Morgunblaðið - 07.03.1976, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.03.1976, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR7. MARZ 1976 Á hættu- slóðum í Ísraelíi'í Kte Sigurður Gunnarsson þýddi hjól. En hann þagði. Þau hin, félagar hans, máttu ekki fá að vita það ekki vegna þess, að það væri nein hneisa, en hann ætlaði að reyna að vinna bug á þessum veikleika, reyna að verða eins og þau hin, sem áttu bjartari og betri fortíó en hann. Sá dagur skyldi koma að hann næði því marki að geta ekið með áætlun- arbílnum, án þess að skjálfa af hræðslu og feróast meö lestinni, án þess að vera síhræddur. Hann nam aftur staðar, kúg- aðist og seldi upp. Jesemel kallaði: „Hefurðu fundið spor- in?“ „Já, þau eru hérna . ..“ Svo kom hann aftur til þeirra, skreið upp í jeppann, herti sig upp, . . . og þau héldu áfram út í náttmyrkrið. Jesemel N V, Lykillinn að peningaskápnum er í buxnavas- anum mínum!! sat við stýrið. Og nú tók hann allt í einu að biístra létt lag... Jesemel var heilsteyptari piltur en Míron. Hann var mjög áhugasamur og námfús. Þegar hann kom hingað til landsins fyrir tveimur árum, hafði hann tendrað bál í flugvél. Nú gat hann ekið bil og stjórnað vatnsveituframkvæmdum í eyðimörkinni. En í nótt var hann óró- legur, — ekki vegna þess, að þau óku með ljósum um eyðimörkina að næturlagi, þar sem óvinir voru ef til vill í felum á bak við næstu hæð. En hann var órólegur vegna málsgreinar, sem María hafði sagt í gær: „Arabar eru ef til vill ekkert verri en við ...?“ Það var eins og hún heíði sagt þetta af einhverri tilviljun, en engu að síður sat það fast í hugskoti hans. Ekkert verri en við? Hann var kominn hingað til þessa lands til að rækta það upp, til að vinna hér, til að setjast hér að. Þetta var landið hans. En Arabar rændu hér og rupluðu, . .. þeir skutu menn til bana og sprengdu upp vatnsleiðslur. Og þá galt hann í sömu mynt og skaut til þeirra líka. Ekkert verri en við .. .? Nei, ... ef til vill ekki. En hann var eitthvað svo órólegur og jók nú ferðina aó miklum mun. Hann sá, að innan skamms mundi sólin koma upp og hella geislaflóði sínu yfir eyðimörkina. Og þarna kom hún svo upp, ... og undrið mikla gerðist enn einu sinni, undrið sem þau þrjú höfðu svo oft séð, en Óskar nú aðeins í annað sinn. Það var sem glóandi sólkringlan kæmi upp úr eyðimörkinni og ylti í fegurð sinni og tign eftir heiðbláu himinhvolfinu. Og í skjótri svipan varð allt svo undur bjart og hlýtt. Nú blasti eyðimörkin við, .. . víðáttu- miklar, gróðurvana auðnir, með hólum og hæðum, og einmana kyrkningslegum kaktusum hér og þar. Og langt í suðri sáust þokukrýndir tindar Sínaífjallanna, svipaóir rauðu glitri morgunsólarinnar. Arabar voru hvergi sjáanlegir. En allt í einu mættu þau varðmönnum úr þeirra eigin hópi. Hermenn héldu alltaf vörð við landa- mærin á næturnar. Þessir verðir sögðu, að þeir hefðu rakið slóðir reiðmanna, sem komizt hefðu yfir landamærin til Jórdaníu, og hefðu því sloppið í þetta sinn. '---------------------------------^ vlw MOR&JN KAffinu aður og þess vegna erum við komin. Þessi eilífu stútsegg eru leiði- gjörn, þvkir mér! Eiginkonan: — Alltaf er fundið upp á einhverju nýju.' Hér er verið að auglýsa skyrt- ur, sem engar tölur eru á. Eiginmaðurinn: — Það er nú ekkert nýtt fyrir mig. Ég hef nær ailtaf verið í tölulaus- um skyrtum sfðan við gift- umst. X Lftil stúlka kom til mömmu sinnar og sagði: — Farðu inn f baðherbergið. Það er ókunnur maður að kyssa Stfnu frænku. Móðirin fór af stað, en barn- ið náði henni á miðri leið og sagði: — Hæ, 1. apríl, mamma Það er barapabbi. Jæja, úr þvf að þú ert nú Iff- tryggður, er ástæðulaust að spandera öllum þessum ósköp- um f lyf og læknishjálp. — Þú mátt trúa mér, góði vinur, ég myndi gefa 100 þús. krónur til þess að verða millj- ónamæringur. X Konan, sem hafði boðið sig fram til þings: — Heiðruðu herrar, verið eins og maðurinn minn, kjósið mig. X Skoti nokkur skrifaði nýárs- kveðjur til vina sinna. — Gleðilegt ár 1976, 77 78 og 79. Arfurinn í Frakklandi um. David varp öndinni mæðu- lega. 12 það