Morgunblaðið - 09.11.1975, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.11.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975 23 Sveinn Benediktsson: Markaðshorfur á fiskimjöli og lýsi HÉR fer á eftir grein eft- ir Svein Benediktsson um markaðshorfur á fiskimjöli og dýsi, sem birtist i nýútkomnu dreifibréfi Félags ísl. fiskmjölsframleiðenda: Aflabrestur í Peru Úr Dreifibréfi Félags fsl. fiskmjöls framleiðenda nr. 11/1975, Mánudaginn 27. okt. sl. bárust fréttir til landsins um það, að fiskmjölseinkasalan i Perú, EPCHAP, hefði tilkynnt, að þeir gætu ekki staðið við fyrirframgerða samninga um afhendingu á fiskmjöli i okt. nóv. og des. 1975 vegna afla- brests. Þessa tilkynningu hafði EPCHAP sent kaupendum fisk- mjölsins hinn 24. okt. s.l. Vakti hún að vonum mikil vonbrigði og óánægju hjá kaupendunum sökum þess að mjög takmark- aðar birgðir voru fyrir hendi í hinum ýmsu framleiðslulönd- um og búast mætti við hækkun, ef ansjóvetuveiðarnar við Perú brygðust hrapallega, eins og nú er komið á daginn. Er líklegt, að veruleg hækkun verði á fisk- mjöli, þótt hún kæmist ekki í hálfkvisti við það verð, sem var á fiskmjöli 1972/73 Undir lok maímánaðar 1975 stöðvuðu Perúmenn ansjóvetu- veiðar sfnar. Var það gert fyrr en ella vegna þess að aflinn var mjög blandaður smærri ansjóvetu. Höfðu þeir þá veitt rúmlega 2,5 milljón tonna. Hugðust Perúmenn hefja veiðarnar aftur f september- mánuðí og veiða þá magn, sem svaraði því, að heildarfram- leiðslan á árinu næmi 1.200.000 tonnum af fiskmjöli. Gerðu þeir út rannsóknar- leiðangur sem þeir nefna Evreka. Þau skip, sem hófu þessar tilraunaveiðar í septem- ber, veiddu svo lítið að ákveðið var að fresta frekari veiðitil- raunum fram f október. Þegar EPCHAP hafði til- kynnt kaupendum fiskmjölsins afgreiðslufrestinn á fyrirfram seldu mjöli í 60 daga, sendu þeir kaupendum skýringar á því, hvers vegna þeim hafði ekki verið unnt að standa við gjörða samninga, og eru þær skýringar í aðalatriðum þessar: Segjast þeir vona, að kaupendur skilji það öngþveiti sem skapast hafi, og hjálpi þeim til þess að leysa vandann. Veiði og framleiðsla frá 6. okt. 1975 er þessi: Afli Mjölframleiðsla 6. okt. enginn 7. okt. enginn 8. okt. 144 tonn 32 tonn 9. okt. enginn 13. okt. 1.250 tonn 275 tonn 14. okt. 525 tonn 116 tonn 15. okt. 10.245 tonn 2.254 tonn 16. okt. 2.719 tonn 595 tonn 20. okt. 3.539 tonn 788 tonn 21. okt. 630 tónn 139 tonn 22. okt. 1.835 tonn 404 tonn 23. okt. 2.705 tonn 595 tonn AIIs: 23.592 tonn 5.198 tonn mjöl Lýsisframleiðsla Birgðir og sala fram til 31. okt. 1975. Birgðir 31. okt. 1975 Skuldbindingar í nóv. Innanlandsnotkun í nóv. 1975 75 Vantar til að uppfylla samninga 30. nóv Skuldbindingar í des. 1975 Innanlandsnotkun í des. 1975 Vantar til aðuppfylla samninga 31. des ’75 1.000 tonn lýsi eða minna. 36.000 tonn 69.000 tonn 12.000 tonn 45.000 tonn 40.000 tonn 12.000 tonn 97.000 tonn Þessar tölur pru áætlaðar og miðaðar við þaÖ að engin veiði verði f nóv./des., þannig að yrði einhver fiskmjölsframleiðsla þessa mánuði lækkar þessi tala. Ennfremur byggjast þessar töl- ur á því, að þeir geti afskipað allri fiskmjölsframleiðslunni. Þetta er hinsvegar ófram- kvæmanlegt, þar sem fram- leiðslan skiptist á margar smá- hafnir. Auk þess gengi úr skaptinu mjöl, sem af efna- fræðilegum ástæðum upp- fyllti ekki samningana. Hið framangreinda magn er bæði laust mjöl og mjöl i pokum, segir EPCHAP. Hvenær verður unnt að byrja að nýju veiðar f Perú til