Morgunblaðið - 13.02.1976, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.02.1976, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1976 Umræður á Alþingi: Niðurfelling söluskatts á brennsluolíu skipa — með eða án tekjutaps ríkissjóðs FRUMVARP um gjald á gas- og ' brennsluolfur var afgreitt frá neðri deild til efri deildar 1 gær. Ólafur G. Einarsson (S) gerði grein fyrir afstöðu fjárhags- og viðskiptanefndar deildarinnar, sem mælti með samþykkt frum- varpsins, með smávægilegum orðalagsbreytingum. Meginatriði frumvarpsins sagði Ólafur vera, að lagt yrði sérstakt gjald á gas- og brennsluolíur, kr. 1.33 á hvert kg, sem gerði mögulegt að aflétta söluskatti af gasolíu til fiskiskipa, án þess að umtalsvert tekjutap yrði hjá rikissjóði, en hann hefði gefið um 580 m.kr. á ári. Æskileg- ast hefði verið að afnema sölu- skattinn, án sérstakrar skattlagn- ingar sem þessarar, en staða ríkis- sjóðs væri einfaldlega þann veg, að slíkt hefði ekki verið réttlætan- legt. Því hefði sú leið verið valin að jafna þeim söluskatti, eðe tekjutapi vegna niðurfellingai hans, niður á alla notendur gasolíu og svartolíu. Samkvæmt hinu nýja frum- varpi, ef að lögum yrði, myndi verð á gasolíu til fiskiskipa og húshitunar verða kr. 25,30 pr. iftra, en að óbreyttum lögum og ákvörðunum verðlagsnefndar kr. 25.75 eða 45 aurum hærri. Lúðvfk Jósepsson (k) mælti fyrir minnihlutaáliti, sem hann Iagði fram ásamt Gylfa Þ. Gfsla- syni (A). Þar er lagt til að frum- varpið verði fellt. Er i áiitinu bent á heimild fjármálaráðherra í eldri lögum til að fella niður söluskatt af brennsluolium til skipa, sem hefði mátt nýta. Rangt væri hins vegar að þeirra mati að taka upp nýja skattlagningu til að bæta upp hugsanlegt tekjutap ríkis- sjóðs. OlafurG. Einarsson Þórarlnn Þórarinsson Framsóknarflokksins, en frum- varpið þyrfti að skoða i tengslum við annað stjórnarfrumvarp, sem lægi fyrir efri deild, varðandi verð á olíu til húshitunar (niður- greiðslur). I báðum þingflokkum stjórnarinnar væru uppi raddir um frekari skoðun málsins, en rétt væri, að frumvarpið fengi af- greiðslu til efri deildar og yrði þar skoðað í nefnd, ásamt hinu frumvarpinu. Karvel Pálmason (SFV) sagði m.a., að ef hér væri ekki ágreiningur milli stjórnai'flokk- anna á ferð, þá væri það þó a.m.k. ágreiningur milli almennra þing- manna í þingflokkum stjórnar- innar og hennar. Hann sagði þing- menn SFV myndu greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi með þing- mönnum Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. Mál þetta var afgreitt frá neðri deild til efri deildar með stuðningi þingmanna stjórnar- flokkanna. Lúðvlk Jósepsson Karvel Pálmason. Þórarinn Þórarinsson (F) sagði mál þetta ekki útrætt í þingflokki Minnihlutaálit: Viðbótarsamningur um ál- verið og stækkun þess Hér á þingsiðu Mbl. hefur ítar- lega verið fjallað um frumvarp til laga um viðaukasamning milli rikisstjórnar fslands og Swiss Aluminum Ltd. — Framsaga Ingólfs Jónssonar(S) fyrir meiri hlutaáliti iðnaðarnefndar neðri deildar, sem mælir með samþykkt frumvarpsins, var birt í heild hér i blaðinu, tviskipt, í fyrradag og gær. VilborgHarðardóttir (K) mælti í gær fyrir áliti minnihluta iðnaðarnefndar, sem hún skipar ein, sem er andvígur frumvarp- inu. Gagnrýnir Vilborg alla máls- meðferð, sem hafi verið flausturs- leg og hvergi nærri nógu grund- uð. önnur gagnrýnisatriði Vilborg- ar á álsamninga, fyrr og síðar, eru þessi: 1) Á móti framleiðslugjaldi frá álverinu, sem numið hefði um 617 m. kr. á árunum 1970—1975, kæmi 718 m. kr. skattinneign þess, vegna meingallaðra samn- ingsákvæða. 