Morgunblaðið - 26.09.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
19
Mount Everest
sigrað eftir
SV — leiðinni
Katmandu, 25. soptember. Reuter.
TVEIR brezkir fjallgöngumenn
unnu f gærkvöldi það afrek að
klffa hæsta fjall heims, Mount
Everest eftir suðvesturleiðinni og
eru þeir fyrstu mennirnir, sem ná
þvf takmarki. SV-leiðin hefur
fram til þess verið talin mesta
hugsanleg þrekraun fyrir fjall-
göngumenn og hafa margar
tilraunir verið gerðar til þess að
ná tindinum eftir þeirri leið, en
þær allar mistekist.
Bretarnir tveir eru Dougal
Haston, 32 ára forstöðumaður
alþjóðlegs fjallgönguskóla f Leys-
in í Sviss og Doug Scott, 33 ára
rithöfundur og ljósmyndari. Eru
þeir jafnframt fyrstu Bretarnir
sem klífa Mount Everest.
Leiðangursstjóri þessa fjall-
gönguflokks er Christ Bonington,
fyrrum herforingi, en hann
stjórnaði einnig tilraun til að fara
þessa leið 1972, sem mistókst.
Notaði Bonington nú tölvu að
miklu leyti til að skipuleggja
leiðangurinn. Þeir Haston og
Scott tóku báðir þátt í leiðangrin-
um 1972. Þeir náðu tindinum um
kl. 18 á miðvikudagskvöld og voru
þá aðeins 5 vikur liðnar frá því að
Edmund Hllary varð fyrstur tll að
klffa Mount Everest árið 1953.
leiðangurinn lagði af stað upp
fjallið.
Ein helzta ástæðan fyrir þvi að
fyrri tilraunir til að kiífa SV-
leiðina mistókust var mikið
klettabelti, sem liggur þvert yfir
fjallshlíðina i 8200 metra hæð.
Áður en lagt var upp lýsti
Bonington þvi yfir að hann teldi
líkurnar á að þeir næðu tindinum
50%.
Fyrstu mennirnir til að klífa
Mount Everest voru Nýsjálend-
ingurinn sir Edmund Hillary og
leiðsögumaður hans, Sherpinn
Tenzing Norkav, en síðan hafa
talsvert margir komist á tindinn.
W
Israelsmenn
í Moskvuferð
Moskvu, 25. september. Reuter.
FIMM manna óopinber sendi-
nefnd frá tsrael er komin til
Moskvu til að ræða möguleika á
þvf að tsrael og Sovétríkin taki að
nýju upp stjórnmálasamband.
Þvf var slitið 1967 og fsraelsk
sendinefnd hefur ekki farið til
Moskvu sfðan fyrir októberstrfðið
1973.
Nefndin er skipuð tveimur
þingmönnum, foringja nýs
vinstriflokks og tveimur blaða-
mönnum og fór til Moskvu í boði
sovézku friðarnefndarinnar. Þeir
aðhyllast ólfkar stjórnmálaskoð-
anir en eiga allir sæti i nefnd sem
berst fyrir því að Israel og Sovét-
ríkin komi aftur á stjórnmálasam-
bandi.
Jafnframt hefur utanríkisráð-
herra Israels, Yigal Allon, rætt
við sovézka utanríkisráðherrann,
Andrei Gromyko, í New York um
ástandið í Miðausturlöndum.
Fundurinn mun hafa verið hald-
inn að beiðni Israelsmanna og að
tillögu Henry Kissingers utan-
ríkisráðherra þótt embættismenn
f Tel Aviv vilji ekki staðfesta það.
Einn fulltrúinn í fsraelsku
nefndinni, Dov Zakin, þingmaður
úr Mapam-flokknum, kvaðst hafa
rætt við Allon og Yitzhak Rabin
forsætisráðherra áður en hann
fór frá Jerúsalem og báðir hefðu
látið í ljós áhuga á því að stjórn-
málasamband við Rússa kæmist á.
Nefndarmenn munu hafa rætt
við sovézka embættismenn um
Sinai-samning Israelsmanna og
Egypta sem Rússar hafa fordæmt
þar sem þeir telja að raunveruleg-
ur friður verði aðeins saminn á
ráðstefnu í Genf.
Zakin kvaðst fylgjandi Genfar-
ráðstefu og Yakov Riftin, fyrrver-
andi þingmaður Mapam og núver-
andi formaður zionistfska sósfal-
istaflokksins sagði að Rússar
gætu slakað til gagnvart Israel
gegn tilslökun á móti, til dæmis
þáittöku þeirra f Genfarráð-
stefnu. Framhald á bls. 22
Bratteli hefur notið trausts
bæði heima og erlendis
Ösló 25. sepl. Ntb.
ÞAÐ var 17. marz 1971 sem
Trygve Bratteli tók við embætti
forsætisráðherra eftir að rfkis-
stjórn Per Bortens hafði sagt af
sér. Hann var þá forsætisráð-
herra þar til f október 1972 er
hann sagði af sér f kjölfar þjóð-
aratkvæðisins um Efnahags-
bandalag Evrópu.
