Morgunblaðið - 26.09.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
31
Pólýfónkórinn æfir
H-moll messu Bachs
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Pálýfénkórnum:
Þrátt fyrir gffurlegt annríki
mun Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, sem jafnframt er
einn hæsti skattgreiðandi lands-
ins, enn gefa kost á sér að starfa
áfram sem söngstjóri Pólýfón-
kórsins án endurgjalds og vera
um leið fjárhagslegur bakhjarl
kórstarfseminnar, því að enn
liggja engin ákveðin loforð fyrir
um fjárveitingar til kórsins.
Pólýfónkórinn og söngstjóri
hans hafa jafnan þótt djarfir f
verkefnavali. Sfðasta viðfangs-
efni kórsins var oratorían Messfas
eftir Handel, sem flutt var
þrisvar sinnum við húsfylli f
Háskólabíói um páskana, en eftir
TVÆR RIT-
GERÐIR UM
DR. HELGA
PJÉTURSS
GEFNAR ÚT
það bauðst kórnum að endurtaka
flutninginn í.Edinborg í byrjun
mai s.l. Var það ein mesta sigur-
för kórsins, lófataki áheyrenda
ætlaði aldrei að linna og strangir
gagnrýnendur hældu kórnum á
hvert reipi.
Ekki hugsar kórinn sér að
lækka seglin á næsta starfsári, þvf
að ráðgert er að taka til flutnings
Messu í h-moll eftir J.S. Bach sem
margir telja tilkomumesta kór-
verk allra tíma. Pólýfónkórinn
flutti þe\ta verk í fyrsta sinn á
tslandi árið 1968, þá nokkuð stytt,
en nú mun ætlunin að flytja verk-
ið óstytt um næstu páska. Jafn-
framt hefur kórinn í hyggju að
bjóða listahátíðanefnd endur-
flutning þess með heimsþekktum
einsöngvurum á Listahátíð í
Reykjavík 1976.
Nýlega hefur þekkt erlent út-
gáfufyrirtæki farið þess á leit við
Pólýnónkórinn að hann syngi
stórt erlent kórverk inn á hljóm-
plötu fyrir heimsmarkað, en ekki
hefur enn verið tekin afstaða til
þess tilboðs og verður naumast
gert fyrr en á aðalfundi kórsins,
sem haldinn verður 10. október.
Þá hefup einnig boðizt að
syngja I nokkrum borgum Italíu.
Til eflingar starfsemi sinni og
söngmennt almennt hefur Pólý-
fónkórinn í mörg undanfarin ár
rekið söngskóla við miklar vin-
sældir og með ágætum árangri.
Ur söngskólanum er margt af þvf
fólki komið, sem fyllt hefur raðir
söngvara á hljómleikum kórsins
t.d. í Messíasi í vor. Kennslu-
greinar I Kórskólanum eru radd-
beiting og söngur, tónheyrnar- og
taktæfingar og nótnalestur.
Kennt er eitt kvöld í viku á mánu-
dögum, 2 stundir í senn í 10 vikur
og fer kennslan fram f Vogaskóla.
Skólastjóri Kórskólans er Ingólf-
ur Guðbrandsson og innritun í
sfma 2 66 11.
Þeir sem áhuga hafa á að starfa
í Pólýfónkórnum, eru einnig
hvattir til að gefa sig fram við
söngstjórann í síma 2 66 11.
ÓKEYPIS!
Tveggja mínútna
leitin
Allt sem þú þarft að gera er: að
skrifa okkur á bréfsefni fyrirtækis
þíns og segja okkur hvaða vörum
þú þarft á að halda og nota.
Segðu okkur hvort fyrirtæki
þitt notar það sjálft eða er
söluaðili. Segðu okkur einnig
frá banka fyrirtækisins eða
aðra erlenda viðskiptaaðila,
venjulegar greiðsluaðferðir
(letter of credit eða annað) og
þær upplýsingar sem máli skipta
fyrir seljanda.
Er okkur berast spurningar þfnar
komum við þeim áleiðis til
fyrirtækja f New York rfki sem
gætu þjónað yður bezt.
Þeir munu sfðan skrifa þér beint.
Á stuttum tfma getur þú eignast
traust viðskiptasambönd við
framleiðendur í New York ríki.
Sendið bréf flugleiðis til:
New York State Department of
Commerce, International Division,
Dept. LLFP, 230 Park Avenue,
New York,
New York 10017, U.S.A.
Fyrirspurnarbréf á ensku
ganga betur fyrir sig.
NEW YORK STATE
ÚT ER komin bókin „Þættir um
heimsfræði Helga Pjeturss“. í
bókinni eru tvær ritgerðir.
Sú fyrri nefnist „Heimspekileg
hugmyndaþróun dr. Helga
Pjeturss árin 1895—1918“. Er þar
leitazt við að lýsa á hlutlægan
hátt hvernig heimspekihugmynd-
ir dr. Helga þróast og mótast á
þessum árum og úr hvaða jarð-
vegi þær eru sprottnar, einkum
með tilvitnunum I ýmsar rit-
gerðir hans frá þessu tfmabili.
Sfðari ritgerðin nefnist „Efni,
orka og heimspeki Helga
Pjeturss". Er þar gerð grein fyrir
hvernig hugsanlega megi skýra
ýmis atriði f eðlis- og Iffefnafræði
og heimspekikenningum dr.
Helga ef gert er ráð fyrir sam-
hæfðri hreyfingu efnis og orku.
Eftirtaldir aðilar hafa unnið að
gerð bókarinnar: Elsa G. Vi 1 -
mundardóttir, jarðfræðingur,
Þorsteinn Þorsteinsson, Iffefna-
fræðingur, Haukur Matthfasson
stud. phil., Ólafur Halldórsson,
lfffræðingur, Samúel D. Jónsson,
framkvæmdastjóri, og Svein-
björn Þorsteinsson kennari. Bók-
in er offsetfjölrituð og 75 bls. að
stærð. Útgefandi er URÐ s/f.
AlKil.ÝSINGASÍMINN ER:
22480
armitaqe
Komdu og kíktu á V0LVO76
OPIÐ LAUGARDAG KL.14-19 OG SUNNUDAG KL.10-19