Morgunblaðið - 07.03.1976, Qupperneq 1
48 SIÐUR
51. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Valdimar Eiðsson
Ingibjörg heitin Guðlaugsdóttir
Agúst Ölafsson
ÞArður Þðrisson
Haraldur Jðnsson
Sjö skipverja
á Hafrúnu
leitað á stóru
svæði í gær
LEITINNI að sjö skipverjum á vb. Hafrúnu frá Eyrar-
bakka var haldið áfram í gær, en sem kunnugt er fannst
iík áttunda skipverjans, Ingibjargar Guðlaugsdóttur,
matsveins, daginn eftir að skipsins var saknað. Ingibjörg
var 41 árs að aldri og lætur eftir sig 8 börn á aldrinum
3ja áratii tvítugs.
Aðrir skipverjar á Haf-
rúnu, sem nú er leitað, eru:
Valdimar Eiðsson, skip-
stjóri, fæddur 1943,
kvæntur og 2ja barna
faðir, Ágúst Ólafsson,
fæddur 1949 og á eitt barn,
Þórður Þórisson, fæddur
1943, kvæntur og á eitt
barn, Júlíus Stefánsson,
fæddur 1955 og á unnustu,
Haraldur Jónsson, fæddur
1955 og á unnustu og eitt
barn. Eru þessir menn allir
frá Eyrarbakka. Auk
þeirra voru á Hafrúnu
Guðmundur Sigursteins-
son, fæddur 1957 og á hann
unnustu, og Jakob
Zóphóniusson, fæddur
1931 og á eitt barn.
í gær var ráðgert að leita
úr lofti á mjög stóru svæði,
auk þess sem áformað var
að ganga fjörur í kringum
Garðskaga og eins vestur á
Mýrum og sunnanverðu
Snæfellsnesi.
Víða ókyrrð á
Vitoria, Spáni, 6. marz, AP — Reuter.
SÉRÞJÁLFAÐIR lögreglumenn skutu gúmmíkúlum að
mótmælendahópi og hlóðu byssur sínar alvörukúlum í
gærkvöldi, er þeir komu í veg fyrir frekari óeirðir í
Baskaborginni Vitoriu, þar sem mikil spenna hefur ríkt
frá því að lögreglan skaut 3 unga Baska til bana fyrr í
þessari viku.
Öeirðirnar hófust aðeins nokkr-
um klukkustundum eftir að þre-
menningarnir höfðu verið jarð-
sungnir, en likfylgdin snerist upp
i mótmælagöngu tugþúsunda
manna.
Engin slys urðu á mönnum i
gær, en í tilkynningu spænsku
rikisstjórnarinnar sagði að lög-
reglan hefði neyðzt til að verjasig
eftir að göngumenn hefðu gripið
til ofbeldisaðgerða, sem stofnuðu
lífi lögreglumannanna í hættu.
Talsmenn hinnar ólöglegu
verkamannanefndar á Spáni
sögðu á fundi með fréttamönnum
í dag, að verkfallið, sem lamaði
Vitoriuborg i vikunni héldi áfram
Spáni
og að það ætti eftir að breiðast
enn meira út um landið. Um 60
þús. manns hafa nú verið í verk-
falli i tvo mánuði og eru heiftar-
legar deilur milli verkamanna og
atvinnurekenda um hugsanlegar
launahækkanir.
Ökyrrð er nú víða á Spáni og í
gær handtók lögreglan í
Pamplona 22 menn eftir mót-
mælaaðgerðir og nokkrir tugir
manna voru einnig handteknir i
Tarragona og 6 lögreglumenn
særðust eftir átök lögreglu og
2000 starfsmanna oliuhreinsunar-
stöðvar í borginni.
Samningar við EBE aðalforsenda
framtíðar brezka fiskiðnaðarins
Athyglin beinist í auknum
mæli að skipulagsatriðum í
sambandi við fiskveiðar ein-
stakra þjóða innan Efnahags-
bandalagsins, og benda Bretar í
þvi sambandi á, að þeir afla
mest þjóða bandalagsins til
manneldis.
Þetta kemur fram i grein,
sem Rogert Berthoud ritar í
The Times s.l. mánudag.
Einnig, að Bretar munu nú enn
krefjast þess að Efnahags-
bandalagið taki tillit til sér-
stakra hagsmuna þeirra, —
þeir afli mest allra aðildarþjóð-
anna af fiski til manneldis, eigi
stærsta fiskveiðiflotann og
langmestan hluta mestu og
fengsælustu fiskimiða á 200
milna heildarsvæði Efnahags-
bandalagsins.
Af EBE-ríkjunum afla Danir
einir meira en Bretar. Árið
1973 var heildarafli Dana tæp-
lega einn og hálfur milljarður
tonna, en heildarafli Breta nam
sama ár 1.1 milljarði tonna Af
afla Dana fór mestur hluti í
skepnufóður, eða 1.18 milljarð-
ar tonna, en af afla Breta fór
langmestur hluti til manneldis,
eða um einn milljarður tonna.
1 greininni í The Times, sem
hér er vitnað til, er því haldið
fram, að með tilliti til þeirrar
grundvallarkenningar um
frjálsan aðgang hvers aðildar-
ríkis að mörkuðum hinna, sem
samstarf þeirra er reist á, sé
tæpast hægt að gera ráð fyrir
því, að fiskveiðiflota aðildar-
rikjanna verði með öllu óheim-
ill aðgangur að fiskimiðum
nokkurs eins aðildarrikis. Til
að tryggja, að slik þróun ætti
sér ekki stað hafi stofnrikin sex
hnoðað saman fiskveiðistefnu
bandalagsins á elleftu stundu,
þegar samningar um inngöngu
Breta, Dana og Ira stóðu yfir. 1
þeirri stefnu hafi hugmyndin
um frjálsan aðgang aðildarrikj-
anna að fiskimiðum hinna vérið
lögð til grundvallar, en síðan
hafi verið samið um ákveðnar
ivilnanir fram til ársins 1982.
Allsstaðar hafi verið gert ráð
fyrir 6 mílna einkafiskveiðilög-
sögu strandríkja, en sums
staðar 12 milna, auk þess sem
ákvæði um endurskoðun með
tilliti til framtiðarskipunar hafi
verið i samningnum.
Þá segir í greininni:
„Nú er ljóst, að 6 og 12 mílna
fiskveiðitakmörk eru allt
annars eðlis en 200 mílna auð-
lindalögsagan, sem kæmi
Bretum og Irum sérstaklega til
góða vegna langrar strand-
lengju með auðugum fiski-
miðum. 200 milurnar mundu
hins vegar koma illa niður á
Framhald á bls. 47
— segir The Times
ÞAÐ verður nú ljósara með degi hverjum, að fram-
tíð brezka fiskiðnaðarins grundvallast ekki fyrst og
fremst á niðurstöðu hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, heldur samningum þeirra um sérréttindi
innan 200 mílna efnahagslögsögu Efnahagsbanda-
lagsins. Brezki fiskiðnaðurinn gerir kröfu til 100
mílna einkalögsögu innan 200 mílnanna, en enn sem
komið er hafa brezk stjórnvöld ekki nefnt ákveðna
tölu í þessu sambandi, a.m.k. ekki á opinberum
vettvangi.
L