Bratteli hafði áður lýst því
yfir að hann myndi segja af sér
ef augljós meirihluti kjósenda
segði nei við aðild Norðmanna
að EBE. En f október 1973 kom
hann aftur fram á sjónarsviðið
sem forsætisráðherra. Tók
hann við er ríkisstjórn Kor-
valds hafði fengið þingmeiri-.
hluta eftir að samvinna hafði
náðst milli Jafnaðarmanna-
flokksins og Sósfalfska kosn-
ingabandalagsins. Síðan hefur
Bratteli verið forsætisráðherra.
Hann hefur f forsætisráðherra-
tið sinni orðið töluvert þekktur
á alþjóðavettvangi stjórnmál-
anna. Hann hefur verið mjög
dyggur stuðningsmaður norr-
ænnar samvinnu ' og innan
Norðurlandaráðs hefur hann
látið að sér kveða. Hann var
fulltrúi stjórnar sinnar i for-
sætisnefndinni árin 1954 —
1961, 1963 og 1972. Bratteli hef-
ur og notið trausts á alþjóða-
vettvangi og gengt ýmsum trún-
aðarstörfum.
Árið 1940 gaf Bratteli út bók-
ina „Aktuell ungdomspolitikk"
og hann hefur einnig ritað aðra
bók síðar um þjóðfélagsmál.
Þegar hann varð sextugur var
gefin út bók um hann „Artikler
og taler i udvalg“.
Tryggve Bratteli
Bratteli kvæntist Randi Lars-
sen árið 1946 og einguðust
hjónin þrjú börn.
Eftirmaður Brattelis:
Hefur verið þing-
maður í fjórtán ár
ODDVAR Nordli, sem tekur
við embætti forsætisráðherra
Noregs um áramótin, er 48 ára
gamall. Hann er fæddur f Heið-
mörk og hóf stjórnmálaferil
sinn, þegar hann var kosinn f
bæjarstjórn Stange f Heiðmörk
árið 1951. Á herðar hans hlóð-
ust fljótlega frekari trúnaðar-
störf og hann var kjörinn á
norska stórþingið árið 1961 en
hafði setið sem varáþingmaður
næsta kjörtfmabil á undan.
Hann hefur verið áhrifamaður
innan flokksins um allmörg
undanfarin ár og það kom ekki
á óvart, þegar hann var skipað-
ur bæja- og sveitamálaráð-
herra, þegar Bratteli myndaði
fyrstu rfkisstjórn sfna árið
1971. ,
Þegar flokkurinn myndaði
stjórn að kosningum loknum
árið 1973 fékk Nordli það
erfiða verkefni að vera þing-
flokksleiðtogi í minnihlutaað-
stöðu.
Eftir að Nordli tók að láta að
sér kveða f stjórnmálum hefur
hann einkum fengizt við mál
sem varða efnahagsmál og
hann var meðal annars formað-
ur skattanefndar flokksins árin
1967—1969. Þá hefur hann lát-
Oddvar Nordli
ið til sín taka málefni bæja og
sveita og hann hefur látið
félagsmál til sín taka. Hann-er
einnig formaður varnarmála-
nefndarinnar, sem komið var á
Iaggirnar 1974. Hann þykir
maður rólegur og yfirvegaður,
en snjallur og laginn í rökræð-
um og málafylgjumaður góður.
Sprengiu
leitað í
Louvre
París, 25. september. Reuter. NTB.
SPÆNSKUR byltingarmaður hélt
því fram í dag að hann hefði
komið fyrir sprengju í listasafn-
inu I Louvre. Þúsundum gesta
sem þar voru var skipað að yfir-
gefa bygginguna, þar á meðal
mörgum erlendum ferðamönnum.
Engin sprengja fannst þrátt
fyrir mikla leit f safninu sem er
stærsta höll heims, en ákveðið var
að loka þvf.
Spánverjinn sagði að hann
4 Starfighter
þotur fórust
mundi segja hvar sprengjan væri
ef forstöðumaður sáfnsins for-
dæmdi nýlega dauðadóma á Spáni.
öflugur vörður er'við spænskar
byggingar í Frakklandi vegna
ólgu sem dauðadómarnir hafa
valdið. Kveikt hefur verið i
spænskri menningarmiðstöð I
Toulouse og miklar skemmdir
urðu.
Víðtæk rannsókn á
öryggisvernd Fords
Washington, 25. september. Reuter.
VlÐTÆK rannsókn er hafin á
starfsemi leyniþjónustu Fords
forseta vegna tveggja tilrauna til
að ráða hann af dögum með
sautján daga millibili og Banda-
rfkjamenn velta þvf fyrir sér
hvort hægt sé að tryggja öryggi
hans án þess að loka hann frá
almenningi.
Spurt er meðal annars:
0 Getur Gerald Ford breytt
ævilöngum venjum og hlíft sér
við persónulegum samskiptum
við fólk, samskiptum sem hann
metur mikils?