2) Hækkun á raf- orkuverði úr 3.0 f 3.5 millj. sé óveruleg og í engu samræmi við hækkun framleiðslukostnaðar á raforku. 3) Mengunarvarnir séu ófullnægjandi og ekki nægilega frá ákvæðum þar um gengið f fiðbótarsamn- ingnum. 4) Al- bræðslan sé ekki háð ís- lenzkri lögsögu og sé þar engin breyting á í við- bótarsamningn- um. 5) Akvæði- vilborg Harðar um raforkuvið- dóttir. skipti séu óvið- unandi, ekki einungis varðandi verð, heldur afhendingarskilmála orkunnar, og séu ákvæði þar um mun harðari en t.d. í Akvæði þar ákvæðum um orkusölu til fyrir- hugaðrar járnblendiverksmiðju. Bentsen hættir við forseta- framboð Austin, Texas, 11. febrúar AP. LLOYD Bentsen öldungadeildar- þingmaður demókrata frá Texas dró í dag til baka framboð sitt sem forsetaefni demókrata. Sagði Bentsen, að hann teldi framboðið ekki þjóna neinum tilgangi og myndi nú helga sig að ná endur- kjöri til öldungadeildarinnar. Bentsen er annar demókratinn, sem hættir við framboð, hinn var Terry Sanford frá N-Carolina. Alls eru þá eftir 10 frambjóðend- ur. Ráðherra í sviðs- ljósi líðandi stundar SVIPMYND: Sjávarútvegsráð- herra Matlhías Bjarnason, kemur til þings. Sjávarútvegs- ráðherra er mjög í sviðsljósi þessa dagana. Þvi veldur e.t.v. fyrst og fremst landheigis- deilan, sem snertir embætti hans sérstaklega, þó að hún heyri jafnframt undir aðra ráð- herra, ekki sízt utanrikisráð- herra, Einar Agústsson, og dómsmálaráðherra, Ólaf Jóhannesson, sem æðsta yfir- mann landhelgisgæzlunnar, og raunar rikisstjórnina sem heild. Ennfremur stjómarfrum- vörp um skerðingu svonefnds sjóðakerfis sjávarútvegs, sem m.a. gera ráð fyrir niður- fellingu hins umdeilda olíu- sjóðs og skerðingu stofnfjár- sjóðs, sem færa tæpa fjóra milljarða króna frá fjárráðstöf- un sjóðakerfis til fiskverðs- hækkunar. Þessi frumvörp eru þó háð samkomulagi aðiia i sjávarútvegi um hlutaskipta- reglur. Þá er og mjög á dagskrá almennings væntanleg laga- setning um nýtingu hinnar nýju fiskveiðilandhelgi og stjórnun veiða og vinnslu, með hliðsjón af ástandi fiskstofna okkar. Alþingi í gær: Sá veldur miklu sem upphafinu veldur I FYRRADAG voru tvö stjórnarfrumvörp: útflutnings- gjald á sjávarafurðir og stofn- fjársjóð fiskiskipa, sem vinda verulega ofan af svokölluðu sjóðakerfi sjávarútvegs, og færa tæpa fjóra milljarða króna frá fjárráðstöfun þess til hækkunar fiskverðs, afgreidd frá neðri til efri deildar Alþingis, aldrei þessu vant með samstöðu stjórnarsinna og stjórnarandstöðu. í gær var síðan frumvarp um gjald á gas- og brennsluolíur, sem gerir kleift, að afnema söluskatt á brennsluolíur fiski- skipa, án verulegs tekjutaps fyrir fjárvana rikissjóð, afgreitt frá neðri til efri deildar. 