Morgunblaðið - 26.09.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
33
fclk í (é*
fréttum k.
+ Nýlega lýsti Páll páfi þvf yfir
við hátfðlega athöfn á Sánkti
Péturstorginu að Elizabeth
Ann Seton, væri tekin f dýrl-
ingatölu f Rómversk Kaþólsku
kirkjunni. Veggteppið stóra
sem hangir vfir höfði páfa,
sýnir okkur Móður Seton, en
hún er fyrsti bandarfkjamaður-
inn sem tekinn er f dýrlinga-
tölu Rómversk Kaþólsku kirkj-
unnar.
+ Ef við gáum vel að, má sjá
Pál páfa f glugga á efstu
hæð Apostolic-hallarinnar,
þar sem hann fylgist með
ftalska fallhlffastökkvaranum
úr Milan fallhlffastökkvarafé-
laginu, þegar hann Iendir á
Sankti Péturstorginu sem enn
er krökkt af fólki sem fylgdist
með athöfninni þegar Móðir
Elizabeth Ann Seton var tekin f
dýrlinga tölu. Fallhlffastökkv-
arinn hafði með sér afsteypu
Madonnu-styttunnar sem stend-
ur f dómkirkjunni f Milan.
130 manns frá Frankfurt
ferðast um landið
+ Um þessar mundir er stadd-
ur hér á landi 130 manna hópur
Þjóðverja, sem hingað kom á
vegum Flugleiða og dagblaðs-
ins Frankfurter neue post.
Þetta er svokölluð lesendaferð,
sem eru mjög vinsælar f Þýzka-
landi.
Þjóðverjarnir, sem flestir
eru frá Frankfurt, komu
hingað s.I. laugardag og munu
halda heim á leið um helgina.
Þeir hafa m.a. farið til Vest-
mannaeyja, að Gullfossi og
Geysi og f fyrramálið munu
þeir halda til Akureyrar og Mý-
vatns.
Það er mjög óvenjulegt að
þetta stór hópur útlendinga
komi hingað til lands þegar
farið er að lfða á haustið, en að
sögn fararstjóra hópsins, dr.
Ibscher, hefur verið leikið við
ferðalangana og þrátt fyrir, að
frekar kalt hefur verið f veðri,
hafa allir skemmt sér mjög
vel, „og kuldinn gerir ferðina
aðeins meira spennandi,“ sagði
Ibscher.
+ Þessir þrír litlu .Jígris-
ungar“ fæddust nýlega f dýra-
garðinum f Osaka f Japan.
Ykkur kemur nafnið kannski
spánskt fyrir sjónir en hvað
annað á að kalla afkvæmi ljóns
og tfgrisdýrs? Myndin af
„Hgrisungunum" var tekin er
þeir voru aðeins dags gamlir.
Móðir þeirra, Tama er fjögurra
ára gamalt tígrisdýr, en þvf
miður vitum við ekki nafnið á
föðurnum. Þremur dögum
seinna var aðeins einn unganna
á Iffi og búist er við að hann
lifi og er hann þá jafnframt
eini „Ifgerinn" sem vitað er
um.
T réklossar
Teg. 302. Litur Hvítt.
No. 34—46.
Verð: 34—39
kr. 1980.
„V 40—46
V kr. 2100.
Teg 121.
Litur Svart.
Nor. 39—46.
Verð kr. 2990.
Teg 128.
Litur Svart.
No. 39—46.
Verð kr. 3135
Teg 127. Litur
Svart / Brúnt.
No. 41—46.
Verð kr. 3210.