Morgunblaðið - 26.09.1975, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavlk.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, slmi 10 100.
Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40.00 kr. eintakið.
Birgir Isleifur Gunn-
arsson borgarstjóri
hefur nú lagt fram ítarlega
greinargerð um lóðaúthlut-
un þá, til Ármannsfells
h/f, sem mjög hefur verið
til umræðu á opinberum
vettvangi að undanförnu.
Greinargerð þessa lagði
borgarstjóri fram á fundi
með fréttamönnum 6 dag-
blaða, hljóðvarps og sjón-
varps og svaraði jafnframt
öllum þeim spurningum,
sem fréttamennirnir
beindu til hans um lóðaút-
hlutunina og önnur mál.
Vegna þess að borgarstjóri
hefur undanfarnar vikur
verið erlendis í opinberum
erindagjörðum og síðar í
sumarleyfi, kemur þessi
greinargerð síðar en æski-
legt hefði verið, þar sem
umræður um lóðaúthlutun
þessa hafa staðið nær
linnulaust á fjórðu viku og
hvers kyns staðhæfingar
verið settar fram, sem ekki
hefur verið svarað af hálfu
borgarstjórnarmeirihlut-
ans fyrr en nú.
Með greinargerð þessari
og svörum við fyrirspurn-
um fréttamanna hefur
borgarstjórinn í Reykjavík
lagt spilin á borðið og ætti
nú að vera hægt að beina
umræðum um hið svo-
nefnda Ármannsfellsmál i
málefnalegri farveg en
verið hefur fram til þessa.
I skýrslu sinni fjallar borg-
arstjóri um 3 höfuðatriði,
sem fram hafa komið í op-
inberum umræðum. I
fyrsta lagi lýsir hann því
yfir, að ákvörðun um út-
hlutun lóðarinnar til Ár-
mannsfells hafi byggzt á
auglýsingu eftir lóðaum-
sóknum, sem Reykjavíkur-
borg hafði birt í ársbyrjun.
Ákvörðun þessi hafi verið
tekin á málefnalegum
grundvelli og án þess að
annarleg sjónarmið liggi
þar að baki. Jafnframt
upplýsir borgarstjóri að
þegar hann sjálfur tók af-
stöðu til og ákvörðun um
lóðaúthlutun til Ármanns-
fells hafi honum ekki verið
kunnugt um, að byggingar-
félagið hefði lagt fram fé
til Sjálfstæðishússins. í
öðru lagi skýrir borgar-
stjóri frá því í greinargerð
sinni, að eftir að umræður
hófust um lóðaúthlutunina
hafi hann spurzt fyrir um
það hjá húsbyggingar-
nefnd Sjálfstæðishússins,
hvort byggingarfélagið
hefði lagt fram fé til bygg-
ingar Sjálfstæðishússins
og fengið upplýsingar um,
að einnar milljón króna
framlag hafi komið frá
félaginu í byrjun ársins
1975. Jafnframt kveðst
borgarstjóri vera sann-
færður um, að stuðningur
Alberts Guðmundssonar
borgarfulltrúa, sem jafn-
framt er formaður hús-
byggingarnefndar Sjálf-
stæðishússins, við þessa
lóðaúthlutun og atbeini
hans í því máli, hafi á eng-
an hátt verið tengdur fjár-
framlagi þessu. í þriðja
lagi tekur borgarstjóri
fram í greinargerð sinni,
að hvorki hann, eiginkona
hans né nokkur á hans veg-
um eigi hlut í Ármannsfelli
h/f, en því hefur verið
haldið fram í blöðum, og
skýrir jafnframt frá því, að
fyrir mörgum árum þegar
hann rak lögmannsskrif-
stofu í Reykjavík hafi hann
um skeið átt lítinn hlut í
þessu byggingarfélagi, en
hafi selt hann og frá því að
hann tók við embætti borg-
arstjóra í Reykjavík hafi
hann hvorki átt hlut í
þessu byggingarfélagi né
nokkru öðru fyrirtæki er
þurfi á fyrirgreiðslu
Reykjavíkurborgar að
halda. Hann geti því óháð-
ur öllum fjárhagslegum
hagsmunum tekið ákvarð-
anir í málefnum þeirra fyr-
irtækja og borgara er til
hans leita sem borgar-
stjóra.