1 því máli var stjórnar- andstaðan aftur komin i and- stöðu. Hún vildi að vísu fella niður söluskattinn — en án þess að ríkissjóði yrði bættur skaðinn (sjá frásögn af umræðum hér á siðunni). öll þessi mál komu og á dag- skrá efri deildar í gær Urðu þar talsverðar umræður um þau. Einkum var deilt um hvort gjald það á loðnu- afurðir, sem Lúðvik Jósepsson kom á fyrir nokkrum árum til verðlækkunar á oliu til fiski- skipa, væru upphaf hins umdeilda oliusjóðs eða ekki. Jón Ármann Héðinsson hélt fram höfundarrétti Lúðvíks í sérstöku nefndaráliti, en Stefán Jónsson hvað Jón rang- feðra olíusjóðinn, sem ekki hefði komið undir fyrr en í tið núverandi ríkisstjórnar. Síðdegisfundur var haldinn i efri deild í gær, þar sem þessi þrju mál voru á dagskrá og voru þau öll afgreidd sem lög frá Alþingi. Verður skýrt frá afgreiðslu þeirra þar litillega á þingsiðu á morgun. Rétt er að Itreka hér það skilyrði, sem sjávarútvegsráðherra sagði óhjákvæmilegt varðandi niður- fellingu olíusjóðsins og skerð- ingu stófnfjársjóðsins, að hags- munaaðilar í sjávarútvegi kæmu sér saman um nýjar hlutaskiptareglur. — Vörður í hálfa öld Framhald af bls. 19 Efnt hefur verið til sérstakra ráðstefna um ýmis mál, svo sem ýmsa þætti borgar- mála, og stundum hefur Vörður efnt til barnaskemmtana, auk jólatrésskemmtan- anna Spilakvöldin, sem Vörður hefur ýmist efnt til einn sér eða i samvinnu við önnur félög sjálfstæðismanna, hafa verið ákaf- lega vel sótt Þar hafa framámenn i flokknum flutt ávörp kvikmyndir verið sýndar, ýmiss konar skemmtiatriði flutt o.s.frv. Þá hafa sumarferðalögin verið mjög vinsæl. Farið er til ýmissa merkis- og sögustaða við leiðsögn kunnugra og fróðra manna, og oftast hlýtt á ræðu forustumanns i helzta áfangastaðnum. SKIPULAGSBREYTINGAR Á VERÐI — HELZTU STARFSÞÆTTIR FÉLAGSINS j DAG 1973 voru gerðar þær skipulagsbreyt- ingar á Verði. að Landsmálafélagið Vörð- ur var gert að sambandi félaga sjálf stæðismanna i hverfum Reykjavíkur. Þróun undanfarinna ára og áratuga, þ e stækkun Reykjavlkur og stofnun hverfa- samtaka i hverfum Reykjavlkur kallaði á nauðsynlegar skipulagsbreytingar á félagsstarfseminni í Reykjavik Nauð- synlegt var að gefa hverfasamtök- unum aukin réttindi. þannig að þau mættu styrkjast til aukinnar starf- semi meðal sjálfstæðisfólks í hverf- um Reykjavikur Sú leið var valin, a- Vörður var gerður að samgandsfélagi eins og fyrr segir og þannig lagt á herðar Varðar að hafa forustu um ýmsa sameiginlega félagslega starf- semi, svo sem stóra fundi, ráðstefnur o.fl samhliða þvi að samræma og sam- hæfa störf hverfafélaganna, er stofnuð voru í janúar 1974 i 1 1 hverfum Reykja- vikur. Fyrrgreindar skipulagsbreytingar höfðu það i för með sér, að í stjórn Varðar tóku sæti fulltrúar hverfafélaganna en formaður og sex meðstjórnendur eru kjörnir að aðalfundi Varðar í dag stendur félagsstarfsemi Varðar traustum fótum. Starfsemin markast aðal lega af funda- og ráðstefnuhaldi, útgáfu- starfsemi, skemmti- og spilakvöldum, ferðalögum o fl o.fl. Stærstu verkefnin, sem framundan eru I starfinu I dag, eru ráðstefna Varðar um verðbólgu laugardaginn 21. febrúar að Hótel Loftleiðum, undirbúningur 50 ára afmælishátlðar að Hótel Sögu 9 aprll n.k og útgáfa 50 ára afmælisrits, sem mjög vandað verður til að efni og útliti. Ennfremur fer fram stöðug fundastarf- semi á vegum hinna einstöku hverfa- félaga um ýmsa þætti borgarmála og þjóðmála

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.