Morgunblaðið - 07.03.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1976
23
um segulsvið. Rafhlaðnar agnir
straumsins verða fyrir krafti
sem beinist að skautum sviðs-
ins. Þannig er hægt að mynda
rafstraum. Þetta rannsóknar-
verkefni hefur fengið tölu-
verðar fjárveitingar og eru við
það bundnar miklar vonir.
Varmamengun:
Kostir MHD-áætlunarinnar
eru auk meiri orkunýtingar, að
raforkuframleiðsla með slíkum
hætti yrði minni varmameng-
unarvaldur. Varmamengun er
fólgin í því að óæskilega mikill
varmi er fluttur til umhverfis-
ins. I vatni hefur hitastigsaukn-
ingin í för með sér minnkandi
súrefnismagn, efnahvörfum er
hraðað o.fl. Hrygning fiska
getur orðið fyrir verulegum
áhrifum vegna varmameng-
unar. Vfðar þar sem árvatn er
notað til kælingar i raforku-
verum hefur hitastig viðkom-
andi ár hækkað. Tilraunir með
silung hafa t.d. leitt í ljós að
50% af silungi sem alinn hefur
verið upp við 20 gráða vatns-
hita deyr innan 5 sólarhringa
eftir að hitastig vatnsins er
hækkað um 5 gráður. Sýking á
auðveldara um útbreiðslu í
heitara vatni og svo mætti lengi
telja.
Hér er um mikið vandamál að
ræða sem eykst ár frá ári.
Varmamagnið sem veitt er til
umhverfisins með kælivatni er
mjög mikið. T.d. er áætlað að
10% orkunotkunar margra
iðnaðarrikja séu beint varma-
tap raforkuvera til umhverfis-
ins.
Vetnið:
Orkugeymsla framtíðar-
innar?
Með rafgreiningu er unnt að
kjúfa vatn i frumefni sín vetni
og súrefni. Bruni vetnisins
(samruni vetnis og súefnis)
veldur engri efnamengun. Með
þvi að raforkuver notuðu um-
framorku til vetnisframleiðslu
hugsa menn sér að hægt væri
að geyma orku í stórum síl.
Tilraunir með vetnishreyfla
hafa gefið góðan árangur, og
má gera ráð fyrir að á næstu
árum verði örlög þessarar hug-
myndar ráðin.
Frjálsar rannsðknir
I nýútkominni skýrslu OECD
um orkurannsóknir kemur
fram að mörg hinna stóru olíu-
félaga eru næstum allsráðandi
á sviði rannsókna á nýjum
orkugjöfum. Efnahagslegir
örðugleikar hafa víða valdið því
að hið opinbera hefur þurft að
takmarka fjárveitingar til
slikra rannsóknar, þótt þær
hafi verið auknar mjög frá því
sem áður var.
I skýrslunni er beinlínis
gefið í skyn að rannsóknir oliu-
félaganna megi teljast byggjast
fremur á gróðasjónarmiðum en
samfélagslegum hag. í skýrsl-
unni kemur m.a. fram að
Vestur-Þýskaland er eina V-
Evrópuríkið sem verulega
hefur veitt fé til orkurann-
sókna. Fjárveiting þýsku
stjórnarinnar er ætluð til rann-
sókna á djilpborunartækni.
Iðnaðurinn telur sig ekki
geta snúið sér að hinum nýju og
miklu fjárfestingum sem felast
i nýjum orkuformum. Sama
máli virðist gegna um ríkis-
stjórnir, sem 'skýrsla OECD
gagnrýnir fyrir að taka ekki
nógan þátt í fjármögnun
rannsókna.
1 allt vinna á vegum stóru
iðnaðarfélaganna um 15000 vís-
indamenn. Starfskraftar þeirra
eru illa nýttir ef sjónarmið
gróða eru látin stýra rann-
sóknunum. Frjálsar eru þessar
rannsóknir ekki á meðan svo
er. Þær verða fyrst frjálsar,
þegar fjárveitingar ríkis til
rannsóknarstofnana og skóla
verða auknar í því augnamiði
að efla alhliða, hlutlausar rann-
sóknir á framtíðarorkulindun-
um.
Að tveimur umferðum lokn-
um í Butlertvímenningskeppni
Bridgefélags Reykjavikur er
röð og stig efstu para þessi:
Bragi Erlendsson —
Ríkarður Steinbergsson 139
Simon Símonarson —
Stefán Guðjohnsen 128
Einar Þorfinnsson —
Páll Bergsson 123
Guðmundur Arnarson —
Jón Baldursson 123
Guðmundur Sveinsson —
Þorgeir Eyjólfsson 119
Að auki verðlauna fyrir efstu
sætin, er spilað um titilinn
,,Besta par BR 1976“ en hann er
veittur fyrir besta samanlagða
árangur úr meistaratvímenn-
ingi felágsins og þessari
keppni.
Spilað er á miðvikudögum í
Domus Medica.