fiskmjölsframleiðslu? Svo virðist — við leggjum áherzlu á orðið „virðist", segir EPCHAP, að unnt verði að hefja aftur veiðar í stærri stfl svo ekki verði lengur um til- raunaveiði að ræða. Gæti þetta orðið í síðari hluta nóvem- bermánaðar, en vegna sérstaks ástands sjávarins er ómögulegt að hafa um þetta ákveðna skoð- un, en sjávarhiti hefur verið 2°C undir meðalhitastigi und- anfarnar vikur og verður mjög óhagstætt til veiða. EPCHAP hefur, að þeirra sögn, alltaf haft bað að markmiði að selja einungis þá framleiðslu, sem þegar hefur verið framleidd. Hins vegar eins og venjulegt er í þessari atvinnugrein hefur EPCHAP tekið nokkra áhættu og selt takmarkað magn fyrir- fram, sem nú hefur reynst vera of mikið, þar sem veiðarnar hafa brugðist. „Við höfum alltaf haft í huga“, segir EPCHAP, „ að varast það sem skeði 1972/1973“. En veiðarnar brugðust algjörlega í apríl- mánuði 1972 og fram á næsta ár. Það varð Ijóst, að þegar EPCHAP gerði áætlun um mjölsölu á þessu ári, að þá var reiknað með því, að veiðin byrjaði í septembermánuði, en þegar veiðarnar brugðust í september og október, þá þýddi það seinkun á afhendingu um tvo mánuði. Perúmenn höfðu gert ráð fyr- ir að veiða á síðasta árs- fjórðungi 1975 magn sem svaraði til 600 þús. tonna af fiskmjöli. Aflabresturinn i Perú leiddi til mjög aukinnar eftirspurnar á fiskmjöli í fyrstu og hærra verðs, en þegar kom fram í þessa viku, er byrjaði 2. nóv., kom nokkur afturkippur i fisk- mjölsverðið. Þó hefur tekist að selja fyrirfram nú i dag til UK 1.200 tonn af loðnumjöli á £2.08 per proteineiningu í tonni cif, er svarar til US$ 4.30. Protein skal greiðast upp i 70% og mjöl- inu afskipað i febr/marz 1976. Salan er gjörð með fyrirvara um framleiðslu Verðhorfur virðast nú hag- stæðari á fiskmjöli en þær voru fyrir Perúfréttirnar siðustu. Verðlag er þó enn mjög óstöð- ugt og hörð samkeppni frá soja- baunamjöli og ýmsum kornvör- um. Lýsi Lýsisverð hefur farið hægt Framhald á bls. 26 Þessar glæsilegu íbúðir eru við Engjasel og afhendast fullbúnar í des. 1976. Sameign verður fullfrágengin m.a. ræktuð lóð. Hlutdeild í bílskýli fylgir hverri íbúð. STÆRÐ OG FRÁGANGUR: Stærð: 4ra og 5 herb. íbúðir frá 105 til 137 ferm. íbúðirnar verða fullgerðar m. innréttingum og hreinlætistækjum. Dúkar á eldhúsgólfi og baði. Sameign verður fullfrágengin m.a. teppalagðir stigagangar og ræktuð lóð. Sér geymsla í kjallara fylgir hverri íbúð. Fullbúin íbúð byggð af ’f.. ,í*‘íf * m-» ■. i . h.jðn -nfcrb. hn^o. 15 U—* rH 785 15 bi.ð -» -1J -1 ^ ™ -bat 'f 401Tii f" ir] •—3 oluilúo *|2 f t , ^ i rSíhi h f irr 4iftif.fl, 4 r«f J :i^ ■- h. i’b. iici’b. • hj . . . 795 ’ T 2 1 * • * U' !L4 ' ' s: i j' y*’ sömu aðilum verður til sýnis frá kl. 1—6 I jl þessa viku Greiðslukjör, byggingaráætlun o.fl.: Bygging íbúðanna er hafin og er áætlað að húsið verði fokhelt í apríl n.k. Greiðslur fara fram eftir byggingarstigi og mega dreifast á 1 Vi ár. Auk þess lána seljendur 1 millj. — 1 200 þús til 2!/2 árs. Beðið verður eftir húsnæðismálastjórnarláni sem verður væntanlega kr. 1.700.000.00. Athugið: ii" IttfttU % & t' r 1 . > jf t ‘ J 4 Arkitekt: Karl Erick Rocksen Byggjendur: Borgarsteinn s/f Söluaðili: Eignamiðlunin, Vonarstræti 12, sími 27711 1) Aðeins 6 íbúðir eru eftir 2) Fast verð er á íbúðunum 3) Sérstök greiðslukjör m.a. lán seljenda 4) Hér er aðeins um nokkrar íbúðir að ræða 5) Teikningar og frekari uppiýsingar á skrifstofunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.