Morgunblaðið - 26.09.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
37
VELVAKANOI
Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags
# Beðið um
500.000.000
kr. svar
Eggert Hauksson skrifar:
„21. sept. birtist í Mbl. skop-
mynd eftir Sigmund. Myndin
sýnir forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar fljúgandi um á flug-
vél, sem er þeim kostum búin, að
áhöfn hennar geti rétt úr sér.
Fyrir þetta. þ.e. að geta rétt úr
sér, þurfi hins vegar að greiða 650
mkr. Neðan við myndina er því
skotið að lesendum, að „sérfróðir
telja, að Landhelgisgæzlan geti
rétt úr sér í minni vél en Fokker
Friendship".
Þetta er skemmtileg mynd. Sig-
mund virðist furðu lagið að
hjálpa almenningi að átta sig á
ýmsum þjóðfélagsfyrirbærum
með þessum hætti. — Öllu gamni
fylgir þó nokkur alvara. Alvara
þessa máls er 500.000.000 króna.
Á sínum tima var sérstök nefnd
látin taka afstöðu og vera til ráðu-
neytis um kaup á flugvél fyrir
Landhelgisgæzluna. Nefndin
lagði til, að keypt yrði vél sem er
um 500 mkr. ódýrari en sú, sem
keypt hefur verið, — auk þess,
sem reksturskostnaður ódýrari
vélarinnar var áætlaður verulega
lægri.
Það er ekki farið að ráðum
þessarar nefndar, sem var í sjálfu
sér ekkert skilyrði. Heldur tók
ríkisstjórnin þá ákvörðun sam-
kvæmt tillögu forstjóra Land-
helgisgæzlunnar að kaupa langt-
um dýrari vél. — Hvers vegna?
í sjónvarpsviðtali sem frétta-
maður átti við forstjóra Land-
helgisgæzlunnar, þegar flugvéla-
kaupin höfðu verið ákveðin, fékk
ég ekki séð, að forstjórinn hefði
neitt 500 mkr. svar á reiðum
höndum. — Hverju skyldi hann
hafa trúað ríkisstjórninni fyrir
sem hann leyndi almenningi?
Fleiri en ég virðast hafa orðið
óánægðir eftir þetta sjónvarps-
viðtal. Fyrirspurnum og gagnrýni
hefur rignt yfir Landhelgis-
gæzluna siðan. I stað svara er
þagað. Þó tók ég eftir að for-
stjórinn gat þess á einum stað, að
mismunur á kaupverði umræddra
flugvéla væri 500 mkr. en ekki
650 mkr., sem flestum hlýtur í
ljósi málavaxta að finnast auka-
atriði. Einnig tók ég eftir i fjöl-
miðlum yfirlýsingu nokkurra
starfsmanna Landhelgis-
gæzlunnar, þar sem þeir styðja
mástað yfirmanns síns i flugvéla-
kaupunum. — Hvaða málstað? —
Það láðist þessum ágætu mönnum
að útskýra. Þeir minntust ekki á
500 milljónirnar, sem málið snýst
um. — Er þetta hægt?
unni sátu tvær litlar stúlkur og
mændu á sjónvarpið.
Eins og ósjálfrátt reis Brahm á
fætur cn konan lét saumadótið
sfga. Einnig þau höfðu beðið
heimsóknar hans f ótta.
— Slökkvið á sjónvarpinu,
steipur mfnar, sagði Brahm og
sneri sér að Link.
— Hvað get ég gert fyrir yður f
þetta skiptið, Link?
— Ég er að leita að Quain
lækni!
Feginssvipur virtist koma á
andlit hjónanna.
— Hver í ósköpunum er Quain
læknir?
David var ekki f skapi til að
taka þátt f skrfpaieiknum með
þeira.
— Quain læknir er f lögregl-
unni, sagði hann. — Það var hún
sem framkvæmdi krufningu á
Ifki Mariettu Shaw.
Frúin stóð f flýti á fætur.
— Það er að koma matartfmi,
stelpur mfnar. Farið að þvo
ykkur.
— Kannski er bezt að við tölum
saman undir fjögur augu, Brahm,
Þar sem skattborgarar þessa
lands greiða þessar 500 mkr. og ef
forstjóri Landhelgisgæzlunnar
virðir þá ekki svars, tei ég það
skyldu Alþingis að knýja fram
viðhlítandi svör i þessu máli.Það
munar um 500 milljónir króna,
a.m.k. þegar mistekst að skera
niður fjárlögin eins og í fyrra. —
Landhelgismálið má njóta for-
gangs en ekki þeirra forrttinda að
Landhelgisgæzlan hlaupi i felur
með skattana mina.
Eggert Hauksson
Vesturbergi 48“
Q Skortur á
hentugu
húsnæði
Kona, sem býr við Flóka-
götu skrifar:
„Ég er komin á sjötugsaldur og
bý ein í 170 ferm. ibúð sem nú er
orðin of stór og erfið fyrir mig.
