Morgunblaðið - 03.03.1976, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1976
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Stycmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árr.i Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanl^pds.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
r
Island og Norð-
urlandaráð
Stundum er talað um,
að norrænt samstarf hafi
litla hagnýta þýðingu fyrir okk-
ur íslendmga, það felist ein-
ungis í málskrafsþingum og lít-
ill raunhæfur árangur verði af
ræðum og fundarhöldum á
vegum Norðurlandaráðs Þessi
skoðun hefur verið nokkuð út-
breidd á íslandi en þó hefur
þeim fjölgað á síðari árum, sem
gert hafa sér grem fyrir mikil-
vægi samstarfs Norðurland-
anna fyrir okkur íslendmga,
bæði pólitískt og þó ekki siður í
menningarlegum efnum
Þmg Norðurlandaráðs, sem
nú stendur yfir, er gloggt dæmi
um þá miklu þýðingu, sem
þátttaka í starfi Norðurlanda-
ráðs hefur fyrir okkur ís-
lendinga Málefni okkar hafa
verið þar i fyrirrúmi og mjög til
umræðu Sú mikla athygli, sem
landhelgismál okkar hefur
vakið á þessum fundi Norður-
landaráðs svo sem fram hefur
komið í ræðum vel flestra
ræðumanna þar, og yfirlýsing
forsætisnef ndarinnar skiptir
miklu máli fyrir okkur í baráttu
okkar við Breta. i fyrsta lagi
vegna þess, að á þessum fundi
Norðurlandaráðs hefur komið
fram ríkari og almennari stuðn-
mgur við okkur meðal frænd-
þjóða okkar á Norðurlöndum
en við höfum átt að venjast og
búast hefði mátt við Þessi póli-
tíski stuðningur er okkur mikils-
verður gagnvart Bretum og
öðrum Evrópuþjóðum innan
Efnahagsbandalagsins og á
vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna, þar sem Norðurlöndin
mynda tiltölulega sterka heild,
og njóta virðingar og álits í
öðru lagi hafa umræður á þingi
Norðurlandaráðs nú og frá-
sagnir af þeim i fjölmiðlum á
Norðurlöndum orðið til þess að
vekja almenningsálitið i
þessum norrænu ríkjum til
sterkari vitundar um það, sem
hér hefur verið að gerast en
áður. Stuðningur almennings-
álítsins á Norðurlöndum er
okkur ekki síður mikilvægur,
en sá pólitíski og diplómatíski
stuðningur, sem við höfum nú
hlotiðá fundi Norðurlandaráðs.
Þetta er í fyrsta skipti i land-
helgisdeilum okkar við Breta,
sem við hljótum svo sterkan
stuðning frá frændþjóðum
okkar á Norðurlöndum. Við
metum hann mikils og engmn
vafi leikur á þvi, að sálræn áhrif
hans á Breta og aðrar Evrópu-
þjóðir verða mjög veruleg.
En þetta þmg Norðurlanda-
ráðs er ekki einungis dæmi um
hagnýtt gildi norræns sam-
starfs á hinum pólitíska vett-
vangi fyrir okkur íslendinga. Á
þessu þingi fengu tveir is-
lendingar afhent verðlaun
Ólafur Jóhann Sigurðsson tók
við bókmenntaverðlaunum
Norðurlandaráðs og Atli Heimir
Sveinsson tók við tónlistarverð-
launum Norðurlandaráðs. Að
sjálfsögðu er þessi verðlauna-
veiting mikil viðurkenning til
þessara tveggja íslenzku lista-
manna, en hún hefur almenn-
ara gildi vegna þess, að hún
verður til þess að beina athygli
fólks á Norðurlöndum að ís-
lenzkum bókmenntum og ís-
lenzkri tónmennt. Þannig má
með sanni segja, að ísland og
íslenzk málefni hafi sett svip
sinn á þetta þing Norðurlanda
ráðs i Kaupmannahöfn og það
verður okkur til styrktar í bráð
og lengd.
Yfirlýsing
Gylfa Þ. Gíslasonar
Sérstök ástæða er til
að vekja athygli á yfirlýs-
ingu Gylfa Þ Gíslasonar, for-
manns þingflokks Alþýðu-
flokksins, á fundi með frétta-
monnum í Kaupmannahöfn í
fyrradag Á fundi þessum lýsti
Gylfi Þ Gislason þeirri skoðun
sinm, að islendingar mundu
ekki fara úr Atlantshafsbanda-
lagirm og ekki hætta varnar-
samstarfi við Bandaríkín á
Keflavíkurflugvelli. Þessi yfir-
lýsmg eins af leiðtogum stjórn-
arandstöðunnar á íslandi, sem
þar að auki nýtur mikils álits á
Norðurlöndum, er afar þýð-
ingarmikil fyrir málstað íslands
i landhelgisdeilunni og fyrir
öryggismál þjóðarmnar
Gylfi Þ Gíslason hefur áður
gefið svipaðar yfirlýsingar i við-
tali við danska útvarpíð Yfirlýs-
ing Gylfa Þ Gíslasonar sýnir
erlendum þjóðum, að hér á
íslandi er mjög breiður grund-
völlur fyrir og stuðningur við þá
stefnu, sem við höfum um
aldarfjórðung fylgt í öryggis-
málum okkar Frá henni verður
ekki hvikað Jafnframt er yfir-
lýsing Gylfa Þ. Gíslasonar verð-
ug áminníng þeim öflurn
innanlands, sem hafa tilhneig-
ingu til þess að hlaupast undan
merkjum i þessum efnum.