XXX
Frá Bridgeklúbbi
Akraness
Akranesmóti í tvímenning er
nú lokið og urðu Akranes-
meistarar þeir Vigfús Sigurðs-
son og Jón Z. Sigríksson, meó
573 stig en meðalskor var 495,
annars var röð efstu para
þannig, en alls tóku 24 pör þátt
i mótinu.
Vigfús — Jón 573
Björgvin — Hermann 551
Bent — Baldur 534
Jón — Valur 528
Karl — Ölafur 524
Hörður — Kjartan 523
Bjarni — Pálmi 522
Björn — Ölafur 513
Ingi — Asgeir 510
Hörður — Guðjón 510
XXX
Aðalsveitakeppni TBK er nú
lokið 1 meistaraflokki og
sigraði sveit Trvggva Gísla-
sonar örugglega, hlaut 133 stig.
1 sveit Trvggva eru ásamt
honum Sigtryggur Sigurðsson,
Sigurjón Trvggvason, Gísli
Trvggvason, Björn Kristjáns-
son og Þórður Elíasson.
Röð sveitanna varð annars
þessi:
Sveit
Bernharðs Guðm.s. 118
Braga Jónssonar 112
Þórhalls Þorst.s. 110
Þórarins Árnasonar 104
Erlu Eyjólfsdóttur 90
Kristjáns Kristj.s. 56
Kristínar Þórðard. 54
Sigríðar Ingibergsd. 50
Kristínar Ölafsd. 48
Fjórar neðstu sveitirnar spila
1 fvrstaflokki að ári.
I siðustu umferð fóru leikar
þannig i meistaraflokki. Sveit
Þórhalls vann
Kristínar Þ. 14—6
Sveit Sigríðar vann
Kristjáns 14—6
Sveit Kristínar Ö. vann
Erlu 11—9
Sveit Bernharðs vann
Tryggva 17—3
Sveit Braga vann
Þórarins 12—5
Úrslit leikja í fvrsta flokki:
Sveit Karls vann
Guðlaugs 14—6
Sveit Rafns vann
Bjarna 20—0
Sveit Gests vann
Arna 18—2
Sveit Gunnars vann
Jósefs 12—8
Leik Ragnars og Ölafs var
frestað.
Keppni er ekki lokið i fvrsta
flokki en staða efstu sveita er
nú þessi:
Sveit
Rafns Kristjánss. 122
Ragnars Oskarss. 118
(Hefir spilað einum leik
færra)
Gests Jónssonar 117
Guðlaugs Brynjólfss. 100
Hannesar Ingibergss. 100
Næsta fimmtudag lýkur
keppninni en þá spilar
meistaraflokkur tvimenning
eins kvölds og eru allir
velkomnir i þá keppni.
Þátttökutilkynningar berist í
sima 16548 eftir kl. 19 á
kvöldin.
XXX
Frá bridgefélagi
Kópavogs
10 umferðum er lokið í sex
kvölda tvimenningskeppni,
barometer og er staða efstu
para þessi:
Armann J. Lárusson —
Sigurður Helgason 192
Jónatan Líndal —
Vilhjálmur Vilhj.s. 142
Ragnar Björnsson —
Sævin Bjarnason 109
Haukur Hannesson —
Valdimar Þórðarson 76
Einar Halldórsson —
Páll Dungal 75
Jóhann Lúthersson —
Arnór Ragnarsson 72
Grímur Thorarensen —
Guðmundur'Pálsson 69
Næstu umferðir verða
spilaðar á fimmtudaginn kem-
ur — Spilað er í Þinghól við
Alfhólsveg.
XXX
Frá bridgedeild Breiðfirðinga-
félagsins.
Þremur kvöldum af sjö er nú
lokið í hinni vinsælu baromet-
erkeppni hjá okkur og er staða
efstu para þessi:
Ingibjörg Halldórsdóttir —
Sigvaldi Þorst.s 277
Einar Arnason —
Þorsteinn Þorst.s.
Halldór Jóhannesson —
Olafur Jónsson 263
Jón Stefánsson —
Þorsteinn Laufdal 221
Magnús Oddsson —
Magnús Halldórsson 175
Jón Magnússon —
Hilmar Olafsson 127
Böðvar Guðmundsson —
Kristján Andrésson 116
Eiríkur Eiríksson —
Ragn ar Bj örn sson 108
Guðjón Kristjánsson —
Þorvaldur Matthíasson 106
Guðrún Bergsdóttir —
Kristjana Steingrímsdóttir
Næsta umferð verður spiluð
á fimmtudaginn kemur kl. 20.
A.G.R.
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
VERÐ
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
ó öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þö, sem
leita að litríkum hillu- og skópasamstæðum,
sem byggja mó upp í einingum, eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ.
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
J L Húsið ^
Híbýlaprýði
Dúna
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Siglufjörður:
Akureyri:
Húsavík:
Selfoss:
Keflavík:
Bólsturgerðin
Augsýn hf.
Hlynur sf.
Kjörhúsgögn
Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HUSGAGNAVERKSMIÐJA