Ekki get ég hugsað mér að flytja í
blokk uppi Breiðholti eða
kjallaraíbúð en það virðist vera
það eina sem er á markaðnum. Eg
hefi látið skrifa mig niður hjá
tveimur félögum sem ætluðu að
beita sér fyrir byggingum fyrir
aldraða en ekkert bólar á
framkvæmdum þar. Hefði ekki
verið tilvaltð að úthluta lóðinni
við Grensásveg til þessara aðila
sem siðan hefðu komið sér saman
um það fyrirkomulag á Ibúðum,
sem hentar þessum aldursflokki?
Eru ekki ibúðir hér í Reykjavík
orðnar nægilega dýrar fyrir þó
ekki sé verið að úthluta góðum
lóðum til verktaka sem síðan láta
þær fara í gegn um hendur
fasteignasala eða þeirra sem
sifellt eru að reyna að græða
peninga á íbúðum, á meðan
hörgull er á þeim?
Borgarráðsmenn og aðrir
valdhafar þessara mála mættu
gjarnan taka þetta til athugunar"
0 Hver ber
ábyrgðina
E.Ó. skrifar:
„Fyrir skömmu var ég
áhorfandi að athöfn menntaskóla-
nema i höfuðborginni er nýliðar
skólans ,,busarnir“ voru „skirðir"
af eldri nemendum,. Skilst mér að
hér sé um að ræða gamlan, hefð-
bundinn leik og átti ég þvi von á
góðri skemmtun. Þegar
„busarnir" mættu var þeim
heilsað með súrmjólk, tómatsósu,
sósulit og þviumliku I andlitið.
Siðan var hafizt handa af vösku
liði eldri nemenda, vel vörðu fyrir
vætu og busarnir dregnir að
vatnstunnu, þar sem höfð voru
endaskipti á þeim og æðri endinn
kaffærður. Til að viðhalda áhrif-
um dýfingarinnar og til að minna
þá, sem enn höfðu ekki tekið
skirn, á, hvað þeir áttu I
vændum, var sprautað öðru
hvoru yfir hópinn vatni úr
sverum slöngum. Tókst skirnin
misjafniega vel, eftir því
hve fórnarlambið veitti mikla
mótspyrnu og fyrir kom, að
tunnubarmurinn skildi eftir mar
og sársauka í hrygg. Siðan hófst
skírn í tjörninni, þar sem
„busum“ var umsvifalaust fleygt
út í. í tjörninni var sett lið, sem
tók á móti ,,busum“ er til þeirra
var fleygt og sáu þeir um að
kaffæra „busana“ áður en þeim
tækist að' skreiðast upp úr,
jafnvel aftur og aftur. Er mér
kunnugt um meiðsli er af þessu
hlutust, þar sem einn nemandi
hlaut skurð af einhverju á botni
tjarnarinnar sem svo þurfti að
sauma saman hjá lækni og þótti
vissara að varna ígerð með
penicillinkúr, þar sem bakteriu-
góður ku vera fjölskrúðugur í
tjörninni okkar. Umrædd athöfn
fór fram í kalsaveðri og rigningu
og er augljóst hvert heilsutjón
getur hlotizt af að vera holdvotur
eftir ísköld böð og jafnvel meiðsli
í slíku veðri. Margir blautir
,,busar“ áttu langt heim og sökum
þess hve ataðir og blautir þeir
voru keyptu þeir sér stæði i
strætisvagni til síns heima.
Ekkert eftirlit virtist vera með
þvi hversu Iangt var gengið í leik
þessum og var miklu fremur að
sjá, sem frumstæðar hvatir eldri
nemenda fengju þarna útrás, en
að þetta væri skemmtun ein. Hver
er ábyrgur, ef illa fer? Er ekki
timabært að stemma stigu við
hættulegum skrílslátum áður en
alvarlegt slys hlýzt af?
E.Ó.“
HOGNI HREKKVISI
9-21 1975
McNaught
Syndicate, Inc.
PHILIPS
30% meira Ijós
á vinnuflötinn
sami
orkukostnadur
PhilipsArgenta’
SuperLux
keiluperan meó
(ýviójafnaiilega birtuglugganum
Nýjung
í
slátursölu
Sala á pökkuðu og frystu slátri frá sláturhúsi
Kaupfélags Borgfirðinga hefst í dag. Hver
pakkning inniheldur fimm slátur.
Sláturmarkaðurinn verður opin frá miðvikudegi til
föstudags kl. 1 —5 og á laugardögum kl. 8 — 11.
Sláturmarkaður
Sambandsins
Kirkjusandi.
IMYTT — NYTT
Baby flauelskápur og kjólar.
Velourkjólar og dragtir
alpahúfur — plastik armbönd og hringir.
%v
SlGeA V/CJGA £ ‘Í/lveran
96 Vlf/MA
VÓ TOoK 49 Gm
KONONNWRÍ! WÚN
9R KOVf/A/ W MkT
4 LW M WÓN SR
ALL^ EKk/ NÍNNUFÆR
0
«M&-
L4ffö 9Kk/ £/Ns oa
LW V£K90« /$
W4fA 5/NN 6ANG f
4oK 9£SS ÍR ÖNNOR-
WV0R Kai\N6 K45-
ÓLÍÍT WJ4 W£P,
’ m mVEH!
LftlV V£R90« 49 W4EA
S/NN Ó4WG, SAÖÖ/ VI490R/NN