Morgunblaðið - 26.09.1975, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Kýpurbúunum fannst
kalt í 15 stiga hita
OMONOIA KYÍIPOY
— ÉG býð ekki i Kýpurbúana ef það
verður kannski 4—5 stiga hiti hérna
á sunnudaginn er Omonía mætir
Akurnesingum á Laugardalsvellin-
um, sagði Guðmundur Haraldsson
milliríkjadómari er Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. — Ég dæmdi
einn leik hjá liði frá Kýpur á írlandi
fyrir tveimur árum siðan og þótt
hitinn væri 15^20 stig og við ís-
lendingarnir kvörtuðum undan hita
þá komust Kýpurbúarnir varla áfram
fyrir kulda og aftur og aftur þurfti ég
að stoppa leikinn vegna sinadráttar
sem Kýpurbúarnir fengu vegna
kuldans. Viðbótartími vegna tafa,
sem flestar stöfuðu af þessu var allt i
allt 15 minútur, hélt Guðmundur
áfram.
Leikur sá sem Guðmundur á hér
við var á milli Hibernian frá Cork og
Kýpurliðsins Pezoporikos. Lék
Kýpurliðið báða leiki sina í Evrópu-
keppninni þetta árið á útivelli og
tapaði liðið báðum leikjunum, leikn-
um sem Guðmundur dæmdi 1:2, og
siðari leiknum, sem Einar Hjartarson
dæmdi 1:3. — Ég var þarna að
dæma minn annan leik í Evrópu-
keppni og var sennilega ekki nógu
harður, sagði Guðmundur. — Fyrir
seinni leikinn töluðum við okkur
saman og Einar leyfði þjálfara Kýpur-
liðsins aðeins sjaldan að koma inn á
og tafirnar urðu þvi ekki eins miklar.
Um liðið Pezoporikos sagði
Guðmundur að leikmenn þess hefðu
verið mjög stæltir likamlega og
hefðu yfir góðri knattmeðferð að
ráða. Skap leikmanna hefði hins
vegar verið hálfleiðinlegt og hefði
hann skrifað á leikskýrslu að Kýpur-
liðið hefði ekki dýnt drengilegan
leik.
Guðmundur Haraldsson kom í
fyrradag frá N-Írlandi, þar sem hann
var linuvörður á leik Glentorian og
Ajax frá Hollandi. Dómari á leiknum
var Rafn Hjaltalín og hinn línuvörð-
urinn Ragnar Magnússon. Sagði
Guðmundur að Rafn hefði staðið sig
vel i leiknum og þeir hefðu hvergi
séð annað nefnt en frammistaðan
hefði verið góð. Hollenska liðið vann
leikinn 6:1.
— áij.
AKPANEI IIAANAIAI
OMONOIA
AKPANEI
TEFMATO0YAAKEE
AKYOEPIAAH X
AOVKAX II
AMYNTIKOT
TXIAK-VMX
TJATJKHX
APAKOX
xoNToriítfrHs
ÍIEIIHX
AOYKAX i
MEXOI
XAPAAAMnOYT
IKPEKOPY
XIAKOAAX
fcYTHX
KYNHfOI
MAYPHX
KArl'A+AX
❖íAinnox
KANAFHX
ÍiföiTnTé<5 x
TEmATOfUYAAKEX
KPISTXANTXON NT.
XPArKAXXON X.
AMYNTIXOT
ÖAATYSSON MH.
AAPOYSXON MIT.
ÍYOPNTAEEON VK
rKOYTXONXXON T.
rKOYNAAÍ'KXON f.
XEArKANXON X.
«OV AfHAHÁ&QY
MiSXOÍ
ETivíANEON
XBEfNXON
xtoYpaaoykxon
AA<l>PETXON
KYNIirOI
nOXANNEXXON
OOPNTAPXON
XAAl'KPlMXXON
OOPNT.YfXON
Mynd af leikskrá Omonoia og IA sem gefin var út ð Kýpur fyrir leikinn sem þar fór fram — og lesi svo
sem lesa kann.
