Morgunblaðið - 07.03.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1976
15
Samningaumleitanir við
kvikmyndagerðarmenn
Greinargerð frá Ríkisútvarpi
I tilefni af fréttum frá Félagi
kvikmyndagerðarmanna (FK),
sem birst hafa f fjölmiðlum
undanfarna daga, telur Ríkisút-
varpið rétt að þetta komi fram:
I samningaumleitunum Sjón-
varpsins við FK, sem lauk 11.
febrúar sl., var annars vegar
fjallað um sýningarrétt á full-
gerðum heimildarmyndum, sem
félagsmenn í FK eiga sýningar-
rétt á (A-hluti samnings), og hins
vegar um vinnu félagsmanna
(lausráðinna) við kvikmyndagerð
á vegum Ríkisútvarpsins (B-hluti
samnings).
Fyrir sýningarrétt á mynd skv.
A-hluta hafði Sjónvarpið boðið 23
þús. kr. fyrir sýningarmínútu, eða
sem svarar 690 þús. kr. fyrir 30
minútna mynd. Talan er fengin
úr samningi norska sjónvarpsins
við þarlenda kvikmyndagerðar-
menn, og er þetta, eftir þeim upp-
lýsingum, sem fengist hafa, hæsta
verð, semtíðkast á Norðurlöndum
fyrir sýningarrétt á heimildar-
myndum. Minna má á, að sjón-
varpsnotendur í Noregi eru meira
en 20 sinnum fleiri en hér.
Astæða er líka til að leggja fyllstu
áherslu á, að hér er aðeins um að
ræða þóknun fyrir rétt til einnar
sýningar i íslenska ájónvarpinu.
Fyrir endursýningu innan
þriggja ára var boðið hálft upp-
haflegt gjald, en að þeim tíma
liðnum aftur fullt frumsýningar-
gjald. Um þessi síðastnefndu
atriði var ekki ágreiningur. Ailur
annar réttur yfir myndinni, þar á
— Sjónvarpið
Framhald af bls. 19
er honum oft ekki vaxin. Af þeim
sökum hafa taugaáföll, barna-
morð og sjálfsmorð færzt mjög í
vöxt með ungum mæðrum i
Japan. Mörg börn sæta líka sí-
felldum meiðingum og svelti, þótt
ekki séu þau drepin. Það kom í
ljós við könnun, að 40% mæðra,
sem misþyrma börnum sínum,
hafa viðbjóð á barneignum. 90%
þeirra þjást af alvarlegri sálsýki
sem oftast má rekjatil áhyggna af
barnauppeldi.
Er nú svo komið, að japönsk
yfirvöld hyggja á stórkostlega
herferð til að vinna bug á þessu
og verða læknar, félagsráðgjafar
og næringarfræðingar sendir í of-
boði út um allt land og hjálpar-
stöðvar stofnaðar. Standa vonir
stjórnvaida til þess, að þannig
megi stemma stigu við illri með-
ferð ungbarna og barnamorðum.
Þetta getur þó hrokkið skammt
og má vera, að hér sé byrjað á
öfugum enda. Getnaðarvarnatöfl-
ur liggja ekki á lausu í Japan.
Margar stúlkur, sem verða barns-
hafandi af slysni, eiga ekki annan
útveg úr klipu sinni en fóstureyð-
ingu. Alltaf eru þó allmargar, sem
draga of lengi að leita fóstureyð-
ingar, og þær gripa oft til barns-
morðs. Þá er kynlifsfræðsla í
mesta ólestri í Japan. Mörgum
finnst skynsamlegra að rækja
hana fyrst, en fræða fólk þvi næst
um uppeldi barna.
Menn í Japan eru alls ekki á
eitt sáttir um það, hvað skuli til
varnar verða. Telja sumir að or-
sakir meðferðarinnar á ungbörn-
um séu svo margþættar og djúp-
stæðra að ekki dugi minna en
gjörbylting menningarinnar, og
komst einhver svo að orði: „Eigin-
girni, græðgi og gegndarlaus sóun
ráða lögum og lofum í siðmenn-
ingu vorri. Meðan svo helzt munu
barnamorð tiðkast."
—MARK MURRAY.
meðal sýningarréttur í erlendu
sjónvarpi og í kvikmyndahúsum
hér og erlendis er óháður þessum
samningsákvæðum og eign upp-
haflegs rétthaf a eftir sem áður.
