Morgunblaðið - 09.11.1975, Síða 11

Morgunblaðið - 09.11.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975 11 Þú geturhjálpað Kristniboðsdagurinn er í dag 1 RÚMLEGA 20 ár hefur verið rekið kristniboð f Eþfópfu og f dag minnast Islendingar þess, á kristniboðsdaginn. Sex hjón hafa starfað þar úti ásamt nokkrum hjúkrunarkonum fslenzkum og erlendum. Samband fslenzkra kristniboðsfélaga hefur rekið þetta starf f samvinnu við Norska lútherska kristniboðssambandið, en það hefur á þriðja hundrað kristniboða f sinni þjónustu þar. Konsó heitir héraðið, sem Is- lendingum var úthlutað til starfs á og er þar nú sjúkraskýli, kirkja, lestrarskólar, biblíuskóli og barnaskóli með 360 nemendum, þar af yfir 100 á heimavist. Á kristniboðsstöðinni í Konsó eru alls um 17 byggingar, svo það lætur nærri að þarna sé um heilt þorp að ræða. Hvað gera kristniboðar? 1) Þeir boða þessum Afrikubú- um kristna trú. Það er öllum ljóst sem hafa kynnst þessu fólki, að það er ekki sælt í sinni trú, eins og margir hafa haldið fram. Krist- in trú er það eina sem færir þessu fólki sálarfrið, annars lifir það I stöðugum ótta. Það er sífellt að fórna einhverju af eigum sínum og uppskeru til að blfðka illu and- ana. Þess vegna er kristin trú lausn frá þessum mikla ótta, hún gerir ekki kröfur um slíkar fórn- ir, hún boðar kærleika og umhyggju Guðs sem birtist i verki Jesú Krists. 2) Þeir kenna. Ýmsir skólar eru reknir af kristniboðinu, eins og áður sagði. Barnaskólar efla al- menna menntun og má nefna að ungur Eþíópi hefur tekið við stjórn skólans f Konsó; sérskólar eru og til, sem eru undirstaða framfara í ræktunar- og búskaparmálum, en fáfræði er mikil á þeim sviðum. Þá eru rekn- ir biblíuskólar en nemendur þeirra verða margir nýtir starfs- menn safnaðanna. Slíkur bíbliu- skóli er í fyrsta sinn i vetur I Konsó. 3) Þeir lækna. Sjúkdómar vaða uppi og stráfella fólk á öllum aldri. Fáfræði og hleypidómar eru gífurlegir í þessum efnum. Óhætt er að fullyrða að fieiri hundruð jafnvel þúsund manns- lífum hefur verið bjargað fyrir læknisstörf kristniboðsins. Á síð- asta ári leituðu t.d. yfir 25 þúsund manns hjálpar á sjúkraskýlinu i Konsó. Þróunarhjálp? Við Islendingar erum oft að tala um þróunarhjálp og veitum reyndar nokkra slíka aðstoð og kemur sú hjálp frá ríkinu. Kristniboð er ekki eingöngu þróunarhjálp. Þróunarhjálp hugsar aðeins um líkamlega vel- ferð mannsins, kristniboð hugsar einnig um andlega velferð hans. Kristniboðanum er annt um manninn allan. Samband fsl. kristniboðsfélaga er ekki ríkisstyrkt en samt hefur það tekið að sér verkefni í Eþíópíu fyrir um 9 milljónir á þessu ári. Að auki taka Eþíópar sjálfir að sér að greiða hluta starfsins. Þessar milljónir frá Is- landi koma af frjálsum framlög- um stuðningsmanna kristniboðs- ins. Þeir þyrftu að vera fleiri og þvi er bent á að tekið verður við framlögum i flestum kirkjum i dag og samkomum sem S.Í.K stendur fyrir. Einnig má leggja inn á gíróreikning S.Í.K. númer 65100. J.T. Þrenn fslenzk kristniboðahjón ásamt börnum sfnum og nokkrum Eþíópum. I baksýn er kirkjan kristniboðsstöðinni f Konsó. (Ljósm. Árni Johnsen) Nýr áfangi á Kanarí blómaeyjan Tenerife Reynsla okkar af óskum íslendinga undanfarin 5 ár og sá frábæri árangur sem náöst hefur í Kanarí- eyjaferöum okkar, er það sem nú hvetur okkur til aö færa enn út kvíarnar. Viö höfum nú skipulagt feröir til blómaeyjunnar Tenerife, sem af mörgum er talin fegurst Kanarí- eyja, en hún er granneyja Gran Canaria, þar sem þúsundir íslendinga hafa notið hvíldar og hressing- ar á undanförnum árum. í vetur veröa farnar 7 feröir til Tenerife. Hin fyrsta 14. desember en hin síðasta 4. apríl og er hún jafnframt páskaferö. Dvalið veröur i íbúöum og á þriggja og fjögurra stjörnu hótelum og veröiö i tvær vikur er frá 47.900 krónum, sem er þaö hagstæðasta sem býöst. Sért þú aö hugsa um sólarferð í skammdeginu, þá snúöu þér til okkar. ^vcféi^c LOFTLEIDIR ISLANDS Fyrstir með skipulagðar sóiarferðir i skammdeginu MORGUNBLAÐINU hafa borizt Námsmenn for- dæma lána- kjaraskerðingu tvær nýjar mótmælaályktanir frá samtökum íslenzkra námsmanna erlendis vegna lánakjaraskerð- ingarinnar. I ályktun Islendinga- félagsins í Árósum frá 31. október er enn ítrekað fordæming á að- gerðum rikisstjórnarinnar, sem lýsi algerri fyrirlitningu á lífs- hagsmunum námsmanna. Langt- um stærst sé þó ósvífni stjórnar- innar í nýframlögðu fjárlaga- frumvarpi, þar sem 50% skerð- ingu námslána er hótað (miðað við 84% umframfjárþarfar og úrelt mat á fjárþörf). Bein afleiðing af aðferðum stjórnar- innar sé að námsmenn séu nú þegar teknir að hrekjast heim frá námi ásamt fjölskyldum sínum. Fagnað er stuðningi verkalýðs- hreyfingarinnar við málsstað námsmanna, og hvatt til baráttu gegn kjaraskerðingunni. I álykt- un frá íslenzkum námsmönnum i Gautaborg er kjaraskerðingin for- dæmd, þar eð hún hafi það i för með sér, að námsmenn svelti og stúdentar efnalitilla foreldra verði að hætta námi samstundis. Er þess krafizt að staðið verði við gömul loforð og námslán greidd að fullu. ilttllllllB Hlllllllllðllllll ■ ■ I —-------------

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.