Kostnaður IA við Evrópu-
leikina um 3 milljónir króna
En möguleikinn á að komast í aðra umferð er mikill
Nemendur f Þjáifaraskólanum f tíma f Iffeðlisfræði. Gylfi Þ. Gfslason
og Asgeir Elfasson fremst, en fyrir aftan þá eru m.a. Sigurður Jónsson,
Theódór Guðmundsson, Lárus Loftsson, Sigurður Þorsteinsson, Jó-
hann Larsen, Þorsteinn Friðþjófsson og Magnús Jónatansson: (Ljósm.
RAX).
— VIO ÆTLUM okkur ekkert minna
en sigur i leiknum á sunnudaginn og
þar með að komast i aðra umferð i
Evrópubikarkeppni meistaraliða i
knattspyrnu, sögðu forystumenn ís-
landsmeistara Akraness í knatt-
spyrnu, á fundi með fréttamönnum i
gær, þar sem þeir fjölluðu um seinni
leik Akurnesinga og Kýpurliðsins
Onomia. I keppni þessari. sem fram
mun fara á Laugardalsvellinum n.k.
sunnudag. — Og við teljum að
möguleikar okkar séu góðir, bættu
Skagamennirnir við; Kýpurbúarnir
eru aldeilis óvanir að leika knatt-
spyrnu við slík skilyrði sem hér eru.
Þekktir þjálfarar ,
á skólabekk hjá KSÍ
YMSIR af fremstu fslenzku knatt-
spyrnuþjálfurunum sitja nú á
skólabekk og leggja stund á hin
ýmsu fræði sem beint eða óbeint
eru tengd knattspyrnunni. Kenn-
arar á námskeiði þessu eru sér-
fræðingar á sfnu sviði, bæði inn-
lendir og erlendir. Fer kennslan
fram f Kennaraháskólanum og er
áætlað að kennslustundir verði
um 200 og Ijúki kennslu um miðj-
an desember.
Stjórnandi skólans, sem nefnist
Þjálfaraskóli Knattspyrnusam-
bands Islands, er Karl Guðmunds-
son, en auk hans hafa þeir Reynir
Karlsson og Sölvi. Óskarsson séð
um allan undirbúning að starfi
skólans. Einn kennari hefur lokið
fyrirlestrum sínum, er það
Englendingurinn Harold Hassall,
sem kom hingað á vegum FIFA.
Af öðrum erlendum leiðbeinend-
um má nefna Hans B. Skáseth frá
norska íþróttaháskólanum, L.
Baroti frá Ungverjalandi, sem
meðal annars hefur verið lands-
liðsþjálfari í heimalandi slnu, og
Joe Gilroy þjálfara Valsmanna.
Innlendir kennarar eru dr.
Sigríður Valgeirsdóttir, Karl Guð-
mundsson fþróttakennari, Reynir
Karlsson æskulýðsfulltrúi,
Hannes Þ. Sigurðsson knatt-
spyrnudómari, Jón Ásgeirsson
Köge og Holbæk
BARÁTTAN um danska meist-
aratitilinn í knattspyrnu verður
greinulega mjög hörð milli liða
Köge og Holbæk. Eftir 23 umferð-
ir af 30 hafði Köge hlotið 33 stie
og Holbæk 32 stig.
sjúkraþjálfari og Olafur Magnús-
son stud.med.
Takmarkið með náminu er fyrst
og fremst að útskrifa knatt-
spyrnuþjálfara, sem geta tekið að
sér þjálfun í 1. og 2. deild og
einnig kennslu á 1., 2. og 3. stigs
þjálfaranámskeiðum KSl.
