Morgunblaðið - 26.09.1975, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Patty Hearst
í geðrannsókn
San Francisco, 25. september. Reuter.
AP.
PATRICIA Hearst vill ekki
lcngur kalla sig „borgar-
skæruliða" að sögn lögfræð-
ings hennar í dag.
Hún kallaði sig „atvinnu-
lausan borgarskæruliða"
þegar hún var spurð um at-
vinnu er hún var færð
fangelsi en nú vill hún aðeins
kalla sig atvinnulausa.
I dag fór hún í fyrsta skipti f
geðrannsókn sem á að leiða í
ljós hvort hún er sakhæf og
hvort hún var heilaþvegin. Fé-
lagar hennar, William og
Emily Harris, voru í dag flutt
til Los Angeles þar sem þau
mæta fyrir rétti.
FBI rannsakar hvort
Patricia Hearst var viðriðin
bankarán I Sacramento fyrr á
þessu ári. Teikningar sjónar-
votta og peningaseðlar sem
fundust í íbúð hennar geta
bent til þess að hún hafi tekið
þátt í ráninu að sögn CBS-
sjónvarpsins.
Fundizt hefur í fbúð hennar
nákvæm dagbók sem segir frá
reynslu hennar, m.a. banka-
ráni f San Francisco 15. apríl í
fyrra að sögn San Francisco
Chronicle.
FBI framdi
238 innbrot
Washington, 25. september. Reuter.
STARFSMENN FBI frömdu
238 innbrot hjá fmsum undir-
róðurssamtökum f Bandarfkj-
unum á árunum 1942 til 1968
og stóðu fyrir fjöimörgum
svipuðum aðgerðum gegn
þremur tilteknum undirróð-
urssamtökum að þvf er Frank
Church öldungadeildarmaður
skýrði frá 1 dag.
Otis Pike, formaður þing-
nefndar sem rannsakar starf-
semi CIA, hótaði í dag að kæra
Ford forseta fyrir að sýna
Þjóðþinginu lítilsvirðinu þar
sem Henry Kissinger utanrík-
isráðherra hefur bannað und-
irmönnum sínum að skýra frá
upplýsingum um leiðir sem um
er að velja við mótun utanrik-
isstefnunnar. Forsetinn hefur
þegar bannað þeim að skýra
frá leynilegum upplýsingum.
Mótmœli í
Lissabon
Lissahon, 25. septomber.
2.000 VINSTRISINNAÐIR
hermenn gengu um götur
Lissabon f dag til að mótmæla
völdum hófsamra herforingja
og krefjast aukinna valda
óbreyttra hermanna.
Gangan var farin til stuðn-
ings samtökum óbreyttra her-
manna og undirforingja sem
kallast „sameinaðir hermenn
munu sigra“ og voru stofnuð
þegar Vasco Gonvalves var
sviptur embætti forsætis-
ráðherra.
örkumla fyrrverandi her-
menn lögðu undir sig
upptökusali rfkisins i dag og
útvörpuðu yfirlýsingum með
kröfum um bættan aðbúnað
fyrrverandi hermanna.
— Albert
Franthald af bls. 3.
hentað þeim að þessu sinni,
frekar en svo oft áður.“
(Því má skjóta hér inn f að
þegar 6. sept. sl. skýrði Morgun-
blaðið frá þvf, að Albert Guð-
mundsson hefði á þessum fundi
svarað ofangreindri fyrirspurn
neitandi).
„Að mínu mati“, sagði Albert
Guðmundsson ennfremur, „eru
árásir þessar á Sjálfstæðis-
flokkinn byggðar á öfund and-
stæðinga okkar vegna bygging-
ar Sjálfstæðishússins, sem
stendur traust og óflekkað tákn
um samtakamátt Sjálfstæðis-
fólks.“
BREGÐUMST EKKI
TRAUSTI BORGARBUA
„í frásögnum Tfmans, Þjóð-
viljans og Alþýðublaðsins af
greinargerð borgarstjóra og
blaðamannafundi hans í fyrra-
dag er þvf haldið fram, að hann
hafi hvítþvegið sjálfan sig og
komið ásökunum yfir á þig.