Á blaðamannafundinum
fjallaði borgarstjóri einnig
um þann ágreining, sem
upp hefur komið um skip-
un rannsóknarnefndar á
vegum borgarráðs í málinu
og lýsti því yfir að næðist
ekki samkomulag innan
borgarráðs um skipan
nefndarinnar væri hann
reiðubúinn til að fela saka-
Greinargerð borgarstjóra
dómi meðferð málsins. Nú
hafa allir borgarfulltrúar
og varaborgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins óskað
eftir þvi við saksóknara, að
hann feli sakadómi að
kanna, hvort sak-
kanna, hvort saknæmt at-
hæfi hafi átt sér stað.
Eins og sjá má af þessu,
hefur borgarstjóri lagt
fram á ítarlegan og hrein-
skilinn máta, öll þau gögn
og skýringar á lóðaúthlut-
uninni til Ármannsfells,
sem fyrir hendi eru. Næsta
skrefið í málinu verður þá
væntanlega, að á það reyn-
ir, hvort borgarráð getur
komið sér saman um skip-
an sérstakrar nefndar til
þess að rannsaka málið af
sinni hálfu. Takist sam-
komulag ekki um það má
búast við því samkvæmt
ummælum borgarstjóra á
blaðamannafundinum, að
óskað verði eftir sakadóms-
rannsókn í málinu og kem-
ur það væntanlega í ljós á
næstu dögum, hver niður-
staðan verður í þeim efn-
um.
Hitt er alveg ljóst, að um-
ræður um mál þetta hljóta
að leiða til þess, að fjármál
stjórnmálaflokkanna og
blaða á þeirra vegum verði
tekin til meðferðar og eðli-
legt er, að settar verði ná-
kvæmar reglur um fjármál
þeírra og fjáröflun og að
eftirlit verði tekið upp til
þess að fylgjast með því að
settar reglur verði haldn-
ar.
THE OBSERVER THE OBSERVER Jtít THE OBSERVER THE OBSERVER Jtít THE OBSERVER Jkk. THE OB
Klofningur í röðum vinstri manna
í Frakklandi vegna Portúgals
Parls
Sambúðin I Sósíalistabandalag-
inu í Frakklandi er að verða óbæri-
leg, þótt aðeins 15 mánuðir séu
liðnir frá þvf að 300.000 atkvæð-
um einum munaði, að það fengi
Mitterand kjörinn forseta.
Ástandið f Portúgal hefur magn-
að svo mjög andstæðar fylkingar
innan bandalagsins, sem skipað er
Kommúnistaflokknum, Sósfalista-
flokkum og Rótæka vinstriflokkn-
um, að innbyrðis erjur eru daglegt
brauð á opinberum vettvangi. Svo
virðist sem hægri stjórnin, sem
situr við völd, sé gleymd og
grafin, en hún fylgist með deilun-
um eins og brosleitur áhorfandi.
Leiðtogar sósíalista og
kommúnista hafa opinberlega tek-
ið afstöðu f þessum deilum og
verið ómyrkir f máli. Þeir hafa
ekki mælt gegn vangaveltum um,
að hreyfing sé fyrir þvf að leysa
upp bandalagið, sem þeir gerðu
með sér hátfðlega fyrir þremur
árum "með undirritun sameigin-
legrar stefnuskrár fyrir ríkisstjórn.
Kommúnistar líta svo á, að
Francois Mitterand leiðtogi
bandalagsins, sem f ma! sl. naut
stuðnings tæplega 50% þátttak-
enda f skoðanakönnun f sam-
keppni við Giscard d'Estaing for-
seta landsins, sé farinn að leika
sama leik og stjórnendur landsins,
að Iftilsvirða kommúnista. Á hinn
bóginn Ifta sósíalistar þannig á, að
kommúnistar girði fyrir alla mögu-
leika á myndun vinstri stjórnar f
Frakklandi með þvf að styðja and-
lýðræðislega valdabaráttu
portúgalskra kommúnista.
Það er þó ef til vill válegra fyrir
vinstri menn í Frakklandi að deilur
eru nú f þann veginn að riðla þeim
tveim meiriháttar fylkingum, sem
tekizt hefur að heyja sameiginlega
baráttu þrátt fyrir hugmynda-
fræðilegan ágreining og búa sig
nú undir haustið, sem talið er að
verði það örlagarikasta sfðan f
strfðinu.