Um lausavinnu FK-manna fyrir
sjónvarpið skv. B-hluta samnings-
uppkastsins lágu fyrir tvö boð frá
Sjónvarpinu, þegar samingaum-
leitunum lauk. Annars vegar var
boðinn timakaupstaxti FK, en
þann taxta hefur félagið sett ein-
hliða. Miðað við dagvinnu er þessi
taxti 133—147% hærri en tíma-
kaupstaxtar fyrir hliðstæð störf
hjá Sjónvarpinu samkvæmt
launakerfi rikisins (skv. samning-
um við BSRB). Þetta boð byggðist
á því, að Sjónvarpið eignaðist
allan rétt yfir afrakstri þeirrar
vinnu, sem unnin væri samkvæmt
slikum samningi, annan en svo
nefndan sæmdarrétt.
Hins vegar var boðið kaup eftir
timakaupstaxta ríkisstarfsmanna,
sem vinna samskonar störf, að
viðbættum 5% fyrir stjórnanda
kvikmyndar, en 20% fyrir aðra
starfsmenn við kvikmyndagerð.
Stjórnandi átti auk þess að fá
greiðslur fyrir endursýningar í ís-
lenska sjónvarpinu, svo og fyrir
sýningar erlendis, í höfuðatriðum
eftir sömu reglum og gildandi eru
í skiptum Sjónvarpsins við Félag
íslenskra leikara. Svo að dæmi sé
tekið, mundu þessar greiðslur t.d.
fyrir eina endursýningu í ís-
lenska sjónvarpinu og eina sýn-
ingu í sjónvarpsstöðvum Norður-
landa nema 140% upphaflegra
vinnulauna.
Samkvæmt þessu lætur nærri,
að í fyrra tilboðinu felist fyrir-
framgreiðsla fyrir rétt til endur-
sýningar hér og til einnar sýn-
ingar á öllum Norðurlöndum,
hvort sem sá réttur yrði notaður
eða ekki.
Samkvæmt síðara tilboðinu
yrðu mánaðarlaun stjórnanda
(miðað við 50 stunda vinnuviku,
þ.e. 10 yfirvinnustundir á viku)
kr. 135.398 á mánuði (4 vikuml.
miðað við núgildandi launastiga.
Fyrir mynd, sem unnið væri að í 3
mánuði (12 vikur), fengi stjórn-
andi þannig í upphafi kr. 406.194.
Fyrir endursýningu í íslenska
sjónvarpinu yrðu greiddar kr.
203.097, og fyrir eina sýningu i
sjónvarpsstöðvum Norðurlanda
kr. 365.575. Þannig væri heildar-
greiðsla fyrir framlag stjórnanda
til einnar myndar, miðað við 12
vikna vinnu skv. framansögðu.
orðin kr. 974.866.
Þetta eru i stórum dráttum þau
tilboð Ríkisútvarpsins, sem samn-
inganefnd Félags kvikmynda-
gerðarmanna hafnaði á fundi 11.
febrúar sl. Samningamenn Ríkis-
útvarpsins-Sjónvarps töldu þau
ganga eins langt i samkomulags-
átt og verjanlegt er, hvort sem
litið er til hagsmuna Sjónvarpsins
eða tekið mið af óhjákvæmilegum
samanburði við kjör þeirra
manna, sem fastráðnir eru hjá
Sjónvarpinu og starfa að kvik-
myndagerð á vegum þess.
5. mars 1976.
Afi
yir
Vid^CTálar’
' °g /w •
enáður tn
Cj
V/
9
I i I 'II I |W I ■
Jjötið þess öryggis sem góð heimilistrygging veitir.
Heimilistrygging
SamYÍnnutrjgginga er:
Trygging á innbúi
gegn tjóni af völdum eldsvoða og fjölmöigum öðrum skaðvddum.
Abyrgðartrygging
Bætur greiðast fyrir tjón, sem einhver úr fjölskyldunni veldur
öðru fólki,sbr.nánari skilgreiningar í skilmálum tryggingarinnar.
Örorku og/eða dánartrygging
heimilisfólks við heimilisstörf.
^ SAMYINNUTRYGGINGAR GT
ÁRMÚLA3- SÍMI 38500
SAMVINNUTRYGGiNGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉLAG.
f