Morgunblaðið - 09.11.1975, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.11.1975, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975 Nýjar barnabækur Pöntunarseðill til BJÖLLUNNAR s.f., Pósthólf 7024, Reykjavík. Sími 3211 7. BJÖLLUBÆKURNAR og ALFRÆÐI BARNANNA sam- eina bestu kosti barnabóka: fræðandi og skemmtilegur texti ásamt góðum skýringarrr.yndum i litum. ALFRÆÐI BARNANNA: 1. Forsöguleg dýr 2 Tölur og hlutföll 3. í fjöruborðinu 4. Úr heimi skordýranna 5. Vatnið 6. Blómjurtir BJÖLLUBÆKUR. 1 Manrtslíkaminn / 2. Geimferðir 3 Merkar uppfinngar 4. Næturhiminninn 5. Bíllinn 6 Ljós, speglar, linsur Nafn ..................... Heimilisfang .............. .................................Sími Sendist í póstkröfu ................... Hjálagt (kr.) ......................... BJALLAN SF • Sími 3211 7 b allan p6STHÓLF 7024 ■ REYKJAVÍK eint. (kr 600,-eint.) eint. (kr 600,-eint.) eint (kr 600,-eint.) eint. (kr 600,-eint ) eint. (kr 600,-eint.) eint. (kr 600,-eint.) eint. (kr 420,-eint.) eint. (kr 420,-eint.) eint. (kr 420,-eint ) eint. (kr. 420,-eint.) eint. (kr 420,-eint ) eint. (kr 420,-eint) Euaenio Montale 9 Sjötíu og nfu ára að aldri er Eugenio Montale, hið nýja Nðbelsskáld, hliðvörður ftalskra bókmennta. Hann hefur byggt áfram á grunni málhefðar Dantes' og skapað sér jafnframt einstæðan stfl í ftalskri Ijððagerð. En þar eð flest af merkustu verkum hans komu fram á þriðja og fjðrða áratug aldarinnar kom þetta val sænsku akademfunnar á ðvart og þótti sumum það koma of seint og öðrum að nær hefði verið að veita verðlaunin virkum nútfmahöfundi. Þessar deilur urðu ekki sízt f heimalandi Montales. Montale lifir sjálfur friðsömu, fábreyttu Iífi og býr einn í Milanó, þar sem hann sendir öðru hvoru frá sér bókmenntaumsagnir fyrir blaðið Corriere della Sera. Hér fer á eftir úrdráttur úr grein um hinn nýja Nóbelshöfund og list hans eftir Domenico Ghio, en greinin birtist í Hufvudstadsbladet í Helsinki. — líf í lióðum Eugenio Montale er ekki auð- velt skáld. Bezta og líklega einnig auðveldasta leiðin til að kynnast honum er að lesa „Far- falla di Dinard" („Friðrildi Dinards"), safn prosatexta sem hann gaf fyrst út sem blaða- greinar en voru síðan gefnir út á bók árið 1956 í eins konar sjálfsævisöguformi. 1 þessu verki fjallar hann úr fjarlægð, með hugarró og elskulegu háði um mikilsverðustu atburði lífs síns fram að þessu. Þar birtist barnæska hans í Genova, áhrif hins lígúrska landslags sem áttu eftir að dýpkast og verða leiðandi ljóð- myndir í verkum hans, tími tón- listanáms til óperusöngs (bary- tons), vinir, ást til eiginkon- unnar, bókavarðarstarfið í Flórens og þeir erfiðleikar sem mættu honum er hann neitaði að láta innritast í fasistaflokk- inn, ýmsar minningar og lýsing- ar frá ferðalögum, ásamt ýms- um litlum hversdagsatvikum sem öðlast táknrænt gildi og vakna til lífsins fyrir tilstilli ljóðrænna töfra. Þegar við les- um þessa bók birtist okkur mynd af persónuleika sem and- spænis vandamálum og svipt- ingum lífsins tekst að halda ró sinni og hlédrægni, án öfga- fengins ákafa eða beizkju, manns sem með hjálp kímni sættir sig við málefni og at- burði og tekst að halda sinni sálarró. 0 Frumraunin 1925 En Montale Iifir framar öllu í ljóðum sínum. Það er því nauð- synlegt að leita beint til ljóða hans til að fá hugmynd um frumleika hans og mikilvægi. Fyrstu Ijóð hans voru birt í bókmenntatfmaritinu „Primo Tempo“ árið 1922, en fyrsta Ijóðasafnið kom út 1925. Það hét „Ossi de Seppia“ (,,Kolkrabbabein“). I þessu fyrsta ljóðasafni er það fyrst og fremst ljóðmálið sem vekur athygli, — það er jafn ólfkt tilraunum á þessum tíma í þá átt að brjóta ljóðin upp og viðleitni annarra við að snúa aftur til hinna klassísku ljóðforma. Þetta ljóðmál er ná- kvæmt og raunsætt og tónninn er lágtstemmdur, næstum því rökræðukenndur, hrynjandin er kraftmikil og ljóðið rímað af miklum þunga. Myndirnar eru oft landslag bernskunnar í Genóva, bæði hrjóstrugleiki þess og fegurð. En í þessu verki, eins og í öllum sönnum ljóðum, er málið og landslags- lýsingarnar aðeins verkfæri skáldsins til að tjá sinn innra heim og sína lífsskynjun. Þar afhjúpast tilfinning Montales fyrir „hinu illa i lífinu" og stó- ískt andóf gegn andvaralausri trúgirni, — manneskjan er fangi þeirra afla sem ákvarða lífsskilyrði hennar en merk- ingu þeirra afla skilur hún ekki. Hún er dæmd til ósigurs, — skák og mát. Ekki einu sinni ljóðlistin getur visað henni braut út úr þessum ógöngum. Þessi neikvæða afstaða birtist í tákngerðum myndum umhverf- isins og náttúrunnar. 