Nemendur á námskeiði þessu
eru m.a. ýmsir þjálfarar, sem þeg-
ar hafa getið sér gott orð sem
knattspyrnuþjálfarar og náð góð-
um árangri með félög sín. Margir
eru þeir íþróttakennarar. Koma
þeir vfðs vegar að af landinu, eins
og sést á eftirfarandi upp-
talningu, þar sem yfirleitt er get-
ið með hvaða félögum nemend-
urnir hafa leikið eða hvar þeir
hafa þjálfað. Nemendurnir eru
þessir
Ásgeir Elíasson Fram*og Vfkingi
Ó1 afsvík
Axel Axelsson Þrótti
Guðmundur Guðmundsson Fram
Guðmundur Helgason Val og
Stjörnunni
Gylfi Þ. Gíslason Selfossi og
Víkingi Ólafsvík
Magnús Jónatansson Austra Eski-
firði og KS Siglufirði
Lárus Loftsson Val, Gróttu og
unglingalandsliðinu
Jóhann Larsen Haukum
Sigurður Þorsteinsson Stjörnunni
Sigurður Jónsson Val og KSH
Breiðdalsvík
Sölvi Óskarsson Þrótti
Þorsteinn Friðþjófsson Breiða-
blik og Val
Þórhallur Stígsson IBK
Hlöðver -Rafnsson Fram og
Grindavfk
Ólafur Danivalsson FH
Danfel Pétursson
Theódór Guðmundsson Fylki, KR
og unglingalandsliðinu
Guðni Kjartansson ÍBK
Róbert Jónsson Val og Haukum
— 4H
og auk þess treystum við á að hinir
fjölmörgu dyggu áhangendur Skaga-
liðsins mæti á völlinn og hvetji liðið
til sigurs.
Sem kunnugt er töpuðu Akurnesing-
ar leiknum á Kýpur með einu marki
1:2, og þurfa þvi að vinna leikinn á
sunnudaginn með minnst 1:0 til þess
að komast áfram í keppninni. Sigri þeir
í leiknum verða þeir fyrstir íslenzkra
liða til þess að vinna leik I Evrópubikar-
keppni á heimavelli, þar sem jafntefli
er bezti árangur sem íslenzku liðin hafa
náð til þessa.
— Við þurfum 5000 manns á völl-
inn til þess að sleppa fjárhagslega,
sögðu Skagamennirnir á fundinum I
gaer, en gífurlega mikill kostnaður er
samfara þátttöku I Evrópubikarkeppni,
ekki slzt þegar fara þarf jafnlanga leið
og þeir þurftu. Mun kostnaðurinn hjá
Skagamönnum við þessa tvo leiki
nema um 3 milljónum króna, en auk
þeirra tekna sem þeir fá af áhorfendum
á leiknum á sunnudaginn hafa þeir
verið mjög duglegir að safna auglýs-
ingum t leikskrá sem þeir gefa út I
tilefni leiksins, og mun hún gefa þeim
verulegar tekjur.
— Undirtektirnar við auglýsinga-
söfnun okkar voru með ólíkindum góð-
ar, sögðu Akurnesingar, — við settum
okkur markið hátt I byrjun og tókst að
ná þvl.
Þess má geta, að leikskrá Skaga-
manna er hin vandaðasta og mætti ef
til vill fremur kalla hana blað en leik-
skrá.
— Við munum hafa sama háttinn á
og Keflvíkingar að ganga I hús og selja
miða á leikinn, sagði Gunnar Sigurðs-
son, formaður Knattspyrnuráðs Akra-
ness á fundinum i gær, — Eiginkon-
ur leikmanna Akranesliðsins héldu
með sér fund meðan við vorum úti og
ákváðu að taka þennan þátt starfsins
að sér Munu þær fara um Akranesbæ
I kvöld og selja miða og vonumst við
auðvitað eftir góðum undirtektum, svo
sem jafnan hefur verið þegar leitað
hefur verið til Ibúa Akraness.
Forsala aðgöngumiða á leikinn á
sunnudaginn hófst I Reykjavík I gær
Er selt úr tjaldi við Útvegsbankann og
þar mun salan byrja kl. 1 2.00 I dag. Á
morgun verður selt á sama stað frá kl.
9 00 og á sunnudaginn verður svo selt
á Laugardalsvellinum frá kl 10.00.