Hvað viltu segja um þennan
málflutning?"
„Ég lít á þetta sem enn eina
tilraun andstæðinga okkar til
þess að reka fleyg á milli borg-
arstjóra og mín. Þeir gera allt,
sem þeir geta, til þess að gera
borgarstjóra tortryggilegan i
mfnum augum og eiga eflaust
eftir að snúa blaðinu við, þegar
þeim mistekzt þessi tilraun. Ég
hef nú starfað með borgar-
stjóra frá 1970 og að mínu mati
er vandfundinn traustari og
heiðarlegri samstarfsmaður.
Samstarf okkar er ekki á sandi
byggt. Hann hefur allt mitt
traust og minn stuðning. Ég tel
ekki að hann hafi á einn eða
annan hátt reynt að koma
ábyrgð af sér yfir á mig, né
nokkurn annan, enda væri það
ólíkt honum. Við Birgir erum
báðir barnfæddir Reykvík-
ingar. Við höfum hlotið traust
samborgara okkar og þvf
trausti raunum við aldrei
bregðast."
„Ég fagna því“, sagði Albert
Guðmundsson að lokum, „er til-
laga um nefndarskipan kom
fram frá borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins, þannig að
rannsókn hæfist sem fyrst á
þeim rógburði, sem andstæð-
ingar okkar hafa haldið uppi nú
í nokkrar vikur og tími til kom-
inn að þeir fái tækifæri til að
sanna áburð sinn. Ef þeir
halda, að það sé réttarfarslega
rétt, að mönnum sé gert að
sanna sakleysi sitt, skjátlast
þeim hrapalega. Ég Ift ekki svo
á, að Sjálfstæðisflokkurinn sé í
vörn. Nú sækjum við að þeim
og krefjumst þess, að þeir sanni
á okkur þá sök, sem þeir hafa
borið á okkur. Að öðrum kosti
hljóta þeir að sitja eftir sem
rógberar f hugum almennings,
árásir þeirra og yfirlýsingar
dauðar og ómerkar. Allt hefur
þetta mál verið mér og fjöl-
skyldu minni mikil lífsreynsla,
sem ég mundi ekki óska nein-
um andstæðingi mfnum að
þurfa að ganga í gegnum. En
eftir sitjum við reynslunni
ríkari.“
— fþróttir
Framhald af bls.22
ar á lengd og með sveip til vinstri
og vatn fyrir framan flötina. Jack
Nicklaus náði þar einu af sínum
300 yarda teigskotum og var i
tveim höggum 510 yarda frá flöt-
inni til að geta lyft boltanum hátt
yfir vatnið og stöðvaðist boltinn 3
sentimetra frá holu. Sem sagt:
auðveld „birdie“... Það virðist
sem þessi hola hafi sérkennileg
áhrif á Nicklaus, því þegar P.G.A.
var leikið á þessum velli lék
Nicklaus holuna þannig: Teigskot
hans sigldi til vinstri út f skóginn
og Ienti „out of bounds". Hann
tók eitt högg í víti og varð að
ganga hálfa leiðina til baka í átt-
ina að teig og slá 3ja högg þaðan
út úr háu grasi utan brautar-
innar. Þetta 3ja högg tókst illa,
þvf hann fór næstum þvert yfir
braut og bak við tvö risahá tré,
sem voru í skotlínu. Þar skaut
Nicklaus einu glæsilegasta skoti
sem sézt hefur yfir trén, yfir
vatnið, og inn á flötina um það bil
40 fet frá holu. Þegar að pútinu
kom varð Nicklaus að fara var-
lega, því of langt pútt gat rúllað
niður hallann og niður að vatni.
Hann gerði sér þó lítið fyrir og
sökkti boltanum og fékk þar með
par 5...