• Getur öryggisþjónusta hans
hert enn meir á öryggisráðstöfun-
um sínum án þess að loka forset-
ann algerlega frá almenningi?
% Fæla atburðirnir aðra stjórn-
málamenn frá því að sækjast eftir
mikilvægum embættum?
William Simons, fjármálaráð-
herra, sem leyniþjónusta forset-
ans heyrir undir, segir: „Við
erum aldrei ánægðir með starf
okkar á þessu sviði og það á eink-
um við nú.“ En vitað er að þrátt
fyrir það sem hefur gerzt eru
alltaf gerðar mjög strangar
ráðstafanir til verndar honum.
Sfðan 5. september hefur Ford
forseti komið miklu sjaldnar fram
en áður. Hann var aðeins tvær
mínútur á almannafæri þegar
skotið var á hann f San Francisco
og gekk aðeins þriggja metra
vegalengd þegar atburðurinn
gerðist. Eftir fyrri atburðinn
klæddist hann skotheldu vesti en
var ekki í þvf f San Francisco.
Hugsanlegt er talið, að Ford
fallist á að koma sjaldnar fram á
almannafæri og koma oftar fram í
sjónvarpi eftir atburðina. Þó hef-
ur hann sagt að hann muni sem
áður ferðast eins mikið og hann
telji æskilegt og ganga um meðal
fólks.
Leyniþjónustan fékk þegar í
dag fyrirmæli um að vernda þá
menn sem gefa kost á sér sem
forsetaefni á næsta ári frá 1. októ-
ber eða þremur mánuðum fyrr en
ráðgert var. Þeir sem fá þessa
vernd nú þegar eru demókratarn-
ir Lloyd Bentsen, HenryJackson,
Morris Udall og George Wallace.
Udall sagði í dag að hann mundi
endurskoða baráttuaðferðir sínar
en Jackson kvaðst engar breyting-
ar gera. Bentsen skoraði á forset-
ann að koma minna fram á al-
mannafæri.
Hitburg, 25. september. Reuter.
FJÓRAR ftalskar Starfighter-
þotur rákust á hæð skammt frá
bandarfsku flugstöðinni f Hit-
burg f Vestur-Þýzkalandi f dag.
Allir flugmennirnir fjórir biðu
bana.
Orsök slyssins er'ókunn. „Það
er okkur hulin ráðgáta hvers
vegna flugmennirnir sáu ekki
hæðirnar sem eru f 375 metra
hæð á þessum stað,“ sagði opin-
ber talsmaður. „Skyggni var
gott,“ bætti hann við.
Flugvélarnar voru að fara í
venjulegt æfingarflug og sam-
band við þær rofnaði skömmu eft-
ir flugtak. Brakið dreifðist yfir
eins kílómetra svæði.
Vestur-þýzki flugherinn hefur
misst 174 Starfighter-þotur á 15
árum. Vestur-Þjóðverjar hafa
Þingmaður berst
fyrir 50 mílum
London, 25. september. Reuter.
BREZKUR þingmaður, David
Mudd, hefur ákveðið að berjast
fyrir útfærslu brezku landhelg-
innar úr 12 mílum i 50 eftir
árekstur brezks strandferðaskips
og búlgarsks togara.
Bæði skipin löskuðust við
áreksturinn og eru komin til Fal-
mouth þar sem viðgerð fer fram.
Mudd er þingmaður Falmouth og
fylgir thaldsflokknum að málum.
Mudd sagði að hann mundi
vitna til árekstursins til sanninda-
merkis um að útfærsla í 50 mflur
væri brýn nauðsyn.
smíðað 800 þotur af þessari gerð.
ttalski flugherinn hefur fengið
250 Starfighter-þotur sem nokkr-
ar breytingar hafa verið gerðar á.
Svipað slys gerðist fyrir 13 ár-
um. Þá fórust fjórar vestur-
þýzkar Starfighter-þotur skammt
frá Köln vegna tækjabilunar.
Oánægja
með endurskoðun
höfundarréttarlaga
á Norðurlöndum
EINS OG fram hefur komið í
fréttum, var höfundarréttur aðal-
umræðuefni ársfundar Norræna
rithöfundaráðsins f SundvoIIen f
Noregi nú f vikunni. A frétta-
mannafundi, sem haldinn var f
lok ársfundarins, kom fram, að
skoðanir á þeim málum eru mjög
mismunandi eftir löndum, en
innan Norðurlandaráðs er nú
starfandi nefnd, sem vinnur að
samræmingu á löggjöf Norður-
landanna f þessu efni.
I fréttaskeytum frá AP og NTB
er greint frá því, að ársfundur
rithöfundanna hafi fjallað um
drög að endurskoðuðum lögum,
sem nefnd Norðurlandaráðs hef-
ur lagt fram til umsagnar rit-
höfunda. Töldu fundarmenn
nefndina ekki hafa haft erindi
sem erfiði og gagnrýna þeir m.a.,
að samstarfs við þá skuli ekki
Framhald á bls. 22