802, 38593, 38804,
38940, 41032, 41501 og 41040.
Þeir sem hafa undir höndum
bílbeltabækling sem vinningur
Helga Sigurðardóttir dregur út
vinninga f bflbeltahappdrættinu.
hefur komið á, geta hringt eða
snúið sér til skrifstofu Umferðar-
ráðs, sfmi 8-3600 og skrifstofu
Sambands fsl. tryggingafélaga.
^ Litlar líkur á
náðun fanganna sex
Madrid 24. sept. Ntb. Reuter.
ÆÐSTU yfirvöld Spánarhers
staðfestu f dag dauðadómana yfir
sex af cllefu stjórnarandstæðing-
um, sem dæmdir voru til dauða
fyrir að hafa drepið lögreglu-
menn. Á morgun kemur ríkis-
stjórnin saman til fundar til að
ræða dómana og mótmælin sem
hafa streymt að hvaðanæva, bæði
frá stjórnmálasamtökum og ein-
staklingum utan Spánar sem inn-
an.
sexmenningarnir komist hjá af-
töku um helgina er að Franco
þjóðhöfðingi taki ákvörðun um
náðun þeirra á fundinum í dag.
Mjög fáir stjórnmálafréttaritarar
telja að líkindi séu til þess. Sam-
kvæmt heimildum f Madrid mun
vera óeining innan stjórnarinnar
um hvaða afstöðu eigi að taka til
dauðadómanna, en ekki er búizt
við að hún ráði úrslitum. Tvær
konur, báðar barnshafandi, eru
meðal hinna dauðadæmdu.
Eini möguleiki sem er á því að