Verðlaunin f Firestone keppn-
inni eru ekki af lakara taginu og
gefa litla vísbendingu um að hér í
landi sé kreppa. 1. verðlaun eru
50 þúsund dollarar, 2. verðlaun
eru 15 þúsund, 3. verðlaun eru 7
þúsund og 5 hundruð og 4. verð-
laun eru 5 þúsund. Þess má geta
að Jack Nicklaus hefur verið þátt-
takandi tíu sinnum f þessari
keppni og aldrei verið lakari en f
öðru sæti og hefur samtals unnið
263 þúsund dollara.
Sunnudaginn 7. hélt Watson
enn áfram að spila af miklu
öryggi og Jack Nicklaus gerði
heiðarlega tilraun til að ná hon-
um en gekk illa þar eð Watson
paraði næstum allar seinni 9 hol-
urnar. Eftir 16 holur var staðan
þannig. Watson: par, Nicklaus 4
yfir pari, Weiskopf 5 yfir pari og
Graham 7 yfir pari.
Þrátt fyrir að pútter Nicklaus
færi f gang og hann fengi tvö pútt
til að falla á 17. og 18. holu af 14
og 50 feta færi þá skeikaði Wat-
son ekki og hélt sér á pari það
sem eftir var. „Birdies“ tvisvar í
röð hjá Nicklaus dugðu ekki, og
sagði hann eftir á að hefðu fleiri
holur verið eftir hefði hann átt
smá von.
Orslitin urðu sem sagt þessi:
Tom Watson. Par
Jack Nicklaus: 2 yfir pari
Tom Weiskopf: 5 yfir pari
Lou Graham: 7 yfir pari
Þessi árangur fjögurra beztu
golfleikara Bandarfkjanna á
árinu 1975 þykir ekki mjög góður
og virtist sem allir léku fremur
kæruleýsislega, því þessar tölur
eru alls ekki vfsbending um hve
góðir golfspilarar þessir fjórir
eru. Þetta mun þó vera í síðasta
skipti sem þessi keppni fer fram í
þessu formi, og er meiningin að
breyta henni mikið, sem væntan-
lega gefur betra golfspil 1976.
Kannski er þetta því að kenna
hve seint keppnin fer fram á
árinu, og eru atvinnumennirnir
alls ekki á hápunkti getur sinnar
þegar öll stórmót eru löngu yfir-
staðin.
bb.
— Armannsfells-
málið
Framhald af bls. 1
föngum ,og jafnframt að borgar-
ráði verði gerð grein fyrir niður-
stöðum hennar.
Birgir lsl. Gunnarsson: Magnús
L. Sveinsson; Páll Gfslason;
Ragnar Júlfusson; Valgarð
Briem; Margrét S. Einarsdóttir;
Sigríður Asgeirsdóttir; Albert
Guðmundsson; Markús örn
Antonsson; Davfð Oddsson; Elfn
Pálmadóttir; Sveinn Björnsson;
Hilmar Guðlaugsson; Sveinn
Björnsson verkfræðingur.; Bessi
Jóhannsdóttir.
Fjarstaddir af fundinum voru
Ulfar Þórðarson og Ölafur B.
Thors, forseti borgarstjórnar, og
Gústaf B. Einarsson, sem báðir
eru erlendis.
Birgir Isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, sagði um mál þetta í
samtali við Morgunblaðið f gær:
„Við borgarfulltrúar og vara-
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins héldum fund f dag til að ræða
viðhorfin f þeim pólitísku árás-
um, sem nú er að okkur beint. Við
urðum sammála um það, að eftir
yfirlýsingar borgarráðsmanna
minnihlutaflokkanna væri ekki
möguleiki á samstarfi um skipan
sérstakrar rannsóknarnefndar á
vegum borgarinnar. Enda er það
mfn skoðun eftir nánari umhugs-
un að slík rannsókn eigi bezt
heima hjá rannsóknardómara.