Belgíska
sjónvarpið
sgndi úr leik
Vals og Celtic
HRÓOUR Islenzkrar knattspyrnu
hefur farið ört vaxandi undanfarin
tvö ár og meira er nú fylgst með
því sem landinn gerir á knatt-
spyrnusviSinu en áður. Fyrir
nokkru var t.d. sýnd mynd í belg-
íska sjónvarpinu af viðureign Celt
ic og Vals hér á Laugardalsvetlin-
um.
— Ég var að horfa á iþróttaþátt
í sjónvarpinu, sagði Asgeir Sigur-
vinsson i viðtali við Morgunblaðið
i gær, og vissi þá ekki fyrr til en
leikmenn Vals voru allt i einu
komnir á skerminn hjá mér. Það er
ekki oft sem maður sér myndir frá
islandi hér i sjónvarpinu og ég
held að þeir hafi ekki sýnt myndir
af knattspyrnunni heima áður,
nema þá af landsleikjum Islands
og Belgiu, sagðí Ásgeir.
Yfirburðir
Sovétmanna
SOVÉTMENN tóku Norðmenn f
kennslustund í knattspyrnu i
Moskvu f fyrrakvöld og sendu
frændur okkar Norðmenn heim
með 4:0 á bakinu. Það var þó ekki
fyrr en i síðar' hálfleiknum, sem
Rússarnir fóru af stað, þvi i leik-
hléi hafði ekkert mark verið skor-
að. Sovétmenn voru þegar fyrir
leikinn öruggir um að komast áfr-
am i Ólympiukeppninni i knatt-
spyrnu. Þeir höfðu unnið fsland
1:0 og 2:0 og Norðmenn 3:1. Var
þetta síðasti leikurinn i þeim riðli,
sem þessi þrjú lönd skipuðu. Sov-
étmenn hlutu fullt hús stiga eða
8. Norðmenn fengu 3 stig og ís-
lendingar 1.
Belgar
og A-Þjóðverjar
mœtast
um helgina
ÍSLENZKU atvinnumennirnir í
knattspyrnu i Belgíu fá fri frá leikj-
um um næstu helgi, þvi þá fer
fram landsleikur á milli Belga og
A-Þjóðverja og verður leikið f Bel-
glu. Með sigri í þeim leik eru
Belgarnir endanlega öruggir um
sigur i riðlinum og jafntefli dugar
þeim sennilega til sigurs í riðlin-
um. Þessi tvö iið léku ásamt fs-
lendingum og Frökkum i ríðli i
forkeppni Evrópukeppninnar. ís-
land tapaði 0:2 og 0:1 fyrir Belg-
um, en gerðu jafntefli og vann
A-Þjóðverjana, 1:1 og 2:1. Mikill
áhugi er fyrir landsleik A-
Þjóðverja og Belga i Belgíu og
búist við mun fleiri áhorfendum á
völlinni en sáu leik fslendinganna
við Belga um daginn. Ekki var
búið að tilkynna belgíska liðið t
gær, en búist var við að það yrði
skipað sömu leikmönnum og
mættu islenzka liðinu.
Guðgeir
meiddist
GUÐGEIR Leifsson meiddist i sið-
asta leik Charlesroi i belgísku 1.
deildinni á laugardaginn var. Varð
Guðgeir að yfirgefa völlinn i siðari
hálfleiknum. Sem betur fer reynd-
ust meiðslin þó ekki eins mikil og
óttast hafði verið og verður hann
meðal leikmanna Charlesroi á
laugardaginn. f viðtali við Morg-
unblaðið t gær sagði Guðgeir að
það væri mönnum óskiljanlegt
hvers vegna gengi eins illa og
raun bæri vitni, en Charlesroi er
aðeins með eitt stig að 7 leikjum
loknum. — Það er allt gert fyrir
mannskapinn og ég er hræddur
um að við töpum næsta heimaleik
okkar. sem er á miðvikudaginn i
næstu viku, og þá verði fram-
kvæmdastjóranum sparkað.