Enda þótt hér sé um að ræða
mestu sambúðarerfiðleika
kommúnista og sósfalista f áratug,
hefur búskapurinn ekki alltaf
gengið snurðulaust. Kostir þess
að mynda bandalag undir forystu
Mitterands komu fyrst f Ijós árið
1965, þegar hann var eini fram-
bjóðandi vinstri manna við for-
setakosningar og olli de Gaulle
fylgishruni, sem var mjög niður-
lægjandi fyrir hann.
Uppreisn stúdenta og verka-
manna f maf 1968 kom f veg fyrir,
að vinstri flokkarnir tækju höndum
saman, þvf að þeir voru ekki á
einu máli um, hvert gildi hennar
væri. í júnf 1972 tókst hins vegar
nýkjörnum leiðtoga Kommúnista-
flokksins, Georges Marchais, að
fá Mitterand til að gera sameigin-
lega stefnuskrá fyrir rfkisstjórn,
en Mitterand hafði þá loks snúizt
til fylgis við sósíalista og var orð-
inn leiðtogi Sósfalistaflokksins,
sem hafði verið endurskipulagður.
Robert Fabre leiðtogi Róttæka
vinstriflokksins gekk einnig f
bandalagið, og Mitterand varð !
reynd leiðtogi stjórnarandstöðu,
sem hafði á stefnuskrá sinni hæg-
fara þjóðnýtingu og aukið at-
vinnulýðræði.
Ávinningur Mitterands af banda
laginu var augljós, og svipur þess
var ekki eins einstrengingslegur
og verið hafði um eldri stjórnmála
samtök sósíalista. En bandalagið
gerði sér einnig mikinn mat úr
harðlfnusveitum kommúnista,
sem báru hitann og þungann af
forsetakosningunum. Vinstri fylk-
ing sósfalista, sem telur einn
þriðja af flokki Mitterands, var
einnig mjög ánægð með samstarf-
ið við kommúnista.
Róttæki vinstriflokkurinn hafði
jafnvel enn meiri hag af bandalag-
inu. Það tryggði honum að þurfa
ekki að bjóða fram gegn Sósfal-
istaflokknum f kosningum, þannig
að hann náði áframhaldandi þing-
setu, enda þótt hugmyndafræði
hans sé I raun réttri sú sama og
Sósfalistaflokksins.
Á yfirborðinu virðast kommún-
istar hins vegar engan hag hafa af
bandalaginu nema virðinguna,
sem strfðir algerlega gegn hlut-
verki hans sem byltingarafls.
Flokkurinn þarf ennþá að bjóða
fram gegn Sósfalistaflokknum og
Róttæka vinstriflokknum. Þvi ei
spurt um, hvort virðingin sé ekki
heldur dýru verði keypt.
Ýmsir álita, þar á meðal fhalds-
menn, miðflokkamenn og hægri
sósfalistar, að Kommúnistaflokkur
Frakklands, sem lúti stjórn frá
Moskvu, geri langtimaáætlanir
um að kollvarpa lýðræði með þv!
að nota lýðræðislegar aðferðir.
Aðrir vilja meina, að flokkurinn sé
fyllstu virðingar verður, og hafi
hann frá þvf f strfðinu hneygzt
jafnt og þétt f átt að
lýðræðisstefnu.
Kommúnistaflokkur Frakklands
hefur aldrei verið samansafn klofn
ingshópa, sprottinn upp úr jarð-
vegi stjórnleysingja, eins og
margir aðrir kommúnistaflokkar í
Evrópu, enda þótt hann hefði bylt-
ingarhugsjónir á þriðja og fjórða
áratug aldarinnar. Árið 1945 tók
hann við ráðuneytum f stjórn de
Gaulle. Paul Ramadier hrakti
kommúnista úr stjórn árið 1946,
en valdafikn leiðtoga þeirra hefur
hins vegar aldrei dvfnað og hafa
þeir lagt kapp á að ná fylgi f
lýðræðislegum kosningum. Árið
1968, er stúdentaóeirðir og alls-
herjarverkföll höfðu næstum því
bundið endi á valdaferil de Gaulle.
vildu kommúnistar ekki færa sér
ástandið f nyt nema til þess eins
að knýja fram bætt skilyrði fyrir
verkamenn. Það voru hins vegar
sósialistar, sem reyndu að not-
færa sér ringlureiðina til að koma I
framkvæmd byltingarkenndum
áformum og gera breytingar á
rfkisstjórninni.
