Morgunblaðið - 26.09.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
23
Eftir Inpva Hrafn Jónsson
Mesta laxveiðisumar frá upphafí
„VIÐ höfum ekki enn allar töl-
ur f okkar höndum, skýrslurnar
eru að týnast inn, en það bendir
allt til þess, að veiðitímabilið,
sem var að ljúka, hafi verið hið
bezta frá upphafi hérlendis,“
sagði Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri er við höfðum sam-
band við hann í vikunni. Þór
sagði, að bezta veiðisumarið
fram til þess hefði verið 1973,
er heildarveiðin nam 66 þús-
und Iöxum, en sagði að erfitt
væri að spá um hvort talan nú
næði 70 þúsund. Fréttir frá
ánum hefðu yfirleitt verið á
eina leið, meiri veiði en sl. ár,
en þess ber þó að gæta að skil-
yrði til veiða voru ákaflega
léleg þá vegna þurrka og vatns-
leysis f ám sunnanlands.
Þór sagði, að þeim hjá Veiði-
málastofnun sýndist, að hæsta
áin f sumar yrði Þverá í Borgar-
firði með um 2500 laxa. Elliða
árnar, Grimsá, Laxá f Aðaldal,
Norðurá og Langá á Mýrum
væru allar um og yfir 2000 laxa
svo og Laxá í Kjós, en þessar ár
hefðu löngum verið beztu veiði-
ár landsins. Þá er þættinum
einnig kunnugt um að veiðin í
Laxá á Ásum var alger rnetveiði
eða um 1900 laxar á tvær steng-
ur. Efumst við um að til sé í
heiminum á, sem státað getur
af tæpri þúsund laxa veiði á
stöng yfir tímabilið. Góð veiði
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri.
var einnig í Blöndu, Laxá i
Leirársveit og Hítará og raunar
eins og fyrr segir í öllum okkar
þekktustu veiðiám. T.d. var
aukningin í Miðfjarðará nær
100% og virðist sú á nú vera
búin að ná sér upp úr lægð
undanfarinna ára. Það verður
þvi ekki annað sagt en að árið i
ár lofi góðu um framtíðarhorf-
ur í laxveiðimálum hér á landi.
Innan fárra ára má einnig gera
ráð fyrir að mikill lax eigi eftir
að ganga upp á svæðið fyrir
ofan Lagarfljótsvirkjun og
fyrstu laxarnir gengu upp stig-
ann þar nú í sumar og varð vart
við lax í flestum ánum. Þór
Guðjónsson sagði okkur, að er
hann var á ferð þarna fyrir
nokkru lét hann loka fyrir
vatnið í stiganum til að skoða
hann og þá voru i honum 8
laxar. Einnig var í vor lokið við
framkvæmdir við stigann í
Faxa í Tungufljóti og nýr laxa-
stigi tekinn í notkun í Ytri-Laxá
við Skagaströnd. Fyrsti laxinn
veiddist einnig í sumar fyrir
ofan laxastigann í Svartá i
Skagafirði. Þá má nefna að
laxateljarar hafa verið settir
niður í Grímsá og Elliðaárnar
og Andakílsá og er um mottutelj
ara að ræða, sem lagðir eru á
árbotninn. Er talið að með þess-
um teljurum hafi opnazt leið til
að koma teljurum í allar ár á
landinu. Mjög mikið hefur
verið unnið að tilraunúm á
vegum veiðimálastofnunar í
sumar, en Sameinuðu þjóðirnar
hafa veitt vegiegan styrk til
rannsóknaáætlunar og hafa er-
lendir sérfræðingar unnið að
þeim ásamt starfsmönnum
veiðimálastofnunar undanfarin
2 sumar. Ymsar mikilvægar
niðurstöður hafa þegar fengizt
en búizt við miklum upplýs-
ingum á næsta ári. Allt þetta
miðar að því að auka enn laxa-
gengd og veiðar í íslenzkum ám
um ókomna framtíð.
Mikið gert
fyiii' unihveriÍ
Keflavíkur-
flugvallar
I SUMAR hefur mikið verið gert
til að fegra umhverfi Keflavíkur-
flugvallar, meðal annars hafa hús
verið máluð, götur malbikaðar og
stór svæði tyrft.
Páll Ásgeir Tryggvason,
deildarstjóri í Varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins, sagði i
gær, að mikið af járnadrasli hefði
verið fjarlægt og sumt af því
hefði legið síðan á stríðsárunum,
þá hefðu malbikunarframkvæmd-
ir verið mjög miklar og mikið
verið tyrft. Flugvallarsvæðið væri
nú allt annað en áður að sjá.
Ennfremur hafa eldri hús verið
máluð og þau sem mikið voru
farin að láta á sjá hafa verið rifin.
Það er Bandaríkjaher, sem kostað
hefur þessar framkvæmdir.
INGÓLFS-CAFÉ
GÖMLU DANSARNIR í KVÖLD
Hljómsveit GARÐARS JÓHANNSSONAR,
Söngvari: BJÖRN ÞORGEIRSSON.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
-oDiskó — Restaurant — Diskó — Restaurant — J3
SESAR W5 O) c s D
ífí CL Erlendur Magnússon i
! velur lögin í kvöld ?
O Baldur Brjánsson töframaður X* o
</) Opið alla daga frá kl. 8 e.h. nema miðvikudaga. X
o Gestir athugið: Snyrtilegur klaeðnaður. cD (/>
Rest — Diskó — Rest — Diskó — Rest — Diskó — Rest
LINDA WALKER OG
JANIS CAROL
SKEMMTA
ÍKVÖLD.
KVARTETT ÁRNA
ÍSLEIFS
LEIKURTILKL. 1.
HÓTEL BORG
Innritun
stendur yfir
í síma 84750
frá kl. 10-7
Hafnfirðingar
kenni öllum aldursflokk-
um yngst 2ja ára.
Takið eftir
Kennt
verður:
Barnadansar
Táningadansar
Stepp Jazzdans
Samkvæmis- og
gömlu dansarnir
Jutterbug og rokk
Kennslustaðir
Safnaöarheimili
Langholtssóknar
Ingólfskaffi
Breiöholt II
Seljahverfi
Hafnarfjöröur,
lönaöarmanna-
húsinu
Rein, Akranesi
Samkomuhúsiö.
Borgarnesi
D.S.Í.
SUPERMAN
Just half of you
I I(’)L> ni Supcrmaii
*
^ | Onnur
% ■ Isending
komin í allar
hljómplötuverzlanir.
PARADÍS
'HH
'H
I—í
‘HÍ
Cð
Ní
W