• Sigurður Helgason er f hópi
þeirra manna sem hvað mestan
svip hafa sett á íslenzk flugmál á
sfðari árum. A blómlegasta skeiði
Loftleiða var hann forstjóri fé-
lagsins f Vesturheimi, og hlut-
deild hans í velgengni Loftleiða á
sjöunda áratugnum er ótvíræð, en
á þessu árabili verður tsland nafn
á alþjóðlegum flugmálavettvangi.
Þegar Loftleiðir og Flugfélag ts-
lands sameinuðust f Flugleiðir
hf. var Sigurður fenginn frá
Bandarfkjunum hingað heim og
ráðinn einn af þremur forstjórum
hins nýja félags með markaðsmál
sem sérsvið.
% Sigurður þekkir gjörla þá
byltingu sem orðið hefur í sam-
göngum á þessari öld og þá sér-
staklega með tilkomu flugsins.
Hann á það til að rifja upp er
hann var unglingspiltur í sveit
hjá afa sfnum, sem fæddur var 11
árum áður en íslendingar fengu
fyrstu stjórnarskrá sfna. Eina
stórferðalagið sem afi hans fór
um ævina var bændaför, þar sem
farið var rfðandi úr Borgarfirði
norður um land til Axarfjarðar,
þaðan var haldið suður Sprengi-
sand og svo áfram um Suðurland
þar til komið var f Borgarfjörð
aftur. Þetta ferðalag mun alls
hafa verið um eitt þúsund kíló-
metrar. Til útlanda fór gamli
maðurinn aldrei, þótt hann næði
yfir 80 ára aldri, en Sigurði teist
til að öll ferðalög afa hans hafi
ekki verið meira en sem nemur
20 þúsund kfiómetrum eða sem
svarar fimm ferðum milli Kaup-
mannahafnar og Reykjavíkur. Til
samanburðar má geta þess að Sig-
urður ferðaðist sjálfur á sl. ári
vegna starfa sfns um 200 þúsund
kílómetra eða tíu sinnum lengri
vegalengd en hann áætlar að afi
hans hafi farið alla ævi sfna.
0 Þótt segja megi að flugið hafi
valdið byltingu um heim allan
hefur þróunin hér á landi á marg-
an hátt verið örari og áhrifin
sterkari og umfangsmeiri en vfð-
ast hvar annars staðar. En við-
ræðuefni blaðamanns Morgun-
blaðsins við Sigurð er framvinda
flugmála á erlendum vettvangi og
staða hinnar innlendu flugstarf-
semi í Ijósi þeirrar þróunar. Þar
er Sigurður öllum hnútum
kunnugur, bæði vegna starfa sfns
vestan hafs f hringiðu hinnar
alþjóðlegu flugstarfsemi og yfir-
umsjónar hans með markaðsmál-
um fyrir Flugleiði. En fyrst var
Sigurður spurður að þvf hvernig
staðið hefði á þvf að hann hóf
afskipti af flugmálum.
BYLTINGIN
„Það var i kjölfar þeirra breyt-
inga, sem urðu eftir að rekstri
Loftleiða var breytt verulega árið
1952 eftir skiptinguna sem varð á
innanlandsfluginu og leiddi til
þess, að Loftleiðir hættu algjör-
lega að fljúga hér innanlands.
Þetta ár hófst Atlantshafs-
flug félagsins í smáum stíl. Um
sama leyti eða árið 1953 var veru-
leg breyting gerð á stjórn Loft-
leiða, og bauðst mér þá tækifæri
til að gerast þátttakandi í félag-
inu. Komst ég í stjórn félagsins
sem varaformaður og hef verið
þar allar götur siðan,“ sagði Sig-
urður.
„Á þessum árum og nokkrum
hinum næstu var ég við annan
rekstur, en að því kom að stjórn-
arstörf á vegum Loftleiða voru
orðin svo umfangsmikil að það
kom að því á árunum 1960—61 að
ég ákvað að helga Loftleiðum alla
mína starfskrafta. Raunar má
segja að af öðrum þræði hafi
ástæðan fyrir því að ég snéri mér
óskiptur að flugmálum verið sú,
að ég gerði mér grein fyrir því, að
miklir möguleikar voru fyrir því
að Islendingar gætu haslað sér
völl i alþjóðlegu flugi vegna land-
fræðilegrar legu landsins, og að
því vildi ég vinna “
Sigurður fór síðan vestur um
haf í ársbyrjun 1961, og tók við
starfsemi Loftleiða í Vesturheimi.
