Morgunblaðið - 26.09.1975, Síða 40
l/YSINC.ASÍMJNN ER:
22480
au(ílysin(;asiminn er:
22480
JRor0t(t»bI«t>i5>
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1975
Einar ræðir við
Genscher í dag
Hefur átt viðræður við
utanríkisráðherra Hollands
EINAR Agústsson utanríkisráð-
herra mun f dag eiga viðræður við
Hans Dietrich Gencher, utanrfk-
isráðherra Vestur-Þjóðverja, f
aðalstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í New York, en ráðherrarnir
eru þar á ailsherjarþingi samtak-
anna. Með Einari munu sitja
fundinn þeir Hans G. Andersen
sendiherra og Hörður Helgason,
skrifstofustjóri. Umræðuefnið
verður deila landanna vegna fisk-
veiðilögsögu Islands og fyrirhug-
uð útfærsla f 200 sjómflur.
Einar Ágústsson sagði í viðtali
við Morgunblaðið i gær að hann
hefði í fyrradag átt viðræður við
utanríkisráðherra Hollendinga,
van der Stoel, en fundurinn var
haldinn að ósk Hollendinga. Ráð-
'herrarnir ræddu öryggismálaráð-
stefnuna f Helsinki og árangur
hennar og samstarfið innan Atl-
antshafsbandalagsins. Þá voru
einnig rædd fiskveiðilögsögumál
og sagði Einar að hollenzki ráð-
herrann hefði svo sem aðrir lýst
skilningi á sérstöðu Islands, en
jafnframt lét hann í ljós ótta um
að einhliða útfærsla íslendinga
gæti skemmt árangur hafréttar-
ráðstefnunnar. Einar sagðist hafa
vísað því á bug, en að öðru leyti
Framhald á bls. 22
Vinnuslys í Þorlákshöfn:
Hnífur stakkst
í bak á stúlku
ÞAÐ SLYS henti f frystihúsi
Meitilsins f Þorlákshöfn í sfðustu
viku að flökunarhnffur stakkst f
bak ungrar stúlku, smaug á milli
rifja og f Iungu stúlkunnar. Var
Bíða síldar-
leitarveðurs
við Eyjar
„Það er kaldaskítur hérna
núna og ekkert hægt að at-
hafna sig við síldarleit,“ sagði
Sveinn Sveinbjörnsson fiski-
fræðingur í talstöðvarsamtali
við Morgunblaðið í gær, en
hann var þá um borð i Árna
Friðrikssyni við Þrfdranga í
Vestmannaeyjum. „Við bíðum
eftir betra veðri,“ hélt Sveinn
áfram, „þá munum við kanna
svæðið vestur og suðvestur af.
Surtsey, en nú er ekkert að
gera nema bíða og sjá til.“
hún þegar flutt f Borgarspítal-
ann, en er nú á batavegi.
Slysið varð með þeim hætti að
nokkrar stúlkur f pökkunarsal
voru að fara í hvfldarhlé. Ein
þeirra hélt á flökunarhnff og
sneri sér skyndilega við með
hann og stakkst hnffurinn með
fyrrgreindum afleiðingum f aðra
stúlku sem var að fara úr vinnu-
stakk sfnum.
Ljósmynd Mbl. Árni G. Jórgensen.
RÖLEGIIEIT 1 MIÐBÆNUM — Vegfarendur f Miðbænum nota
mikið aðstöðuna í skrúðgarðinum hjá Skúla fógeta við Aðalstræti og
oft má sjá fólk sitja þar á bekkjum í rólegheitum og velta fyrir sér
mannlífinir í kring. Þarna á bekknum situr gamalkunnur Reyk-
víkingur, Svavar Hjaltested, og nýtur góðviðrisins.
Hriðarveð-
ur á
gangna-
mönnum
Mælifelli, 25. sept.
I MORGUN var réttað i Stafni, en
féð kom þar að í gærkvöldi er
hrossarétt lauk á miðaftni.
Gangnamenn í Vestflokki lögðu
upp á sunnudag úr Svartárdal og
Vesturdal og gistu í nýjum og
veglegum skála á Skiptabakka
þar sem nóg rúm var fyrir 26
menn en Austflokkur gisti þar
einnig þessa nótt en hina næstu f
byggð og var fé úr þeim göngum
réttað í Mælifellsrétt i gær. Á
mánudag var illvirði uppi við
Hofsjökul og slarksamt allan dag-
inn vestur að Kofa á Áfangaflá
við Ströngukvfsl, ýmist haglél eða
dynjandi rigning. Á þriðjudag var
suðaustan strekkingur og skaf-
renningur af jöklinum, þó ekki
ófærð, alla leið út í Buga. Þar var
siðasti náttstaðar okkar, en Vest-
urheiðarmanna við Galtará. Snjór
reyndist lítill þar fyrir utan, en
jeppavegurinn um Litlasand og
Gilhagasand var ófær á þriðjudag
og Kiðaskarð sem er réttarvegur
Skagfirðinga að Stafnsrétt var
erfitt yfirferðar í gær vegna
snjóalaga. Þótt illa viðraði í þess-
um göngum var gangnaveðrið
skárra en í fyrra. Björn Egilsson á
Sveinsstöðum sem nú minntist
þess að Iiðin eru 60 ár frá því
hann fór fyrst í göngur sagði að
álíka veður hefði verið í göngum
1916, ’23, ’29, '34 og ’43, þótt út
yfir hefði tekið 1963 er göngum
var alls ekki skipt á þessum slóð-
um en kapp lagt á að koma mönn-
um og hestum í skjól. Á 60 árum
hafa því verið a.m.k. 8 óverðurs-
göngur, eða um það bil 7. hvert
haust.