0 Raunveruleikinn talar eigin máli Montale kollvarpar þarna hinu hefðbundna hlutverki skáldsins sem leiðarljóss mann- kynsins. Hann býður einungis þeim sem eru svipaðs sinnis að staðfesta að svona er okkar veruleiki; hann veigrar sér við að gefa sjálfum sér eða öðrum tálvonir eða blekkingar. Raun- veruleiki okkar talar eigin máli. I öðru ljóðasafni sínu „Le Occasioni" („Tilvikin") sem út kom árið 1939 víkkar og dýpkar Montale Ijóðmyndaforða sinn. Við hinar raunsæilegu myndir bætast nú minni málefna og atburða. Og þannig fá tilvísanir til steina, þurra trjágreina eða glerbrota sem áður höfðu staðið sem tákn eyðingarafla náttúr- unnar, að víkja hér fyrir víð- áttumiklu innra landslagi sem ekki er síður erfitt yfirferðar og viðsjárvert. Innlíf skáldsins mótast af óendanlegum fjölda af hinum ýmsu tilvikum lifsins, — hlutum og fólki. Þetta er heimur sem er viðlíka and- stæðumikill og hrjóstrugur og klettarnir, steinarnir og troðn- ingarnir seni hann virti fyrir sér i Lígúríu. 0 Þörfin fyrir tákn Eins og fram kemur I fyrstu ljóðabók Montales finnur hann enga hughreystingu i ljóðlist- inni. Hann vill ekki gefa sig tilfinningasemi á vald og hann lokar sig inni í sinni einstakl- ingsbundnu reynslu, sem hann svo tjáir á jafn tilluktan, hermetískan hátt. Þetta er or- sök þess hversu erfitt er að lesa og túlka ljóð hans. En Montale sjálfur kemur með eftirfarandi skýringu: „Enginn ætti að skrifa ljóð um vanda Ijóðlist- arinnar við að gera sig skiljan- lega. Vandinn er að gera það skiljanlegt sem orðin sjálf ná ekki.“ Af þessu leiðir þörfin fyrir tákn og tilhneigingin til að veita málefnum og atburð- um háspekilegt gildi. Þetta er grundvallareinkenni sem sést aftur I ljóðabókinni „La Bufera ed Altro“ („Óveðrið og annað“) frá árinu 1956. Þar dýpkar Montale enn ljóðmyndunarsafn sitt. Þar kemur m.a. fram að Montale á til að verða fyrir ásókn hug- mynda um tilvist hins ójarð- neska, en um leið hafnar öllum trúarbrögðum og staðfestir að verulegu leyti þá skynjun um örlög sem dauðinn bindur loks endi á. I öðrum köflum bókar- innar eru tilvísanir í ákveðna sögulega atburði, en þær eru aðeins leiddar fram sem vitnis- burður um „hið illa í lífinu". Átök og læti ítalsks þjóðllfs síð- ustu áratugi hafa hins vegar ekki fundið mikinn hljóm- grunn hjá Montale. Hann herðir aðeins hina neikvæðu lífssýn, þar sem Iífsskilyrði manneskjunnar eru hvorki ákveðin af ákveðnum söguleg- um atburðum né heldur geta menn komizt undan þeim með hjálp einhverra trúarbragða. £ Minningin um eiginkonuna Með þessum hætti skilur Montale sig frá hinni allt of einföldu bjartsýni tæknialdar- innar á sama hátt og hann hafði áður staðið utan við ofboðs- legan orðaflaum ljóðskálda þeirra daga. Ljóð hans veita ekki mikið svigrúm fyrir bjart- sýni. Þetta var ítrekað I síðustu ljóðabók Montales „Satura" sem út kom 1971. Tónninn í þessum ljóðum er léttari og ekki jafn spenntur og áður og Ijóðmyndir eru fjölbreyttari. Bókin er I tveimur hlutum, — „Xenia“ sem I eru ljóð ort til látinnar eiginkonu skáldsins, og „Satura“, þar sem ort er um ýmis efni. I fyrri hlutanum gæt- ir ekki neins sársauka gagnvart dauðanum. Montale upplifir í þessum Ijóðum ógleymanlegar stundir á ný, atburði sem virðast vera léttvægir en sem lýsa upp ákveðna hugsun eða llfsaðstöðu. I öðrum hluta bókarinnar þekkjum við á ný skáldið eins og það er vant að vera, auk þess sem ort er um ný efni. Montale er einnig hugsuður, — hann hefur eigin viðhorf um mann- leg vandamál og tjáir þau í hugsanaleiftrum sem þvinga okkur til að íhuga málið. I sumum ljóðanna birtir hann minningar, I öðrum er hann háðskur, — sem ekki er algengt I skáldskap hans. % Heimurinn skoðaður úr fjarska Arið 1966 var Montale út-' nefndur öldungadeildarþing- maður ævilangt. I síðustu ljóð- um sínum er hann enn sem fyrr yfirvegaður og lætur ekki vit- undina um nálægð dauðans hræða sig eða ljótleika mann- lífsins og vonleysi trufla hinar flngerðu stundir ljóðagerðar sinnar. Margir hafa sakað Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.