„Um þetta leyti vorum við að
byrja með DC-6 vélarnar í notk-
un eða um það leyti sem við vor-
um virkilega að ná okkur á strik.
Með DC-6 vélunum komu til
mun hagkvæmari vélaren áður og
raunar var þetta algjör bylting
frá DC-4 vélunum, þvi að með
þeim vélum var ákaflega erfitt að
ná endum saman. Við jukum svo
þennan flota á árunum 1960—62,
þar til við vorum komnir með
fimm vélar. Þá vorum við aftur
farnir að lita i kringum okkur og
árið 1964 snérum við okkur að
stóru Rolls Royce-vélunúm, sem
voru þá einnig mjög hagkvæmar,
og við festum kaup á þeim með
því skilyrði, að þær yrðu lengdar.
Voru þær um tíma stærstu flug-
vélar á N-Atiantshafsleiðinni. En
árið 1970 söðluðum við yfir í þot-
urnar, og er sú saga líklega öllum
kunn.“
Sigurður segir, að það hafi ver-
ið tiltölulega auðvelt fyrir sig að
setjast að í New York, þar eð
hann hefði áður um fjögurra ára
skeið verið við nám og starf í
Bandaríkjunum og þekkti þar af
leiðandi vel til i bandarísku við-
skiptalífi. Alltaf síðan hefði hann
fylgzt mjög vel með því sem þar
var að gerast, og þannig átt hæg-
ara um vik að vinna að uppbygg-
ingu Loftleiða vestan hafs, sem er
sannast sagna ævintýraleg á ára-
tugnum 1960—1970.
FLUGVÉLAVALIÐ
„Já, það er óhætt að segja, að
framgangur félagsins var mikill á
þessu tímabili, og þar fór saman
að vel var staðið að vali á flug-
vélakosti Flugleiða, sem raun-
verulega skipti sköpum fyrir fé-
lagið, og síðan að því var fylgt
eftir með því að tryggja sem allra
mesta nýtingu á vélunum á þess-
ari leið,“ sagði Sigurður. „Það var
einnig mikið um að vera í New
York á þessum tíma. Það eru lík-
lega fleiri flugfélög sem fljúga á
N-At)antshafsleiðinni en nokk-
urri annarri. Það eru líklega um
20 flugfélög sem fljúga milli
Evrópu og Ameríku í áætlunar-
flugi en auk þess eru sennilega
um 15 félög í óreglulegu flugi á
þessari leið. Mig minnir lika að
N-Atlantshafsleiðin sé um 1/4 af
öllu alþjóólegu flugi, og það er
hvergi harðari samkeppni en ein-
mitt á þessari flugleið, enda
kannski ekki að undra þvi að það
er eftir miklu að slægjast."
Sigurður segir, að starf hans
vestra hafi verið að mörgu leyti
skemmtilegt, enda mikið verk að
vinna. „Þetta umhverfi var mjög
hvetjandi með öll þessi félög að
berjast um hituna, maður kynnt-
ist þeim sem störfuðu að þessu, og
allt var það mjög lærdómsríkt, þvi
að það var auðvelt að notfæra sér
reynslu annarra i þessum efnum.
Bandaríkin eru opið þjóðfélag að
því leyti — maður hefur tiltölu-
lega greiðan aðgang að upplýs-
ingum eða reynslu sem aðrir hafa
aflað sér.“
Loftleiðir spjöruðu sig býsna
vel á þessum erfiða markaði, eins
og reynslan sýnir. Við fengum á
okkur mjög gott orð, og í flug-
heiminum þekkja allir Island nú
orðið,“ sagði Sigurður ennfremur.
„Það hjálpaði okkur og hjálpar
enn í i dag, t.d. þegar við lögðum
út í annan rekstur, eins og Cargo-
lux og Air Bahama. Kaup Loft-
Ieiða á Air Bahama voru kannski
ekki hvað sízt gerð 1 því augna-
miði að styrkja okkur á þvi skeiði,
er við vorum að undirbúa að taka
þoturnar í notkun á okkar aðal-
flugleiðum. Við gátum notað Air
Bahama sem rökstuðning við
bandarisk stjórnvöld fyrir því að
Loftleiðir tækju upp þotuflug.
Við gátum þá bent á að fordæmið
væri þegar fengið — með Air
Bahama."
nAkvæm skipulagn-
ING HÖFUÐATRIÐI
Annars segir Sigurður að ein-
kum tvennt einkenni flugstarf-
semi öðru fremur. I fyrsta lagi er
starfsemin ákaflega margþætt og
Rætt við Sigurð Helga-
son, forstjóra Flugleiða
Cargolux-vél, sem er að hluta f eigu Flugleiða, en Sigurður telur einmitt
vaxtarmöguleikana f flutningaflugi fvið meiri en f farþegafluginu.