Það væri vart hægt að áfellast
Kommúnistaflokkinn fyrir það
þótt hann hefði fyrir löngu lagt
fyrir róða lýðræðislegar aðferðir.
Hann nýtur stuðnings, sem nemur
20% af heildaratkvæðamagninu,
en hefur hins vegar aðeins tæpum
70 þíngmönnum á að skipa. Áður
en til tiðinda dró i Potúgal, voru
kommúnistar farnir að reyna á
þolrifin f Sósfalistabandalaginu
með þvf að sniðganga reglulega
fundi með félögum sfnum, eftir að
hafa ásakað þá um að hafa brugð-
izt stuðningi við frambjóðanda
Kommúnistaflokksins ! aukakosn-
ingum.
Flokkarnir þrfr héldu ekki sam-
eiginlega fundi um 9 mánaða
skeið og enn hörðnuðu ásakanir
og gagnásakanir. Kommúnistar
tóku fulldjúpt ! árinni, en Mitter-
and espaði þá upp með þvf að fara
undan ! flæmingi. Ýmislegt hafði
orðið til þess að breyta samband-
inu. Eftir að hafa farið holloka f
forsetakosningunum með sáralitl-
um mun, hafði Mitterand og
sóaialisk hugmyndafræði dregið
að sér víðtækari stuðning en áður
og Ifkur voru jafnvel til þess að
hann þyrfti ekki á að halda aðstoð
frá Kommúnistaflokknum. Hann
var sakaður um að sitja á svikráð-
um við 5 milljónir stuðnings-
manna kommúnista f stað þess að
berjast gegn rikisstjórninni.
Georges Marchais, sem áður
hafði verið harðlinu Stalfnisti, en
siðar boðberi lýðræðislegra að-
ferða, fékk hjartakast f janúar
1975. Varð það til þess að menn
fóru að velta fyrir sér spurning-
unni um formennsku I flokknum,
en einnig til þess, að Marchais tók
upp á nýjan leik byltingakennda
stefnu til að koma til móts við
harðskeytta flokksmenn.
Eftir
Paul Webster
En afstaðan til Portúgal er nú
það mál sem hæst ber og ræður
væntanlega úrslitum. Á sama tima
og Mario Soares var gestur Mitt-
erands, sem kvaddi sósfalitsaleið-
toga á Vesturlöndum til fylgis við
samherja sina i Portúgal, féllust
þeir f faðma Marchais og Alvaro
Cunhal leiðtogi portúgalskra
kommúnista.
Marchais komst svo að orði um
Soares, að hann væri mjög þýð-
ingarmikill bandamaður hægri afl-
anna i Frakklandi, og var hér um
að ræða sneið til Mitterands.
Franskir sósialistar fordæmdu
Cunhal hins vegar á opinberum
vettvangi.
Þegar málgagn portúgalskra
sósfalista, Rebublica var stöðvað,
reyndu franskir kommúnistar að
verja þær aðgerðir. Andstæðingar
þeirra töldu að hér með hefðu
franskir kommúnistar sannað
hræsnisfulla afstöðu sfna til lýð-
ræðisins, en flokkurinn hafði ný-
lega gert skrá yfir nauðsynleg
mannréttindi, og þar á meðal var
talið frelsi fjölmiðla. Mitterand
hefur hrundið félögum sfnum fram
á heljarþrömina með því að beina
opinberlega þeim ásökunum gegn
þeim, að þeir virði að vettugi al-
menn mannréttindi og persónu-
frelsi, þeir stuðji minnihlutarfkis-
stjórn og ofbeldisaðgerðir, og
vakti hann þar með upp grýluna,
sem de Gaulle var vanur að nota
til að hræða kjósendur frá fylgi við
kommúnista. Kommúnistar hafa
svarað þvi til, að þeir hafi ekki
gert annað en að neita að for-
dæma félaga sfna f nauðum.
Kommúnistaflokkar ítalfu og
Spánar hafa hins vegar gagnrýnt
Chunhal rækilega, og er það hatd
andkommúnista f Frakklandi, að
með þvf að taka ekki undir þessa
gagnrýni hafi franskir kommún-
istar sýnt og sannað, að þeir hafi
Framhald af bls. 27