Við höfum því öll undirritað bréf
til Saksóknara rfkisins með beiðni
um, að hann beiti sér fyrir því að
Sakadómur Reykjavíkur rannsaki
þær ávirðingar, sem við erum sök-
uð um. Við höfum ekkert að fela.“
— Nordli
Framhald af bls. 1
ið hefur til greina sem hugsan-
legur eftirmaður fullyrti að aldrei
hefði verið um það rætt að ein-
hver annar maður en Nordli tæki
við af Bratteli. Hann sagði að
Bratteli hefði sjálfur átt hug-
myndina að þvf hvernig hann
legði niður völd.
Þegar formaður verkalýðssam-
bandsins, Tor Aspengren, var að
því spurður hvort hann væri
ánægður með samþykkt Iands-
fundarins svaraði hann því ját-
andi.
Fundurinn var fyrst og fremst
haldinn til að ræða úrslit byggða-
kosninganna og baráttu flokksins
fyrir Stórþingskosningarnar
1977.
Bratteli varð forsætisráðherra í
marz 1971, sagði af sér í október
1972 þegar aðild Noregs að Efna-
hagsbandalaginu var felld f
þjóðaratkvæðagreiðslu og tók aft-
ur við völdunum í september
1973.
Verkamannaflokkurinn hefur
tapað í þrennum kosningum f röð
undir forystu Brattelis og uppi
hafa verið háværar kröfur um að
yngri maður verði að vera foringi
flokksins í kosningunum 1977. Al-
varlegasti ósigurinn var f
kosningunum 1973 þegar Verka-
mannaflokkurinn tapaði 12 þing-
sætum og fékk 62 þingsæti af 155.
Umræðurnar um eftirmann
Brattelis hafa lengi staðið yfir en
búizt var við að endanleg ákvörð-
un væri á næsta leiti þegar flokk-
urinn tilkynnti fyrr f vikunni að
yfir stæðu umræður í sambandi
við forsætisráðherraskipti“.
— Mýrarhúsa-
skóli
Framhald af bls. 2
eina viku til að vinna að verkefn-
um, sem snerta sögu skólans, í
máli og myndum, og verður saga
Seltjarnarness nátengd verkefn-
inu.
I lok skólaársins verður haldin
sýning á þessari vinnu nemenda
en einnig er ætlunin að efla nátt-
úrugripasafn skólans á afmælis-
árinu.
Þá er í ráði að biðja hvern nem-
anda skólans að gefa eina trjá-
plöntu og gróðursetja hana á vori
komanda í gróðurreit, sem bæjar-
stjórn mun úthluta skólanum f
tilefni afmælisins.
Það er eindregin ósk skólans, að
allir velunnarar hans taki sem
virkastan þátt i hátíðahöldum
vegna afmælisins með því að
sækja samkomur þær, sem efnt
verður til af þessu tilefni.
♦ ♦-»----
r
— Israelsmenn
Framhald af bls. 19
I Washington varaði Ford for-
seti þingmenn við því í dag að
Sinai-samningurinn gæti komizt í
hættu ef töf yrði á samþykki
þingsins fyrir dvöl bandarískra
embættismanna á Sinai-skaga.
Hann sagði að lftill tfmi væri til
stefnu, en búizt er við að utanrík-
isnefnd öldungadeildarinnar taki
afstöðu til samningsins snemma í
næstu viku.
Ford sagði að Bandaríkjamenn
væru aðeins skuldbundnir til að
athuga möguleika á þvf að selja
Israelsmönnum Pershingeld-
flaugar sem hægt er að búa
kjarnaoddum. Hann kvaðst fús til
að veita þingmönnum allar nauð-
synlegar upplýsingar um Sinai-
samninginn.
— Yamani
Framhald af bls. 1
verðhækkun. Fyrst krafðist hann
þess að verðinu yrði haldið ó-
breyttu eins og á undanförnum
níu mánuðum, sfðan féllst hann á
5% hækkun og loks á 10% hækk-
un en lengra vildi hann ekki
ganga í samkomulagsátt.