— Séra Agúst.
Síldarsamningarnir í Moskvu:
Miðað við 20 þús. tirnn-
ur af heilsaltaðri síld
Verðákvörðun strandaði í gær á nýjum kröfum Sovétmanna
UM KL. 1 f nótt að staðar-
tíma í Moskvu náðum við
símasambandi við íslenzku
samninganefndina sem er
að semja við Sovétmenn
um sölu á saltaðri sfld frá
Lagarfljótsvirkjun vígð:
„Upphafið að fjarstýringu alls
raforkukerfis Austurlands”
Sparar 313 millj. kr. á ári miðað við diselvélar
Egilsstödum í gærkvöldi frá Þórleifi ólafs-
syni blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÞETTA er Gunnar Thoroddsen,“
orkumálaráðherra. Ég bið ykkur
um að setja vélar Lagarfljóts-
virkjunar f gang.“ Með þessum
orðum var virkjun f fyrsta skipti
á Islandi sett f gang án þess að
nokkur sæist nálægur stjórntækj-
unum, en vélar Lagarfljótsvirkj-
unar voru settar í gang frá Grfms-
árvirkjun þaðan sem á að fjar-
stýra virkjuninni og var það Erl-
ing Garðar Jónasson rafveitu-
stjóri Austurlands, sem gangsetti
vélarnar. Og eins og Valgarð
Thoroddsen rafmagnsveitustjóri
ríkisins sagði: „Þetta er upphafið
að fjarstýringu alls raforkukerfis
Austurlands."
Það var haustið 1966 sem fyrir
alvöru var farið að ræða um virkj-
un við Lagarfoss. Árið 1971 var
siðan samþykkt að þar skyldi gerð
virkjun. Frá þeim tíma hefur ver-
ið unnið að framkvæmdum við
virkjunina sem átti upphaflega að
vera tilbúin í sept. 1974, eða fyrir
ári síðan, en seinkun varð um eitt
ár af ýmsum orsökum, m.a. vegna
seinkunar á afgreiðslu vélahluta
frá framleiðendum sem eru
Skoda Export i Tékkóslóvakíu.
Kostnaður vegna virkjunarinn-
ar, sem er 7 megavött miðað við
núverandi aðstæður, er nú 860
milljónir kr. og árlegur kostnað-
ur, aðallega vegna fjármagns-
kostnaðar, er um 112 millj. jcr á
ári.
Framleiðsla virkjunarinnar er
talin geta numið 50 MW árlega.
Ef notaðar eru dieselvélar myndi
kostnaðurinn við rekstur þeirra
nema 425 millj. kr á ári. Þannig
reiknað sparar virkjunin 313
millj. kr. á ári.
Þess má geta að árið 1966 voru
aðeins 34% Austurlands rafvædd
miðað við 84% á Suðurlandi, en
nú er talið að 90% húsa á Austur-
landi séu rafvædd.
íslandi. Gunnar Flovenz
tjáði Mbl. að samningar
hefðu ekki náðst ennþá um
verð fyrir síldina, en búið
var að ákveða magnið sem
miðað skyldi við og eru það
20 þús. tunnur af heilsalt-
aðri slld.
„Það er verið að bjóða
hér síld frá ýmsum lönd-
um,“ sagði Gunnar, „á
verði sem við viljum ekki
líta við, til dæmis síld frá
Noregi, Skotlandi, írlandi,
Kanada og fleiri löndum,
en i stuttu máli er ekki
komið samkomulag hjá
okkur ennþá. Við höfðum
gert okkur vonir um að
samkomulag myndi nást á
síðdegisfundi í dag, en þá
komu fram nýjar kröfur
frá Sovétmönnum sem við
vildum ekki ganga að. Mál-
in eru því í strandi í bili, en
samningafundir verða
áfram á morgun.“
„Er rætt um ákveðið
magn síldar?“
„Já, það er talað um
ákveðið magn. Við leggjum
megináherzlu á það í samn-
ingum í þessu landi að ná
samningum um heilsaltaða
síld og það gerum við með
tilliti til þess að geta nýtt
allt sem á land berst ef
saltað kynni að verða um
borð í bátunum. Það hefur
verið ákveðið að semja um
þá tegund eingöngu og
magnið sem við erum að
semja um er 20 þús. tunn-
ur af heilsaltaðri síld.“
Þegar við ræddum við
Gunnar var hann á fundi
ásamt öðrum samninga-
mönnum við útreikninga
og umræður um möguleika
í þessum efnum, en Gunn-
ar kvað íslenzka sendiráðið
í Moskvu hafa verið mjög
hjálplegt í þessum samn-
ingum að vanda og væri sú
aðstoð til fyrirmyndar.