gerðu þau eins rækilega og þeim var unnt. Pinetshjónin hlutu að hafa verið miklir fyrir- myndar leigjendur, eða Mme Desgranges stórkostlegasta hrein- gerningakona sem fyrirfannst þvf að hvergi var blett né hrukku að sjá. Gautier og Helen höfðu sýnt honum ftrustu þolinmæði, hugsaði David með sér, eins og þau væru að reyna að sanna hon- um að hugmyndaf lugið hefði gert honum ljótan grikk. — Er nokkur ástæða til að fara til lögreglunnar héðan af? sagði Helen. — Fyrst við höfum ekkert lík undir höndum. .. — Ég á vini innan lögreglunn- ar, sagði Gautier. — Ég ætla að spyrjast gætilega fyrir um hvort einhverra sé saknað. Ef konan er eða hefur verið — hlýtur hún að finn ast. Þetta ef fór ekki framhjá nein- — Mér þykir verulega leiðin- legt að valda öllum þessu veseni og eyðileggja kvöldið og matinn hennar móður yðar. Mér hlýtur að hafa skjátlazt. Konan hefur verið sofandi, það kemur víst ekki annað til mála. Kannski hef ég vakið hana og hrætt hana f hurtu. Eins og þér stunguð upp á hefur hún ef til vill verið flækingur, enda sé ég enga aðra skýringu á þessu. Hafi hún verið á snærum Pinetshjónanna hefðu þau sagt yður það. Gautier kinkaði kolli og Helen andvarpaði. Þau voru komin niður f forstofuna aftur, þreytt og vandræðaleg. — Mme Desgranges, byrjaði David. Nú var röðin komin að Gautier að andvarpa. — Þér viljið að við förum og hittum hana að máli núna? Já, David vildi fara og hitta hana strax en hann gerði sér grein fyrir ástandi hinna. Þau höfðu sýnt honum langlund og umburðarlvndi og hann gat ekki krafizt meira af þeim. Og þar sem ekkert lík var lcngur var heldur enginn vitnisburður um eitt né neitt. — Getum við ekki farið f býtið f fyrramálið, sagði hann. — Ég skal sækja yður, sagði Gautier. Hann leit á armbandsúr sitt. — En núna fyndist mér að við ættum að halda heim til mfn og snæða. Mme Gautíer var tilbúin mcð matinn. Hún var fáskiptin og yrti naumast á þau orði og cnda þótt Gautier kæmi fram við hana af fullri vinsemd og virðingu var þó engu líkara en hún virkaði sem eins konar ráðskona hans og lotningarfull framkoma hennar gagnvart syni sínum kom býsna óþægilega við David. David hafði rænu á þvi, nú þegar þau voru komin heim til lögfræðingsins, að horfa í kring- um sig: Allt bar vott um góð efni og hrcinlæti og snyrtimennskan sat hér augsýnilega f fyrirrúmi. Stofan var dauflýst en að öðru leyti var hún hin smekklegasta. David velti fyrir sér hversu mikið af þeim dýrindismunum sem þar voru til prýði væri erfðagóss eða hvort Gautier hefði valið það og keypt. Allt var að visu smekklegt en of þunglamalegt að hans dómi. — Þér ættuð að sjá húsið sem ég á við ströndina, sagði Gautier meðan þau sátu að snæðingi. — Þar er allt með nýtízkulegri brag, enda vill mamma ekki koma þangað. Ekki rétt móðir góð? Móðir hans yppti öxlum. — Mér líður ekki vel við sjóinn. — Þér ættuð að fara þangað Mme Gautier, sagði Helen. — Ut- sýnið frá húsinu er dásamlegt. Og ilmurinn af blómum og trjám. Þér mynduð njóta þess í rfkum mæli. David sá fyrir sér Gautier og Helen leiðast hönd i hönd undir skuggsælum trjánum og honum gazt ekki að þeirri sýn. Helen varð litið á hann og brosti vingjarnlega til hans. — Ég er viss um að vður félli vel að vera þar, Hurst, — Já... Gautier hellti aftur f glas honum. — Ég vona þér gerið mér þá ánægju að dvelja þar fáeina daga áður en þér farið heim til Englands. Hann fór eins fljótt og hann gat kurteisissiða vegna. Hann hafði vonað að Helen vrði samfcrða honum, en hún sýndi ekki á sér fararsnið. Hún þrýsti hönd hans innilega og kvaðst vona að tækist sem fvrst að upplýsa levndar- dóminn. — Og ég gleymi ekki, ba'tti hún við að fá Marcel Carrier til að bjóða vður heim. A ég að hringja til yðar á hótelið. Gautier fylgdi honum niður stigann og alveg til dyra. Hann þrýsti hönd hans. — Verið nú ekki að brjóta heilann um atburði kvöldsins, sagði hann. — Á þessu er sjálf- sagt ofur eðlileg skýring. — Ég er viss um að svo hlýtur að vera. — Þvílfk bvrjun á heimsókn! Ég er viss um að þér hafið ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.