10% hækkun verður til þess að
tunnan sem kostar nú 10,46 doll-
ara hækkar um einn dollara. 15%
hækkun jafngildir 1.50 dollara
hækkun á hverja tunnu.
Olíuráðherra Lfbýu, Ezzedin
Mabrouk, fullyrti að meirihlutinn
vildi ekki minna en 15% hækkun.
Olíuráðherra Nfgerfu, Mofia T.
Akobo, sagði að umræðurnar
hefði verið heitar og taldi hugsan-
legt að meirihlutinn ákvæði nýtt
verðlag sem Saudi-Arabía stæði
ekki að.
Oliuráðherra Iraks, Taveh
Ablel-Karim sagði að allt væri
„klappað og klárt“, hækkunin
yrði meiri en búizt hefði verið við.
Uppi eru tvær hugmyndir um
framkvæmd verðhækkunarinnar.
Samkvæmt hinni fyrri tekur verð-
hækkunin gildi 1. október og gild-
ir I eitt ár. Samkvæmt hinni síðari
hækkar orkuverðið í tveimur á-
föngum, í október og janúar en
helzt síðan óbreytt f níu mánuði.
— Einar
Framhald af bls. 40
vísað til ræðu sinnar, sem hann
myndi halda á mánudag og kvað
hana myndu verða svar við ásök-
unum á hendur Islendingum.
Sagði Einar að hollenzki ráðherr-
ann hefði sætt sig við það.
Einar Ágústsson mun ávarpa
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna á mánudaginn kemur og er
hann fyrstur á mælendaskrá þann
dag.
— Látbragðs-
leikflokkur
Framhald af bls. 2
Nokkrir þáttanna, sem hér
verða sýndir, eru tileinkaðir
látbragðsleikaranum heims-
fræga, Marcel Marceau, en
flokkurinn hefur átt við hann
samstarf.
Fialka-leikflokkurinn kemur
hingað af leiklistarhátíð í Dub-
lin. Fyrsta sýning flokksins
verður þriðjudagskvöldið 7.
október á aðalsviði Þjóðleik-
hússins.
— Óánægja
Framhald af bls. 19
hafa verið leitað fyrr en ákveðnar
tillögur lágu fyrir.
Frestur til að skila umsögnum
um tillögurnar er til 15. október
n.k. Björn Nielsen, formaður
norska rithöfundasambandsins,
sagði, að efnt yrði til mótmæla-
aðgerða f Noregi, gegn því sem
hann kallaði „ögrun við tjáning-
arfrelsi", sem fælist í tillögunum.
Ársfundurinn sendi ekki frá
sér sameiginlega ályktun um
málið, þar sem viðhorfin eru mis-
munandi eftir löndum. Sl. mið-
vikudag var sagt frá því í norska
blaðinu Aftenposten, að bæði í
Svfþjóð og Ðanmörku væri nú
útlit fyrir að stuðningur við til-
lögur nefndarinnar væri á undan-
haldi.
— Bókauppboð
Framhald af bls. 2
lands I. IX. bindi. Vinagleði
gefin út í Leirárgörðum 1797,
Ný félagsrit, I. — 30. árgangur,
Kaupmannahöfn 1841—1973,
Grágás útg. af Vilhjálmi Finsen
1852, Grágás-Staðrhólsbók frá
1879, Grágás-Skálholtsbók frá
1883, Járnsíða eða Hákonarbók,
Kaupmannahöfn 1847 og
Hæstaréttardómar I.—XLI
bindi, 1920—1970, alls 44 bæk-
ur.
— Minning Jón
Framhald af bls. 30
finningum sfnum. En við sem
þekktum þau vel vissum að þessi
sára reynsla tengdi þau nánari
böndum.
Þegar ég kveð vin minn og
frænda í hinzta sinn þá vil ég
þakka honum innilega fyrir marg-
ar ánægjulegar stundir allt frá
bernsku til síðasta dags.
Ég og mitt fólk sendum Gunn-
laugu, börnunum og móður Jóns
innilegar samúðarkveðjur.
Pétur Eggerz.